Morgunblaðið - 27.10.2014, Page 7

Morgunblaðið - 27.10.2014, Page 7
Verkfall lækna hefst í dag. Því miður. Læknar á Íslandi hafa í fyrsta sinn gripið til þess réttar síns að leggja niður störf til að knýja á um leiðréttingu launa sinna. Neyðarmönnun og hugsanlegum undanþágum er hagað með þeim hætti að öryggi sjúklinga sé ekki ógnað. Óhjákvæmilegt er þó að aðgerðirnar valdi óþægindum. Okkur þykir það leitt. Kjarabarátta lækna snýst ekki bara um laun heldur einnig um eðlilega endurnýjun í læknastéttinni. Á undanförnum árum höfum við misst hóp lækna úr landi. Það er mikil blóðtaka fyrir okkur öll. Meðalaldur lækna á Íslandi hækkar. Nýliðun í hópnum er nauðsyn. Augljóst er að í óefni stefnir ef fram heldur sem horfir. Stærsti þáttur alþjóðlegrar samkeppnishæfni í starfsumhverfi lækna er laun þeirra. En fleira kemur til. Á meðal þess er vinnuálag, aðgengi að góðum tækjabúnaði, svigrúm til kaupa á nýjustu og bestu lyfjum, þátttaka í framþróun læknavísindanna og fleira. Á öllum þessum sviðum hafa Íslendingar dregist aftur úr og bilið fer ört stækkandi. Læknar bera ekki ábyrgð á heilbrigðisþjónustunni á Íslandi. Okkur er hins vegar langt í frá sama um hana. Í gegnum tíðina höfum við bæði axlað ábyrgð sem einstaklingar og sem heild eftir því sem í okkar valdi hefur staðið. Við viljum gera það áfram. Þess vegna grípum við til aðgerða. Við teljum það ábyrgðarleysi af okkar hálfu að bregðast ekki af alefli við þeim vanda sem við blasir. Við biðjum um stuðning þjóðarinnar og skilning þeirra sem fá munu skerta þjónustu á meðan á verkfallsaðgerðum stendur. Við skorum á stjórnvöld að bregðast hratt við. Leiðrétting á launum lækna þolir ekki lengri bið. Þorbjörn Jónsson formaður Læknafélags Íslands Verkfall lækna LÆKNAFÉLAG ÍSLANDS

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.