Morgunblaðið - 21.07.2014, Síða 8

Morgunblaðið - 21.07.2014, Síða 8
8 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. JÚLÍ 2014 Vodafone-völlurinn að Hlíðarenda, Pepsi-deild karla, 12. umferð, laug- ardag 19. júlí 2014. Skilyrði: Þungskýjað en völlurinn leit ágætlega út. Skot: Valur 9 (4) – KR 11 (8). Horn: Valur 5 – KR 4. Valur: (4-3-3) Mark: Fjalar Þor- geirsson. Vörn: Billy Berntsson, Magnús Már Lúðvíksson, Mads Nielsen, Bjarni Ólafur Eiríksson. Miðja: Tonny Mawejje, Iain Willi- amson, Kristinn Freyr Sigurðsson (Sigurður Egill Lárusson 71.). Sókn: Kristinn Ingi Halldórsson (Daði Bergsson 61.), Kolbeinn Kárason (Patrick Pedersen 46.), Arnar Sveinn Geirsson. KR: (4-3-3) Mark: Stefán Logi Magnússon. Vörn: Haukur Heiðar Hauksson (Egill Jónsson 76.), Grétar S. Sigurðarson, Aron Bjarki Jósepsson, Guðmundur R. Gunn- arsson (Gunnar Þór Gunnarsson 61.) Miðja: Almarr Ormarsson, Baldur Sigurðsson, Jónas Guðni Sævarsson. Sókn: Kjartan Henry Finnbogason, Gary Martin (Þor- steinn Már Ragnarsson 66.), Emil Atlason. Dómari: Erlendur Eiríksson – 8. Áhorfendur: 832. Valur – KR 1:4 Á HLÍÐARENDA Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson thorkell@mbl.is Valsmönnum virðist ætla að ganga frekar illa að verja vígið sitt á Hlíð- arenda í sumar. Liðið hefur leikið fimm leiki á Vodafone-vellinum í sumar og tapað þremur þeirra. Það segir sig sjálft að með þannig áfram- haldi ná Valsmenn sér ekki í neitt Evrópusæti þetta árið eins og stefn- an var sett á. KR vann Val á laugardag, 4:1 og þar með eru KR-ingar enn taplausir á Vodafone-vellinum síðan Valsmenn tóku völlinn í notkun sumarið 2008. KR-ingar kunna greinilega vel við sig gegn þessum nágrönnum sínum í Reykjavík, en sennilega enginn bet- ur en Gary Martin sem var frábær í leiknum á laugardag. Martin skoraði mark og lagði upp annað og var gríð- arlega vinnusamur í leiknum og stýrði sóknarleik KR vel. Martin hefur nú skorað í síðustu fimm leikj- um sínum gegn Val, sem er ekki ónýtt. Álaginu dreift KR-ingar hafa breiðan hóp og með lið ennþá í bikarkeppni og leik gegn Celtic í forkeppni Meistaradeildar Evrópu á morgun í Edinborg þarf að dreifa álaginu. Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, gaf Almari Ormarssyni tækifæri í byrjunarliðinu gegn Val og hann svaraði kallinu með marki og stoðsendingu. Reyndar átti Óskar Örn Hauksson líka að koma nýr inn í byrjunarlið KR frá síðasta leik, en komst ekki heill í gegnum upphitun á laugardag. Óskar Örn hefur verið tæpur vegna meiðsla að undanförnu. Þegar leið á leikinn fór Rúnar Kristinsson svo að taka lykilmenn af velli til hvíldar og gaf öðrum mönnum sviðið. Fjarlægjast markmiðin Valsmenn mættu til leiks með þrjá nýja leikmenn. Úgandamaðurinn Tonny Mawejje skoraði í sínum fyrsta leik fyrir félagið og hægri bakvörðurinn Billy Berntsson frá Svíþjóð virkaði sprækur fyrstu 20 mínútur leiksins. Daði Bergsson sem kemur frá Hollandi kom ferskur inn á sem varamaður og reyndi eins og hann gat að valda usla. Það vantaði ekki markmiðin hjá Val fyrir leiktíðina. Þau voru skýr