Morgunblaðið - 24.06.2014, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 24.06.2014, Blaðsíða 3
Í LAUGARDAL Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Eftir fimm mínútur af leik Fram og FH í Laugardal höfðu Hafnfirðingar átt þrjú álitleg færi og gaf það fyr- irheit í leik þar sem annað liðið var í líki kattar en hitt í líki músar. 4:0 sigur FH-inga var síst of stór og átti hið unga og vængbrotna lið Framara eng- in svör við því sem andstæðingurinn bauð upp á gær. FH endurheimti þar með toppsætið úr höndum Stjörn- unnar. Eftir mark á 7. mínútu og orrahríð upp við mark Framara, sem vart kom- ust út fyrir vítateig fyrstu 20 mín- úturnar, náðu hinir bláklæddu, undir forystu Viktors Bjarka Arnarsonar, þó eilítið að komast inn í leikinn og fengu ágætt færi þegar Alexander Már Þor- láksson hitti ekki knöttinn úr fínu færi í teignum. Bjarni Guðjónsson, þjálfari Fram, hefur eflaust vonast til þess að hans menn myndu bíta í skjaldar- rendur í síðari hálfleik, en eftir að Kristján Gauti Emilsson kom Hafn- firðingum í 2:0 forystu í upphafi síðari hálfleiks var aldrei spurning hvorum megin sigurinn myndi enda. Einungis hversu stór sigurinn yrði. Fyrir utan það að eiga miðjuna allan leikinn gerðu sóknarmenn Hafnfirð- inga varnarmönnum Fram lífið leitt. Sérstaklega var Kristján Gauti líflegur og lék hann sér ítrekað að miðvarða- pari Framara. Þá var Atli Viðar frísk- ur honum við hlið. „Ég var að „fíla“ mig vel og er með hrikalega góða menn í kringum mig. Það er alltaf gott þegar liðið skorar mikið af mörkum. Það hefur ekki gengið að undanförnu en það gekk í dag sem er mjög jákvætt fyrir okkur,“ sagði Kristján Gauti eftir leik. Nóg af færum Það er óhætt að segja að FH-liðið hafi ekki litið út fyrir að vera lið sem átt hefur í vandræðum með marka- skorun í upphafi móts. Hvert færið rak annað, sérstaklega í upphafi leiks og þrátt fyrir að Ögmundur í marki Fram hafi eflaust viljað gera betur í tveimur markanna, þá varði hann einnig í tví- gang einn gegn sóknarmanni FH. Að auki áttu Hafnfirðingar marga mögu- leika og virtust geta fengið færi í hverri sókn. Blóðlausar tennur Frömurum til varnar þá vantaði sterka leikmenn í liðið. Þrír fastamenn voru í banni auk þess sem Jóhannes Karl Guðjónsson á við meiðsli að stríða. Þá byrjaði Björgólfur Takefusa á bekknum en ekki verður við Alex- ander Má sakast, hann mátti sín lítils einangraður í framlínunni. Eitt hefði þó liðið mátt gera betur og það var að láta finna betur fyrir sér. Ljóst var fyrir leik að við ramman reip væri að draga. Miðað við byrjunina var eins og leikmenn væru búnir að tapa leiknum áður en þeir komu inn á völlinn. Menn voru langt frá andstæðingunum sem fengu að valsa um óáreittir og án þess að þurfa að mæta varnarmanni. Bjarni sagði eftir leik að liðið væri að læra og er það gott og vel. Þó er betra fyrri Safamýrahnokka að lærdómur ungvið- isins taki ekki of langan tíma, því fall- baráttan framundan verður óvægin. Menn á móti strákum Morgunblaðið/Ómar Aðalmaðurinn Kristján Gauti Emilsson á fullri ferð í átt að marki Fram og Einar Bjarni Ómarsson, miðvörður Safamýrarliðsins, virðist hálf skelkaður.  