Morgunblaðið - 07.01.2014, Page 24
24 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. JANÚAR 2014
✝ Ágústa Guð-jónsdóttir
fæddist á Eiríks-
bakka í Biskups-
tungum 1. nóv-
ember 1921. Hún
lést á Landspít-
alanum 17. desem-
ber 2013.
Foreldrar
Ágústu voru hjónin
Ingibjörg Júlíana
Ingvarsdóttir, f. í
Miðdalskoti í Laugardal 7.7.
1884, d. 16.12. 1933, og Guðjón
Eyjólfsson, f. í Efra-Hrútafells-
koti, A-Eyjafjallahreppi 27.7.
1890, d. 2.10. 1966. Þau hófu bú-
skap í Úthlíð í Biskupstungum
en festu fljótlega kaup á Eiríks-
bakka í sömu sveit og bjuggu
þar æ síðan.
Systkini Ágústu voru: Þor-
björg Hulda, f. 10.6. 1917, d.
14.10. 1995, Ólafur, f. 30.6. 1918,
d. 27.11. 1918, Ingvar, f. 26.9.
1919, d. 17.5. 2008 og Sigríður,
f. 1.12. 1920, d. 28.8. 1983.
Eiginmaður Ágústu var
Skarphéðinn Kristjánsson frá
Hólslandi í Eyja- og Miklaholts-
hreppi, f. 17.5. 1922, d. 7.9. 1984.
Hann starfaði þorra sinnar
starfsævi hjá Sambandi ís-
lenskra samvinnufélaga.
Börn Ágústu og Skarphéðins
eru: 1) Ingibjörg, f. 16.9. 1942,
gift Hafliða Benediktssyni. Þau
eiga þrjár dætur: Sofie (skírn-
arnafn Ágústa), Kristjönu og
Selmu og fimm barnabörn. 2)
Sigvalda Lóa, f. 27.9. 1948, d.
6.2. 1949. 3) Sigfinna Lóa, f.
19.7. 1951, gift Magnúsi Krist-
inssyni. Þau eiga
fjögur börn: Þóru,
Elfu Ágústu, Héðin
Karl, Magnús Berg
og sjö barnabörn.
4) Danfríður Krist-
ín, f. 3.3. 1953. 5)
Guðjón, f. 25.10.
1955, d. 18.1. 2005.
6) Kristján, f. 10.10.
1957, kvæntur Guð-
rúnu B. Ein-
arsdóttur og þau
eiga þrjú börn: Skarphéðin, Ein-
ar og Margréti Önnu.
Ágústa ólst upp á Eiríks-
bakka en að lokinni skólagöngu
í Reykholtsskóla aðstoðaði hún
við bústörfin heima fyrir og var
eitt ár í vist við Íþróttaskólann í
Haukadal. Árið 1940 fluttist hún
til Reykjavíkur og vann við
heimilishjálp. Þar kynntist hún
eiginmanni sínum. Þau bjuggu
alla sína búskapartíð í Reykja-
vík, lengst af í Sólheimum 32.
Eftir andlát Skarphéðins fluttist
Ágústa í Ofanleiti 11 þar sem
hún bjó til æviloka.
Ágústa var fyrst og fremst
húsmóðir en í áranna rás sinnti
hún ýmsum aukastörfum, m.a.
við ræstingar og umönnun aldr-
aðra. Hún var gædd ríkri sköp-
unargáfu og hafði ánægju af
handavinnu af ýmsu tagi. Hún
var glaðlynd og lagði ríka
áherslu á að rækta samband við
vini og fjölskyldu. Heimili henn-
ar var ávallt opinn vettvangur
slíkra samskipta.
Útför Ágústu fer fram frá
Fossvogskirkju í dag, 7. janúar
2014, og hefst athöfnin kl. 15.
Við fráfall mömmu er mér
efst í huga þakklæti. Þakklæti
fyrir mömmu sem alltaf var til
staðar fyrir hópinn sinn,
mömmu sem vakti okkur í skól-
ann og var þá búin að vinna við
þrif í fjölbýlishúsum á meðan við
sváfum og alltaf var hún heima
þegar við komum úr skólanum.
Á æskuheimili okkar í Sólheim-
um var mjög gestkvæmt. Þar
áttu vinir okkar, leigjendur, inn-
lendir og útlendir alltaf skjól hjá
mömmu. Hún hafði einstaka
hæfileika til að hlusta, hvetja og
styðja. Það var líka gott að fá
skjól á æskuheimilinu þegar við
hjónin þurftum að fara frá Eyj-
um vegna eldgossins í Heimaey.
