Morgunblaðið - 23.01.2014, Side 3
EM 2014
Guðmundur Hilmarsson
gummih@mbl.is
Danska hraðlestin er hreint óstöðv-
andi og ef fram heldur sem horfir
hampa Danir Evrópumeistaratitl-
inum á heimavelli á sunnudaginn.
Danir áttu ekki í vandræðum með að
innbyrða sjötta sigur sinn í jafn-
mörgum leikjum þegar þeir lögðu Ís-
lendinga, 32:23, í Boxinu svokallaða í
Herning að viðstöddum rúmlega
14.000 áhorfendum sem troðfylltu
þetta glæsilega mannvirki. Leikurinn
var marklaus fyrir þær sakir að fyrir
hann var ljóst að íslenska liðið spilaði
um 5. sætið. Það varð ljóst eftir sigur
lærisveina Patreks Jóhannessonar í
austurríska liðinu á Ungverjum og
líklegt er að þau úrslit hafi dregið úr
kraftinum og baráttunni í íslenska
liðinu.
Vörn og markvarsla
gerði útslagið
Minni spámenn, ef svo skyldi kalla
í danska liðinu, fengu tækifæri til að
láta ljós sitt skína og þeir gáfu ís-
lenska liðinu engin grið. Danir tóku
leikinn strax í sínar hendur og fljót-
lega í síðari hálfleik var ljóst í hvað
stefndi. Það var einkum og sér í lagi
öflug vörn Dana sem gerði íslensku
leikmönnunum lífið leitt og vara-
markvörðurinn Jannick Gree. Á með-
an hann varði hvert skotið á fætur
öðru var markvarslan lítil sem engin
hjá íslenska liðinu en vörnin var líka
mjög götótt og það gerði markvörð-
unum enn erfiðara fyrir.
Árangur íslenska landsliðsins á
Evrópumótinu er sá þriðji besti frá
upphafi og það er ekki annað hægt en
að hrósa því fyrir vasklega fram-
göngu í keppninni þó svo að það hafi í
gær hitt fyrir offjarla sína. Það
breytti engu þó svo að Danir hvíldu
heimsklassa leikmenn á borð við
Mikkel Hansen og markvörðinn
Nicklas Landin og varnar- og línu-
jaxlinn Rene Toft Hansen. Enginn
þeirra kom við sögu í leiknum og það
sýnir þá gríðarlega miklu breidd sem
er í danska liðinu en meiðsli hafa sett
töluvert strik í reikninginn hjá mörg-
um leikmönnum Íslands eins og
margoft hefur komið fram. Fyrirfram
voru ekki margir sem spáðu því að Ís-
land ætti möguleika á að ná þetta
langt í þessu sterka móti miðað við
undirbúninginn og meiðslavandræðin
sem landsliðsþjálfarinn Aron Krist-
jánsson hefur þurft að glíma við.
Fyrirliðinn Guðjón Valur Sigurðs-
son stóð uppúr í íslenska liðinu og
þessi magnaði leikmaður er nú orðinn
markahæstur á Evrópumótinu og
flest bendir til þess að hann verði
markakóngur keppninnar. Ásgeir
Örn og Aron Pálmarsson byrjuðu vel
en það fjaraði fljótlega undan þeim
eins og öllu íslensku liðinu sem tapaði
fyrir Evrópumeisturunum og líklega
besta landsliði heims í dag.
Mæta Póllandi í leiknum
um 5. sætið
Pólverjar verða andstæðingar Ís-
lendinga í leiknum um 5. sætið í
Herning á morgun og þar mega ís-
lensku leikmennirnir búa sig undir
hörkurimmu. Pólverjarnir hafa sýnt
flott tilþrif á mótinu en vonandi leika
strákarnir sama leik og í Austurríki
hér um árið en þá lögðu Íslendingar
lið Pólverja í leiknum um bronsið.
Danska
hraðlestin
of stór biti
9 marka tap gegn Evrópumeisturum
Ísland spilar um 5. sætið
ÍÞRÓTTIR 3
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 2014
Njarðvíkurkonur komu heldur betur á
óvart í gærkvöld þegar þær gerðu sér
lítið fyrir og sigruðu granna sína í
Keflavík, 66:57, í úrvalsdeild kvenna í
körfuknattleik. Leikið var í TM-
höllinni í Keflavík, þar sem heimaliðið
vann þægilegan 19 stiga bikarsigur í
leik sömu liða á mánudagskvöldið.
