Morgunblaðið - 31.03.2014, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. MARS 2014
- snjallar lausnir
545 3200 wise.is sala@wise.isGold Enterprise Resource Planning
Silver Independent Software Vendor (ISV)
TM
Borgartún 26, Reykjavík » Hafnarstræti 102, Akureyri
sími: 545 3200 » wise@wise.is » www.wise.is
Dynamics NAV er einn mest seldi
bókhaldshugbúnaður á Íslandi í dag.
Wise er í fararbroddi í upplýsingatækni með sérstaka áherslu á
ráðgjöf, hugbúnaðargerð og innleiðingar ásamt öflugri og
persónulegri þjónustu.
Fjölbreyttar lausnir á sviði fjármála, viðskiptagreindar, verslunar,
sérfræðiþjónustu, sjávarútvegs, sveitarfélaga og flutninga, sem
einfalda þér þitt hlutverk.
Tugir þúsunda Taívana mótmæltu viðskipta-
samningi stjórnvalda við Kína við forsetahöllina
í Taipei í gær. Margir mótmælenda klæddust
svörtum bolum og höfuðklútum með áletruninni
„stöndum vörð um lýðræðið, dragið samninginn
til baka“ en þeir krefjast þess að taívanska þjóð-
in fái að taka þátt í að ákvarða og skilgreina
samband landsins við stórveldið. Forseti Taívan,
Ma Ying-jeou, hefur unnið að bættum sam-
skiptum milli landanna tveggja frá því að hann
tók við embætti árið 2008 en kannanir sýna að
aðeins um 10% þjóðarinnar eru ánægð með störf
hans. Í viðleitni til að koma á friði milli mótmæl-
enda og yfirvalda hefur hann gengið að þeirri
kröfu að lög verði sett til að tryggja eftirlit með
öllum samningum við Kína en mótmælendur
hafa meðal annars gagnrýnt ógagnsæi samn-
ingaviðræða milli landanna og óttast að verið sé
að fórna þjóðarhagsmunum Taívan fyrir snaut-
legan efnahagslegan ábata. Stjórnvöld í Kína líta
enn á Taívan sem kínverskt landsvæði.
Tugþúsundir mótmæltu við forsetahöllina í Taipei í gær
Óttast um hagsmuni þjóðarinnar
AFP
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
John Kerry, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, og Sergei Lavrov,
utanríkisráðherra Rússlands, fund-
uðu í París í gær. Þar ræddu þeir
m.a. um tillögur Rússa er varða
framtíð Úkraínu en þær fela m.a. í
sér að Úkraína verði hlutlaust sam-
bandsríki og að staðaryfirvöld geti
tekið rússnesku upp sem annað op-
inbert tungumál og fengið aukið
sjálfstæði frá stjórnvöldum í Kænu-
garði.
Lavrov kallaði í gær eftir stuðn-
ingi við hugmyndir Rússa. „Ef vest-
rænar samstarfsþjóðir okkar eru
reiðubúnar, þá geta Rússland,
Bandaríkin og Evrópusambandið
myndað stuðningshóp um Úkraínu,“
sagði ráðherrann við rússneska rík-
issjónvarpið. Hann sagði að í kjölfar-
ið yrði komið á viðræðum allra úkra-
ínskra stjórnmálaafla, utan
vopnaðara öfgamanna, sem myndu
enda með nýrri stjórnarskrá sem
gerði ráð fyrir auknu sjálfræði ein-
stakra svæða.
Tillögur Rússa virðast algjörlega á
skjön við vilja stjórnvalda í Úkraínu
en úkraínska utanríkisráðuneytið
hvatti Rússa í gær til þess að gæta
fyrst að algjöru valdleysi minnihluta-
hópa í Rússlandi áður en þeir settu
öðrum fullvalda þjóðum úrslitakosti.
Einn af umræddum úrslitakostum er
að hlutleysi Úkraínu verði innleitt í
stjórnarskrá landsins, til að koma í
veg fyrir að landið gangi nokkurn
tímann í Atlantshafsbandalagið.
