Morgunblaðið - 19.12.2013, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 19.12.2013, Blaðsíða 4
4 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. DESEMBER 2013 SÉRBLAÐ –– Meira fyrir lesendur Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA: Fyrir kl. 12, föstudaginn 20. desember Morgunblaðið gefur út glæsilegt sérblað umHeilsu og lífsstíl föstudaginn 3. janúar Í blaðinu Heilsa og lífsstíll verður kynnt fullt af þeim mögu- leikum sem í boði eru fyrir þá sem stefna á heilsuátak og bættan lífsstíl á nýju ári Heilsa & lífsstíll NBA Tómas Þór Þórðarson tomas@mbl.is Gæðamunurinn á austur- og vest- urdeild NBA-körfuboltans hefur sjaldan ef aldrei verið meiri. Þrjú efstu liðin, Indiana Pacers (20:4), Miami Heat (18:6) og Atlanta Hawks (13:12) eru einu liðin í austrinu með fleiri sigra en töp eins galið og það hljómar. Öll hin liðin 12 eru öll með neikvætt sigurhlutfall. Á sama tíma í vestrinu eru níu lið með fleiri sigra en töp, þar af augljóslega öll átta sem eru í úrslitakeppnissætunum. Vegna þessa gífurlega munar kalla sumir spekingar vestanhafs eftir því að ekki fari lengur átta lið úr hvorri deild í úrslitakeppnina heldur einfaldlega 16 bestu liðin, sama hvort fleiri komi úr annarri deild. Eins og staðan er núna myndi það þýða að 11 lið úr vestrinu færu í úrslitakeppnina en aðeins fimm úr austrinu. Sitt sýnist hverjum um þessa hugmynd og fékk Morg- unblaðið því þrjá NBA-spekinga sem fylgst hafa með deildinni um árabil til að segja sína skoðun. Þetta eru þeir Baldur Beck, ritstjóri körfuboltavefsins vinsæla NBA Ís- land, Teitur Örlygsson, þjálfari Stjörnunnar, og Svali Björgvinsson, lýsandi á Stöð 2 Sport. Baldur Beck: „Þetta hefði vissulega nokkra spennandi hluti í för með sér að stokka þetta upp. Til dæmis ef lið sem þekkja hvort annað lítið eins og Chicago og Golden State myndu mætast í fyrstu umferð. Það yrði svolítið skondið. En ég trúi á að þetta jafni sig allt út á endanum. Núna erum við að horfa upp á mesta öfgamun á deildinni sem ég hef séð síðan ég byrjaði að fylgjast með þessu. Vestrið er samt búið að vera betra mjög lengi þó að austrið hafi átt einn og einn meistara eins og Miami, Boston og Detroit. Samt finnst mér ekki tilefni til að fara í róttækar aðgerðir núna því ég man alveg eftir árunum þar sem aust- urdeildin var sterkari. Ætli ég sé ég ekki bara svona íhaldssamur en við sjáum þetta ekki svona ójafnt til lengri tíma held ég.“ Teitur Örlygsson: „Þetta er náttúrlega búið að vera svona í nokkur ár og kannski að toppa núna. Þessa vegna er þetta svona öskrandi áberandi. Maður er sjálfur alltaf blótandi því að vera nær austurdeildinni í tímabelti því maður sér bara einhverja leiki sem maður hefur engan áhuga á að sjá. Á sama tíma eru kannski frábærir leikir í vestrinu en þeir byrja kannski tvö eða þrjú. Ég skil vel þankagang manna og ég held að þetta sé vel framkvæmanlegt. Ég held að þetta sé bara mjög sniðugt og þannig lagað sanngjarnara að bara 16 bestu liðin spili til úrslita.