Morgunblaðið - 30.09.2013, Síða 2
Í EYJUM
Júlíus Ingason
sport@mbl.is
Svavar Vignisson, annar tveggja
þjálfara ÍBV, var stoltur af sínu liði
eftir sigurinn á Íslandsmeisturum
Fram, 26:20, í annarri umferð Olís-
deildar kvenna í handknattleik í
Vestmannaeyjum á laugardag. ÍBV
fékk þar með sín fyrstu stig eftir að
hafa tapað fyrir Val í fyrstu umferð-
inni.
„Við sáum leikjaprógrammið og
vissum að þetta gæti orðið erfitt í
byrjun. Við byrjuðum gegn Val á
útivelli og áttum svo Fram hér
heima en þetta hafa verið tvö lang-
bestu liðin undanfarin ár. Auk þess
erum við með gjörbreytt lið og ung-
ar stelpur í hópnum. Fram hefur
líka misst sterka leikmenn en hefur
spilað vel í aðdraganda móts og er
með sterkt lið. Þess vegna erum við
Gulli [Jón Gunnlaugur Viggósson,
hinn þjálfari ÍBV] að rifna úr stolti
eftir þennan leik. Það var virkilega
sætt að vinna Fram með jafnsann-
færandi hætti og við gerðum enda
hafa Framarar oft farið illa með
okkur,“ sagði Svavar við Morg-
unblaðið eftir leikinn.
Ertu sáttur við spilamennskuna í
þessum leik?
„Já, það er ekki hægt annað. Mér
fannst fínt jafnvægi á þessu hjá
okkur í vörn og sókn. Við Gulli
náum vel saman og það er mikill
fengur fyrir ÍBV að hafa fengið
jafnmetnaðarfullan og skipulagðan
þjálfara til félagsins. Við erum með
mikið breytt lið en spiluðum vel.
Ungu stelpurnar í hópnum valda
aukinni ábyrgð. Díana Magn-
úsdóttir er t.d. aðeins sextán ára en
er að eigna sér hægra hornið með
góðri frammistöðu í fyrstu tveimur
leikjunum. Portúgölsku stelpurnar
tvær falla vel inn í liðið og Ester
Óskarsdóttir hefur líklega aldrei
verið í betra formi enda æfði hún
stíft í sumar. En að öðrum ólöst-
uðum var Dröfn Haraldsdóttir
markvörður best í dag. Hún sneri
aftur heim fyrir þetta tímabil og
hún styrkir liðið mikið,“ sagði Svav-
ar.
Valur, Stjarnan og Fylkir
með fullt hús stiga
Þrjú lið hafa unnið tvo fyrstu leiki
sína í deildinni, Valur, Stjarnan og
Fylkir, en önnur umferðin var öll
spiluð á laugardaginn.
Valur var ekki í vandræðum með
Selfoss á Hliðarenda og vann 28:14
eftir 12:7 í hálfleik. Karólína Bæ-
hrenz skoraði sex mörk fyrir Val og
Kara Rún Árnadóttir fimm fyrir
Selfoss.
Stjarnan vann FH 28:21 í Mýrinni
eftir 15:10 í hálfleik. Helena Rut
Örvarsdóttir skoraði átta mörk fyrir
Stjörnuna og Steinunn Snorradóttir
sjö fyrir FH.
Fylkir gerði góða ferð á Seltjarn-
arnesið og vann þar Gróttu, 26:22.
Díana Kristín Sigmarsdóttir skoraði
níu mörk fyrir Selfoss en þær Anett
Köbli og Þórunn Friðriksdóttir
gerðu sex hvor fyrir Gróttu.
HK vann Hauka í Digranesi,
25:18, eftir 12:9 í hálfleik. Guðrún
Erla Bjarnadóttir skoraði fimm
mörk fyrir HK og Karen Díönu-
dóttir fjögur fyrir Hauka.
KA/Þór fékk sín fyrstu stig með
því að vinna Aftureldingu á Akur-
eyri, 31:23. Martha Hermannsdóttir
skoraði 10 mörk fyrir KA/Þór og
Hekla Daðadóttir 10 fyrir Mosfell-
inga. KA/Þór er nú með lið í deild-
inni á ný eftir eins árs fjarveru.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Öflug Drífa Þorvaldsdóttir skoraði fimm mörk fyrir Eyjakonur gegn Fram
á laugardaginn. ÍBV er með tvö stig eftir að hafa mætt tveimur toppliðum.
