Morgunblaðið - 14.05.2014, Síða 2

Morgunblaðið - 14.05.2014, Síða 2
2 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. MAÍ 2014 KNATTSPYRNA Pepsi-deild kvenna Breiðablik – Stjarnan.............................. 1:0 Aldís Kara Lúðvíksdóttir 49. Þór/KA – Valur ....................................... 1:1 Helena Rós Þórólfsdóttir 86. – Dóra María Lárusdóttir 67. Selfoss – ÍBV ............................................ 1:2 Guðmunda Brynja Óladóttir 82. (víti) – Shaneka Gordon 72., Vesna Smiljkovic 79. Rautt spjald: Kristrún Rut Antonsdóttir (Selfossi) 78. Afturelding – FH ..................................... 1:3 Steinunn Sigurjónsdóttir 8. – Jóhanna Steinþóra Gústavsdóttir 40., Heiða Dröfn Antonsdóttir, 68., Ana Victoria Cate 72. Borgunarbikar karla 2. umferð: Kári – KV .................................................. 0:4 Berserkir – BÍ/Bolungarvík.................... 2:8  Aaron Spear skoraði fimm mörk fyrir Djúpmenn og Andri Rúnar Bjarnason 3. Hamar – KFR........................................... 1:0 KA – Magni ............................................... 7:0 Þróttur V. – KFG ..................................... 3:4 Sindri – Huginn ........................................ 4:3 KH – Selfoss ............................................. 1:3 Grindavík – ÍA .......................................... 4:1  Juraj Grizelj og Magnús Björgvinsson skoruðu tvö mörk hvor fyrir Grindavík en Hjörtur Hjartarson skoraði mark ÍA. Ægir – Afturelding................................... 0:4 Skínandi – Víðir ........................................ 0:4 Þróttur R. – KFS...................................... 5:0 Elliði – Haukar ......................................... 0:2 Vængir Júpíters – Augnablik.................. 0:3 Leiknir F. – Fjarðabyggð........................ 1:4 Leiknir R. – ÍR ......................................... 1:3 KF – Völsungur ........................................ 2:0 Víkingur Ó. – HK ..................................... 0:2  Sigurliðin eru komin í 32 liða úrslit. England Umspil um sæti í B-deild, seinni leikur: Leyton Orient – Peterborough ............... 2:1  Leyton Orient áfram, 3:2 samanlagt, og mætir Rotherham eða Preston í úrslitaleik. Ítalía B-deild: Spezia – Varese........................................ 2:1  Hörður Björgvin Magnússon lék með Spezia allan tímann. Austurríki B-deild: Austria Lustenau – Vienna .................... 2:1  Helgi Kolviðsson þjálfar Austria sem er í 2. sæti deildarinnar. Vináttulandsleikur Þýskaland – Pólland................................. 0:0 Olís-deild karla Fjórði úrslitaleikur: ÍBV – Haukar ....................................... 27:20  Staðan er 2:2 og mætast liðin í hreinum úrslitaleik á Ásvöllum annað kvöld. Austurríki Undanúrslit, fyrri leikur: Aon Fivers – Westwien....................... 30:27  Erlingur Richardsson þjálfar Westwien. Liðin mætast aftur á heimavelli Westwien á sunnudagskvöldið. HANDBOLTI Úrslitakeppni NBA Austurdeild, undanúrslit: Brooklyn – Miami............................... 96:102  Staðan er 3:1 fyrir Miami sem er á heimavelli í fimmta leiknum í kvöld kl. 23.  Indiana og Washington mættust í nótt. Indiana var 3:1 yfir. Sjá mbl.is. Vesturdeild, undanúrslit: Portland – San Antonio...................... 103:92  Staðan er 3:1 fyrir San Antonio sem er á heimavelli í fimmta leiknum í nótt kl. 01.30.  Oklahoma City og LA Clippers mættust í nótt. Staðan var 2:2. Sjá mbl.is. KÖRFUBOLTI HANDKNATTLEIKUR Fjórði úrslitaleikur kvenna: Vodafonehöll: Valur – Stjarnan .......... 19.45  Staðan er 2:1 fyrir Stjörnuna sem yrði Ís- landsmeistari með sigri í kvöld. KNATTSPYRNA Úrvalsdeild kvenna, Pepsi-deildin: Norðurálsvöllur: ÍA – Fylkir............... 19.15 Borgunarbikar karla, 2. umferð: Hofsós: Tindastóll – Dalvík/Reynir .... 19.15 Akraneshöll: Grundarfj. – Njarðvík ........ 20 Schenkervöllur: ÍH – Ármann ............ 20.30 Borgunarbikar kvenna, 1. umferð: KR-völlur: KR – HK/Víkingur............ 