Morgunblaðið - 07.01.2014, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. JANÚAR 2014
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir
Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Ávöxtun einstakra lífeyrissjóða árið
2013 liggur ekki fyrir, en Gunnar
Baldvinsson, formaður Landssam-
taka lífeyrissjóða, segir allt benda til
að ávöxtunin verði almennt góð.
Hann vill ekki nefna neinar tölur
en segir að búast megi við að með-
altal sjóðanna verði yfir vaxtaviðmiði
þeirra annað árið í röð.
Meðalávöxtun var 7,3%
Viðmið um raunávöxtun er 3,5%
en meðalávöxtunin árið 2012 var
7,3%. Að sögn Gunnars er þó ólíklegt
að ávöxtunin fari yfir þá tölu að jafn-
aði. Það geti gerst hjá einstaka sjóð-
um, enda sé eignasamsetning þeirra
mismunandi.
Gunnar segir ýmsar tölur af mark-
aðnum styðja það að ávöxtun sjóð-
anna verði góð. Þannig hafi úrvals-
vísitala hlutabréfa hækkað um 18,9%
á árinu 2013 og heildarvísitalan um
27,9%. Þá hafi heimsvísitala hluta-
bréfa hækkað um rúm 13% í íslensk-
um krónum.
Skuldabréf einnig upp
„Búast má við að skuldabréf líf-
eyrissjóðanna, sem eru metin á
kaupkröfu, hafi hækkað um rúm 7%
á árinu. Séreignarsjóðir meta
skuldabréf á markaðsverði. Skulda-
bréf þeirra hækkuðu minna vegna
hækkunar á ávöxtunarkröfu á mark-
aði,“ segir Gunnar og tekur sem
dæmi að ríkisskuldabréfavísitala
Gamma hafi hækkað um rúm 3% á
árinu.
Ávöxtunin 2013 yfir viðmiði
Formaður Landssamtaka lífeyrissjóða segir stefna í góða raunávöxtun lífeyr-
issjóða árið 2013 Fer þó ekki yfir ávöxtunina 2012 Mikil hækkun hlutabréfa
Hrein raunávöxtun lífeyrissjóðanna 2002-2013
15%
10%
5%
0%
-5%
-10%
-15%
-20%
-25%
3,5% viðmið um ávöxtun
20
02
20
03
20
04
20
05
20
06
20
07
20
08
20
09
20
10
20
11
20
12
20
13
(á
æ
tl.
)
-3,0%
11,3% 10,4%
13,2%
10,2%
0,5%
-22,0%
0,3%
2,7% 2,5%
7,3% 3,5-
6,0%
Fyrstu skipin héldu fyrir helgi til
loðnuleitar og -veiða er Vilhelm Þor-
steinsson, Börkur, Aðalsteinn Jóns-
son og Guðmundur héldu norður
fyrir land. Vart varð við loðnu austur
af Kolbeinsey um 60 mílum vestan
við hólf þar sem heimilt er að nota
troll við loðnuveiðar. Öll voru skipin
búin slíkum veiðarfærum og héldu
því til hafnar í gær og bíða þess að
loðnan gangi austar og inn í troll-
hólfið. Búast má við að skipum fjölgi
á miðunum er líður á vikuna.
Á Hafrannsóknastofnun verður
fylgst með fréttum af göngum loðn-
unnar, en ekki er búist við að rann-
sóknaskip fari út fyrr en eftir ein-
hverja daga. Útgefinn upphafskvóti í
loðnu er 160 þúsund tonn og kemur
liðlega helmingur hans í hlut ís-
lenskra skipa, en tæpur helmingur í
hlut Norðmanna, Grænlendinga og
Færeyinga samkvæmt samningum.
Tvö íslensk skip eru byrjuð á kol-
munnaveiðum, Jón Kjartansson og
Hoffell, og voru í gær 90-100 mílur
suður af Færeyjum ásamt sex fær-
eyskum skipum.
Íslenska sumargotssíldin hefur
lítið gefið sig í Breiðafirðinum síð-
ustu daga, en Jóna Eðvalds og Ás-
grímur Halldórsson frá Hornafirði
leituðu m.a. við Stykkishólm. Haf-
rannsóknastofnun bíður veðurs til að
hægt sé að kanna vísbendingar um
að verulegan hluta stofnsins sé að
finna í Hvammsfirði. Heimaey og
Álsey fengu smærri síld vestan við
Vestmannaeyjar og Birtingur hafði
reynt fyrir sér í Breiðamerkurdýpi.
aij@mbl.is
Fyrstu skipin eru byrjuð á
loðnu- og kolmunnaveiðum
Ljósmynd/Börkur Kjartansson
Loðna Fyrstu skipin reyndu fyrir
sér fyrir norðan land um helgina.