„Erum að rifna úr stolti“
Sannfærandi sigur ÍBV á meisturum
Fram Dröfn var góð í markinu
2 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. SEPTEMBER 2013
Íþróttir Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík, sími 5691100, netfang sport@mbl. is
Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Víðir Sigurðsson, vs@mbl. is Auglýsingar sími 5691111 netfang
augl@mbl. is Bréfsími 5691110 Prentun Landsprent ehf.
Olís-deild kvenna
ÍBV – Fram........................................... 26:20
Mörk ÍBV: Ester Óskarsdóttir 7, Vera
Lopes 6, Drífa Þorvaldsdóttir 5, Díana
Magnúsdóttir 3, Telma Amado 1, Guðbjörg
Guðmannsdóttir 1, Þórsteina Sigurbjörns-
dóttir 1, Ásta Björg Júlíusdóttir 1.
Mörk Fram: Sigurbjörg Jóhannsdóttir 5,
María Karlsdóttir 3, Hafdís Shizuka Iura 3,
Ragnheiður Júlíusdóttir 3, Hekla Rún
Ámundadóttir 2, Ásta Birna Gunnarsdóttir
1, Elva Þóra Arnardóttir 1, Marthe Sördal
1, Steinunn Björnsdóttir 1.
Stjarnan – FH ...................................... 28:21
Mörk Stjörnunnar: Helena Rut Örvars-
dóttir 8, Sólveig Lára Kjærnested 5, Est-
her V. Ragnarsdóttir 4, Hanna Guðrún
Stefánsdóttir 4, Jóna Margrét Ragnars-
dóttir 2, Sandra Sif Sigurjónsdóttir 2, Hild-
ur Harðardóttir 1, Þórhildur Gunnarsdótt-
ir 1, Andrea Valdimarsdóttir 1.
Mörk FH: Steinunn Snorradóttir 7, Heiðdís
Rún Guðmundsdóttir 5, Sigrún Jóhanns-
dóttir 2, Aníta Mjöll Ægisdóttir 2, Helga S.
Magnúsdóttir 2, Berglind Ósk Björgvins-
dóttir 1, Rakel Sigurðardóttir 1, Hulda B.
Tryggvadóttir 1.
Grótta – Fylkir..................................... 22:26
Mörk Gróttu: Anett Köbli 6, Þórunn Frið-
riksdóttir 6, Lene Burmo 5, Unnur Ómars-
dóttir 2, Eva Björk Davíðsdóttir 2, Sóley
Arnardóttir 1.
Mörk Fylkis: Díana Kristín Sigmarsdóttir
9, Auður G. Pálsdóttir 7, Vera Pálsdóttir 4,
Thea Imani Sturludóttir 4, Hildur Karen
Þorsteinsdóttir 2.
HK – Haukar ........................................ 25:18
Mörk HK: Guðrún Erla Bjarnadóttir 5,
Sigríður Hauksdóttir 4, Nataly Sæunn Val-
encia 4, Þórhildur B. Þórðardóttir 4, Sóley
Ívarsdóttir 3, Fanney Þóra Þórsdóttir 2,
Anna María Guðmundsdóttir 2, Anita
Björk Bárðardóttir 1.
Mörk Hauka: Karen Díönudóttir 4, Gunn-
hildur Pétursdóttir 3, Kolbrún Gígja Ein-
arsdóttir 3, Silja Ísberg 2, Áróra Eir Páls-
dóttir 2, Marija Gedroit 2, Viktoría
Valdimarsdóttir 1, Herdís Hallsdóttir 1.
Valur – Selfoss ..................................... 28:14
Mörk Vals: Karólína B. Lárudóttir 6, Re-
bekka Rut Skúladóttir 4, Hrafnhildur Ósk
Skúladóttir 4, Marinela Ana Gherman 3,
Aðalheiður Hreinsdóttir 2, Kristín Guð-
mundsdóttir 2, Íris Ásta Pétursdóttir 2,
Bryndís Elín Wöhler 2, Vigdís Birna Þor-
steinsdóttir 1, Morgan Marie Þorkelsdóttir
1, Guðrún Lilja Gunnarsdóttir 1.
