Morgunblaðið - 18.12.2013, Page 4

Morgunblaðið - 18.12.2013, Page 4
4 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 2013 VINTAGE FLÍSAR Nýkomnar Stórhöfða 21 | sími 545 5500 | flis.is Fyrir þá sem elska hönnun SÉRBLAÐ –– Meira fyrir lesendur Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA: Fyrir kl. 12, föstudaginn 20. desember Morgunblaðið gefur út glæsilegt sérblað umHeilsu og lífsstíl föstudaginn 3. janúar Í blaðinu Heilsa og lífsstíll verður kynnt fullt af þeim mögu- leikum sem í boði eru fyrir þá sem stefna á heilsuátak og bættan lífsstíl á nýju ári Heilsa & lífsstíll FRÉTTASKÝRING Ívar Benediktsson iben@mbl.is Ákvörðun Alexanders Peterssonar í gær að gefa ekki kost á sér í íslenska landsliðið í hand- knattleik sem tekur þátt í Evrópumeistara- mótinu í handknattleik í Danmörku í næsta mánuði kom ekki á óvart. Hann hefur árum saman glímt við erfið meiðsli í vinstri öxl sem lítið sem ekkert hefur gengið að ráða bót á. Eftir þessa þrautagöngu virðist ljóst að hann berst fyrir framtíð sinni sem handknattleiks- maður. Aron Kristjánsson, landsliðsþjálfari handknattleik karla, staðfesti það í gær í sam- tali við Morgunblaðið. Ekki má gleyma því að sama staða var uppi fyrir ári. Þá gaf Alexander ekki kost á sér í lið- ið fyrir heimsmeistaramótið. Alexander var með á EM fyrir tveimur árum en tók þá aðeins þátt í þremur fyrstu leikjum íslenska landsliðs- ins í keppninni en sat á meðal varamanna í síð- ari leikjunum þremur. Sagt var að hann væri meiddur en væri til taks. Sannleikurinn var e.t.v. sá að hann var ekki til taks nema að nafn- inu til. Eins og landsliðinu er gríðarlegur missir að Alexander þegar hann er heill heilsu kemur hann að litlu gagni sárþjáður vegna meiðsla sitjandi á varamannabekknum. Þegar svo er komið er best að menn fái að nota tímann til þess að leita sér lækninga. Vænlegra með heila menn Það er vænlegra að fara með menn heila heilsu á stórmót heldur en að vera með meidda menn í hópnum í þeirri von að þeir geti kannski hjálpað til. Nú þegar þetta liggur fyrir og allar vanga- veltur eru á bak og burt varðandi þátttöku Al- exanders er ljóst að Ásgeir Örn Hallgrímsson og Rúnar Kárason munu bera uppi skyttustöð- una hægra megin á vellinum. Þá mun Ásgeir Örn væntanlega taka hlutverk Alexanders í varnarleiknum, í hægri bakvarðarstöðunni. Ásgeir Örn og Rúnar eru báðir heilir heilsu. Ásgeir Örn er reynslumikill og hefur tekið þátt í mörgum stórmótum með landsliðinu, en oftast nær í smærra hlutverki. Hann tók stöðu Alex- anders á HM í fyrra en stóð ekki undir vænt- ingum, hvorki eigin né annarra. Ásgeir Örn hefur lært af þeirri reynslu. Verulegur styrkur í Rúnari Rúnar var meiddur og gat ekki verið með á HM fyrir ári. Nú kemur hann inn af fullum þunga með Ásgeiri. Miðað við stöðuna sem uppi var fyrir ári er ljóst að innkoma Rúnars styrkir liði verulega og eykur á breiddina á hægri vængnum sé tekið mið af HM-liðinu í fyrra þar sem Alexander var heldur ekki með, né heldur Ólafur Stefánsson sem lék síðast með íslenska landsliðinu á stórmóti á Ólympíu- leikunum fyrir hálfu öðru ári. Af þeim 21 leikmanni sem Aron Kristjánsson valdi í gær til æfinga fyrir Evrópumeist- aramótið kom val á engum þeirra á óvart. Aron kýs þó að hafa aðeins tvo markverði í æfingahópnum. Þriðji markvörðurinn úr stóra 28 manna hópnum, Hreiðar Levý Guðmunds- son, verður til taks heima í Noregi og sá fjórði, Daníel Freyr Andrésson, er meiddur og er úr myndinni. Af þessum 21 leikmanni mun Aron velja 16 leikmenn til þess að fara til Danmerkur og leika við landslið Noregs, Ungverjalands og