Barnablaðið - 15.03.2014, Blaðsíða 5
BARNABLAÐIÐ 5
g
það. Maður
gera í ýmsum
ir þegar ég
iki og líst vel
Á Reykjavík Open skákmótinu keppir þú á
móti fólki á öllum aldri - hvernig gengur það?
Það gengur ágætlega. Aldur skiptir ekki máli í
skák.
Þú átt sæti í unglingalandsliði Íslands í
skák og hefur keppt töluvert í útlöndum.
Segðu okkur aðeins frá því.
Ég er búinn að vera í liðinu í 1-2 ár. Ég hef
t.d. keppt tvisvar sinnum á Evrópumótinu
(EM), í Prag 2012 og í Budva í Svartfjallalandi
2013. Ég hef líka keppt tvisvar sinnum á
Norðurlandamótum, tekið þátt í Politiken
Cup í Danmörku og svona. Vann brons þar
síðast auk þess sem íslenska liðið varð síðan
Norðurlandameistari, annað árið í röð.
Hvað eruð þið mörg í unglingalands-liðinu?
Við erum 10 - tveir í hverjum flokki. Ég keppi
í 12 ára og yngri [11-12 ára]. Ég fer upp um
flokk á næsta ári, í 13-14 ára [14 ára og yngri]).
Myndir þú segja að skák væri flókin?
Hún getur verið það. Segjum til dæmis þegar
maður er í tímahraki, með mjög lítinn tíma á
klukkunni, og staðan er mjög flókin á borðinu.
Þá verður maður að vera mjög fljótur að hugsa,
til að finna vinningsleiðina. Stundum nær
maður því ekki - það er mjög óþægilegt.
Hvað finnst þér skemmtilegast við skákina?
Bara að tefla og hugsa og svona - svo er líka
alltaf gaman að vinna.
Áttu þér einhverja fyrirmynd í
skákheiminum?
Já, Magnus Carlsen stórmeistara [23 ára]
Hvað með önnur áhugamál?
Boltaíþróttirnar höfða svolítið til mín. Ég
hef æft fótbolta í 6-7 ár, handbolta í tvö
ár og farið á körfuboltanámskeið og slíkt.
Fyrir hverja er skákin - myndir þú segja?
Ég geri þetta eiginlega bara fyrir sjálfan
mig, af því að mér finnst þetta gaman.
Áttu þér einhverja framtíðardrauma í
skákinni?
Já, að verða stórmeistari.
Rétt í lokin - kannski ósanngjörn
spurning, en áttu þér einhvern
uppáhalds taflmann?
Biskup - veit ekki alveg hvers vegna.
Mér finnst hann bara skemmtilegur.
á að verða stórmeistari
imisson sigraði á dögunum öðru sinni á Reykjavík
kmótinu, sem fram fór í Hörpu. Þessi knái 12 ára
nafjarðarskóla, tók þar líka þátt í Reykjavík Open-
u hann og fleiri ungir skákkappar kappi við aðra
m í flestum tilfellum voru töluvert eldri.
mi þegar stund gafst milli stríða á mótinu og
ra meira um áhuga hans á skákinni. Það er
i að við fundum hann í hressum hópi
em allir eru á kafi í íþróttinni, og nýttu
nn á milli umferða til að tefla.
Ljósmyndir/Ómar Óskarsson
Við taflborð í Hörpu
Með stórmeistaranum
Gary Kasparov