Málfríður - 15.10.2007, Side 29

Málfríður - 15.10.2007, Side 29
MÁLFRÍÐUR  Sum­arnám­skeið þýskukenn- ara árið 2007 var haldið í Lübeck í Þýskalandi dagana 7. – 13. ágúst og tóku sex íslenskir kennarar þátt, ásam­t sex kennurum­ frá Noregi og Finnlandi. Sigrún Aðalgeirsdóttir Sigrún Aðalgeirsdóttir, þýskukennari og fagstjóri við MA Sumarnámskeið þýskukennara og E­Journal í þýskukennslu Það má segja að efni námskeiðsins hafi skipst í tvennt. Annars vegar nýjustu upplýsingar um land og þjóð, upplestur rithöfundar, umræður um þýska tungu og dagsferð til borga í fyrrverandi Austur­ Þýskalandi þar sem rætt var um lífið fyrir og eftir sameiningu Þýskalands. Hins vegar var svo fjallað um E­Journal sem er vefumhverfi, sem heldur utan um nemendasamskipti og textaskrif. Í þessari grein ætla ég að segja aðeins frá E­Journal námskeiðinu og því sem ég gerði í kjölfar þess. Leiðbeinandi á námskeiðinu var Ilpo Halonen, þýskukennari frá Vantaa í Finnlandi. Hann er einn af aðalforsprökkum þess að nota upplýsingatækni við þýskukennslu og hefur verið að prófa sig áfram síðustu ár. Það eru eflaust margir þýskukennarar sem kannast við nafnið hans. Hann heldur úti vef um þýskukennslu sem heitir Dafnord og þar er E­Journalismus aðalumfjöllunarefnið eins og er. Þessir tólf norrænu þýskukennarar sem sóttu námskeiðið í Lübeck, voru ekki miklir tölvusnill­ ingar og því má segja að við höfum upplifað á eigin skinni hvernig það er að vera nemandi í blönduðum hópi, þar sem sumir áttuðu sig strax á því hvað átti að gera og aðrir þurftu lengri tíma til verkefnisins og aðstoð kennara og samnemenda. Við vorum mishrifin af þessu og sennilega hafði tölvukunn­ átta okkar töluverð áhrif á skoðun okkar, því við vorum svo upptekin af tækninni að við gleymdum jafnvel að velta fyrir okkur hvernig þetta gæti nýst í kennslu. Við sátum einn og hálfan dag við tölvurnar og fórum eftir munnlegum fyrirmælum og gerðum eins vel og við gátum við að leysa verkefnin. Það kannast örugglega flestir við líðanina þegar aðrir á tölvunámskeiðinu eru komnir lengra og við sitjum eftir og skiljum ekki neitt, svona leið okkur til skiptis þessa daga. En svo komu sem betur fer góðir sprettir inn á milli. Við lærðum að nota gagnvirka spurninga­ lista (fastwrite) til að auðvelda textaskrifin og hraða þeim, síðan vistuðum við útkomuna og notuðum hana til að búa til læsilegan texta um viðfangsefnið. Við settum þessa texta inn í E­Journal vefumhverfið og lærðum að vista myndir í E­Journal vefumhverf­ inu og sækja þær og setja inn í textana. Við fengum einnig að prófa netfundi bæði með tali og mynd og eins bara með tali þar sem Ilpo Halonen hafði feng­ ið félaga sína í nokkrum löndum til að leggja orð í belg. Það verður að segjast eins og er að ekki voru allir þátttakendur jafn hrifnir af þessum möguleika en líklega eru nemendur okkar vanari því að nota tæknina á þennan hátt og hefðu gaman af að prófa. E­Journal vefurinn veitir möguleika á að spjalla saman (Live Online) en fyrir myndfund þarf betri tækni. Þýskukennarar geta raunar skráð sig á spjall­ fundi á hverjum þriðjudegi í vetur þar sem rædd eru ýmis mál sem tengjast notkun upplýsingatækni í þýskukennslu og að sögn Ilpo er eðlilegt að nýjir þátttakendur sitji bara og hlusti fyrstu fundina á meðan þeir eru að átta sig. Sennilega hefði verið betra fyrir okkur að byrja þannig. Deutsch macht Spaß – Jugendliche in Europa Þegar námskeiðið var skipulagt var áætlað að kenn­ ararnir gætu unnið saman að námskeiðinu loknu og skipulagt nemendasamskipti en þátttakendurnir kenndu á mismunandi skólastigum, Íslendingarnir í framhaldsskólum og hinir svo til allir í efstu deild­ um grunnskólans, þannig að verkefnið mitt er eina verkefnið sem hófst í kjölfar námskeiðsins. Í Menntaskólanum á Akureyri eru regluleg sam­

x

Málfríður

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Málfríður
https://timarit.is/publication/1081

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.