Morgunblaðið - 07.01.2014, Blaðsíða 21
MINNINGAR 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. JANÚAR 2014
✝ Þorvarður Þor-varðarson
fæddist 24.7. 1927 í
Hafnarfirði. Hann
lést á hjúkr-
unarheimilinu Eir
sunudaginn 29.12.
2013. Foreldrar
Þorvarðar voru
Þorvarður Þor-
varðarson verk-
stjóri, f. 31.10.
1893, d. 1.7. 1963,
og Geirþrúður Þórðardóttir,
húsfreyja í Hafnarfirði, f. 31.1.
1893, d. 10.2. 1967. Systkini Þor-
varðar eru: Elín, f. 13.3. 1921,
Þóra Abigael, f. 20.8. 1922, d.
22.8. 2008, Kristín, f. 9.9. 1924,
Þorgerður, f. 5.11. 1925, d. 3.7.
1981 og Þórður Jón, f. 28.10.
1933, d. 24.11. 1991.
Þorvarður kvæntist Erlu
Lýðsson Hjaltadóttur húsfreyju
hinn 8.7. 1950. Hún fæddist í
Reykjavík, 8.1. 1930. Foreldrar
Erlu voru: Hjalti Lýðsson kaup-
maður, f. 2.4. 1900, d. 16.7. 1976,
og Elvira Pauline Lýðsson, f.
26.6. 1906, d. 25.10. 2005.
Börn Þorvarðar og Erlu eru:
1. Hjalti Elvar matreiðslumeist-
ari, f. 21.11. 1950, maki Erna Ól-
skólanum í Hafnarfirði og starf-
aði hjá Rafha í Hafnarfirði til
1953 þegar hann hóf störf í
Stjörnubíói hjá Hjalta, tengda-
föður sínum. Þorvarður lærði til
sýningarmanns í Stjörnubíói og
tók sýningamannapróf þar.
Ásamt starfi sínu í Stjörnubíói
lagði Þorvarður stund á smáiðn-
að og framleiddi m.a. skápalam-
ir, símaborð og margskonar
leikföng. Árið 1968 tók Þorvarð-
ur við starfi framkvæmdastjóra
Stjörnubíós og starfaði þar til
31.12. 1983. Í ársbyrjun 1984 hóf
Þorvarður sinn eigin rekstur og
keypti útgáfurétti á kvikmynd-
um og sjónvarpsmyndum til
dreifingar á myndböndum. Þor-
varður sinnti eigin rekstri, þar á
meðal rekstri fasteigna á meðan
heilsa entist til en hætti öllum
afskiptum af rekstri og við-
skiptum árið 2007. Þorvarður
og Erla fluttu árið 1963 ásamt
sonum sínum í Brekkugerði 19 í
Reykjavik sem var heimili
þeirra þar til í febrúar 2012.
Þorvarður tók sjálfur mikinn
þátt í byggingu hússins í
Brekkugerði, sem var fyrsta hús
Högnu Sigurðardóttur arkitekts
sem byggt var hér á landi. Árið
1970 keyptu Þorvarður og Erla
jörðina Hellu á Fellsströnd í
Dalasýslu og stunduðu þau þar
frístundabúskap.
Útför Þorvarðar fer fram frá
Grensáskirkju í dag, 7. janúar
2014, og hefst athöfnin kl. 15.
ína Eyjólfsdóttir
hárgreiðslumeistari,
f. 28.12. 1951. Börn
þeirra: a. Eyjólfur
Örn bifreiðarstjóri,
f. 18.11. 1972, maki
Jennifer Hjaltason
kennari, 25.3. 1974.
Börn þeirra: Davíð
Alexander Eyjólfs-
son, f. 5.6. 2005, og
Michael Samuel Eyj-
ólfsson, f. 14.11.
2008, b. Elvar Þór flugstjóri, f.
5.8. 1975, í sambúð með Rakel
Oddsdóttur félagsráðgjafa, f.
12.4. 1978. Sonur þeirra er Hjalti
Theodór, f. 18.3. 2009. Stjúpdæt-
ur Elvars eru: Sara Dögg, f. 25.3.
2002, og Thelma Rut, f. 8.9. 2004.
c. Erla Björk geislafræðingur, f.
2.12. 1981, í sambúð með Bjarka
Ívarssyni, lækni, f. 16.5. 1983. 2.
Örn Þorvarður stjórnmálafræð-
ingur, f. 3.6. 1962, maki Karitas
Kristín Ólafsdóttir sjúkraliði, f.