Njarðvíkurliðið, sem situr á botni
deildarinnar, náði heldur betur að
svara fyrir það, vann sinn þriðja sigur í
síðustu fimm leikjunum og er nú allt í
einu búið að hleypa spennu í botnbar-
áttu deildarinnar. Nikitta Gartrell hef-
ur komið sterk til leiks með liðinu eftir
áramót en hún skoraði 16 stig og tók
12 fráköst í gærkvöld.
Snæfell nýtti tækifærið og náði sex
stiga forystu í deildinni með því að
vinna nauman sigur á KR, 67:65, í
Stykkishólmi en Snæfell hefur þá unn-
ið sjö leiki í röð. KR var yfir 18 sek-
úndum fyrir leikslok en Hildur Sig-
urðardóttir gerði síðustu þrjú stig
leiksins úr vítaskotum, tvö þau síð-
ustu þegar ein sekúnda var eftir.
Haukar, sem eru jafnir Keflvík-
ingum í öðru til þriðja sæti, töpuðu
líka á heimavelli, 69:91 gegn Vals-
konum. Með þessum sigri styrktu
Valsarar verulega stöðu sína í fjórða
sæti deildarinnar og eru þar nú fjór-
um stigum á undan Hamri og KR.
Anna Martin fór á kostum með Val og
skoraði 36 stig en Lele Hardy gerði 21
fyrir Hauka.
Hamar gerði góða ferð til Grinda-
víkur og vann þar öruggan sigur,
92:79. Þar með er Grindavíkurliðið nú
aðeins tveimur stigum á undan Njarð-
vík við botn deildarinnar og útlit fyrir
harðan fallslag. vs@mbl.is
Óvæntur sigur
Njarðvíkinga
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sækir Lele Hardy úr Haukum með boltann en Hallveig Jónsdóttir úr Val fylgist
með henni. Valskonur gerðu góða ferð á Ásvelli og unnu þar stóran sigur.
Unnu í Keflavík Snæfell jók forskotið
Keppendur frá 21 landi taka þátt í alþjóðlega
badmintonmótinu Iceland International sem
hefst í TBR-húsunum í dag og stendur yfir til
sunnudags. Af 110 keppendum á mótinu eru 72
erlendir og koma frá Evrópu, Norður-
Ameríku, Asíu, Afríku og Eyjaálfu.
Mótið er nú haldið í 17. skipti og það er hluti
af mótaröð Badmintonsambands Evrópu
þannig að það gefur stig á heimslista.
Fremst í flokki á mótinu eru Maxime Mo-
reels frá Belgíu sem er númer 107 á heimslista
karla og Zuzana Pavelkova frá Tékklandi sem
er númer 98 á heimslista kvenna. Af Íslendingunum er Kári
Gunnarsson fremstur, raðað sem sjöunda sterkasta keppand-
anum í einliðaleik karla, en hann er sá eini af Íslendingunum sem
ekki þarf að fara í forkeppnina. vs@mbl.is
Koma frá 5 heimsálfum
Kári
Gunnarsson
Þórður Rafn Gissurarson, kylfingur úr GR,
komst ekki í gegnum niðurskurðinn á móti í
Tyrklandi í gær en það er hluti af þýskri at-
vinnumótaröð.
Hann lék annan hringinn í gær á 74 högg-
um eða fimm höggum yfir pari vallarins.
Þórður Rafn lék hringinn í gær á 72 högg-
um og var samtals á átta höggum yfir pari
eftir tvo hringi.
Hann var fjórum höggum frá því að kom-
ast í gegnum niðurskurðinn en lokahring-
urinn verður spilaður á morgun.
