Morgunblaðið - 21.07.2014, Blaðsíða 1
MÁNUDAGUR 21. JÚLÍ 2014
ÍÞRÓTTIR
Sund Sundkappinn Anton Sveinn McKee tvíbætti Íslandsmetið í 200 metra bringusundi á L.A.
boðsmótinu í Bandaríkjunum um helgina og bætti Íslandsmetið í 400 metra skriðsundi. 7
Íþróttir
mbl.is
AFP
Bestur Rory McIlroy lék best á Opna breska meistaramótinu um helgina.
OPNA BRESKA
Skúli Unnar Sveinsson
skuli@mbl.is
Norður-írski kylfingurinn Rory
McIlroy sigraði í gær á Opna breska
meistaramótinu í golfi sem haldið
var á Royal Liverpool-vellinum í
Bretlandi. Hann lék hringina fjóra á
271 höggi, eða á 17 höggum undir
pari. Næstir urðu Sergio Garcia frá
Spáni og Rickie Fowler frá Banda-
ríkjunum, en þeir léku báðir á 15
höggum undir pari.
„Þetta er frábært enda er þetta
mótið sem við viljum allir sigra á,“
sagði McIlroy þegar hann tók við
verðlaunagripnum fræga. „Ég get
ekki beðið eftir að verja þennan sig-
ur á St. Andrews á næsta ári,“ bætti
hann við kátur í bragði.
Góð forysta fyrir lokahringinn
McIlroy var með góða forystu fyr-
ir lokahringinn í gær en hann var
sex höggum á undan Rickie Fowler
og voru þeir saman í ráshóp. Fowler
náði aldrei að gera alvarlega atlögu
að McIlroy, en fékk þrjá fugla á síð-
ustu fjórum holunum og náði að
krækja í annað sætið ásamt Sergio
Garcia, báðir á 15 höggum undir
pari, tveimur höggum á eftir meist-
aranum.
Garcia náði hins vegar aðeins að
velgja meistaranum undir uggum
enda lék hann fyrri níu holurnar á
þremur höggum undir pari og fékk
síðan örn á tíundu holu og var þá
kominn fimm undir parið á meðan
McIlroy var á pari eftir fyrri níu.
Garcia náði muninum þrívegis niður
í tvö högg, en nær komst hann ekki
og verður því enn að bíða eftir að
sigra á risamóti.
Frábær hringur hjá Furyk
Jim Furyk laumaði sér upp í
fjórða sætið með frábærum leik í
gær en hann lék hringinn á 65 högg-
um, sjö undir pari. Það er met en
þrír aðrir kylfingar léku þennan leik
í gær, Marc Leishman frá Ástralíu,
Shane Lowry frá Írlandi og Chris
Wood frá Englandi.
McIllroy, sem er 25 ára síðan í
maí, bætti þarna enn einni skraut-
fjöðrinni í hatt sinn því hann hefur
sigrað á tveimur öðrum risamótum.
Ævintýrið byrjaði á Opna banda-
ríska árið 2011 þar sem hann sigraði
með átta högga mun, lék þá á 16
höggum undir pari, sem er met á því
móti. Ári síðar sigraði hann á PGA
meistaramótinu með átta höggum
og í gær bætti hann þriðja risamót-
inu við, Opna breska og varð þar
með fyrsti Evrópubúinn til að sigra
á þremur mismunandi risamótum.
Faðir hans græddi líka
Faðir McIlroy lagði fé undir í veð-
bönkum þegar strákurinn var 15 ára
og sagði að hann myndi sigra á Opna
breska áður en hann yrði 26 ára.
Hann mun því uppskera ríkulega nú
þegar pilturinn hefur náð þessu
markmiði, eða sem nemur tæpum 40
milljónum króna.
Taugar McIlroy héldu
Sigraði á Opna breska meistaramótinu í Liverpool Fyrsti Evrópubúinn
síðan 1934 til að sigra á þremur risamótum Garcia og Fowler komu næstir
Framtíð Guð-
laugs Victors
Pálssonar, leik-
manns N.E.C.
Nijmegen í Hol-
landi, skýrist
vonandi á næstu
dögum að eigin
sögn en hann er
á förum frá fé-
laginu sem féll
úr hollensku úr-
valsdeildinni á síðasta tímabili.
Guðlaugur og Nijmegen höfðu
komist að samkomulagi við aust-
urríska félagið Sturm Graz fyrir
rúmum tveimur vikum um fé-
lagaskipti. „Það var komið í höfn,“
sagði Guðlaugur Victor við Morg-
unblaðið í gær en síðan hrökk allt í
baklás.