Á meðan við dvöldum þar kom
Þóra dóttir okkar í heiminn og
fékk einstakt atlæti frá afa sín-
um og ömmu. Þegar yngsti son-
ur okkar valdi að fara í Versl-
unarskólann var gott að eiga
ömmu í Ofanleiti sem tók dreng-
inn að sér.
Mamma hafði einstaklega
gott geð og aðlögunarhæfni. Það
kom sér vel þegar hún þurfti að
takast á við áföll lífsins. Eftir
fráfall pabba flutti hún sig um
set og fór í Ofanleiti þar sem
heimili hennar stóð til dauða-
dags. Þar leið henni vel og hafði
hún oft orð á því hversu heppin
hún væri með staðsetninguna
þarna alveg í alfaraleið þannig
að gestir og gangandi héldu
áfram að koma í heimsókn. Hún
naut einstakrar tryggðar
margra samferðamanna sinna.
Fyrir það var hún mjög þakklát.
Þegar halla tók undan fæti
hjá mömmu og líkaminn fór að
gefa sig tók nýr kafli við. Hún
var mjög þakklát fyrir þá aðstoð
sem hún fékk og fannst gott að
fá innlit frá Félagsþjónustunni
kvölds og morgna og naut sam-
vista við konurnar sem sinntu
henni.
Þegar ég var hjá henni síð-
ustu helgina hennar í Ofanleiti
talaði hún um að þetta yrðu nú
örugglega síðustu jólin. Hún var
orðin lúin, flestir samferðamenn-
irnir farnir og líkaminn farinn að
gefa sig. Við fórum saman í bíl-
túr til að njóta jólaljósanna í
borginni og ókum um Sólheim-
ana og rifjuðum upp góðar
minningar og áttum ánægjulega
stund saman. Sú stund yljar
núna ásamt mörgum góðum
minningum um einstaklega já-
kvæða konu sem allstaðar sáði
því góða.
Blessuð sé minning hennar og
hjartans þakkir til allra sem
styttu henni stundir síðustu árin.
Lóa Skarphéðinsdóttir.
Ágústa
Guðjónsdóttir
Fleiri minningargreinar
um Ágústu Guðjónsdótt-
ur bíða birtingar og munu
birtast í blaðinu næstu daga.
✝
Bróðir okkar og föðurbróðir,
PÁLMI HARÐARSON
vélfræðingur,
Asparfelli 4,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Langholtskirkju
föstudaginn 10. janúar kl. 13.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Hjartaheill.
Kristín Harðardóttir,
Viðar Harðarson,
Ingibjörg Ósk Birgisdóttir.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma,
ÞÓRA KJARTANSDÓTTIR,
Strikinu 10,
verður jarðsungin frá Laugarneskirkju
8. janúar og hefst athöfnin kl. 15.00.
Karl Guðmundsson,
Þuríður Saga Guðmundsdóttir,
Sigurbjörg Unnur Guðmundsdóttir, Bjarni Þór Óskarsson,
Kjartan Ísak Guðmundsson, Erna Vigdís Ingólfsdóttir,
barnabörn, barnabarnabörn,
aðrir aðstandendur hinnar látnu.
✝
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi,
SVEINN ÁSGEIR ÁRNASON
hárskerameistari,
sem lést að kvöldi nýársdags á hjúkrunar-
heimilinu Ísafold, verður jarðsunginn frá
Fossvogskirkju miðvikudaginn 8. janúar
kl. 15.00.
Brynhildur Sveinsdóttir, Hörður Guðjónsson,
Íris Sveinsdóttir, Jón Guðmundsson,
Eva Björg Harðardóttir,
Sigrún Harðardóttir,
Daði Sigursveinn Harðarson,
Natalie Kristín Hamzehpour,
Helena Hamzehpour,
Ísak Theodórs Jónsson.
✝
Ástkær bróðir okkar,
JÓN GUNNARSSON
fv. mjólkurbílstjóri
frá Morastöðum í Kjós
andaðist á Hrafnistu í Hafnarfirði
29. desember.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju
fimmtudaginn 9. janúar kl. 15.00.
