Morgunblaðið - 23.01.2014, Page 1

Morgunblaðið - 23.01.2014, Page 1
FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 2014 ÍÞRÓTTIR Barcelona Verður Guðjón Valur Sigurðsson síðasta púslið í eitthvert magnaðasta stjörnulið sem sett hefur verið saman í handboltanum? Útispilararnir eru Karabatic, Rutenka og Lazarov 4 Íþróttir mbl.is Kolbeinn Sigþórsson og félagar í meistaraliði Ajax eru komnir í und- anúrslit hollensku bikarkeppninnar í knattspyrnu eftir 3:1 sigur á Feyenoord í gærkvöld. Kolbeinn kom inná á 84. mínútu fyrir Bojan Krkic sem skoraði sigurmark Ajax í leiknum. NEC Nijmegen, lið Guðlaugs Vic- tors Pálssonar, komst líka í undan- úrslit með 1:0 sigri á Utrecht en Victor missti af leiknum vegna meiðsla. vs@mbl.is Íslendingaliðin í undanúrslit EM 2014 Ívar Benediktsson Herning „Við vorum teknir í bakaríið í síðari hálfleik. Þetta var verðskuldaður danskur sigur hjá liði sem sennilega verðandi Evrópumeistari,“ sagði Snorri Steinn Guðjónsson við Morg- unblaðið eftir 32:23, tap fyrir Dan- mörku í lokaleik milliriðlakeppni Evrópumeistaramótsins í hand- knattleik Jyske Bank Boxen í Hern- ing í gærkvöldi. „Við brenndum af alltof mörgum opnum færum í leiknum til þess að geta verið með í þessum leik. Oft sköpuðu við okkur fín færi en nýttum þau yfirleitt illa. Fyrir þessháttar spilamennsku refsa Danirnir um leið. Síðan ganga þeir á lagið og hafa þess utan gríðarlegan stuðning. Þeg- ar leikir þróast með þessum hætt þá eru endalokin oft með þessum hætti,“ sagði Snorri Steinn sem var afar vonsvikinn eins og allir leik- menn íslenska landsliðsins eftir þessa útreið þar sem markvörðurinn Jannick Green, samherji Kára Krist- jáns Kristjánssonark lék leikmenn íslenska landsliðsins afar grátt. „Við reyndum að gera breytingar og skipta leikmönnum inn á en ekk- ert gekk. Svona fór þetta, því mið- ur.“ Snorri Steinn sagði að slæm nýt- ing á opnum færum hafi orðið ís- lenska liðinu að falli í fyrri hálfleik. Betri nýting á færum hefði þýtt jafn- ari staða í hálfleik en þá stóðu leikar 17:13. „Síðan byrjuðum við síðari hálfleikinn á sama hátt og þá var þessu lokið. Við erum svekktir með að tapa og tapa svo stórt. Nú er næst á dag- skránni að rífa sig í gang fyrir síð- asta leikinn í mótinu. Fimmta sætið gefur ekkert annað en heiðurinn en ég hef trú á því að þegar menn hafa gengið í gengum þetta svona lengi þá vilji allir klára mótið eins og menn,“ sagði Snorri Steinn Guðjónsson um viðureignina um fimmta sætið við Pólverja á föstudaginn klukkan 15. Fjaraði fljótt undan þessu „Munurinn á liðunum var sá að við nýttum illa okkar færi á meðan Dan- irnir nýttu sín færi. Það skildi liðin að. Í síðari hálfleik fjaraði undan þessu hjá okkur,“ sagði Sverre Andreas Jakobsson, eftir tapleikinn í Boxinu í gærkvöldi. „Þess utan þá hittum við ekki á góðan dag og þeir gengu á lagið. Ég ekki þeirrar skoð- unar að munurinn sé í raun svona mikill á liðunum,“ sagði Sverre enn- fremur. „Við lögðum upp með allt annað plan fyrir leikinn en raun varð á. Því miður þá voru hlutirnir fljótir að breytast sem varð raunin,“ sagði Sverre sem taldi að sú staðreynd að úrslit leiksins breyttu ekki miklu um örlög íslenska landsliðsins í keppn- inni lágu fyrir áður en flautað var til leiks. „Okkur langaði til að skemma fyrir Dönunum fyrir framan fulla höll af stuðningsmönnum þeirra. Okkur tókst það svo sannarlega ekki, þetta varð þvingaður leikur um tíma. Nú förum við í leikinn um fimmta sætið staðráðnir í að vinna og ljúka mótinu með sæmd,“ sagði Sverre Andreas Jakobsson, landsliðsmaður í handknattleik við Morgunblaðið eftir tapleikinn í gærkvöldi. Vorum teknir í bakaríið  Snorri Steinn Guðjónsson og Sverre Andreas Jakbosson voru vonsviknir eftir skell gegn Dönum í Boxinu  Staðráðnir í að ljúka móti með sæmd á föstudaginn Morgunblaðið/Eva Björk Flýgur Ólafur Andrés Guðmundsson stekkur hátt upp fyrir framan dönsku vörnina í leik þjóðanna í Herning í gærkvöld. 23. janúar 1987 Ísland sigrar Pólland í mögn- uðum leik, 29:28, á Eystrasalts- mótinu í handbolta í Wismar í Austur- Þýskalandi þar sem stórskyttur beggja liða fara á kostum. Sigurður Gunnarsson skorar sigurmark Íslands í lokin en hann og Þorgils Óttar Mathiesen skora 6 mörk, Alfreð Gíslason og Kristján Arason 5 hvor. 23. janúar 1992 Ísland vinnur óvæntan sigur á öflugu liði Litháen, 111:104, eftir framlengingu í vináttulandsleik karla í körfubolta í Laugardals- höll. Magnús Matthíasson og Teitur Örlygsson skora 24 stig hvor og Guðmundur Bragason 23. „Ég held að þetta sé með bestu sigrum Íslands í körfu- knattleik,“ segir leikstjórnand- inn Jón Kr. Gíslason við Morg- unblaðið. 23. janúar 2010 Ísland sigrar Danmörku, 27:22, í þriðja leik sínum á EM karla í handbolta í Linz í Austurríki, og möguleikar liðsins opnast upp á gátt eftir tvö jafntefli í byrjun móts. Guðjón Valur Sigurðsson skorar 6 mörk og Aron Pálm- arsson 5. Björgvin Páll Gúst- avsson ver 20 skot og segir við Morgunblaðið: „Það er stórkost- legt að standa fyrir aftan svona múr.“ Á ÞESSUM DEGI Enskir fjölmiðlar greindu frá því í gærkvöld að Chelsea hafi samþykkt 37 milljón punda tilboð frá Man- chester United í spænska miðju- manninn Juan Mata. Sjálfur er leik- maðurinn búinn að ná samkomulagi við United um persónulegan samn- ing og er reiknað með því að Spán- verjinn snjalli gangist undir lækn- isskoðun í dag og skrifi svo undir samninginn að henni lokinni. Juan Mata fer til United

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.