Morgunblaðið - 30.09.2013, Side 4

Morgunblaðið - 30.09.2013, Side 4
4 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. SEPTEMBER 2013 manna hrundi til grunna. Sókn- arleikur heimamanna var tilþrifalítill og Patrekur Jóhann- esson, þjálfari Hauka, hafði greini- lega fundið réttu leiðina í gegnum framliggjandi vörn ÍBV. Sig- urbergur Sveinsson fór fyrir sínum mönnum í seinni hálfleik og skoraði mörg glæsileg mörk. Ekki skánaði ástandið fyrir Eyjamenn þegar sterkasti varnarmaður þeirra, Sindri Haraldsson fékk að líta rauða spjaldið fyrir brot á Sigurbergi um miðjan síðari hálfleikinn. Allt of mörg mörk „Ég veit ekki alveg hvað gerðist. Ég fór upp á móti Sigurbergi og fór í andlitið á honum. En þetta var al- gjört óviljaverk,“ sagði Sindri í leikslok. Hvað olli þessu hruni hjá ykkur í seinni hálfleik? „Ég veit ekki hvað skal segja. Við fáum á okkur 20 mörk í seinni hálf- leik og það á ekki að þekkjast, sér- staklega ekki fyrir framan fullt hús. Það er klisja að segja að þetta sé eðlilegt hjá nýliðum, að brotna svona í einhverjum leikjum. En ég tel okk- ur vera með betra lið en flest önnur í deildinni. En deildin er jöfn og lið munu reyta stig hvert af öðru.“ Haukar keyrðu yfir ÍBV  Jafnt í hálfleik en Haukar unnu samt með 12 marka mun  Sigurbergur frá- bær í seinni hálfleiknum  Sindri fékk rauða spjaldið, segir brotið óviljaverk Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja, Olís- deild karla, laugardag 28. sept. 2013. Gangur leiksins: 1:0, 1:4, 5:6, 8:10, 10:10, 11:11, 13:16, 14:18, 15:20, 16:24, 18:30. Mörk ÍBV: Andri Heimir Friðriksson 4, Filip Scepanovic 3, Agnar Smári Jónsson 2, Matjaz Mlakar 2, Theodór Sigurbjörnsson 2/2, Grétar Eyþórs- son 2, Magnús Stefánsson 1, Róbert Aron Hostert 1, Guðni Ingvarsson 1. Varin skot: 10 (þar af 4 aftur til mótherja). Utan vallar: 12 mínútur Mörk Hauka: Sigurbergur Sveinsson 11/4, Árni Steinn Steinþórsson 4, Þórður Rafn Guðmundsson 4, Tjörvi Þorgeirsson 3, Elías Már Halldórsson 3, Jón Þorbjörn Jóhannsson 2, Brynjólfur Snær Brynjólfsson 2, Ein- ar Pétur Pétursson 1. Varin skot: Giedrius Morkunas 21 (þar af 7 aftur til mótherja). Utan vallar: 6 mínútur. Dómarar: Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson. Áhorfendur: 494. ÍBV – Haukar 18:30 arfjórðunginn á meðan samherjar hans svöruðu með níu mörkum hin- um megin vallarins á sama tíma. Lokatölur 27:23, fyrir ÍR eftir að liðið hafði verið með eins marks for- skot að loknum jöfnum fyrri hálf- leik, 14:13, þar sem sjaldnast mun- aði meira en einu marki á liðunum. „Ég er bara hundsvekktur yfir að hafa tapað þessum leik,“ sagði Heimir Örn Árnason, annar þjálfara Akureyrar, í leikslok. Hann mátti sannarlega vera það þar sem leik- menn hans höfðu í fullu tré við ÍR- inga í nærri 50 mínútur. Allt virtist stefna í jafnan og spennandi loka- kafla þegar Kristófer Fannar tók til sinna ráða og varði allt hvað af tók. Alls varði hann 21 skot, þar af nærri helming á síðasta stund- arfjórðungnum. Talsverðar breytingar hafa átt sér stað á liði Akureyrar. Ungir menn eru komnir með stærra hlut- verk en áður s.s. Valþór Guðrún- arson og Sigþór Heimisson. Þá hef- ur hornamaðurinn Kristján Orri Jóhannsson styrkt liðið mikið. Hann nýtir færi sín vel. Markvörðurinn Jovan Kukobat hefur sótt í sig veðr- ið frá síðustu leiktíð. Í heildina lítur Akureyrarliðið vel út og haldist hópurinn