Bergmann Gunnarsson, Sigþrúður E. Jóhannesdóttir,
Stella E. Gunnarsdóttir,
Björg Gunnarsdóttir,
Ingibjörg Gunnarsdóttir, Bjarni E. Gunnarsson,
Gróa Gunnarsdóttir, Ragnar Þ. Halldórsson,
Ragnar Gunnarsson,
Sveinn Gunnarsson, Hólmfríður Friðsteinsdóttir,
Sigríður Gunnarsdóttir, Þorsteinn Gíslason,
Guðrún Gunnarsdóttir, Pétur H.R. Sigurðsson,
Hallbera Gunnarsdóttir, Kristinn E. Skúlason.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
vinarhug við fráfall ástkærrar eiginkonu,
dóttur, móður, tengdamóður og ömmu,
HEIÐRÚNAR FRIÐRIKSDÓTTUR,
Birkihlíð 33,
Sauðárkróki.
Sérstakar þakkir til starfsfólks
Heilbrigðisstofnunarinnar á Sauðárkróki
og Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri.
Guð blessi ykkur öll.
Sveinn R. Sigfússon,
Alda S. Ellertsdóttir,
Hólmfríður Sveinsdóttir, Stefán Friðriksson,
Ingibjörg Sveinsdóttir, Ingólfur Ingólfsson,
Rúnar Sveinsson, Efemía Rún Sigurbjörnsdóttir
og barnabörn.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR
frá Miklaholti,
Stórateig 42,
Mosfellsbæ,
sem lést á Landspítalanum á nýársdag verður jarðsungin
frá Dómkirkjunni mánudaginn 13. janúar kl. 15.00.
Þeir sem vildu minnast hennar láti Barnauppeldissjóð
Thorvaldsensfélagsins njóta þess.
Kristín Magnúsdóttir, Sigurjón Bragi Sigurðsson,
Jón Magnússon, Elín Helga Sigurjónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskulegur faðir minn, sonur okkar, bróðir,
mágur, barnabarn og sambýlismaður,
GEORG ÞÓR STEINDÓRSSON,
lést af slysförum fimmtudaginn 26. desember.
Útförin fer fram frá Vídalínskirkju, Garðabæ,
fimmtudaginn 9. janúar kl. 15.00.
Tinna Georgsdóttir,
Steindór Steinþórsson, Anna Marie Georgsdóttir,
Margrét Lind Steindórsdóttir, Björgvin Guðjónsson,
Steinlaug Sigurjónsdóttir,
Sigrún Þorvaldsdóttir.
✝
Innilegar þakkir fyrir samúðarkveðjur vegna andláts systkina
minna,
ÞÓRÐAR MÓFELLS VILMUNDARSONAR
sem lést 31. júlí 2013
og
MARGRÉTAR VILMUNDARDÓTTUR
sem lést 30. nóvember 2013.
Bjarni Vilmundarson,
Mófellsstöðum.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir og afi,
JÓN DAHLMANN,
Torfufelli 6,
Reykjavík,
andaðist mánudaginn 30. desember.
Jarðarförin auglýst síðar.
Dagný Kristjánsdóttir,
Davíð Anderson
og afabörn.
✝
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
HANS RAGNAR SIGURJÓNSSON
skipstjóri,
lést á Hrafnistu í Reykjavík mánudaginn
30. desember.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju
miðvikudaginn 8. janúar kl. 13.00.
Anna Scheving Hansdóttir, Tryggvi T. Tryggvason,
Ása Björk Hansdóttir, John S. Berry,
Ágústa Hansdóttir, Halldór Pétursson,
Unnur Björg Hansdóttir, Pjetur Einar Árnason,
Sigurjón Hansson, Kristín Guðbrandsdóttir Jezorski,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Alúðarþakkir fyrir auðsýnda samúð vegna
andláts systur okkar og mágkonu,
SIGRÍÐAR BJARNADÓTTUR
kjólameistara,
Hæðargarði 35.
Guðmundur Bjarnason, Bergdís Kristjánsdóttir,
Þóra Bjarnadóttir, Jón Sverrir Dagbjartsson.
✝
Ástkær faðir minn, afi og langafi,
HAUKUR H. JÓNSSON,
Víðilundi 20,
Akureyri,
lést fimmtudaginn 2. janúar.
Útför hans fer fram frá Möðruvallaklausturs-
kirkju laugardaginn 11. janúar kl. 13.30.
Eyþór Hauksson,
afabörn og langafabarn.
✝
Ástkær bróðir okkar og mágur,
ÁSGEIR GUNNLAUGSSON
frá Syðri Sýrlæk,
Suðurengi 1,
Selfossi,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands
laugardaginn 4. janúar.
Útför hans fer fram frá Villingaholtskirkju
laugardaginn 11. janúar kl. 13.30.
Sigrún Gunnlaugsdóttir,
Ingvar Gunnlaugsson,
Óttar Gunnlaugsson, Sigríður Þorgeirsdóttir.