Morgunblaðið - 14.05.2014, Side 4

Morgunblaðið - 14.05.2014, Side 4
4 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. MAÍ 2014 FERÐASUMAR 2014 ferðablað innanlands SÉRBLAÐ PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA: Fyrir kl. 16, mánudaginn 26. maí. Í blaðinu verður viðburðardagatal sem ferðalangar geta flett upp í á ferðalögum um landið og séð hvað er um að vera á því svæði sem verið er að ferðast um í. –– Meira fyrir lesendur Morgunblaðið gefur út sérblað Ferðasumar 2014 ferðablað innanlands föstudaginn 30. maí. NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is Í FÍFUNNI Þorkell Gunnar Sigurbjörnss. thorkell@mbl.is Aldís Kara Lúðvíksdóttir skoraði eina markið í stórslag bikarmeist- ara Breiðabliks og Íslandsmeistara Stjörnunnar í 1. umferð Pepsídeild- ar kvenna í gærkvöld þegar liðin mættust í Fífunni í Kópavogi. Markið kom eftir mistök í vörn Stjörnunnar þegar Aldís Kara komst inn í sendingu aftur til mark- manns og afgreiddi boltann framhjá Söndru Sigurðardóttur í marki Ís- landsmeistaranna. Breiðablik vann því leikinn 1:0. „Það er auðvitað mjög svekkjandi að vera sinn eigin bani. En svona er þetta bara. Við vinnum sem lið og við töpum sem lið,“ sagði Harpa Þorsteinsdóttir, framherji Stjörn- unnar, í viðtali við Morgunblaðið að loknum leik í gærkvöld. Stjarnan fór í gegnum Íslands- mótið í fyrra með fullt hús stiga og er liðið sem öll hin vilja vinna í sum- ar. Garðbæingar vissu sjálfsagt að þeir færu ekki í gegnum tvö sumur í röð með fullt hús stiga, en það geta þó ekki verið annað en vonbrigði fyrir liðið að tapa strax í 1. umferð, þótt það sé gegn sterku liði Breiða- bliks. Skipulagið í fyrirrúmi Leikurinn í gærkvöld var afar jafn, bæði lið vel skipulögð og varn- arleikurinn var í fyrirrúmi. Það gekk líka mjög vel hjá báðum liðum í vörninni, fyrir utan þessi mistök Stjörnunnar sem kostuðu liðið stig út úr leiknum. Markmiðið hjá Blikum var samt greinilega bara að vinna leikinn sama hvernig, því þegar Ragna Björg Einarsdóttir fékk sendingu inn fyrir vörn Stjörnunnar þremur mínútum fyrir leikslok tók hún á rás í átt að hornfánanum í stað þess að reyna að sækja inn á teiginn og ógna að marki. Það virtist í raun skipta meira máli að verja 1:0- forystuna en að reyna að bæta við marki, allavega í þetta sinn. Það er svosem ekkert skrýtið að bæði lið hafi nálgast leikinn á var- færinn hátt og lagt upp með þéttan varnarleik og treyst á skyndisóknir. Þetta eru jú tvö af þremur liðum sem spáð er að muni berjast um Ís- landsmeistaratitilinn. En það er jú líka alltaf sama gamla þulan um að fyrst þurfi að hafa vörnina í lagi áð- ur en sótt er. Bæði lið munu þó væntanlega kynna áhorfendur fyrir meira spennandi sóknarleik í leikjum gegn öðrum liðum í deildinni. Greining Rakelar Hönnudóttur, fyrirliða Breiðabliks, á leiknum í gærkvöld var kannski ekki fjarri lagi. „Mér fannst þetta kannski bara snúast um það hvort liðið skor- aði á undan, því leikurinn var svo jafn,“ sagði Rakel að loknum leik í Fífunni. Rakel, sem ber fyrirliðaband Breiðabliks, þráir sjálfsagt ekkert heitar en að fagna Íslandsmeist- aratitlinum í haust. Hún hefur aldr- ei unnið þann stóra, en eftir mörg ár hjá Þór/KA skipti hún í raðir Breiðabliks 2012 og varð því ekki meistari með Akureyringum sama ár. Þótt Íslandsmótið sé rétt að byrja færir sigurinn í gærkvöld Breiðabliki þó sjálfstraust. FH lenti undir en vann samt Aftureldingu er spáð neðsta sæti úrvalsdeildarinnar af fyrirliðum, þjálfurum og forráðamönnum liða í deildinni. Mosfellingar byrjuðu þó vel gegn FH í gærkvöld og komust yfir með marki