FH gjörsigraði Fram  Sigurinn síst of stór  Barnalegur varnarleikur Framara  Kristján Gauti lék lausum hala og fór illa með varnarmenn Framara ÍÞRÓTTIR 3 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚNÍ 2014 Forseti Fílabeinsstrandarinnar, Alassane Ou- attara, hefur komið þeim skilaboðum áleiðis til knattspyrnusambandsins að hann muni tvö- falda sigurbónusa leikmanna Fílabeinsstrand- arinnar ef liðið leggur Grikki að velli á HM í dag. Með sigri gegn Evrópumeisturunum frá árinu 2004 geta Fílabeinsstrendingar tryggt sér sæti í 16-liða úrslitunum. Didier Drogba og samherjar í liði Fílabeinsstrandarinnar skipta á milli sín uppphæð sem nemur 2,8 milljónum íslenskra króna fyrir hvern sigur sem liðið vinnur á HM en þessi upphæð verður tvöfölduð vinni liðið Grikk- ina. Fílabeinsströndin hafði betur á móti Japan, 2:1, í fyrsta leik sínum en tapaði með sama mun fyrir Kólumbíu í öðrum leik sín- um. gummih@mbl.is Bónusinn tvöfaldaður Didier Drogba Ekkert verður úr því að hin portúgalska Hel- ena Costa taki við þjálfun karlaliðs Clermont í knattspyrnu. Það vakti heimsathygli í síð- asta mánuði þegar tilkynnt var um ráðningu Costa en það var í fyrsta skipti sem kona var ráðin þjálfari atvinnumannaliðs í karlaflokki í knattspyrnu en Clermont leikur í frönsku 2. deildinni. „Helena Costa hefur ákveðið að taka ekki við starfinu hjá Clermont. Þessi ákvörðun er skyndileg og óvænt,“ sagði Claude Michy, forseti félagsins, í gær en hann sagðist mjög vonsvikinn með þessa ákvörðun hennar. Costa er 36 ára og starfaði sem aðstoðarþjálfari hjá portú- galska félaginu Benfica áður en hún tók við sem landsliðsþjálf- ari kvenna í Katar og síðar Íran. gummih@mbl.is Helena Costa hætti við Helena Costa Vicente del Bosque, þjálfari ríkjandi heims- meistara Spánar í knattspyrnu, segist ekkert ætla að taka ákvörðun í flýti um sína framtíð en Spánverjar luku keppni á HM í gær með 3:0 sigri á móti Áströlum. Hann segist tilbúinn að stíga til hliðar ef það henti liðinu best en hann hefur gert liðið bæði að heims- og Evr- ópumeisturum. „Það eru engin tímamörk. Ég, forseti sam- bandsins og framkvæmdastjórinn munum setjast niður og finna bestu lausnina fyrir liðið okkar,“ sagði þessi 63 ára gamli hæglyndi þjálfari í gærkvöld. „Ég vona að hann haldi áfram. Stundum lærir þú meira af vondum hlutum en góðum. Hann er frábær þjálfari,“ sagði mark- vörðurinn Pepe Reina. gummih@mbl.is Enginn asi á Bosque Vicente del Bosque D-riðill: Ítalía – Úrúgvæ í Natal kl. 16. Sýnt á RÚV. Þetta er stórleikur dagsins. Hreinn úrslitaleikur fjórfaldra og tvöfaldra heimsmeistara um hvor þjóðin fylgir Kostaríku áfram úr riðl- inum. Ítölum nægir jafntefli, Luis Suárez og samherjar í Úrúgvæ verða að vinna til að komast áfram. Úrúgvæjar njóta þess að vera næstum því á heimavelli, enda þótt Natal sé reyndar ansi langt frá landamærum Úrúgvæ og Brasilíu. D-riðill: Kostaríka – England í Belo Horizonte kl. 16. Sýnt á Stöð 2 Sport 2. Ef einhver hefði sagt í byrjun móts að fyrir þennan leik væri Kostaríka með 6 stig og komin í 