19.15 Nettóvöllurinn: Keflavík – ÍR ............. 19.15 Framvöllur: Fram – Tindastóll ........... 19.15 FRJÁLSÍÞRÓTTIR Kastmót ÍR fer fram á kastsvæðinu í Laug- ardal kl. 17.30. Keppt er í spjótkasti og kringlukasti. Í KVÖLD! Í EYJUM Júlíus G. Ingason sport@mbl.is ÍBV og Haukar mætast í hreinum úr- slitaleik á morgun, fimmtudag. Þetta varð ljóst eftir að Eyjamenn lögðu Hauka að velli í Eyjum í gærkvöldi með sjö mörkum, 27:20. Liðin hafa nú unnið tvo leiki hvort en til þessa hafa þau alltaf unnið heimaleikina. Töl- fræðin er því á bandi Haukanna á morgun en Eyjamenn hafa stemn- inguna með sér enda ætlaði þakið að rifna af Íþróttamiðstöðinni þegar sig- urinn var í höfn. Jón Þorbjörn sá rautt Eins og við var að búast var leik- urinn í járnum framan af fyrri hálf- leik. Umdeilt atvik varð á 20. mínútu þegar Haukamaðurinn Jón Þorbjörn Jóhannsson fékk að líta rauða spjald- ið. Jón Þorbjörn hafði fengið tveggja mínútna brottvísun en virtist rekast í Guðna Ingvarsson þegar hann var að ganga af velli. Gísli Jóhannsson og Hafsteinn Ingibergsson, dómarar leiksins, réðu ráðum sínum og ákváðu að sýna Jóni Þorbirni rauða spjaldið. Umdeilt svo ekki sé meira sagt og úr blaðamannastúkunni virtist dómurinn einfaldlega rangur. Eftir þetta áttu þeir Gísli og Hafsteinn afar erfitt uppdráttar, voru búnir að gefa ákveðna línu sem þeir þurftu að fylgja enda fór það svo að leikmenn voru samanlagt í kælingu í 28 mínútur, 14 mínútur á hvort lið. Svo er spurning hvort rauða spjaldinu fylgi skýrsla en það myndi þýða leikbann fyrir Jón Þorbjörn, sem væri virkilega ósann- gjarnt. Eins og Eyjamönnum væri ætlað að vinna Það var eins og Eyjamönnum væri ætlað að vinna þennan leik fyrir fram- an sína frábæru stuðningsmenn sem troðfylltu Íþróttamiðstöðina og sungu hástöfum frá því fyrir leik og í góða stund eftir hann. Í upphafi síðari hálf- leiks voru leikmenn ÍBV einum eða tveimur færri í um fimm mínútur en þeim tókst að komast í gegnum þann kafla og eftir það var ekkert sem stöðvaði Eyjamenn. Hægt og bítandi juku þeir muninn og gerðu það jafnt og þétt út allan hálfleikinn. Mestur varð munurinn átta mörk, 25:17, en Haukar náðu aðeins að laga stöðuna undir lokin. Kolbeinn góður í markinu Til að bregðast við slakri mark- vörslu í síðasta leik brugðu þeir Arn- ar Pétursson og Gunnar Magnússon, þjálfarar ÍBV, á það ráð að kalla á Hauk Jónsson, þriðja markvörð, en geyma Norðmanninn Henrik Eids- vaag. Þótt Haukur hafi ekki komið mikið við sögu fengu Eyjamenn góða vörslu frá Kolbeini Ingibjargarsyni, sem varði alls um 44% skota sem á hann komu og það þykir nokkuð gott. Aðrir leikmenn stóðu fyrir sínu en það sem vekur athygli er hversu jafnt markaskorun dreifðist hjá ÍBV. Það var í raun alveg sama þótt Haukar reyndu að taka einn eða tvo úr um- ferð, aðrir tóku þá bara við keflinu. Haukar vilja sjálfsagt gleyma þess- um leik sem fyrst. Varnarleikur liðs- ins í seinni hálfleik var lélegur og markvarslan lítil sem engin og mun- aði mikið um að Giedrius Morkunas náði sér ekki á strik eftir góðan fyrri hálfleik. Sigurbergur Sveinsson lék ekkert í síðari hálfleik, sat á bekknum með kælipoka á hnénu sem eru alls ekki góð tíðindi fyrir Hafnarfjarð- arliðið. Og svo er spurning hvort Jón Þorbjörn verður í leikbanni á morg- un. Stuðningsmenn ÍBV bæta í Eins og gefur að skilja voru fagn- aðarlætin gífurleg í leikslok í Eyjum. Áhorfendur risu á fætur, byrjuðu á því að syngja þjóðhátíðarlagið 2012, Þar sem hjartað slær, og bættu svo um betur með því að syngja Slor og skít eins og leikmenn ÍBV gera alltaf eftir sigurleiki. Eitt er víst: stuðn- ingsmenn ÍBV hafa lyft stemningunni í handboltanum upp á hærra plan og eru frekar að bæta í en hitt. Það kæmi þeim sem þetta skrifar ekki á óvart ef þeir lituðu aðra stúkuna hvíta í úrslitaleiknum í Hafnarfirði á morg- un. Það stefnir allavega í einhverja mestu fólksflutninga frá Eyjum síðan aðfaranótt 23. janúar 