GR-ingurinn fékk tvo fugla í dag, á 16. og 2. holu, en hann hóf
leik á 10. braut. Hann fékk fimm skolla og einn skramba. Fjögur
högg vantaði upp á að hann myndi spila lokahringinn.
sport@mbl.is
Þórður komst ekki áfram
Þórður Rafn
Gissurarson
Svisslendingurinn Roger Federer vann Skot-
ann Andy Murray örugglega, 6:3, 6:4, 6:7 og
6:3, í átta manna úrslitum opna ástralska
mótsins í tennis í gær og mætir Rafael Nadal í
undanúrslitum.
Murray, sem vann mótið í fyrra, hafði ekki
roð við Svisslendingnum í dag en Federer
sýndi allar sínar bestu hliðar og vann til-
tölulega auðveldan sigur. Hann hefur unnið
mótið fjórum sinnum, síðast árið 2010.
Í hinum undanúrslitaleiknum mætir Stan-
islas Wawrinka Tékkanum Tomas Berdych en
Wawrinka gerði sér lítið fyrir og lagði Novak Djokovic í gær í
átta manna úrslitum. Í kvennaflokki mætast Agnieszka Radw-
anska og Dominiku Cibulkova annars vegar og Li Na og Genie
Bouchard hinsvegar. sport@mbl.is
Federer mætir Nadal
Roger
Federer
Keflavík – Njarðvík 57:66
TM-höllin, Dominos-deild kvenna:
Gangur leiksins: 3:0, 6:4, 11:12, 12:16,
15:18, 15:23, 22:23, 26:27, 28:34, 32:38,
37:38, 41:42, 46:50, 50:51, 52:57, 57:66.
Keflavík: Porsche Landry 19/6 fráköst,
Sara Rún Hinriksdóttir 14/7 fráköst,
Sandra Lind Þrastardóttir 6/9 fráköst,
Bríet Sif Hinriksdóttir 5/7 fráköst, Telma
Ásgeirsdóttir 5, Bryndís Guðmundsdóttir
5/9 fráköst, Lovísa Falsdóttir 3/4 fráköst.
Njarðvík: Guðlaug Björt Júlíusdóttir 21,
Nikitta Gartrell 16/12 fráköst, Sara Dögg
Margeirsdóttir 6, Heiða B. Valdimarsdóttir
6/4 fráköst, Ásdís Vala Freysdóttir 6/5 frá-
köst, Ína María Einarsdóttir 5, Andrea
Björt Ólafsdóttir 4/5 fráköst, Salbjörg
Sævarsdóttir 2/5 fráköst.
Grindavík – Hamar 79:92
Grindavík, Dominos-deild kvenna:
Gangur leiksins: 7:3, 11:11, 16:16, 20:25,
20:29, 23:29, 30:32, 36:38, 44:46, 44:57,
50:60, 59:66, 66:71, 66:78, 68:85, 79:92.
Grindavík: Blanca Lutley 25/9 fráköst, Pál-
ína Gunnlaugsdóttir 17, María Ben Er-
lingsdóttir 16/6 fráköst, Helga Rut Hall-
grímsdóttir 10/10 fráköst, Jóhanna Rún
Styrmisdóttir 4/9 fráköst, Ingibjörg Jak-
obsdóttir 3/9 stoðsendingar, Katrín Ösp
Eyberg 2, Jeanne Lois Figeroa Sicat 2.
Hamar: Di’Amber Johnson 31/11 fráköst/7
stoðsendingar, Fanney Lind Guðmunds-
dóttir 22/7 fráköst, Íris Ásgeirsdóttir 19,
Marín Laufey Davíðsdóttir 9/13 fráköst,
Kristrún Rut Antonsdóttir 4, Sóley Guð-
geirsdóttir 4/4 fráköst, Katrín Eik Össurar-
dóttir 3/8 fráköst.
Snæfell – KR 67:65
Stykkishólmur, Dominos-deild kvenna:
Gangur leiksins: 3:0, 8:2, 10:7, 16:11, 22:11,
25:13, 34:20, 37:25, 43:29, 45:36, 49:40,
49:40, 56:44, 58:52, 62:56, 67:65.
Snæfell: Chynna Unique Brown 24/9 frá-
köst, Hildur Björg Kjartansdóttir 12/12
fráköst, Hildur Sigurðardóttir 9/4 fráköst/7
stoðsendingar, Guðrún Gróa Þorsteins-
dóttir 9/12 fráköst/5 stoðsendingar, Eva
Margrét Kristjánsdóttir 8/4 fráköst, Helga
Hjördís Björgvinsdóttir 3/7 fráköst, Hug-
rún Eva Valdimarsdóttir 2.