24.8. 1965. Börn þeirra eru María
Lovísa, f. 26.12. 1997, og Arna
Kristín, f. 27.10. 2003. Stjúpsonur
Arnar er Ólafur Davíð, f. 13.11.
1984.
Þorvarður útskrifaðist með
sveinspróf í rennismíði frá Iðn-
Nú er komið að kveðjustund.
Eftir standa ljúfar minningar um
góðan föður sem gaf svo mikið af
sér.
Pabbi sagði mér margar sög-
ur. Margt kemur upp í hugann
þegar ég rifja þær upp. Fyrst
kemur upp í hugann sagan af því
þegar hann sá mömmu í fyrsta
sinn á dansleik í Rauðhólunum
árið 1946 og heillaðist svo af þess-
ari ungu stúlku, sem síðar átti
eftir að vera lífsförunautur hans í
rúm 63 ár. Svo gagntekinn varð
hann að hann missti af rútunni til
Hafnarfjarðar. Hér gilda sannar-
lega orðin „ást við fyrstu sýn“.
Pabbi var rennismiður og tók
sveinpróf við Iðnskólann í Hafn-
arfirði. Eftir það vann hann í
nokkur ár hjá Rafha í Hafnar-
firði. Árið 1953 hætti pabbi að
vinna hjá Rafha og hóf störf í
Stjörnubíói hjá tengdaföður sín-
um Hjalta Lýðssyni, kaupmanni.
Stjörnubíó var starfsvettvangur
pabba í 30 ár en hann vann þar til
ársloka 1983. Fyrst um sinn að-
stoðaði pabbi afa við rekstur
bíósins en varð framkvæmda-
stjóri þess árið 1968 og sá um
rekstur þess til ársloka 1983.
Samhliða starfi sínu í Stjörnu-
bíói var pabbi með eigin rekstur á
6. áratugnum þar sem iðnmennt-
un hans kom að góðum notum.
Pabbi var með tvo til þrjá menn í
vinnu og aðstoðuðu þeir hann
meðal annars við framleiðslu á
járnlömum, símaborðum, upp-
tökurum og barnaleikföngum.
Mikil eftirspurn var eftir þessum
vörum enda vöruinnflutningur
ekki mikill á þessum tíma. Sam-
hliða rak pabbi söluturn á Grett-
isgötu 64.
Eftir að pabbi hætti störfum í
Stjörnubíói stofnað hann eigið
fyrirtæki og keypti útgáfurétt af
kvikmyndum og sjónvarpsmynd-
um, sem dreift var í myndbanda-
leigur. Þetta var starfsvettvang-
ur pabba til ársins 1996. Eftir það
kom hann m.a. að rekstri Kaffi
Puccini sem fjölskyldan átti og
rak til ársins 2001.
Sumarið 1970 keyptu pabbi og
mamma jörðina Hellu á Fells-
strönd. Allt frá þeim tíma var
Hella paradís þeirra og vörðu
þau öllum frítíma sínum þar og
lögðu stund á frístundabúskap.
Enn á ný mátti sjá hvernig öll
þau verk sem pabbi tók sér fyrir
hendur léku í höndum hans. Ekki
var það óalgeng sjón á Hellu að
sjá pabba með logsuðutæki eða
rafsuðuvél þar sem það þurfti að
gera við einhverja vinnuvél í
sveitinni.
Pabbi var mjög mikill dýravin-
ur. Þegar ég hef skoðað gamlar
ljósmyndir af honum síðustu
daga vekur það athygli hve glað-
ur hann var í návist dýra sinna,
hvort sem um var að ræða hesta
og kindur á Hellu eða hunda í
Reykjavík.
Pabbi og mamma voru alla tíð
mjög samrýnd og voru hjúskap-
arárin 63 þeim afar farsæl. Nú
þegar pabbi hefur kvatt þessa
veröld bið ég góðan guð um að
veita mömmu styrk á þessum erf-
iðum tímum.
Allt eins og blómstrið eina
upp vex á sléttri grund
fagurt með frjóvgun hreina
fyrst um dags morgunstund,
á snöggu augabragði
af skorið verður fljótt
lit og blöð niður lagði
líf mannlegt endar skjótt.
Ég lifi’ í Jesú nafni,
í Jesú nafni’ eg dey,
þó heilsa’ og líf mér hafni,
hræðist ég dauðann ei.