heill verður það ekki í fall- baráttu. ÍR-ingar hafa styrkst frá síðustu leiktíð. Hópurinn er fjölmennari en áður og koma Arnars Birkis Hálf- dánarsonar hefur aukið til muna ógnun liðsins á hægri vængnum. Björgvin Hólmgeirsson var frábær í leiknum með níu mörk, öll með þrumuskotum utan af velli. Borið saman við Fram og HK sem undirritaður sá á fimmtudag- inn þá standa ÍR-ingar og Akureyr- ingar þeim liðum talsvert framar um þessar mundir. Kristófer skellti í lás  ÍR-ingar tapa ekki tveimur heima- leikjum í röð  Björgvin fór á kostum  Bæði lið lofa góðu fyrir leiktíðina Morgunblaðið/Eggert Drjúgur Björgvin Hólmgeirsson skoraði 9 mörk fyrir ÍR og sækir hér að vörn Akureyrar þar sem Gunnar Þórsson og Hreinn Hauksson eru til varnar. Austurberg, úrvalsdeild karla, Olís- deildin, laugardaginn 28. sept. 2013. Gangur leiksins: 0:1, 1:1, 1:3, 5.6, 8:7, 11:10, 14:13, 15:13, 17:15, 17:18, 18:19, 20:20, 23:20, 24:22, 27:23. Mörk ÍR: Björgvin Hólmgeirsson 9, Sturla Ásgeirsson 6/1, Arnar Birkir Hálfdánarson 5, Jón Heiðar Gunn- arsson 4, Sigurjón F. Björnsson 2, Guðni Már Kristinsson 1. Varin skot: Kristófer F. Guðmunds- son 21/1 (þar af 9 til mótherja). Utan vallar: 6 mínútur. Mörk Akureyrar: Kristján Orri Jó- hannsson 6, Valþór Guðrúnarson 6/2, Þrándur Gíslason 4, Bjarni Fritz- son 4, Sigþór Heimisson 2, Gunnar Malmquist Þórsson 1. Varin skot: Jovan Kukubat 16/1 (þar af 7 til mótherja). Tomas Olason 3. Utan vallar: 8 mínútur. Dómarar: Svavar Pétursson og Arn- ar Sigurjónsson. Áhorfendur: 250. ÍR – Akureyri 27:23 Í AUSTURBERGI Ívar Benediktsson iben@mbl.is Eftir að hafa tapað á heimavelli í fyrstu umferð Olís-deildarinnar í handknattleik karla voru leikmenn ÍR-inga ákveðnir í að slíkt end- urtæki sig ekki þegar þeir tóku á móti leikmönnum Akureyrar hand- boltafélags á nýparketlögðum keppnisvellinum í íþróttahúsinu í Austurbergi á síðasta laugardag. Lengi, lengi leit þó út fyrir að gest- irnir gætu alveg eins og heimamenn hirt sigurinn. Svo fór þó ekki því síðustu 12 til 14 mínútur leiksins voru heimamenn sterkari. Vörn þeirra var góð og markvörðurinn Kristófer Fannar Guðmundsson varði allt hvað af tók, fékk aðeins á sig fjögur mörk síðasta stund- Olís-deild karla ÍBV – Haukar ........................................ 18:30 ÍR – Akureyri......................................... 27:23 Staðan: FH 2 1 1 0 46:43 3 Haukar 2 1 0 1 52:45 2 Valur 2 1 0 1 48:46 2 Akureyri 2 1 0 1 48:45 2 ÍR 2 1 0 1 49:53 2 ÍBV 2 1 0 1 48:52 2 Fram 2 1 0 1 47:48 2 HK 2 0 1 1 45:51 1 1. deild karla ÍH – Fjölnir ............................................ 26:21 Hamrarnir – Þróttur ............................. 28:26 Staðan: Afturelding 2 2 0 0 53:33 4 ÍH 2 2 0 0 55:44 4 Selfoss 1 1 0 0 34:25 2 Stjarnan 1 1 0 0 23:17 2 Grótta 2 1 0 1 52:48 2 Hamrarnir 1 1 0 0 28:26 2 Fjölnir 2 1 0 1 51:51 2 KR 1 0 0 1 17:23 0 Þróttur 2 0 0 2 49:57 0 Fylkir 2 0 0 2 48:67 0 Víkingur 2 0 0 2 39:58 0 Þýskaland A-DEILD: Flensburg – Füchse Berlín.................. 26:26  Ólafur Gústafsson skoraði ekki fyrir Flensburg.  Dagur Sigurðsson þjálfar Füchse. Minden – Bergischer............................ 29:29  Vignir Svavarsson skoraði ekki fyrir Minden.  Björgvin Páll Gústavsson ver mark Berg- ischer en Arnór Þór Gunnarsson er frá keppni vegna meiðsla. Göppingen – Emsdetten ...................... 