Morgunblaðið - 23.01.2014, Síða 2

Morgunblaðið - 23.01.2014, Síða 2
2 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 2014 Morgunblaðið/Kristinn Erfitt Vignir Svavarsson og félagar hans í íslenska landsliðinu hittu fyrir ofjarla sína. Hér er Vignir með boltann í leiknum gegn Dönum. Króatar mæta Dönum í undan- úrslitum Evrópukeppninnar annað kvöld en það kemur í hlut Pólverja að mæta Íslendingum í leiknum um 5. sætið í Herning á morgun. Króatar lögðu Pólverja í hreinum úrslitaleik um annað sætið í milliriðli tvö í Árós- um í gærkvöld, 31:28, og með því tryggðu þeir sér jafnframt sæti í lokakeppni heimsmeistaramótsins í Katar á næsta ári. Domagoj Duvnjak, Zlatko Horvat og Manuel Strlek skoruðu 6 mörk hver fyrir Króatana en Michal Ju- recki var atkvæðamestur Pólverja með 6 mörk og Krzysztof Lijewski skoraði 5 mörk. Frakkar töpuðu sínum fyrstu stig- um á mótinu þegar þeir lágu fyrir Sví- um, 28:30. Það breytti þó engu, Frakkar höfðu þegar tryggt sér sigur í riðlinum og Svíar gátu ekki komist ofar en í fjórða sæti hans. Lukas Karlsson og Johan Jakobsson gerðu 6 mörk hvor fyrir Svía en Guillaume Joli 4 mörk fyrir Frakka. vs@mbl.is Króatarnir mæta Dönum Domagoj Duvnjak Guðjón Valur Sigurðsson er orðinn markahæsti leikmaður Evr- ópukeppninnar í Danmörku eftir að hann skoraði 10 mörk í leiknum gegn Dönum í Herning í gærkvöld. Guðjón hefur nú skorað 44 mörk í sex leikjum Íslands á mótinu og fór framúr Kiril Lazarov sem kom ekkert við sögu hjá Makedóníu gegn Spáni í gær vegna meiðsla og lauk þar með keppni með 38 mörk. Guðjón Valur á mjög góða möguleika á að enda sem markakóngur keppninnar en hann á eftir leikinn gegn Pólverjum á morgun. Siarhei Rutenka frá Hvíta-Rússlandi er þriðji á markalistan- um með 34 mörk en Hvít-Rússar hafa lokið keppni. Það er því aðeins Joen Canellas frá Spáni sem á raunhæfa möguleika á að halda í við Guðjón Val. Hann er með 32 mörk og á eftir að spila bæði í undan- úrslitum á morgun og um verðlaunasæti á sunnudaginn. Víctor Tomás er með 29 mörk fyrir Spán, Mikkel Hansen er með 28 mörk fyrir Dani og Ásgeir Örn Hall- grímsson kemur svo næstur með 27 mörk fyrir Ísland. vs@mbl.is Guðjón markahæstur á EM Guðjón Valur Sigurðsson Tiger Woods, efsti kylfingur heimslistans, þykir langsig- urstranglegastur á Farmers Insurance-mótinu sem hefst í dag en það er hluti af PGA-mótaröðinni. Þetta er fyrsta PGA-mót ársins hjá Tiger sem vann fimm slík í fyrra. Farmers Insurance-mótið fer fram á Torrey Pines- vellinum í Kaliforníu en þar líður Tiger afskaplega vel. Hann hefur unnið þetta mót sjö sinnum og einu sinni opna bandaríska þegar það fór fram á sama velli. Þess vegna þykir hann sigurstranglegastur en eins og vana- lega er mikið fjölmiðlafár í kringum mótið fyrst Tiger er mættur. „Tiger-sirkusinn“ kalla þetta sumir bandarískir golfpennar. Phil Mickelson er einnig á meðal keppenda en hann hefur unnið mótið þrívegis og er líklegur til að veita Tiger harða samkeppni. Það sama má segja um Jordan Spieth, Nick Watney, Ricky Fowler and Bill Haas sem allir eru mættir til leiks á Torrey Pines. tomas@mbl.is Tiger líklegur á Torrey Pines Tiger Woods Reykjavíkurmót karla Víkingur R. – Valur................................. 2:1 Eiríkur Stefánsson 30. Sveinbjörn Jónas- son 76. – Gunnar Gunnarsson 15. Holland Bikarkeppnin, 8-liða úrslit: NEC Nijmegen – Utrecht ....................... 1:0  Guðlaugur Victor Pálsson lék ekki með NEC vegna meiðsla. Spánn Bikarkeppnin, 8-liða, fyrri leikur: Real Sociedad – Racing Santander ........ 