Dauði, ég óttast eigi
afl þitt né valdið gilt,
í Kristí krafti’ eg segi:
Kom þú sæll, þá þú vilt.
(Hallgrímur Pétursson.)
Örn.
Nú er elsku besti afi okkar dá-
inn. Við minnumst hans með
söknuði. Þegar við hugsum um
afa þá er svo margs að minnast.
Við minnumst þess hvað hann
var góður við dýrin og hvað hon-
um þótti vænt um Mollý sína. Við
heimsóttum afa og ömmu oft og
fórum þá oft út að ganga með afa
og Mollý. Alltaf átti afi eitthvert
góðgæti sem hann bauð okkur
þegar við heimsóttum hann. Það
voru líka margar ferðir sem við
fórum í bakaríið með honum til að
kaupa snúða. Þótt hann væri orð-
inn lasinn og fluttur á Eir átti
hann alltaf eitthvað handa okkur
í skúffunni sem hann laumaði að
okkur.
Þegar við vorum yngri fórum
við í sveitina til afa og ömmu. Það
var gaman að heimsækja þau
þangað. Að gefa hestunum brauð
og kemba þeim. Fara í fjárhúsið
og sjá kindurnar. Stundum voru
afi og amma með heimalninga og
þá var gaman að hjálpa til með að
gefa lömbunum að drekka og
borða. Afi og amma vildu eigin-
lega hvergi annars staðar vera en
á Hellu. Þeim leið svo vel þar.
Afi var mjög duglegur og
vinnusamur og það sýndi hann
bæði í störfum sínum og heima
hjá sér. Þegar við komum í sveit-
ina var afi alltaf að vinna. Við
hjálpuðum honum til dæmis í
girðingarvinnu og það var ótrú-
legt að sjá hvað hann var dugleg-
ur.
Okkur langar til að kveðja
elsku besta afa með versi sem
hann kenndi pabba okkar og fór
alltaf með á kvöldin með honum
þegar hann var strákur og pabbi
hefur kennt okkur og við förum
nú saman með á kvöldin. Frá því
að afi dó höfum við líka farið með
versið fyrir hann.
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Sveinbjörn Egilsson)
María Lovísa og Arna Kristín.
Í dag kveð ég afa minn sem var
mér ofsalega kær.
Þorvarður Þorvarðarson lést á
hjúkrunarheimilinu Eir sunnu-
daginn 29.12. 2013.
Afi var búinn að búa á Eir og
Eirborgum frá því að hann seldi
Brekkugerði 19, árið 2012. Afi
byggði sér og sinni fjölskyldu fal-
legt heimili að Brekkugerði í
Reykjavík þar sem hann bjó í 50
ár.
Helsta áhugamálið hjá afa var
frístundabúskapur. Hann keypti
jörðina Hellu á Fellsströnd árið
1970 og stundaði þar frístun-
dabúskap með 175 fjár á fóðrum
og nokkra hesta.
Afi var forstjóri Stjörnubíós á
sínum tíma ásamt að vera í fast-
eignabraski sem hann sagði að
væri sinn lífeyrissjóður og svo
margt annað sem hann tók sér
fyrir hendur. Afi var mikill dugn-
aðarforkur og var alltaf að vinna
öllum stundum. Öllum sínum frí-
tíma varði hann annað hvort á
Hellu að sinna sínum bússkap
eða að dytta að þeim fasteignum
sem hann var með í útleigu.
Afi var sannkallaður þúsund-
þjalasmiður það var sama hvort
það var að taka upp vélina í jepp-
anum, sjóða brotna öxla, múr-
verk, skipta um þak á húsinu,
pípulagnir, trésmíði, alltaf redd-
aði afi málunum sjálfur og var
tilbúinn að hjálpa öðrum þegar til
hans var leitað. Það var ekki
furða að ég sem strákur væri svo
heillaður af þessum manni sem
allt gat gert og varð hann fljótt
mín fyrirmynd. Vissi ég ekkert
skemmtilegra en að vera með afa
að bardúsa eitthvað og er það ótal
margt sem ég er búinn að læra af
honum afa mínum í gegnum árin.
Afi var mikill fjölskyldumaður
og alltaf var okkur boðið með að
taka þátt í hans áhugamálum
hvort sem það var í sveitinni,
veiði eða fara á landsleiki í fót-
bolta. Sá mikli tími sem ég varði
með afa sem barn varð til þess að
við bundumst sterkum vináttu-
böndum sem varði allt til hans
síðasta dags.