16-liða úrslit en stigalausir Englendingar væru á leið heim hefði sá hinn sami verið sagður ekkert vit hafa á fótbolta. En samt fór þetta þannig. Kosta- ríku nægir stig til að tryggja sér sig- ur í riðlinum. Englendingar spila bara fyrir stoltið. C-riðill: Japan – Kólumbía í Cu- iabá kl. 20. Sýnt á Stöð 2 Sport 2. Kólumbíumenn eru komnir áfram og mikið þarf að ganga á til að þeir vinni ekki riðilinn. Eitt stig dugir til að gulltryggja það. Reyndar þróaðist D-riðillinn þannig að það er ekkert víst að Kólumbía telji mikinn gróða í því að vinna þennan riðil! Japanir verða hinsvegar að vinna, helst með tveggja marka mun, og treysta á að Fílabeinsströndin vinni ekki Grikkland. C-riðill: Grikkland – Fílabeins- ströndin í Fortaleza kl. 20. Sýnt á RÚV. Hreinn úrslitaleikur um sæti í 16- liða úrslitunum, með þeim formerkj- um að Japan gæti samt skákað því liði sem stæði eftir með fjögur stig. Grikkir verða að vinna leikinn og treysta á að Japanir sigri ekki Kól- umbíu. Fílabeinsströndinni nægir stig ef Japan vinnur ekki tveggja marka sig- ur á Kólumbíu, eða vinnur með einu marki og skorar þremur mörkum meira en Fílabeinsströndin í sínum leik. AFP Úrúgvæ Luis Suárez og félagar þurfa sigur í dag gegn Ítalíu. H M 20 14LEIKIR DAGSINS Laugardalsvöllur, Pepsi-deild karla, 9. umferð, mánudag 23. júní 2014. Skilyrði: Hlýtt en rok á markið nær Laugardalslaug. Skot: Fram 7(3) – FH 17 (11). Horn: Fram 3 – FH 3. Dómari: Þóroddur Hjaltalín – 8. Áhorfendur: 553. Fram: (4-3-3) Mark: Ögmundur Krist- insson. Vörn: Orri Gunnarsson, Einar Bjarni Ómarsson, Tryggvi Sveinn Bjarnason, Ósvald Jarl Traustason. Miðja: Viktor Bjarki Arnarsson (Guð- mundur Magnússon 46.), Halldór Arn- arsson, Ásgeir Marteinsson. Sókn: Haukur Baldvinsson, Alexander Már Þorláksson, Aron Bjarnason (Benedikt Októ Bjarnason 77.). FH: (4-3-3) Mark: Róbert Örn Ósk- arsson. Vörn: Jón Ragnar Jónsson, Kassim Doumbia (Brynjar Ásgeir Guð- mundsson 85.), Pétur Viðarsson, Böðvar Böðvarsson. Miðja: Davíð Þór Viðarsson, Sam Hewson, Kristján Gauti Emilsson. Sókn: Ólafur Páll Snorrason, Atli Viðar Björnsson (Hólmar Örn Rúnarsson 73.), Atli Guðnason. Fram – FH 0:4 0:1 Kristján Gauti Emilsson 9. tók boltann í fyrstu snert- ingu og skaut efst í markhornið eftir sendingu Atla Viðars. 0:2 Kristján Gauti Emilsson48. fékk boltann frá Ólafi Páli, sneri af sér varnarmann og negldi knettinum í Ögmund mark- vörð Framara og í netið úr þröngu færi. 0:3 Atli Viðar Björnsson 58. tók frákastið eftir að Ög- mundur hafði varið skot Atla Guðna- sonar og skoraði af stuttu færi. 0:4 Sjálfsmark 87. KristjánGauti sólaði varnarmann og sendi boltann fyrir. Tryggvi Bjarna- son, varnarmaður Fram, fékk bolt- ann í sig og í netið. I Gul spjöld:Tryggvi (Fram) 70. (brot) MM Kristján Gauti Emilsson (FH) M Róbert Örn Óskarsson (FH) Pétur Viðarsson (FH) Kassim Doumbia ( FH ) Sam Hewson (FH) Davíð Þór Viðarsson (FH) Jón Ragnar Jónsson (FH) Ólafur Páll Snorrason (FH) Atli Guðnason (FH) Böðvar Böðvarsson (FH) Atli Viðar Björnsson (FH) Viktor Bjarki Arnarsson (Fram)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.