Steinunnar Sig- urjónsdóttur strax á 8. mínútu. FH sýndi þó styrk sinn og skor- aði þrjú mörk í röð og vann 3:1. Jó- hanna Steinþóra Gústavsdóttir, Heiða Dröfn Antonsdóttir og Ana Victoria Cate skoruðu mörkin. ÍBV vann á Selfossi Eyjakonur sóttu svo þrjú stig á Selfoss þar sem ÍBV vann 2:1. Shaneka Gordon og Vesna Smiljko- vic skoruðu mörk ÍBV en Guð- munda Brynja Óladóttir mark Sel- foss úr víti. Mistök meistaranna nýtt  Breiðablik sigraði Íslandsmeistara Stjörnunnar í 1. umferð úrvalsdeildar kvenna í knattspyrnu  FH hafði betur gegn Aftureldingu  ÍBV lagði Selfoss Morgunblaðið/Ómar Fögnuður Leikmenn Breiðabliks fagna sigurmarki Aldísar Köru Lúðvíksdóttur í Fífunni í gærkvöld. Ég segi ekki að ég sé búinn að poppa og pússa flatskjáinn en ég er alla vega fyllilega meðvit- aður um það að HM í fótbolta, stærsti íþróttaviðburður heims utan Ólympíuleikanna, hefst 12. júní. Það verður vissulega með blöndu af trega og gleði þegar maður fylgist með Króötum mæta Brasilíu í upphafsleiknum, í ljósi þess hve nærri Ísland var því að vera þarna í stað Króatíu, en svo tekur við mánaðarlöng knattspyrnuveisla þar til nýir meistarar verða krýndir 13. júlí. Maður er auðvitað vanur því að geta ekki haldið með Ís- landi á stórmótum í knattspyrnu karla, og þess vegna eru Hol- lendingar mínir menn á slíkum mótum. Þeir spila alla jafna skemmtilegan fótbolta og hafa þannig hrifið mig með sér. Það er hins vegar ansi langt liðið síðan þeir fögnuðu titli og ég hef farið illa út úr veðmálum við Spánar- dýrkandann kærustuna mína á síðustu mótum. Ég sé ekki fram á að það breytist nú, með þessa vörn sem hollenska liðið teflir fram. Spánn og Holland mætast í riðlakeppninni í þetta sinn en það er nokkuð ljóst að bæði lið komast áfram í 16-liða úrslitin. Innbyrðis leikur liðanna gæti hins vegar mjög líklega orðið úr- slitaleikur um hvort liðið þarf að mæta Brasilíu í 16-liða úrslit- unum. Það er eitthvað sem öll lið vilja forðast í lengstu lög, enda Brasilíumenn einna sigur- stranglegastir fyrir mótið. Aðrar þjóðir sem gera tilkall til titilsins í ár eru meðal annars Þýskaland og Argentína. Þá held ég að Ítalir gætu komið mörgum á óvart. Vonandi mæta menn annars ferskir til leiks þrátt fyrir eitilharða titilbaráttu í stórum deildum á borð við þá spænsku og ensku. BAKVÖRÐUR Sindri Sverrisson sindris@mbl.is Þór/KA og Valur skildu jöfn, 1:1, þegar liðin áttust við á grasvelli Þórsara á Akureyri í 1. umferð Pepsídeildar kvenna í knattspyrnu í gærkvöld. Landsliðskonan Dóra María Lárusdóttir kom Valslið- inu yfir á 67. mínútu með skoti úr vítateignum en Helena Rós Þórólfsdóttir jafnaði metin fyrir Akureyrarliðið fimm mínútum fyrir leikslok með viðstöðulausu skoti frá vítateigshorninu. Þar við sat en liðin urðu að sættast á skiptan hlut. Bæði lið sköpuðu sér ágæt færi en mörkin urðu bara tvö og líklegast voru úrslitin sanngjörn. Báðum þessum liðum er spáð toppbaráttu en í árlegri spá forráðamanna og fyrirliða var Valskonum spáð 3. sæti en Þór/KA því fjórða. Valur endaði í öðru sæti í deildinni á síðustu leiktíð en norðankonur höfnuðu í fjórða sætinu. Valur tekur á móti Aftureldingu í 2. umferðinni á þriðjudaginn en Þór/KA sækir lið Selfyssinga heim á sunnudaginn. gummih@mbl.is Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Gleði og sorg Helena Rós Þórólfsdóttir, lengst til vinstri, fagnar jöfnunarmarki sínu gegn Val þegar tæpar fimm mínútur voru eftir, eins og vallarklukkan sýnir. Elín Metta Jensen Valsmaður getur ekki leynt vonbrigðum sínum. Helena tryggði Þór/KA jafntefli

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.