„Eftir að allt var orðið klárt
segja þeir við okkur að þeir þurfi
að selja einn leikmann áður en ég
get komið,“ en leikmaðurinn sem
um ræðir er Anel Hadzic sem lék
með Bosníu á HM í Brasilíu. Nú
eru liðnar tvær vikur og það er
mun lengra en Guðlaugur bjóst
við. „Ég vona virkilega að þessi
Sturm Graz samningur gangi í
gegn. Áhuginn sem þeir hafa sýnt
mér er mjög mikill og þjálfarinn er
búinn að hafa samband við mig
persónulega. Það er mikilvægt að
vita þegar maður gengur til nýs
félags að manni sé ætlað hlutverk í
byrjunarliðinu.“ peturhreins@mbl.is
Sturm Graz
heldur Guð-
laugi í bið
Guðlaugur Victor
Pálsson
Stjörnumenn eru enn án taps eftir 12 leiki í Pepsi-
deild karla í knattspyrnu. Stjarnan vann 3:1-útisigur
á Fylki í gærkvöld í Árbænum og tók um leið topp-
sætið. Reyndar getur FH endurheimt toppsætið í
kvöld þegar FH sækir Breiðablik heim. Stjarnan
hefur 26 stig eftir 12 leiki en FH er með 25 stig eftir
11 leiki.
Fast á hæla þeirra sækja svo KR-ingar með 22
stig í 3. sæti, en KR vann 4:1-sigur á Val á laug-
ardag.
Jonathan Glenn hjá ÍBV er orðinn markahæsti
leikmaður deildarinnar. Hann skoraði síðara mark
ÍBV þegar Eyjamenn unnu Fram, 2:0 í Eyjum í gær.
Glenn hefur nú skorað 7 mörk í deildinni og ÍBV
unnið þrjá leiki í röð og er að taka við sér eftir afleita
byrjun. Fram er hins vegar komið í botnsæti deild-
arinnar, því Þór og Keflavík gerðu markalaust jafn-
tefli á Akureyri og þar með fór Þór upp fyrir Fram.
Tólftu umferð úrvalsdeildar karla lýkur í kvöld
með tveimur leikjum. Breiðablik tekur á móti FH á
Kópavogsvelli og Víkingur R. og Fjölnir mætast í
Víkinni. Báðir leikirnir hefjast klukkan 19.15.
Fjallað er um leiki helgarinnar í Morgunblaðinu í
dag. »2, 4, 8
Stjarnan enn taplaus
Fram er á botninum
Morgunblaðið/Eggert
Barátta Daníel Laxdal Stjörnunni og Albert Brynjar Inga-
son, nýjasti liðsmaður Fylkis, eigast við í leiknum í gær.
Miklar líkur eru á því að FH-
ingurinn Kristján Gauti Emilsson
semji við hollenska B-deildarliðið
NEC Nejmegen. Kristján Gauti fór
til Hollands um helgina þar sem
hann skoðaði aðstæður hjá félaginu
og í hollenskum fjölmiðlum er því
haldið fram að hann muni semja við
félagið.
Ekki náðist í Kristján Gauta í
gær, en Jón Rúnar Halldórsson,
formaður knattspyrnudeildar FH,
sagði í samtali við Morgunblaðið að
ekki væri búið að ganga frá neinu
en átti allt eins von á því að það
gæti gerst fljótlega.
FH lánaði Albert Brynjar Inga-
son til Fylkis um helgina og því
fækkar framherjum liðsins um tvo
fari Kristján Gauti til Hollands. Jón
Rúnar sagði miklar líkur á því að
FH fengi því til sín nýjan sóknar-
mann fljótlega en þó sé ekkert í
hendi ennþá.
Kristján Gauti
á leið til NEC
Nejmegen
21. júlí 1987
Íslenska karlalandsliðið í hand-
knattleik sigrar Bandaríkin,
26:20, í vin-
áttulandsleik í
Georgíu. Júlíus
Jónasson og Að-
alsteinn Jónsson
eru markahæstir
með 6 mörk hvor
fyrir íslenska liðið
sem mætir Bandaríkjamönnum
sjö sinnum á níu dögum í ferð-
inni.
21. júlí 2012
Ísland sigrar Argentínu, 27:23, í
vináttulandsleik karla í hand-
knattleik í Kaplakrika en liðin
eru í lokaundirbúningi sínum
fyrir Ólympíuleikana í London.
Guðjón Valur Sigurðsson skorar
6 mörk, Snorri Steinn Guðjóns-
son og Róbert Gunnarsson 5
hvor.
21. júlí 2013
Ísland sigrar Makedóníu, 99:83, á
alþjóðlegu körfuknattleiksmóti
karla í Kína og tryggir sér með
því annað sætið. Jakob Örn Sig-
urðarson er stigahæstur í ís-
lenska liðinu með 22 stig.
Á ÞESSUM DEGI