Ólíkar hugmyndir
Hugmyndir Bandaríkjamanna um
leiðina fram á við snúa að því að
draga úr spennu á svæðinu en talið
er að um 40.000 rússneskir hermenn
séu í viðbúnaðarstöðu nærri landa-
mærum Úkraínu. Stjórnvöld í Wash-
ington hafa farið fram á afvopnun
Kreml-sinnaðra varaliða í Úkraínu
og alþjóðlegt eftirlit með ástandinu í
landinu. Þá vilja þau koma á beinum
viðræðum milli Rússa og Úkraínu-
manna og að fyrirhugaðar kosningar
25. maí fari fram.
Stjórnarandstöðuleiðtoginn og
hnefaleikakappinn Vítalí Klítsjkó
dró framboð sitt til forseta til baka
um helgina. Þá lýsti hann yfir stuðn-
ingi við súkkulaðijöfurinn Petro Po-
rosjenkó, sem nýtur nokkru meira
fylgis en Júlía Tímósjenkó, sam-
kvæmt skoðanakönnunum.
Sambandsríkið Úkraína
Rússar leggja fram tillögur um framtíð Úkraínu Vilja aukna sjálfstjórn og
rússnesku sem annað tungumál Landið verði hlutlaust og gangi aldrei í NATÓ
Ástralskir leitarmenn komu í gær
auga á fjóra appelsínugula hluti á
floti í Indlandshafi, vestur af Perth,
og segja um að ræða eina vænleg-
ustu vísbendinguna um afdrif flugs
MH370 sem fram hefur komið.
Myndir af hlutunum, sem virðast
meira en tveggja metra langir,
voru sendir áströlskum yfirvöldum,
sem taka ákvörðun um hvort skip
verða send á vettvang.
Ættingjar kínverskra farþega
malasísku vélarinnar, sem hvarf
fyrir rúmum þremur vikum, ítrek-
uðu í gær gremju sína við malasísk
stjórnvöld og fóru fram á hrein og
bein svör. Þarlend yfirvöld sögðu í
síðustu viku að ljóst væri að allir
innanborðs hefðu farist en sam-
göngumálaráðherrann Hisham-
muddin Hussein sagði á laugardag
að hann hefði ekki misst vonina um
að einhverjir fyndust á lífi. Fram að
þessu hefur hver vísbendingin á
fætur annarri reynst villandi og
mögulegt brak reynst t.d. veið-
arfæri og dauð marglytta.
AFP
Bið Ættingjar halda enn í vonina.
Nýjar vísbendingar
og aukin gremja
Christophe Darbellay, leiðtogi
kristilegra demókrata í Sviss, hefur
farið fram á útskýringar frá varn-
armálaráðherra landsins eftir að
svissneska vikublaðið Le Matin
Dimanche greindi frá því að sænski
flugvéla- og vopnaframleiðandinn
Saab hefði gert samning við banda-
rískt fyrirtæki um framleiðslu á
fjarskiptabúnaði í vélar sínar.
Hinn 18. maí næstkomandi ganga
Svisslendingar til þjóðaratkvæða-
greiðslu um kaup á 22 orrustu-
þotum frá Saab en blaðið hefur eft-
ir sérfræðingum að fyrirtækið
bandaríska, Rockwell Collins, gæti
mögulega útbúið „bakdyr“ að fjar-
skiptakerfinu og gert bandarískum
njósnastofnunum kleift að nálgast
upplýsingar sem vélarnar safna við
eftirlitsflug.
„Í ljósi uppljóstrana [Edward]
Snowden tel ég að þetta séu mis-
tök,“ sagði Darbellay í samtali við
vikublaðið. „Ég mun ávallt hafa
meiri trú á fyrirtæki frá Bern en
Sámi frænda,“ sagði hann en fjar-
skiptabúnaður Saab-vélanna var
áður smíðaður af svissneska fyr-
irtækinu Roschi Rohde & Schwartz.
Óttast að Bandaríkja-
menn steli frá þeim
eftirlitsupplýsingum