Morgunblaðið - 03.09.2013, Síða 1
ÞRIÐJUDAGUR 3. SEPTEMBER 2013
BÍLAR
Reynsluakstur Porsche 911 hefur
löngum þótt með mögnuðustu sport-
bílum veraldar og nýjasta gerðin svíkur
ekki. Reynsluökumaður fékk
að vera kóngur
í einn dag. 4-5
Síðumúla 19 • Sími 581 1118 • nesradio.is
NÝ
TT
Tryllitæki
F
yrsti eigandi bílsins var
sænski sendiherrann á Ís-
landi árið 1956,“ segir
Magnús Pétursson, ríkis-
sáttasemjari um forláta BMW sem
hann hefur gert upp af natni und-
anfarin ár. „Árið 1960 keypti Eirík-
ur Ásgeirsson, þáverandi forstjóri
Strætisvagna Reykjavíkur og
tengdafaðir minn bílinn af sendi-
herranum. Í handbók bílsins hefur
Eiríkur skrifað: „Vagninn keyptur
8/8/́60 af sænska sendiherranum
þá keyrður 7.821 km“.
Bílinn fékk númerið R- 970, en
þess má geta að það var upp-
haflega á fyrsta strætisvagninum
sem hóf akstur í Reykjavík árið
1931. „Bíllinn þjónaði hlutverki fjöl-
skyldubíls Eiríks í rúm 11 ár, eða
þar til hann fékk sér nýjan bíl árið
1971. Eftir það var bílinn minna
notaður og einungis á tyllidögum.“
Sendiherra af merkum ættum
Áðurnefndur sendiherra Sví-
þjóðar hét Sten Hansson von
Euler-Chelpin f. 1903. Sten var
sonur Hans Karl August Simon
von Euler-Chelpin (1873-1964)
sem fæddist í Þýskalandi, ólst þar
upp og lærði þar til hann hóf störf
við háskólann í Stokkhólmi. Hans
er meðal þekktustu vísindamanna
Svía og hlaut Nóbelsverðlaun í
efnafræði 1929 fyrir rannsóknir á
gerjun sykurs og áhrifum vítam-
ína. „Sten átti bæði alsystkini og
hálfsystkini en þekktast þeirra er
Ulf f. 1905 sem hlaut Nóbels-
verðlaun í læknisfræði 1970,“ rek-
ur Magnús um fyrsta eiganda bíls-
ins. „Sendiherrann kom víða við á
starfsævinni. Hann nam lögfræði,
gekk í utanríkisþjónustuna og
starfaði sem yfirlögfræðingur við
sendiráðið í Moskvu 1938 og starf-
aði í utanríkisþjónustunni heima
þar til hann fór til Búkarest 1944.
Síðan var hann yfirmaður lög-
fræðimála í sendiráðinu í Río de
Janeiro 1947-1952 og fór aftur til
Moskvu og var þar á árunum 1952-
1955. Hann er fyrst „envojé“ eða
sendifulltrúi á Íslandi 1955 og
sendiherra 1955-1961. Þá lætur
hann af störfum.“
Keyptur fyrir fimm krónur
Árið 1974 eignuðust Hildur
Eiríksdóttir og Magnús bílinn. „Um
málamyndakaup var að ræða.
Andvirði bílsins var alls 5 kr. og var
greitt í fimmeyringum,“ segir
Magnús. Í handbók bílsins hefur
Magnús skrifað: „Vagninn keyptur
af Eiríki 23/12/ ’70 þá keyrður
185.158“. Bílnum var lagt árið 1976
og settur í geymslu.“
Að sögn Magnúsar hefur bílinn
verið gerður upp í áföngum frá
árinu 1988. Smíða þurfti upp stór-
an hluta af burðarvirki og gólfi bíls-
ins. „Klæðningar allar og sæti voru
færðar sem næst uppruna. Ýmsir
hlutir hafa verið fáanlegir nýir úr
upprunalegri framleiðslu eða
framleiðslu sérstaklega fyrir
gamla bíla. Í öðrum tilvikum hefur
þurft að smíða hluti og í nokkrum
tilvikum hefur tekist að útvega
notaða hluti úr bílum sömu gerð-
ar,“ segir Magnús um framvind-
una. Til er partalisti „Automobil Er-
satzteilliste“ fyrir bílinn sem út var
gefinn í janúar 1959. „Þessi listi
hefur komið að góðum notum en
listinn bjargaðist illa brunninn úr
stórbruna sem varð hjá SVR á
Kirkjustandi 15. júlí 1970,“ segir
Magnús.
„Fyrirtækið Elke Theis í Iserlohn
í Þýskalandi hefur þá verið einkar
hjálplegt við að útvega nauðsyn-
lega varahluti, ýmist nýja eða not-
aða.“ Bíllinn var svo fyrst sýndur
uppgerður á landsmóti Forn-
bílaklúbbs Íslands (FBÍ) dagana
21.-23. júní 2013.
Fágætur fákur
Bílar af gerðinni BMW 501 voru
framleiddir á árunum 1952 til
1958. Bílinn var fyrst kynntur á
Frankfurt bílasýningunni í apríl
1951 og var fyrsta framleiðsla
BMW eftir lok síðari heimsstyrjald-
arinnar. „Bíllinn kostaði um 15.000
þýsk mörk sem samsvaraði fjór-
földum árslaunum verkafólks,“ út-
skýrir Magnús. „Meðal almennings
gekk bíllinn undir nafninu „Barrok
engillinn“ með vísan í mjúkar útlín-
ur hans, en bíllinn var teiknaður af
Peter Schimanowski. Alls voru
framleiddar þrjár „kynslóðir“ af
501 bílnum sem allar byggðust á
sömu grind og yfirbyggingu en
með mismunandi vélum. Sá sem
hér um ræðir er þriðja kynslóð
bílsins. R-970 er númer 16.708 og
því með þeim síðustu sem fram-
leiddir voru. Framleiðslunúmer
bílsins þ.e. Fahrgetstell-nr. er 46-
707.“
BMW 501 og 502 eru að sögn
Magnúsar fátíðir nú orðið. „Flestir
þeirra bíla sem til eru og viðhaldið
eru í Þýskalandi og Bandaríkjunum
NA. Fullvíst má telja að þessi bíll sé
sá eini sinnar tegundar sem fluttur
hefur verið til Íslands.“ Aðspurður
um það hvers vegna hann hafi
staðið í því að gera BMW-inn upp
af jafnmikilli natni og raun ber vitni
segir Magnús þetta hafi einfald-
lega verið ágætis dægradvöl og til-
breyting frá hinum daglegu störf-
um. Afraksturinn er að sönnu
aðdáunarverður.
jonagnar@mbl.is
Magnús Pétursson hefur gert upp gullfallegan BMW frá árinu 1956
Dýrgripur með drjúga sögu
Morgunblaðið/Ómar
Þetta hefur verið ágætis dægradvöl, segir Magnús sem gert hefur upp glæsilegan BMW 501 frá 1956.
BMW-inn er sem nýr að sjá þó hann nálgist sextugt. Magnús Pétursson
hefur staðið í uppgerð með hléum frá árinu 1988, með góðum árangri.