“ Svali Björgvinsson: „Ég held, ef við lítum til sögunnar og heilbrigðrar dómgreindar, burt sé frá stöðunni í dag, og horfum til lengri tíma þá sé þetta fyrirkomulag bara ljómandi gott. Menn þurfa að halda vatni þó að tímabundið sé mik- ið í blöðrunni og ekki stressa sig of mikið þó að munur sé á milli deild- anna núna. Það koma inn í þetta at- riði eins og tímamismunur og það þyrfti að breyta fyrirkomulagi á úr- slitakeppninni ef þú ert að flakka of mikið á milli stranda. Það er allt öðruvísi að spila Miami á móti Bost- on eða Miami á móti Clippers eða Lakers. Ég held þetta sé alls ekki góð hugmynd nema þessi munur á deildunum verði til einhvers lengri tíma en það þyrfti bara að breyta svo miklu. Þetta er fyrirkomulag sem menn þekkja og hefur virkað vel. Það er allavega mín skoðun þó að ég beri virðingu fyrir öðrum skoðunum góðra manna.“ Sjaldan meiri gæðamunur  Mikill munur á austur- og vesturdeild NBA  Aðeins tvö í austurdeildinni með fleiri sigra en töp  Sumir vilja 16 bestu í úrslit  Íslenskir spekingar ósammála AFP Efstir Paul George er lykilmaður hjá Indiana Pacers sem hefur komið á óvart og er með bestan árangur allra liða í NBA-deildinni í vetur. NBA-deildin » Í bandarísku NBA-deildinni í körfubolta leika 30 félög. Fimmtán í vesturdeild og fimmtán í austurdeild. Liðin í sömu deild mætast fjórum sinnum og spila jafnframt tvisvar við hvert lið í hinni deildinni. » Átta efstu lið í hvorri deild að loknum 82 umferðum kom- ast í sextán liða úrslitakeppni um NBA-meistaratitilinn sem hefst í lok apríl. » Ef sextán bestu lið deild- arinnar, eins og staðan er í dag, færu í úrslitakeppnina kæmu ellefu þeirra úr vest- urdeildinni en aðeins fimm úr austurdeildinni. Ef veðurspáin svíkur mig ekki þá er í dag um 23 stiga hiti og heiðskírt í Abu Dhabi, þar sem olíujöfrarnir spóka sig. Þó það sé reyndar skemmtilega jólalegt um að litast hér heima þessa dagana þá efast ég ekki um að í kuldanum hafi hlakkað í nokkrum af bestu leikmönnum Pepsi-deildarinnar í gær, þegar ljóst varð að Ísland myndi mæta Svíum í vináttulandsleik við Persaflóann í janúar. Liðið verður væntanlega nær eingöngu byggt á leikmönnum í Skandinavíu og þarna gefst tækifæri til að prófa nýja leik- menn. Reyndar er ekki víst að mikið pláss verði fyrir leikmenn úr Pepsi-deildinni, Íslendingar í atvinnumennsku annars staðar á Norðurlöndum eru jú í kringum 30 talsins. Það verður spennandi að sjá hverjum Heimir og Lars Lag- erbäck gefa tækifæri til að sanna sig. Björn Daníel Sverrisson og Guðmann Þórisson áttu gott tímabil hér heima og héldu svo í víking, þeir gætu báðir fengið „kallið“. Þá væri gaman að sjá U21-landsliðsmenn á borð við Guðmund Þórarinsson og Sverri Inga Ingason fá tækifæri. Það er grátlegt hvernig komið er fyrir Alexander Pet- erssyni sem þarf stífa meðhöndl- un og mikið magn verkjalyfja til að komast í gegnum leiki með fé- lagsliði sínu. Á stórmótum hefur hann alltaf verið í miklu uppá- haldi á mínu heimili enda ávallt gefið allt sem hann getur í lands- leiki. Það er ekki í boði lengur vegna hundleiðinlegra axlar- meiðsla. Þess vegna fáum við því miður ekki að sjá hann í Dan- mörku nappa boltanum af bestu sóknarmönnum Evrópu, negla honum framhjá bestu markvörð- unum trekk í trekk, og brosa síð- an breitt yfir sætum sigri. BAKVÖRÐUR Sindri Sverrisson sindris@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.