Morgunblaðið - 14.05.2014, Side 3

Morgunblaðið - 14.05.2014, Side 3
ÍÞRÓTTIR 3 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. MAÍ 2014 KvennaliðHauka hefur tryggt sér áfram- haldandi þjónustu bandarísku körfu- boltakonunnar Lele Hardy en hún skrifaði í gær und- ir nýjan tveggja ára samning við bikarmeistarana. Hardy átti frábæru gengi að fagna með Haukaliðinu á tímabilinu og það kom fáum á óvart að hún var valin besti erlendi leikmaðurinn í Dominos- deildinni. Að því er fram kemur á heimasíðu Hauka reyndu nokkur ís- lensk lið að fá Hardy til liðs við sig en hún ákvað að halda kyrru fyrir hjá Haukunum og það var hennar ósk að samningurinn yrði til tveggja ára en ekki eins árs.    John Terry, fyr-irliði Chelsea, hefur skrifað und- ir nýjan eins árs samning við Lundúnaliðið og er nú samnings- bundinn því til ársins 2015. Terry, sem er 33 ára gamall, gekk til liðs við Chelsea frá West Ham árið 1995 og hann lék sinn fyrsta leik með aðalliði félagsins þremur árum síðar. Terry hefur spilað yfir 600 leiki með Chelsea og hefur þrívegis orðið Englandsmeistari með því og þá hefur hann unnið enska bik- arinn fimm sinnum, deildabikarinn í tvígang og Evrópumeistaratitilinn fyrir tveimur árum.    Samir Nasri, miðjumaðurinnsterki í liði nýbakaðra Englands- meistara Manchester City, verður að sætta sig við að fylgjast með HM í sjónvarpinu en hann var ekki valinn í 23 manna landsliðshóp Frakka sem landsliðsþjálfarinn Didier Desc- hamps opinberaði í gær. Fólk sport@mbl.is Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson Barátta Eyjamaðurinn Grétar Ey- þórsson reynir hér að brjóta sér leið framhjá Adam Hauki Baumruk. „Þegar ég lenti hérna og var á leiðinni til Hafnarfjarðar vissi ég ekki hvað ég átti að halda. Ég sá bara auðn, ekkert nema hraun, og spurði sjálfan mig: Býr virkilega ein- hver hérna? En svo kemur maður hingað og sér miðbæinn og Reykja- vík sömuleiðis sem er mjög falleg. Veðrið er auðvitað ekki eins hlýtt og í Evrópu en það er misjafnt á milli daga og stundum er mjög gott veð- ur. Ég kann vel við mig hérna hing- að til, maturinn er góður og það er vel séð um okkur,“ sagði Doumbia, og segir fjölskylduna deila þeirri skoðun. Eiginkonurnar hjálpa „Þeim líkar mjög vel hérna. Eigin- konur strákanna í liðinu eru mjög vingjarnlegar og hjálpa konu minni að koma sér fyrir,“ sagði Doumbia. Hann er uppalinn í Bamako, höfuð- borg Malí. „Ég spilaði þar með ASKO í 1. deildinni í Malí og fékk svo tækifæri með B-landsliðinu, sem er skipað leikmönnum sem eru ekki atvinnu- menn. Eftir það hafði Gent samband og ég fór til Belgíu árið 2008 þar sem ég skrifaði undir fyrsta atvinnu- mannasamninginn, 18 ára gamall. Það var erfitt að komast að í liðinu sem miðvörður og á endanum fór ég að láni til FC Brussels í 2. deild þar sem ég spilaði alla leiki og stóð mig vel. Eftir það fór ég til Waasland- Beveren, sumarið 2011, og komst með liðinu upp í efstu deild,“ sagði Doumbia. Skoraði gegn Eiði Smára Hann var orðinn samningslaus þegar FH fékk hann. Hann segir styrkleika íslenskrar knattspyrnu ágætan. „Ég vissi ekkert um Ísland eða íslenskan fótbolta. Ég hafði spil- að gegn þessum sem er í Breiðabliki núna, [Stefáni] Gíslasyni, en ég vissi ekkert að hann væri frá Íslandi. Ég spilaði líka gegn Eiði Smára Guð- johnsen sem ég veit auðvitað að er alveg stórkostlegur leikmaður, og skoraði í þeim leik ef ég man rétt,“ sagði Doumbia sem hefur annars ekki haft mikinn tíma til að meta ís- lensku liðin. „Í fyrsta leiknum gegn Breiðabliki fannst mér þeir mjög góðir í að halda boltanum innan liðsins og þeir spiluðu góðan fótbolta. Í leiknum gegn Fylki voru þeir allir í vörn og reyndu að sækja hratt fram, og KR- liðið var mjög gott. Ég þekki ekki til fleiri liða en mér sýnist íslenskur fótbolti vera nokkuð góður. Styrkur deildarinnar er auðvitað ekki sá sami og í Belgíu og víða annars staðar í Evrópu, þar sem samkeppnin er meiri, en FH gæti spjarað sig þar eins og liðið hefur sýnt í Evr- ópudeildinni,“ sagði Doumbia sem hlakkar til að spreyta sig með FH í þeirri keppni. Góð frammistaða þar gæti skilað honum aftur á meginland Evrópu en þessi öflugi miðvörður hugsar lítið um það núna. „Vonandi verðum við meistarar í haust og svo sjáum við til hvað ger- ist. Í augnablikinu er ég leikmaður FH og það er það eina sem ég hugsa um,“ sagði Kassim Doumbia, leik- maður 3. umferðar í Pepsi-deildinni 2014. érna?“ Morgunblaðið/Þórður Leikmenn: Haraldur F. Guðmundsson, Keflavík 4 Jonas Sandqvist, Keflavík 4 Kassim Doumbia, FH 4 Atli Guðnason, FH 3 Davíð Þór Viðarsson, FH 3 Gunnar Már Guðmundsson, Fjölni 3 Hafsteinn Briem, Fram 3 Lið: FH 21 Keflavík 19 Fjölnir 16 Valur 12 Fram 11 3. umferð í Pepsi-deild karla 2014 Einkunnagjöfin Þessir erumeð flest M í einkunnagjöf Morgunblaðsins. Gefið er eitt M fyrir góðan leik, tvöM fyrir mjög góðan leik og þrjú M fyrir frábæran leik. Markahæstir 3-4-3 Þórður Ingason Fjölni Lið umferðarinnar Kassim Doumbia FH Tryggvi Sveinn Bjarnason Fram Bjarni Ólafur Eiríksson Val Jóhannes Karl Guðjónsson Fram Andrew Sousa Fylki Einar Orri Einarsson KeflavíkKristján Gauti Emilsson FH Elías Már Ómarsson Keflavík Aron Sigurðarson Fjölni Gunnar Örn Jónsson Fylki Ármann PéturÆvarsson, Þór 2 Elías Már Ómarsson, Keflavík 2 Gunnar Már Guðmundsson, Fjölni 2 Hörður Sveinsson, Keflavík 2 Ólafur Karl Finsen, Stjörnunni 2 KR 11 Stjarnan 10 Fylkir 9 Víkingur R. 9 Breiðablik 8 Þór 8 ÍBV 7 Hversu oft leikmaður hefur verið valinn í lið umferðarinnar 2 2

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.