Það var mér mikið kappsmál
að hafa Hellu áfram í fjölskyld-
unni og kemur hún vonandi til
með að vera það um ókomna
framtíð. Ég vona að ég eigi eftir
að geta átt jafn góðar minningar
þaðan með mínum börnum og
barnabörnum eins og ég hef átt
með þér, afi. Það var alltaf gaman
að koma í heimsókn til þín og
ömmu og sakna ég þess mjög
mikið að geta ekki litið inn í
Brekkugerði 19. Ég er svo ótrú-
lega þakklátur fyrir allar þær
stundir sem við áttum saman og
þær ótal góðu minningar sem ég
á um þig, afi minn.
Blessuð sé minning þín.
Nú hefur það því miður gerst
að vond frétt til manns berst
Kær vinur er horfinn okkur frá
því lífsklukkan hans hætti að slá
Rita vil ég niður hvað hann var mér kær
afi minn góði sem guð nú fær
Hann gerði svo mikið, hann gerði svo
margt
og því miður get ég ekki nefnt það allt
Að tala við hann var svo gaman
á þeim stundum sem við eyddum
saman
Hann var svo góður, hann var svo klár
æ, hvað þessi söknuður er svo sár
En eitt er þó víst
og það á við mig ekki síst
að ég sakna hans svo mikið, ég sakna
hans svo sárt
hann var mér góður afi, það er klárt
En alltaf í huga mínum verður hann
afi minn góði sem ég ann
í himnaríki fer hann nú
þar verður hann glaður, það er mín trú
Því þar getur hann vakað yfir okkur
dag og nótt
svo við getum sofið vært og rótt
hann mun ávallt okkur vernda
vináttu og hlýju mun hann okkur senda
Elsku afi, guð mun þig geyma
yfir okkur muntu sveima
en eitt vil ég þó að þú vitir nú
minn allra besti afi, það varst þú.
(Katrín Ruth)
Elvar.
Þorvarður
Þorvarðarson
Fleiri minningargreinar
um Þorvarð Þorvarð-
arson bíða birtingar og munu
birtast í blaðinu næstu daga.
✝ Sigurlín Gunn-arsdóttir fædd-
ist að Eiði í Eyr-
arsveit, 17. maí
1936. Hún lést á
Sjúkrahúsinu í
Stykkishólmi 23.
desember 2013.
Foreldrar hennar
voru Gunnar Jó-
hann Stefánsson, f.
1903, d. 1980, og
Lilja Elísdóttir, f.
1907, d. 1964. Systkini hennar
eru Elís, látinn, Hjálmar, látinn,
Sveinn Garðar, látinn, Helga
Soffía, látin, Sigrún, látin, Jó-
hann Leó, Snorri og Þórarinn.
Sigurlín giftist, 31. desember
1954, Hallvarði Guðna Kristjáns-
syni, fæddum 18. september
1928, en hann lést 14. október
1997. Foreldrar hans voru hjón-
in María M. Kristjánsdóttir, hús-
isdóttir. 3. Hrafnhildur, uppeld-
isfræðingur og kennari, f. 18.
júní 1963, gift Sumarliða Ás-
geirssyni, matreiðslumeistara.
Börn: Björn Ásgeir, f. 1985, Sig-
urlín, f. 1989, og Fanney, f.
1991. 4. Kristján, rafmagnsverk-
fræðingur, f. 4. maí 1967, sam-
býliskona: Ágústa Áróra Þórð-
ardóttir, hjúkrunarfræðingur.
Börn með Elínu Sigurgeirs-
dóttur, tannlækni: Halla f. 1992,
Katla f. 1994, Embla f. 2002. Sig-
urlín fór ung í vist, m.a. til
Reykjavíkur, og stundaði síðar
nám í hússtjórnarskólanum að
Staðarfelli. Sigurlín og Hall-
varður hófu búskap sinn í
Grundarfirði 1954 en fluttust til
Þingvalla 1958 og hófu þar bú-
skap í samvinnu við foreldra
Hallvarðar. Eftir að hafa hætt
hefðbundnum búskap rak Sig-
urlín ferðaþjónustu undir heit-
inu Ból og Biti. Síðustu árin bjó
hún á Dvalarheimili Stykk-
ishólms. Útför Sigurlínar fer
fram frá Stykkishólmskirkju í
dag 7. janúar 2014, og hefst at-
höfnin klukkan 14.
freyja, f. 10. ágúst
1898, d. 15. desem-
ber 1987, og Krist-
ján Jóhannsson,
bóndi á Þingvöllum,
f. 7. maí 1891, d. 3.