Loftið hreinsað fyrir EM  Alexander berst fyrir framtíð sinni og fer ekki á EM  Rúnar og Ásgeir taka við keflinu  Mörgu ósvarað áður en endanlegur EM-hópur verður valinn Morgunblaðið/Ómar Mikilvægur Rúnar Kárason getur orðið lykilmaður í ís- lenska liðinu í Evrópukeppninni í Danmörku. Ein af mínum uppáhalds- íþróttum að fylgjast með er skíðastökk. Ég hef fylgst ágæt- lega með því núna í um 20 ár eða allt síðan sjónvarpsstöðin Eurosport var fyrst fáanleg á fjölvarpinu. Það er bara eitthvað við það að sjá menn fljúga 130 metra í loftinu og lenda á tveimur skíðum. Mér finnst þetta alltaf jafnklikkað en að sama skapi alltaf jafn- skemmtilegt. Það er líka alltaf gaman að fylgjast með svona ofur einföld- um íþróttum þar sem sá er stekkur lengst vinnur. Vissulega er einkunnagjöf fyrir flugstíl og stökkin eru tvö en í rauninni er þetta afar einfalt. Sá sem stekk- ur lengst hverju sinni er bestur. Hluti af jólavertíðinni hjá mér sem skíðastökksáhuga- manni er auðvitað fjögurra hæða mótið sem fram fer ár- lega í Þýskalandi og Austurríki. Það hefst ávallt undir lok hvers árs og endar snemma á nýju ári. Þar stökkva menn fram af fjórum pöllum á einni viku. Mikil törn og mikil stigasöfnun í gangi í heimsbikarnum. Byrjað er í Oberstdorf í Þýskalandi og síðan er stokkið fram af Grosse Olympiaschanze í Garmisch-Partenkirchen og eftir það er haldið til Austurríkis og keppt í Innsbruck og Bischofshofen. Austurríkismenn hafa drottnað yfir fjögurra hæða mótinu undanfarið og unnið það fimm síðustu ár. Gregor Schlie- renzauer, ríkjandi heimsbikar- meistari, hefur unnið samanlagt undanfarin tvö ár og vann tvö af fjórum mótunum í bæði skiptin. Við stuðningsmenn hins 36 ára gamla Janne Ahonen vonumst til að hann fylgi eftir góðum ár- angri sínum að undanförnu og geri eitthvað óvænt. BAKVÖRÐUR Tómas Þór Þórðarson tomas@mbl.is MARKMENN: Aron Rafn Eðvarðsson, Guif Björgvin Páll Gústavsson, Bergischer AÐRIR LEIKMENN: Arnór Atlason, St. Raphael Aron Pálmarsson, Kiel Árni Steinn Steinþórsson, Haukum Arnór Þór Gunnarsson, Bergischer Ásgeir Örn Hallgrímsson, PSG Bjarki Már Elísson, Eisenach Bjarki Már Gunnarsson, Aue Guðjón Valur Sigurðsson, Kiel Kári Kristján Kristjánsson, Bjerr/Silk. Ólafur Guðmundsson, Kristianstad Ólafur Gústafsson, Flensburg Ólafur Bjarki Ragnarsson, Emsdetten Róbert Gunnarsson, PSG Rúnar Kárason, Burgdorf Snorri Steinn Guðjónsson, GOG Stefán R. Sigurmannsson, Löwen Sverre Jakobsson, Grosswallstadt Vignir Svavarsson, Minden Þórir Ólafsson, Kielce LANDSLIÐSHÓPURINN Spánar í riðlakeppni heimsmeistaramótsins. Þeir fimm sem skornir verða frá eftir keppn- isferðina til Þýskalands 6. janúar munu bíða á hliðarlínunni. Hverjir sitja eftir heima? Það mun örugglega valda landsliðsþjálf- aranum talsverðum heilabrotum hvaða fimm leikmenn af þessum 21 hann skilur eftir heima. Erfitt er að rýna í það í augnablikinu þar sem enn er vel á þriðju viku þangað til. Mikið vatn á eftir að renna til sjávar þangað til. Sem stend- ur glíma a.m.k. tveir leikmenn við vonandi minniháttar meiðsli, þeir Arnór Atlason og Vignir Svavarsson. Margir leikmenn landsliðs- ins hafa leikið of lítið með félagsliðum sínum á keppnistímabilinu af ýmsum ástæðum. Aron á eftir að leita svara við mörgum spurningum áð- ur en hann velur EM-liðið eftir vináttuleikina þrjá við Austurríkismenn, Rússa og Þjóðverja í Þýskalandi 3., 4. og 5. janúar. Margir leikmenn eiga líka eftir að sanna tilverurétt sinn í liðinu á þeim tíma sem framundan er. Það er kannski af hinu góða eins og öll samkeppni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.