Akureyri


Akureyri - 21.11.2013, Síða 16

Akureyri - 21.11.2013, Síða 16
16 21. nóvember 2013 SIMPLY CLEVER ŠKODA Octavia Combi 4x4 4.890.000,- ŠKODA Octavia Combi er glæsilegur og rúmgóður fjölskyldubíll, hlaðinn staðalbúnaði. Má þar meðal annars nefna nálgunarvara að aftan, 16” álfelgur, fjarstýringar í stýri fyrir útvarp og síma og Bluetooth búnað fyrir síma og tónlist. Þórsstíg 2 · 600 Akureyri · Sími 461 6020 Höldur er umboðsaðili HEKLU á Norðurlandi Nýr SKODA Octavia Combi 4x4. BREIÐARI, LENGRI, LÉTTARI OG HLAÐINN BÚNAÐI AÐSEND GREIN TRYGGVI SVEINBJÖRNSSON “Heima er hund- urinn frakkastur” Í svargrein Sigurðar Guðmundsson- ar bissnessmanns og bæjarfulltrúa á Akureyri sem birtist í síðasta tbl. Í Akureyri vikublaði er hann á ein- hverjum villigötum, því grein mín var aðallega um spillingu innan stjórnkerfis Akureyrarbæjar. Því til stuðnings kom ég með eitt dæmi og spurði spurningar sem ég bíð eftir svari við, en útgangspunkturinn var að menn í atvinnurekstri ættu e.t.v. ekki að vera í bæjarstjórn. Í grein minni nefndi ég umræddan Sig- urð Guðmundsson og svo Odd Helga og nú hefur einn bæst í hópinn að vísu bara varabæjarfulltrúi í máli sem við getum kallað “kaffihúsamálið”. Í þínum huga virðist það vera aukaat- riði og meira segja finnst þér það hið eðlilegasta mál að spilling sé innan bæjarkerfisins eða þú skilgreinir það ekki spillingu þegar þú átt í hlut. Ég ætla ekki að fara djúpt í skiltamálið, en játa það samt að ég hafði ekki hugmynd um þessar skiltareglur bæjarins á þeim tíma. Eftir umræddan laugardag keyrði ég um bæinn og tók myndir af 10 skiltum sem voru ólögleg samkvæmt sömu reglum og hafði ekkert verið amast við þeim fleiri misseri á undan. Varðandi samstarfið við þig vil ég nú bara rifja upp þegar þú tókst hús- ið á leigu, að þá varst þú í samstarfi við fyrirtæki í Reykjavík sem setti inn tilboð um leigu á umræddu húsi og þú fórst á bak við þá og bauðst svo líka lægra af því þú vissir hvað þeir voru að bjóða í. Þú hafðir einnig veður af því að FAB Travel ehf. ætl- aði líka að bjóða í það og því bauð FAB Travel ehf samstarf um að selja ferðir frá húsinu. En þegar á reyndi þá gekk það ekki upp, því þú vildir ekki að við fengjum sérstaka aðstöðu til að selja ferðir (lítið söluborð eða bás) heldur færi það allt í gegnum eitt afgreiðsluborð hjá þér. Það gekk ekki upp þegar álag var mikið, því fólk nennti ekki að bíða í röð eftir að kaupa ferðir það sem margir voru bara að kaupa póstkort eða annað kínverskt drasl. Þá vildir þú selja ferðirnar miklu dýrar en við svo þú fengir hærri krónutölu í umboðslaun. Þegar þú talar um viðskiptahætti veit ég ekki alveg hvað þú átt við, því allt sem selt var inni í húsinu fór í gegnum þitt sölukerfi og þar með talið greiðslur, þú fékkst númeraða miða svo hægt væri að stemma söluna af. FAB Travel ehf sendi síðan reikning til þíns fyrirtækis og dró frá 20% umboðslaun. Að vísu vakti það athygli mína að greiðslurnar komu ekki frá fyrirtæk- inu heldur oftar en ekki frá fyrrver- andi eiginkonu þinni, hvernig sem á því stóð? FAB Travel hefur alltaf tekið við greiðslum með kreditkortum og pen- ingum eins og hver annar sem selur vörur eða þjónustu. Það vatkti einnig athygli mína í grein þinni að þú ferð að skrifa að því er virðist fyrir hönd Hafnar- samlags Norðurlands um eitthvert atvik sem lögregla var kölluð til, en það vill svo til að ég skammast mín ekkert fyrir það atvik sem ég held þú sért að vísa til. Enn síður saknaði ég þín þótt þú hafir ekki verið í bænum, sennilega að veiðum á Þingvallavatni eða á sellufundi með varbæjarfull- trúa Sjálfstæðisflokksins uppi í Lystigarði? Að lokum er það orðið ljóst að bullandi spilling er grasserandi innan bæjarkerfisins sem þú hef- ur berlega opinberað og svo tekur “kaffihússmálið” af allan vafa. Það reynir svo á dómgreind kjósenda á Akureyri hvort “pilsfaldakapítalist- ar” verði kosnir í bæjarstjórn næst- komandi vor. Tryggvi Sveinbjörnsson ÞEIR BRÆÐUR, ARI og Pétur Gunnarssynir, voru kátir á svip þegar hægt var að draga fram vélsleðann úr geymslunni og nægur snjór víða. Ekki skemmdi fyrir að sólin skein. Tryggvi Sveinbjörnsson Að lokum er það orðið ljóst að bullandi spilling er grasserandi innan bæjarkerfisins. STAFRÓFIÐ eftir Hlyn Hallsson Út er komið hjá Flóru og forlagi höf- undanna bókverkið „Stafrófið - Das Alphabet (IS) - The Alphabet (IS)” eftir Hlyn Hallsson. Hlynur hefur áður gefið út nokkr- ar bækur og bókverk og þar má nefna „Myndir - Bilder - Pictures” 2011, „Bíó - Kino - Movies” 2003, „Hér - Hier - Here” 2001, „Landa- mæri – Landesgrenzen – Borderlines” 1998, „Hlynur Hallsson” 1996, „Átta götumyndir frá Akureyri” 1996, „Út frá Ásabyggð” 1992 og „Ljóð Myndir Pappírsflugvélar” 1990. Hlynur hef- ur einnig gefið út tímaritið „BLATT BLAД frá árinu 1994. Stafrófið samanstendur af ís- lensku stöfunum A, Á, B, D, E, É og svo framvegis, dregnum á hverja síðu bókarinnar. „Stafrófið - Das Alphabet (IS) - The Alphabet (IS)” er gefið út í 100 tölusettum og árituðum eintökum og fæst hjá Flóru í Hafnarstræti 90 á Akureyri og hjá Útúrdúr á Hverfis- götu 42 í Reykjavík. a

x

Akureyri

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akureyri
https://timarit.is/publication/1079

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.