3:1  Morgunblaðið fór í prentun kl. 21.30 í gærkvöld. Úrslit leikja sem ekki var lokið þá má sjá á mbl.is. KNATTSPYRNA Danmörk SönderjyskE – Köbenhavn................. 25:29  Ramúne Pekarskyte skoraði 7 mörk fyr- ir SönderjyskE en Karen Knútsdóttir og Stella Sigurðardóttir eru frá vegna meiðsla. Ágúst Jóhannsson þjálfar liðið. Noregur Oppsal – Tertnes ................................. 23:30  Hildigunnur Einarsdóttir skoraði ekki fyrir Tertnes sem er í 3. sætinu. Storhamar – Fredrikstad................... 31:20  Alfreð Örn Finnsson þjálfar Storhamar sem er í 2. sæti deildarinnar. Svíþjóð Höör – Heid .......................................... 31:22  Sunna Jónsdóttir skoraði 2 mörk fyrir Heid. HANDBOLTI KÖRFUKNATTLEIKUR Úrvalsdeild karla, Dominos-deildin: Schenker-höllin: Haukar – ÍR............. 19.15 DHL-höllin: KR – Snæfell................... 19.15 Borgarnes: Skallagr. – Stjarnan......... 19.15 Vodafone-höllin: Valur – Grindavík.... 19.15 1. deild karla: Hveragerði: Hamar – Vængir Júpít. .. 19.15 KNATTSPYRNA Reykjavíkurmót karla: Egilshöll: Fram – KR................................ 19 Egilshöll: Fjölnir – ÍR............................... 21 Fótbolta.net mót karla: Reykjaneshöll: Njarðvík – Selfoss...... 18.40 BADMINTON Alþjóðlega mótið Iceland International hefst í TBR-húsunum í dag og keppt er frá kl. 13 til 16.30. Í KVÖLD! Jyske Bank Boxen, Herning, milliriðill HM karla, miðvikudag 22. janúar 2014. Gangur leiksins: 0:1, 4:3, 5:5, 9:6, 10:9, 11:10, 15:10, 16:13, 17:13, 17:14, 20:14, 21:17, 26:17, 28:20, 30:20, 32:23. Mörk Danmerkur: Mads Mensah Lar- sen 8, Jesper Nöddesbo 4, Thomas M. Mogensen 3, Bo Spellerberg 3, Henrik Möllgaard 3, Kasper Söndergaard 3, Lasse Svan Hansen 3, Anders Eggert 3/1, Klaus Thomsen 1, Michael V. Knudsen 1. Varin skot: Jannick Green 22/1. Utan vallar: 2 mínútur. Mörk Íslands: Guðjón Valur Sigurðs- son 10/4, Aron Pálmarsson 3, Ásgeir Örn Hallgrímsson 3, Snorri Steinn Guðjónsson 3, Vignir Svavarsson 1, Rúnar Kárason 1, Ólafur A. Guð- mundsson 1, Arnór Þór Gunnarsson 1. Varin skot: Björgvin Páll Gústavsson 8, Aron Rafn Eðvarðsson 1. Utan vallar: 4 mínútur. Dómarar: Thierry Dentz og Denis Rei- bel, Frakklandi. Áhorfendur: 14.000. Danmörk – Ísland 32:23 Milliriðill 1 Makedónía – Spánn.............................. 22:33 Austurríki – Ungverjaland.................. 25:24 Danmörk – Ísland................................. 32:23 Lokastaðan: Danmörk 5 5 0 0 153:125 10 Spánn 5 4 0 1 156:135 8 Ísland 5 2 1 2 140:146 5 Ungverjaland 5 1 1 3 133:139 3 Makedónía 5 1 0 4 117:143 2 Austurríki 5 1 0 4 129:140 2 Milliriðill 2 Rússland – Hvíta-Rússland................. 39:33 Frakkland – Svíþjóð............................. 28:30 Pólland – Króatía.................................. 28:31 Lokastaðan: Frakkland 5 4 0 1 157:140 8 Króatía 5 4 0 1 147:126 8 Pólland 5 3 0 2 145:136 6 Svíþjóð 5 3 0 2 138:137 6 Rússland 5 1 0 4 141:154 2 Hv. Rússland 5 0 0 5 137:172 0 Undanúrslit á morgun: 17.30 Frakkland – Spánn 20.00 Danmörk – Króatía Leikur um 5. sætið á morgun: 15.00 Ísland – Pólland Röð liðanna þar fyrir neðan: 7. Svíþjóð 8. Ungverjaland 9. Rússland 10. Makedónía 11. Austurríki 12. Hvíta-Rússland 13. Serbía 14. Noregur 15. Tékkland 16. Svartfjallaland  Liðin sem eru komin í undanúrslit hafa tryggt sér sæti á HM í Katar 2015.  Liðin í sætum 5-13 verða í efri styrk- leikaflokki þegar dregið verður um hvaða þjóðir mætast í júní í umspili um sæti á HM í Katar. Hin verða í neðri flokki ásamt Þýskalandi, Bosníu, Grikklandi, Litháen, Rúmeníu og Slóveníu. EM 2014

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.