Morgunblaðið - 18.12.2013, Blaðsíða 1
FÓTBOLTI
Guðmundur Hilmarsson
gummih@mbl.is
„Já, þetta kom kannski svolítið á
óvart. Ég bjóst ekki við því að hann
yrði rekinn en þessir tveir stóru
skellir á móti Manchester City og
gegn Liverpool um helgina hafa lík-
lega ráðið mestu um að hann var lát-
inn fara,“ sagði Gylfi Þór Sigurðs-
son, leikmaður enska
úrvalsdeildarliðsins Tottenham, við
Morgunblaðið í gær en hann var þá á
leið á æfingu hjá Lundúnaliðinu.
Æfingunni stjórnuðu tveir gamlir
leikmenn Tottenham-liðsins, Tim
Sherwood og Les Ferdinand, en það
kemur í þeirra hlut að stýra liðinu
þar til nýr knattspyrnustjóri verður
ráðinn í stað Portúgalans André Vil-
las-Boas sem var rekinn frá störfum
í fyrradag.
Spila góðan sóknarbolta
„Nú vonar maður bara að það
komi einhver góður í staðinn. Alltaf
þegar stór klúbbur lætur stjórann
fara eru margir nefndir en þar til nýr
stjóri verður ráðinn munu Sherwood
og Ferdinand stjórna liðinu. Fyrsta
æfingin hjá þeim var bara fín og það
kemur í þeirra hlut að velja liðið í
leiknum á móti West Ham. Ég held
að klúbburinn sé meira en nógu góð-
ur til að velja rétta þjálfarann sem
lætur liðið vonandi spila góðan sókn-
arfótbolta sem Tottenham er þekkt
fyrir,“ sagði Gylfi en Tottenham tek-
ur á móti grönnum sínum í West
Ham í átta liða úrslitum ensku
deildabikarkeppninnar á White Hart
Lane í kvöld.
Þjálfaraskiptin hafa verið nokkuð
tíð á White Hart Lane en frá árinu
2000 hafa átta knattspyrnustjórar
verið við stjórnvölinn hjá félaginu.
„Það er kannski svolítið neikvætt
að það hafi verið svona margir stjór-
ar á undanförnum árum en það er
líka jákvætt að félagið vill mikinn ár-
angur. Það er mikill metnaður til
staðar og félagið vill bæta sig,“ segir
Gylfi.
Aldrei ánægður þegar
menn missa vinuna
Gylfi Þór tók þátt í 12 af 16 leikj-
um Tottenham í ensku úrvalsdeild-
inni undir stjórn André Villas-Boas.
Í sjö þessara leikja var Gylfi í byrj-
unarliðinu en mörgum hefur fundist
að Gylfi hafi ekki fengið næg tæki-
færi undir stjórn Portúgalans.
Spurður hvort hann sé ánægður
með að Villas-Boas hafi nú lokið
störfum fyrir félagið sagði Gylfi:
„Maður getur aldrei verið ánægð-
ur þegar einhver missir starfið sitt
en það er nú þannig í þessu að maður
vill alltaf fá að spila sem mest. Ég hef
spilað svolítið lengi úti á vinstri kant-
inum sem er ekki alveg mín staða.
Það er allt í lagi að gera það í ein-
hvern tíma en ég vona að með nýjum
manni þá fái ég að spila meira inni á
miðjunni. Ég fékk einn og einn leik í
minni stöðu þegar Villas-Boas var við
stjórnvölinn, ég hefði viljað fá fleiri í
röð,“ sagði Gylfi.
„Villas-Boas breytti liðinu oft mik-
ið á milli leikja og var oft að breyta
liðinu þrátt fyrir að liðið hefði unnið.
Það komu margir nýir leikmenn til
félagsins í sumar og þetta var svolítið
erfitt fyrir hann. Hann þurfti að láta
þá spila og það var gríðarleg pressa á
honum. Þetta small ekki alveg saman
hjá honum en þrátt fyrir nokkur
slæm töp á tímabilinu erum við ekki
langt frá toppliðunum.“
Fullkomið ef ég spilaði meira
Áður en Gylfi Þór samdi við Tott-
enham var hann sterklega orðaður
við Liverpool en núverandi stjóri fé-
lagsins, Brendan Rodgers, vildi ólm-
ur fá Gylfa til félagsins eftir að hafa
verið með hann undir sinni stjórn hjá
Swansea. Af og til er Gylfi enn orð-
aður við Liverpool-liðið og nú síðast
fyrir nokkrum dögum. Gylfi var
spurður hvort eitthvað væri til í
þessu.
„Þetta eru bara sögusagnir. Ég er
mjög ánægður hjá Tottenham og
þetta væri alveg fullkomið ef ég
fengi að spila meira. Ég er loksins
kominn í lið sem er mjög stórt á
Englandi og sem spilar í Evr-
ópukeppni. Nú er keppikeflið að
reyna að vinna okkur sæti í Meist-
aradeildinni. Við þurfum bara að
þjappa okkur saman og komast aftur
á sigurbraut. Það er mikið eftir af
mótinu og ef við komust á gott skrið
þá er vel mögulegt að enda í einu af
fjórum efstu sætunum. Við erum
komnir áfram í Evrópudeildinni og
nú er næsta skrefið að tryggja okkur
sæti í undanúrslitum í deildabik-
arnum,“ sagði Gylfi, sem veit ekki
hvort hann verður í byrjunarliðinu á
móti West Ham í kvöld.