1973. Draumur handboltans rættist í Eyjum í gær Vestmannaeyjar, fjórði úrslitaleikur karla, þriðjudag 13. maí 2014. Gangur leiksins: 1:0:2:3, 5:7, 7:9, 8:9, 11:11, 16:12, 19:15, 23:17, 27:20. Mörk ÍBV: Agnar Smári Jónsson 5/1, Róbert Aron Hostert 5, Andri Heimir Friðriksson 5, Magnús Stef- ánsson 4, Grétar Eyþórsson 4, Guðni Ingvarsson 2, Svavar Grét- arsson 1, Sindri Haraldsson 1. Varin skot: Kolbeinn A. Ingibjarg- arson 14/1, Haukur Jónsson 1. Utan vallar: 14 mínútur Mörk Hauka: Adam Haukur Baum- ruk 6, Einar Pétur Pétursson 6, Árni Steinn Steinþórsson 3, Sigurbergur Sveinsson 2/1, Brynjólfur Snær Brynjólfsson 2, Jónatan Ingi Jónsson 1. Varin skot: Giedrius Morkunas 13, Einar Ólafur Vilmundarson 1. Utan vallar: 14 mínútur. Dómarar: Gísli Jóhannsson og Haf- steinn Ingibergsson.. Áhorfendur: 900 í frábærri stemn- ingu.  Staðan er 2:2 og liðin mætast í úrslitaleik á Ásvöllum annað kvöld. ÍBV – Haukar 27:20 3. UMFERÐ Sindri Sverrisson sindris@mbl.is „Ég vissi að FH hafði ekki náð að vinna KR á síðustu leiktíð og Heimir þjálfari var búinn að segja að ég yrði að vera sterkur og að við yrðum að vinna vel saman. Þetta var auðvitað mjög mikilvægur leikur fyrir okkur sem gæti skipt sköpum í baráttunni um titilinn,“ sagði malíski miðvörð- urinn Kassim Doumbia sem átti sannkallaðan stórleik í vörn FH þeg- ar liðið vann Íslandsmeistara KR 1:0 í fyrrakvöld. Doumbia er leikmaður 3. umferðar í Pepsi-deildinni að mati Morgunblaðsins. „Ég reyni að gera mitt besta fyrir liðið í hverjum einasta leik og bæta mig með hverjum leik. Þetta var mjög erfiður leikur. Það er vont að spila á gervigrasinu og þeir pressuðu stöðugt á okkur,“ sagði Doumbia. Gary Martin reynir að svindla Hann hafði góðar gætur á Gary Martin, framherja KR-inga, en þeir áttu í innbyrðis rimmu allan leikinn þar sem Doumbia fór með sigur af hólmi og það sást vel að Englending- urinn var ekki sáttur. Doumbia skaut fast á KR-inginn: „Fótbolti er ekki íþrótt þar sem maður spilar eins og einhver dama. Það þýðir ekki að vera alltaf að láta sig detta. Hann var alltaf að láta sig detta án þess að ég snerti hann. Ég skil ekki svona hegðun. Það er ekki rétt að menn reyni að svindla svona og þetta gerði mig mjög reiðan. Hann var alltaf að reyna að koma mér úr jafnvægi, sparka í mig og svona, en ég sagði honum bara að spila fótbolta og svo gætum við talað saman. En ég vann leikinn þannig að mér er sama um allt annað,“ sagði Doumbia. Doumbia er 23 ára gamall og kom til FH frá Waasland-Beveren í belg- ísku úrvalsdeildinni. Hann hafði þá leikið í Belgíu frá 18 ára aldri en samdi við FH-inga til tveggja ára. Hvað kom til að hann endaði hér- lendis? Sögðu að ég væri klikkaður „Mér var boðið að koma hingað til reynslu og ég ákvað bara að hoppa á tækifærið. Vinir mínir í Belgíu sögðu að ég væri klikkaður en ég ákvað að koma og reynslutíminn gekk vel. Það mikilvægasta er fólkið. Þegar ég kom voru allir strax mjög vinalegir og tóku vel á móti mér, og þar með var allt miklu auðveldara að koma sér fyrir. Það er góð stemning í hópnum, ekkert um slagsmál og rifr- ildi heldur bara ást og það er mik- ilvægast – að andrúmsloftið sé gott,“ sagði Doumbia, ánægður með liðs- félaga sína sem hann segir marga hverja mjög skemmtilega. „Auðvitað! Jón [Jónsson], söngv- arinn, er svo fyndinn. Hann er best- ur, mér þykir hann ótrúlega skemmtilegur,“ sagði Doumbia og hló. Hann býr hér á landi með konu sinni og 20 mánaða gömlum syni og er litla fjölskyldan smám saman að koma sér fyrir á ókunnugum slóðum. „Býr virkilega einhver hé  Malíski miðvörðurinn Kassim Doumbia er leikmaður 3. umferðar í Pepsi-deildinni Ræktin Kassim Doumbia tók vel á því í tækjasaln- um í Kaplakrika þegar Morgunblaðið hitti hann þar í gær.  ÍBV og Haukar mætast í hreinum úrslitaleik um Íslandsmeistaratitilinn á morgun í Hafnarfirði  Framundan mestu fólksflutningar frá Eyjum síðan 1973

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.