og ákveðið var að stefna til Evrópu. Nýir leikmenn hafa verið fengnir inn, en úrslitin hafa ekki endilega verið í takt við væntingar. Sóknarleikur Vals gegn KR var bitlaus. Kolbeinn Kárason sem lék sem fremsti maður liðsins var tek- inn af velli í hálfleik og Arnar Sveinn Geirsson átti afleitan dag. Patrick Pedersen sem kom inn á fyrir Kolbein í hálfleik náði sér svo- sem ekki heldur á strik. Valur er sjö stigum frá Evrópu- sæti þegar 10 umferðir eru eftir og ljóst að menn þurfa að spýta í lófana að Hlíðarenda ef markmiðin eiga að nást. Vígið illa varið  KR-ingar eru taplausir á Vodafone-vellinum að Hlíðar- enda  Gary Martin skorað í fimm leikjum í röð gegn Val Morgunblaðið/Eggert Fagnað Jónas Guðni Sævarsson, Emil Atlason, Kjartan Henry Finnbogason og Guðmundur Reynir Gunnarsson fagna marki Kjartans Henrys gegn Val á laugardag. KR-ingar unnu öruggan sigur á Val í leik sem lauk 4:1. 0:1 Aron Bjarki Jós-epsson 28. skallaði fyrirgjöf Gary Martin í slá og inn. 0:2 Kjartan Henry Finn-bogason 35. tók á móti sendingu Hauks Heiðars Haukssonar á vítateigslínunni og skaut svo fallegu skoti í markið. 0:3 Almarr Ormarsson37. fylgdi eftir skoti Kjartans Henrys. 1:3 Tonny Mawejje 41.skoraði af stuttu færi eftir sendingu Kristins Freys Sigurðssonar. 1:4 Gary Martin 58. fylgdieftir skoti Almars Ormarssonar. I Gul spjöld:Nielsen (Val) 87. (brot). I Rauð spjöld: Engin. MM Gary Martin (KR). M Kristinn Freyr Sigurðsson (Val) Almarr Ormarsson (KR) Kjartan Henry Finnbogason (KR) Jónas Guðni Sævarsson (KR) Aron Bjarki Jósepsson (KR) Haukur Heiðar Hauksson (KR) Það er mikilvægt fyrir alla íþróttamenn að njóta stuðnings foreldra sinna og hafi bakland í fjölskyldu sinni. Það versta er þó ef foreldrar ætla börnum sínum að vera eitthvað sem þau eru ekki, eða ætlast til þess að þau af- reki eitthvað í íþróttum sem börnin hafa ekki getu til. En það er nú samt einu sinni þannig að sumir íþrótta- menn hafa meiri hæfileika en aðrir og oft sjá menn það fyr- ir fljótlega á unglingsárum. Þannig var það allavega með norður-írska kylfinginn Rory McIlroy sem vann opna breska meistaramótið í golfi í gær. Gerry McIlroy, faðir Rorys, hafði svo mikla trú á syni sínum í golfi að þegar Rory var aðeins 15 ára gamall, fyrir tíu árum síðan, lögðu Gerry og þrír vinir hans undir 400 pund á að Rory McIlroy myndi vinna opna breska meistaramótið í golfi áður en hann yrði 26 ára. Veðbankinn taldi líkurnar 500 á móti ein- um. Til að halda því til haga þá var Rory McIlroy 25 ára, tveggja mánaða og 16 daga gamall í gær þegar hann fagn- aði sínum fyrsta sigri á opna breska meistaramótinu í golfi. Faðir hans og vinirnir þrír ættu því að hafa fengið í sinn hlut því sem nemur 40 millj- ónum króna eða 10 milljónir á mann vegna þessa 10 ára gamla veðmáls. Mér dettur ekki til hugar að hvetja fólk til að leggja peninga undir á að börnin þeirra verði einhver stórmenni í íþróttum þegar fram líða stundir. En hins vegar má hvetja til þess að hlúa vel að ungu og efnilegu íþróttafólki. Þau eru stjörnur framtíð- arinnar – eða í það minnsta