41:41  Ernir Hrafn Arnarson skoraði eitt mark fyrir Emsdetten en Oddur Gretarsson ekk- ert. Ólafur Bjarki Ragnarsson lék ekki með. Eisenach – N-Lübbecke ...................... 29:32  Bjarki Már Elísson skoraði sjö mörk fyr- ir Eisenach og Hannes Jón Jónsson þrjú. Aðalsteinn Eyjólfsson þjálfar liðið. Staðan: Kiel 7 7 0 0 224:182 14 RN Löwen 7 5 2 0 215:167 12 Füchse Berlín 7 5 1 1 201:170 11 Bergischer 7 4 1 2 206:196 9 Flensburg 7 4 1 2 179:173 9 H.Burgdorf 7 4 1 2 196:203 9 Hamburg 6 4 0 2 191:183 8 Melsungen 8 4 0 4 242:241 8 Lemgo 7 3 2 2 218:221 8 Magdeburg 7 3 1 3 210:204 7 N-Lübbecke 6 3 0 3 169:167 6 Göppingen 7 2 1 4 202:202 5 Gummersbach 8 2 1 5 216:229 5 Balingen 7 2 0 5 199:215 4 Wetzlar 7 1 1 5 175:189 3 Minden 7 0 3 4 173:196 3 Eisenach 7 1 1 5 183:214 3 Emsdetten 7 1 0 6 172:219 2 B-DEILD: Empor Rostock – Grosswallstadt....... 30:28  Fannar Þór Friðgeirsson skoraði fimm mörk en Sverre Jakobsson fyrirliði ekkert fyrir Grosswallstadt. Leutershausen – Aue ........................... 24:30  Árni Þór Sigtryggsson skoraði þrjú mörk fyrir Aue, Bjarki Már Gunnarsson og Daði Rúnarsson ekkert. Sveinbjörn Pétursson ver mark Aue og Rúnar Sigtryggsson þjálf- ar liðið. Hüttenberg – Tarp-Wanderup ........... 27:19  Bjarni Aron Þórðarson skoraði ekki fyrir Tarp-Wanderup. Danmörk Skanderborg – Nordsjælland ............ 34:25  Anton Rúnarsson skoraði tvö mörk fyrir SönderjyskE og Atli Ævar Ingólfsson tvö. Ribe-Esbjerg – GOG............................. 26:36  Snorri Steinn Guðjónsson skoraði fimm mörk fyrir GOG. Noregur Arendal – Runar ................................... 22:27  Einar Ingi Hrafnsson skoraði fjögur mörk fyrir Arendal. Svíþjóð Önnered – Kristianstad ...................... 23:41  Ólafur A. Guðmundsson skoraði fimm mörk fyrir Kristianstad. Meistaradeild Evrópu Veszprém – RN Löwen ........................ 30:29  Stefán Rafn Sigurmannsson skoraði þrjú mörk fyrir Löwen en Rúnar Kárason og Al- exander Petersson ekkert. Guðmundur Þ. Guðmundsson þjálfar liðið.  Löwen er með eitt stig eftir tvo leiki í A- riðli. Kiel – Kolding ....................................... 29:26  Guðjón Valur Sigurðsson skoraði ekki fyrir Kiel og Aron Pálmarsson lék ekki með vegna meiðsla. Alfreð Gíslason þjálfar liðið. Kielce – Porto ....................................... 35:23  Þórir Ólafsson skoraði tvö mörk fyrir Kielce.  Kielce og Kiel eru bæði með fjögur stig eftir tvo leiki í B-riðli. Metalurg Skopje – París Handball .... 28:26  Róbert Gunnarsson og Ásgeir Örn Hall- grímsson skoruðu ekki fyrir PSG.  París Handball er með tvö stig eftir tvo leiki í C-riðli. HANDBOLTI Í EYJUM Júlíus Ingason sport@mbl.is Haukar unnu sinn fyrsta sigur í Ís- landsmótinu þegar þeir sóttu ÍBV heim til Eyja á laugardaginn. Eyja- menn, sem eru nýliðar í úrvalsdeild- inni, unnu ÍR í fyrstu umferðinni á meðan Haukar töpuðu fyrir Val. Leikurinn var mjög kaflaskiptur en jafnt var í hálfleik, 10:10 en Haukar unnu að lokum, 30:18. Fyrri hálfleikur var nokkuð jafn en gestirnir úr Hafnarfirðinum höfðu undirtökin. Þeir náðu þó aldr- ei að hrista Eyjamenn af sér, sem börðust eins og ljón og náðu að jafna metin áður en flautað var til leikhlés. Í síðari hálfleik var hins vegar allt annað uppi á teningnum. Haukar spiluðu fína vörn og fengu þar af leiðandi nokkur auðveld hraðaupp- hlaupsmörk en spilaborg Eyja-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.