Barnablaðið - 09.08.2014, Qupperneq 4
BARNABLAÐIÐ4
Eiður Orri Pálmarsson er 9 ára gamall en hann verður 10
ára á þessu ári. Eiður stundar motocross og er með tvö
mótorhjól í bílskúrnum sem hann er duglegur að æfa sig
á. Eiður segir motocross–íþróttina henta fyrir alla, börn,
fullorðna, stráka og stelpur en hann minnir á hversu
mikilvægt er að vera með góðan hlífðarbúnað þegar
hjólað er á mótorhjóli.
Pennavinir
Hæ. Ég heiti Þórhildur og er að leita að pennavini. Ég er 10
ára og vil helst 9-11 ára pennavin. Ég vona að þið skrifið mér.
Þórhildur
Birkigrund 2
800 Selfossi
Hvað gerir maður í motocross?
Maður stekkur, beygir og keyrir hratt
til dæmis.
Hvar stundar þú motocross?
Ég keyri á MotoMos–brautinni í
Mosfellsbæ og uppi í Bolöldu sem
er á móti Litlu kaffistofunni. Svo er
ein braut rétt hjá heimilinu mínu og
við förum stundum þangað. Það er
líka hægt að keyra á Akranesi og
Aukureyri.
Ferðast þú um allt landið til að
stunda motocross?
Já, og þegar við förum til Aukureyrar
þá erum við kannski í tvo eða þrjá
daga.
Hvernig eru motocrossbrautirnar?
Til dæmis er MotoMos–brautin úr
svona sandsteypu.
Hvenær byrjaðir þú að æfa þig á
mótorhljól?
Þegar ég var þriggja ára. Þá þurfti ég
minna mótorhjól.
Hver kenndi þér á mótorhjól?
Hann pabbi. Svo er ég að æfa uppi
í Bolöldu, þá eru þjálfarar að kenna
okkur, þeir heita Gulli og Helgi.
Eru einhverjir vinir þínir að stunda
þessa íþrótt líka?
Já, þeir heita Máni, Víðir og Fannar.
Víðir er með mér í skóla.
Hvað er skemmtilegast við að æfa
motocross?
Keppnin er skemmtileg og svo
eignast maður marga vini.
Er þetta hættuleg íþrótt?
Hún getur verið það. Þess vegna
notum við hjálm, legghlífar, brynjur,
hálskraga og annan hlífðarbúnað.
Hefur þú dottið á mótorhjóli?
Já, oft og stundum hef ég meitt mig.
Hver er munurinn á mótorhjólunum
þínum?
Annað þeirra er 65 cubic og hitt er
85 cubic, þannig að annað þeirra er
stærra og fer betur ofan í holur. Ég
er nýbyrjaður að nota þetta sem er
stærra.
Hvað segir fólk þegar þú segir
þeim að þú sért að æfa motocross?
Sumir eru hissa en ekki allir.
Myndir þú mæla með þessari
íþrótt?
Já, aðallega fyrir þá sem eru með
keppnisskap og fyrir þá sem vilja
hafa gaman. Sumir prófa að hjóla án
þess að keppa.
Áttu þér einhver önnur áhugamál?
Já, fótbolta og skíði og ég er að æfa
það líka.
Motocross er fyrir þá
sem vilja hafa gaman
„Keppnin
er skemmti–
leg og svo
eignast maður
marga
vini.“