Síldin er erfið
og enn lítill afli
„Þetta eru ansi myndarlegir skaflar,“ sagði Róbert
Schmidt sem býr á Suðureyri við Súgandafjörð.
Hann fór um í gær og tók myndir af sköflum í þorp-
inu.
Róbert sagði að mikill snjór væri í bröttum fjalls-
hlíðum og í brúnum norðan fjarðarins, gegnt þorp-
inu. Hætt er við að þar eigi ófá snjóflóð eftir að
falla fram í sjó.
Mikill snjór er í Súgandafirði og hefur víða dregið í skafla
Ljósmynd/Róbert Schmidt
Stórir skaflar á Suðureyri
Björgunarsveitir Slysavarna-
félagsins Landsbjargar björguðu
erlendum ferðamanni upp úr gjótu
við Öxarárfoss á Þingvöllum í gær.
Slysið átti sér stað þegar snjóbrú
yfir gjótunni gaf sig, með þeim af-
leiðingum að maðurinn hrapaði og
lenti á syllu á um 20-30 metra dýpi.
Ekki sást til mannsins ofan í gjót-
unni en samferðafólk hans gat talað
við hann á meðan hann beið að-
stoðar.
Björgunarsveitir frá Selfossi,
Hveragerði og Mosfellsbæ voru
kallaðar til og var maðurinn hífður
upp, heill á húfi, um klukkan hálf-
fjögur. Alls tóku 25 björgunarmenn
þátt í aðgerðinni.
Bjargað úr gjótu
Við sprunguna Björgunarsveitarmenn
búa sig undir að ná manninum upp.
Karlmaður á þrítugsaldri, Rui
Manuel Mendes Lopes, var í gær
dæmdur í fimm ára fangelsi í Hér-
aðsdómi Reykjaness fyrir tilraun
til manndráps og hótanir. Hann
var einnig dæmdur til að greiða
fórnarlambi sínu 900 þúsund krón-
ur í miskabætur.
Lopes var fundinn sekur um að
hafa lagt til frænda síns með hnífi
í júní 2009, stungið hann marg-
sinnis í brjóst, kvið og útlimi, með
þeim afleiðingum að fórnarlambið
hlaut alls ellefu skurði. Fórn-
arlambið hlaut að auki blæðingu í
kviðvöðva og sár inn í vöðvann,
loft í vinstri nárabláæð, skaða á
slagæð í hægri úlnlið, auk þess
sem sin sem stýrir hægri þum-
alfingri fór í sundur.
Lopes var úrskurðaður í gæslu-
varðhald og farbann 2009 en rauf
farbannið í ágúst sama ár. Hann
var handtekinn í Þýskalandi fjór-
um árum síðar og framseldur til
Íslands 8. nóvember síðastliðinn.
Morgunblaðið/Ómar
Fimm ár
fyrir mann-
drápstilraun
Flúði en var fram-
seldur til Íslands
Komugjöld heilsugæslunnar
hækkuðu um 15-20% um áramótin
og er almennt gjald fyrir komu á
heilsugæslustöð á dagvinnutíma
nú 1.200 krónur en var áður 1.000
krónur. Gjald fyrir komu á heilsu-
gæslustöð utan dagvinnutíma var
2.600 krónur en hefur hækkað í
3.100 krónur.
Gjöld vegna vitjana lækna
hækkuðu sömuleiðis og kostar
vitjun læknis á dagvinnutíma nú
3.400 en áður 2.800 krónur. Vitjun
læknis utan dagvinnutíma, sem
kostaði áður 3.800 krónur, kostar
nú 4.500 krónur. Komu- og vitj-
anagjöldin höfðu fyrir breytinguna
staðið í stað frá 2009.
Komugjöldin
hækkuð
Draga á smám saman úr vindi á
landinu í dag og verður víðast hvar
orðið skaplegt veður á morgun, að
sögn Veðurstofunnar.
Í gærkvöld var enn óvissustig
vegna snjóflóða á norðanverðum
Vestfjörðum.
Enn óvissustig
vegna snjóflóða