ágúst 1984. Hall-
varður og Sigurlín
eignuðust fjögur
börn: 1. Kristín
María, lyfjatæknir,
f. 2. júní 1956. Börn:
Hallvarður Guðni, f.
1982, sambýliskona Birna Ármey
Þorsteinsdóttir, börn: Hafdís
Birta, Ármann Guðni og Lilja
María, og Alda Rún, f. 1991. 2.
Hilmar, rafvirkjameistari, f. 10.
júlí 1957. Sambýliskona, Astrid
Göllnitz. Börn með Hönnu Jóns-
dóttur, þroskaþjálfa: Kári, f.
1983, sambýliskona Gréta María
Árnadóttir og Ísak, f. 1988, sam-
býliskona Gréta María Birg-
Þegar vinir sem við höfum átt
árum saman kveðja verða mikil
þáttaskil í lífi okkar. Að okkur
sækja minningar um dýrmæta og
góða samveru, þakkir og söknuð-
ur. Þannig er hugur minn staddur
núna þegar Sigurlín Gunnarsdótt-
ir, Silla, tengdamóðir mín til 25
ára hefur kvatt. Ég kynntist þess-
ari mætu konu fyrst þegar við
Kristján, sonur Sillu og Hallvarðs
Kristjánssonar, bænda á Þingvöll-
um í Helgafellssveit, felldum hugi
saman og gengum í hjónaband.
Við, unga fólkið, vorum oft fyrir
vestan á Þingvöllum við leik og
störf bæði á landi og sjó og nutum
þess að vera í námunda við Sillu,
njóta vits hennar, myndarskapar
og ljúflyndis.
Á þessum árum þróaðist kunn-
ingsskapur okkar í vináttu sem
aldrei bar skugga á. Þegar svo
barnabörnin komu, þrjár dætur
okkar Kristjáns var hún hin góða
amma, félagi barnanna með hlýj-
an og opinn faðm. Fyrir allt þetta
vil ég þakka af einlægum huga. Ég
vil þakka hlýjuna sem ég naut, alla
uppörvun og þátttöku hennar í
lífshlaupi mínu, í gleði og sorg. Ég
gat alltaf reitt mig á tengdamóður
mína og styrk hennar og rætt við
hana um hvaðeina. Þessi fáu orð
eru sett á blað til að þakka. Þau
verða ekki annáll um líf Sigurlín-
ar. Til að skrifa þann annál þyrfti
stóra bók. Það þyrfti líka stóra
bók til að tjá þakklæti dætra
minna og mín og söknuðinn þegar
við nú kveðjum kæran vin, ömmu
og tengdamóður.
Elín Sigurgeirsdóttir.
Sigurlín
Gunnarsdóttir
✝
Ástkær eiginkona, móðir, amma og lang-
amma,
ERNA GUÐBJÖRG INGÓLFSDÓTTIR,
Knarrarstíg 1,
Sauðárkróki
lést föstudaginn 27. desember á Heilbrigðis-
stofnun Sauðárkróks.
Útför hennar verður frá Sauðárkrókskirkju
laugardaginn 11. janúar kl. 14.00.
Guðmundur Helgason og fjölskylda.
✝
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, amma og langamma,
AUÐUR R. GUÐMUNDSDÓTTIR,
Skólabraut 5,
Seltjarnarnesi,
andaðist á Droplaugarstöðum laugardaginn
4. janúar.
Útför hennar verður auglýst síðar.
Kristinn B. Sigurðsson,
Gylfi Kristinsson, Jónína Vala Kristinsdóttir,
Hilmar Kristinsson, Margrét Hauksdóttir,
Snorri Kristinsson, Kristjana Kristjánsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær unnusti minn og sambýlismaður,
faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
RÚNAR GEORGSSON
hljómlistarmaður,
Vesturgötu 4,
Reykjavík,
sem lést á líknardeild Landspítalans
30. desember, verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavík
fimmtudaginn 9. janúar kl. 13.00.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir, en þeim sem vildu
minnast hins látna er bent á minningarkort Karitas eða
líknardeildarinnar.
Arndís Jóhannsdóttir,
Björg Rúnarsdóttir, Sigurður Örn Hektorsson,
Ketill Niclas Rúnarsson, Teresa Payne,
Elfa Björk Rúnarsdóttir,
Fróði og Guðmundur Guðmundssynir,
barnabörn og barnabarnabörn.