„Maður veit ekki hvernig liðinu
verður stillt upp en ég vonast auðvit-
að eftir því að fá að byrja. Ég er al-
veg viss um að þeir Sherwood og
Ferdinand stilli upp nokkuð sterku
liði enda er góður möguleiki á að fá
tvo leiki á Wembley. Þetta er
grannaslagur og við erum ekki búnir
að gleyma leiknum í deildinni fyrr á
tímabilinu þegar við töpuðum, 3:0, á
heimavelli. Það er líka pressa á liðinu
eftir tapið á móti Liverpool og ég trúi
ekki öðru en að menn vilji svara fyrir
það,“ sagði Gylfi en um helgina mæt-
ir Tottenham liði Southampton á úti-
velli í deildinni.
Vonandi einhver góður í staðinn
Gylfi Þór Sigurðsson segist ekki hafa átt von á að André Villas-Boas yrði rekinn Vonast til að fá
að spila meira og þá í sinni stöðu með nýjum stjóra Mikil pressa og of miklar breytingar milli leikja
AFP
Mark Gylfi Þór Sigurðsson skorar gegn Hull City. Hann hefur lítið fengið að spila síðustu vikur þrátt fyrir að hafa
skorað flest mörk, fyrir utan vítaspyrnur, af öllum leikmönnum Tottenham í úrvalsdeildinni á tímabilinu.
MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 2013
ÍÞRÓTTIR
EM 2014 Alexander Petersson spilar ekki með landsliðinu í Danmörku. Berst fyrir framtíð sinni í
handboltanum. Rúnar og Ásgeir taka við keflinu. Mörgu ósvarað áður en endanlegur hópur er valinn. 4
Íþróttir
mbl.is
Íslendingaliðið Sundsvall
Dragons hefur átt erfitt
uppdráttar í sænsku úr-
valsdeildinni í körfuknatt-
leik í vetur og í gær tapaði
liðið fyrir Uppsala, 92:79,
þrátt fyrir að heimamenn
hafi verið án þriggja
sterkra leikmanna.
Hlynur Bæringsson
verður ekki sakaður um
tapið en hann átti stórleik
fyrir Drekana, skoraði 22 stig og tók heil 15
fráköst. Sundsvall hafði einu stigi yfir í hálf-
leik en Uppsala var fimm stigum yfir fyrir
lokaleikhlutann, 69:64.
Ægir Þór Steinarsson er enn frá keppni
hjá Sundsvall vegna meiðsla en Jakob Örn
Sigurðarson skoraði 6 stig og átti 4 stoðsend-
ingar. Sundsvall er í 6. sæti deildarinnar með
16 stig, tveimur stigum á eftir Uppsala sem
er sæti ofar. sindris@mbl.is
Stórleikur Hlyns
dugði ekki til
Hlynur
Bæringsson
Guðmundur Hilmarsson
gummih@mbl.is
Kristinn Jónsson, bakvörðurinn skæði í liði
Breiðabliks, er á leið í atvinnumennskuna
en hann mun ganga í raðir sænska úrvals-
deildarliðsins Brommapojkarna í næsta
mánuði að lokinni læknisskoðun. Breiðablik
og Brommapojkarna hafi komist að sam-
komulagi um lánssamning til eins árs en
sænska liðið hefur eftir þann tíma forkaups-
rétt á leikmanninum. Við sama tilefni hefur
Kristinn framlengt samning sinn við Kópa-
vogsliðið til loka árs 2015.
Kristinn var til skoðunar hjá Bromma-
pojkarna í síðasta mánuði og í kjölfarið
settu forráðamenn félagsins sig í samband
við Blikana.
Kristinn er 23 ára gamall. Hann hefur
verið einn besti vinstri bakvörður landsins
og verið í stóru hlutverki hjá Breiðabliki
undanfarin ár. Hann hefur verið viðloðandi
íslenska A-landsliðið og var í landsliðs-
hópnum í síðustu leikjum liðsins í und-
ankeppni HM sem og í umspilsleikjunum á
móti Króötunum.
Blikarnir sjá þar með á eftir enn einum
leikmanni sínum út í atvinnumennskuna en í
síðustu viku skrifaði miðvörðurinn sterki
Sverrir Ingi Ingason undir samning við
norska úrvalsdeildarliðið Viking. Á und-
anförnum árum hafa margir leikmenn
Breiðabliks horfið á vit atvinumennsk-
unnar.
Brommapojkarna er frá Stokkhólmi og
var nýliði í sænsku úrvalsdeildinni í ár. Lið-
ið náði að halda sér uppi, hafnaði í þrett-
ánda sæti af sextán liðum og náði að sleppa
við umspil eftir baráttu við Íslendingaliðið
Halmstad í lokaumferðinni í haust. Félagið
er þekkt fyrir frábært unglingastarf og hef-
ur alið af sér marga góða knattspyrnumenn.
Magni Fannberg er aðalþjálfari unglinga-
liðs félagsins og var annar tveggja sem
komu til greina fyrr í þessum mánuði þegar
nýr þjálfari aðalliðs félagsins var ráðinn.
Kristinn til liðs við Brommapojkarna
Lykilmaður Kristinn Jónsson hefur gegnt
lykilhlutverki í liði Breiðabliks síðustu ár.