KR: Sigrún Sjöfn Ámundadóttir 19/11 frá-
köst/7 stolnir, Ebone Henry 17/13 fráköst/6
stoðsendingar/5 stolnir, Björg Guðrún Ein-
arsdóttir 11, Bergþóra Holton Tómasdóttir
11/4 fráköst, Helga Einarsdóttir 5, Sara
Mjöll Magnúsdóttir 2/5 fráköst.
Haukar – Valur 69:91
Schenkerhöllin, Dominos-deild kvenna:
Gangur leiksins: 7:4, 11:9, 16:21, 21:26,
30:30, 35:35, 42:43, 44:45, 48:51, 52:53,
56:59, 60:68, 62:76, 62:82, 64:87, 69:91.
Haukar: Lele Hardy 21/16 fráköst/5 stoð-
sendingar/5 stolnir, Lovísa Björt Henn-
ingsdóttir 14/6 fráköst/5 varin skot, Gunn-
hildur Gunnarsdóttir 10/9 fráköst/6
stoðsendingar/6 stolnir, Margrét Rósa
Hálfdanardóttir 9/4 frák., Dagbjört Sam-
úelsdóttir 5, Jóhanna Sveinsdóttir 4, Íris
Sverrisdóttir 4, Auður Íris Ólafsdóttir 2.
Valur: Anna Alys Martin 36/6 fráköst, Guð-
björg Sverrisdóttir 13/5 fráköst/7 stoðsend-
ingar, Ragna Margrét Brynjarsdóttir 10/9
fráköst, Þórunn Bjarnadóttir 9, Hallveig
Jónsdóttir 9/4 fráköst/5 stolnir, Rut Her-
ner Konráðsdóttir 5/4 fráköst, Unnur Lára
Ásgeirsdóttir 3, Sóllilja Bjarnadóttir 3,
María Björnsdóttir 2/4 fráköst, Sara Diljá
Sigurðardóttir 1.
Staðan:
Snæfell 19 16 3 1507:1239 32
Haukar 19 13 6 1493:1327 26
Keflavík 19 13 6 1399:1372 26
Valur 19 9 10 1369:1326 18
KR 19 7 12 1295:1341 14
Hamar 19 7 12 1327:1389 14
Grindavík 19 6 13 1314:1483 12
Njarðvík 19 5 14 1233:1460 10
NBA-deildin
Brooklyn – Orlando............................ 101:90
Miami – Boston..................................... 93:86
New Orleans – Sacramento............... 97:114
Oklahoma City – Portland................. 105:97
Utah – Minnesota ............................... 97:112
KÖRFUBOLTI
Spánverjar gulltryggðu sér sæti í
undanúrslitum Evrópumótsins í
fyrsta leiknum í Herning í gær þeg-
ar þeir unnu auðveldan sigur á
Makedóníu, 33:22. Vonir Íslands um
að skáka Spánverjum og fara í fjög-
urra liða úrslit voru bundnar við að
Makedóníu tækist að vinna en það
var aldrei í spilunum, þó staðan væri
reyndar jöfn langt frameftir fyrri
hálfleik. Spánverjar stungu af í
seinni hálfleik og ekki bætti úr skák
að stórskyttan Kiril Lazarov lék ekki
með Makedóníu vegna nárameiðsla.
Joan Canellas skoraði 6 mörk fyr-
ir Spánverja og Víctor Tomás 5 en
þeir mæta Frökk-
um á morgun.
Patrekur Jó-
hannesson og
austurrískir læri-
sveinar hans fögn-
uðu sætum sigri á
Ungverjum, 25:24,
og þar með var
ljóst að ungverska
liðið gæti ekki
ógnað því íslenska
í þriðja sæti riðilsins. Austurríki
komst þó ekki úr neðsta sæti milli-
riðilsins en hafnaði í 11. sæti keppn-
innar. vs@mbl.is
Auðvelt hjá Spánverjum
Joan
Canellas