Mörk Selfoss: Kara Rún Árnadóttir 5, Þur-
íður Guðjónsdóttir 2, Hrafnhildur H. Þrast-
ardóttir 1, Hildur Einarsdóttir 1, Thelma
Sif Kristjánsdóttir 1, Helga Rún Einars-
dóttir 1, Hulda Dís Þrastardóttir 1, Tinna
S. Traustadóttir 1, Dagmar Einarsdóttir 1.
KA/Þór – Afturelding ........................ 31:23
Mörk KA/Þórs: Martha Hermannsdóttir
10, Katrín Vilhjálmsdóttir 5, Birta Fönn
Sveinsdóttir 4, Simone Pedersen 3, Arna
Valgerður Erlingsdóttir 3, Lilja Sif Þór-
isdóttir 3, Erla H. Tryggvadóttir 2, Klara
F. Stefánsdóttir 1.
Mörk Aftureldingar: Hekla Daðadóttir 10,
Nóra Csákovics 4, Sara Kristjánsdóttir 4,
Monica Bodai 3, Vigdís Brandsdóttir 2.
Staðan:
Valur 2 2 0 0 55:34 4
Stjarnan 2 2 0 0 62:47 4
Fylkir 2 2 0 0 47:41 4
ÍBV 2 1 0 1 45:47 2
Grótta 2 1 0 1 43:45 2
Selfoss 2 1 0 1 39:52 2
KA/Þór 2 1 0 1 55:48 2
HK 2 1 0 1 44:39 2
Fram 2 1 0 1 41:43 2
Afturelding 2 0 0 2 42:52 0
FH 2 0 0 2 39:49 0
Haukar 2 0 0 2 44:59 0
Danmörk
Tvis Holstebro – Midtjylland ............. 23:23
Rut Jónsdóttir lék ekki með Tvis Holste-
bro vegna fingurbrots.
Randers – SönderjyskE ..................... 31:16
Stella Sigurðardóttir skoraði sex mörk
fyrir SönderjyskE, Karen Knútsdóttir eitt
en Ramúne Pekarskyte ekkert. Ágúst Þór
Jóhannsson þjálfar liðið sem er neðst.
Noregur
Fredrikstad – Levanger ..................... 25:20
Nína Björk Arnfinnsdóttir skoraði eitt
mark fyrir Levanger sem er án stiga eftir
þrjá leiki.
Byåsen – Flint/Tönsberg ................... 36:15
Brynja Magnúsdóttir skoraði eitt mark
fyrir Flint/Tönsberg en Þorgerður Anna
Atladaóttir lék ekki með. Liðið er án stiga
eftir þrjá leiki.
Vipers Kristiansand – Storhamar..... 16:26
Þórey Rósa Stefánsdóttir skoraði eitt
mark fyrir Vipers Kristiansand sem er án
stiga eftir þrjá leiki.
Alfreð Örn Finnsson þjálfar Storhamar
sem er með sex stig eftir þrjá leiki.
Svíþjóð
Sävehof – Skövde ................................ 31:27
Birna Berg Haraldsdóttir skoraði tvö
mörk fyrir Sävehof sem er efst með átta
stig eftir fjóra leiki.
HANDBOLTI
Valsstúlkur unnu Hauka 64:63 í úrslitaleik deildabikars kvenna í körfu-
bolta í Njarðvík gær. Mestur var munurinn 20 stig en Haukastúlkur söxuðu
á forskotið þegar leið á. Herslumuninn vantaði og skildi eitt stig liðin að.
Ragna Margrét Brynjarsdóttir skoraði 13 stig fyrir Val og tók 10 fráköst.
Lele Hardy átti stórleik hjá Haukum, skoraði 28 stig og tók 25 fráköst.
Ljósmynd/Skúli B. Sigurðsson
Valsstúlkur mörðu Hauka
Bikarinn Þórunn Bjarnadóttir fyrirliði Valskvenna lyftir bikarnum.
Keflavík vann öruggan sigur á KR í úrslitaleik deildabikars karla í körfu-
bolta sem fram fór í Njarðvík í gær. Keflvíkingar höfðu tögl og hagldir all-
an tímann, juku forskot sitt jafnt og þétt og unnu að lokum stórsigur, 89:58.
Michael Craion var atkvæðamestur hjá Keflavík með 21 stig og 13 fráköst,
en hjá KR skoraði Helgi Már Magnússon 15 stig og tók fjögur fráköst.
Ljósmynd/Skúli B. Sigurðsson
Öruggur sigur Keflvíkinga
Bikarinn Magnús Þór Gunnarsson fyrirliði Keflvíkinga lyftir bikarnum.