kemur það í hlut í einhverra þeirra sem skara ungir fram í sínum íþróttagreinum. BAKVÖRÐUR Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson thorkell@mbl.is unum þegar 34 sekúndur voru eftir. „Við fengum frítt þriggja stig skot og brennum því af,“ sagði Ív- ar Ásgrímsson, þjálfari íslenska liðsins, um síðustu sekúndur úr- slitaleiksins en íslenska liðið var síst lakara en það austurríska sem small vel saman í síðasta leiknum. Small saman í úrslitaleiknum „Við lentum á góðu liði, þær spiluðu mjög vel. Þær voru að hitta miklu betur í þessum leik en þær höfðu verið að gera. Sér í lagi úr þristum. Þær voru ekki búnar að gera það í hinum leikjunum. Þetta var eiginlega fyrsti leikurinn þar sem liðið small saman hjá þeim.“ Dómgæslan var heldur ekki hlið- holl Íslendingum í leiknum. „Við byrjuðum mjög vel og komumst í 11:2 og þá eru dómararnir að dæma mjög hart á okkur og varn- arleikurinn riðlast mjög. Við feng- um á okkur 23 villur á móti 7. Þær fengu tuttugu víti í fyrri hálfleik á meðan við fengum fjögur. Það var ekki sama dómgæslan báðum meg- in,“ sagði Ívar. Helena Sverrisdóttir var valin besti leikmaður mótsins en hún spilaði frábærlega á mótinu og var stigahæst í liði Íslands með að meðaltali 17.5, stig í leik, náði 9,5 fráköstum og átti 4,3 stoðsend- ingar. Ljóst er að Evrópukeppni smá- þjóða er afar góður prófsteinn fyr- ir þau lið sem taka þátt og íslenska liðið sýndi heldur betur að það á heima í stærri keppni eins og úr- slitin úr hinum þremur leikjunum gefa til kynna. „Við kepptum þrjá leiki sem við förum mjög auðveldlega með og það reynir ekki nógu mikið á okk- ur. Við eigum að fara í sterkari keppni. Framfarirnar hafa verið það miklar og stelpurnar eru góð- ar,“ sagði Ívar sem stýrði liðinu til sigurs í sömu keppni fyrir 10 árum en að hans sögn er hann með„mun betra lið núna“ og ljóst að liðið stefnir á að taka þátt í sterkari mótum í náinni framtíð. „Mun betra lið núna“  Íslenska kvennalandsliðið í körfuknattleik hlaut silfur í Austurríki  Helena valin best Framtíðin er björt Morgunblaðið/Ómar Best Helena Sverrisdóttir var valin besti leikmaðurinn í Evrópukeppni smáþjóða sem fram fór í Austurríki. Hún skoraði 17,5 stig að meðatali. KÖRFUBOLTI Pétur Hreinsson peturhreins@mbl.is Íslenska kvennalandsliðið í körfu- knattleik kom heim í gær frá St. Pölten í Austurríki en þar tók liðið þátt í Evrópukeppni smáþjóða. Ís- lenska liðið hlaut silfurverðlaun á mótinu þar sem heimakonur í Austurríki hrósuðu sigri. Íslenska liðið spilaði vel á mótinu og vann sinn riðil örugg- lega en með Íslandi í riðli var Gí- braltar og Malta. Ísland valtaði yf- ir fyrrnefnda liðið 120:30 og sigraði Möltu einnig með miklum mun, 85:46. Skotland var íslensku stelp- unum engin fyrirstaða í undan- úrslitunum og fór sá leikur 85:59. Austurríska liðið reyndist hins vegar of stór biti fyrir íslensku stelpurnar að kyngja og vann liðið mótið í annað skiptið í röð í spenn- andi úrslitaleik 81:87 þar sem ein- ungis munaði þremur stigum á lið-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.