Reykjanes - 30.04.2014, Side 6

Reykjanes - 30.04.2014, Side 6
6 30. apríl 2014 Þjónustumiðjan á Nesvöllun orðin að einum stærsta vinnustað á Suðurnesjum Um 160 manns starfa í þjón-ustumiðjunni fyrir eldri borgara á Nesvöllum. Starfsmenn koma frá fjórum sveitarfélögum á Suðurnesjum. Með myndun þjónustumiðju með Þjón- ustumiðstöð aldraðra, öryggisíbúðum og nú síðast samtengdu hjúkr- unarheimili er myndaður sterkur at- vinnukjarni sem hefur það markmið að veita þjónustu við eldri borgara á Suðurnesjum. Þar er nú miðstöð heimaþjónustu í Reykjanesbæ, stór hluti félags- og tómstundastarfs aldraðra á vegum bæjarfélagsins, aðstaða stjórnar fé- lags eldri borgara á Suðurnesjum og ýmis einkarekin þjónusta fyrir eldri borgara, eins og hárgreiðslu- og snyrtistofur. Þá er veitingastaður í þjónustumiðstöðinni, sem býður íbúum svæðisins og gestum heimil- ismat. Þar er einnig aðstaða til ýmissa uppákoma, veisluhalds og skemmt- ana. Útgengt er á verönd og þaðan á skjólgott og fallegt útvistarsvæði Nes- valla, þar sem m.a. er skrúðgarður í mótun, lítill púttvöllur og fleira. Nýjasta viðbótin er 60 rúma hjúkr- unarheimili sem rekið er af Hrafnistu. „Við getum öll verið stolt af því að hér sé komin slík aðstaða í miðjum bænum okkar“ segir Árni Sigfússon, bæjarstjóri. Með sterkri framtíðarsýn, sem við höfum við ekki hvikað frá, þótt tafir hafi orðið á leiðinni, hefur okkur tekist að byggja þetta allt upp á 10 árum. Hér er líka kominn einn af stærstu vinnustöðunum í bænum.“ segir Árni Af hverju Bein leið – XY ? Senn líður að sveitarstjórnarkosn-ingum og hvert stjórnmálaaflið á fætur öðru undirbýr sig af kappi fyrir þær. Í Reykjanesbæ eru nú þegar komnir fram fjórir listar og von er á a.m.k tveimur til viðbótar. Ég er einn af aðstandendum framboðs Beinnar leiðar og mig langar í fáeinum orðum að fara yfir ástæður þess að þetta fram- boð er tilkomið. Hreinn meirihluti sjálfstæðismanna hefur stjórnað sveitarfélaginu Reykjanesbæ sl. þrjú kjörtímabil eða í 12 ár. Sú staðreynd hefur haft talsverð áhrif á málefnalega samstöðu hér í bænum eins og oft vill gerast við slíkar aðstæður. Þorri fólks í sveitarfélaginu telur sig ekki eiga hlut í þeim ákvörðunum sem teknar hafa verið og vill breytingar. Margar þessara ákvarðana hafa verið mjög umdeildar sem hefur aftur aukið á það pólitíska samstöðuleysi sem hér ríkir. Ein leið til þess að styrkja þá sam- stöðu sem þarf að ríkja þegar um- deildar og erfiðar ákvarðanir eru annars vegar, er að fjölga þeim aðilum sem taka þær. Það eitt veitir aðhald og eykur möguleika á að réttar ákvarðanir séu teknar því það kemur í veg fyrir að hópurinn sé einsleitur og einsýnn á sjónarmið. Það er við aðstæður sem þessar sem eftirspurn eftir nýjum vinnubrögðum og nýju fólki verða til. Þess vegna verður Bein leið til. Loforðalisti. Bein leið mun ekki birta langan lof- orðalista, heldur setja sér skýr mark- mið um hvernig við viljum að samfé- lagið þróist. Við gerum okkur grein fyrir þeirri fjárhagslegu stöðu sem sveitarfélagið er í og viljum bregðast við með breyttri forgangsröðun, hag- ræðingu og öguðum vinnubrögðum í rekstri. Um þetta þarf ekki langar ræður né greinar. Yfirskrift framboðsins segir í raun allt sem segja þarf. „Bein leið er framboð íbúa í Reykjanesbæ sem hafa áhuga á að taka þátt í mótun á sínu nánasta umhverfi. Framboðið tengist ekki hefðbundnum stjórnmálaflokkum heldur kemur fram í nafni einstaklinganna sem á listanum sitja og með fullri ábyrgð þeirra. Bein leið telur brýnt að sjónarmið sem flestra heyrist og vill með framboði sínu fjölga valkostum í komandi sveit- arstjórnarkosningum. Kjörorð Beinnar leiðar er „Fyrir fólkið í bænum“ því áhersla verður lögð á þjónustu við íbúa, velferð þeirra og möguleika til þátttöku í daglegu lífi, þar sem flestir fái notið sín á eigin forsendum.“ Stuðningur við Beina leið er stuðn- ingur við breytt vinnubrögð, opnari stjórnsýslu og aukið samráð. Stuðn- ingur við Beina leið er stuðningur við fólkið í bænum. Guðbrandur Einarsson frambjóðandi hjá Beinni leið - XY Ósátt með ráðningu starfsmanns Reykjanesi barst eftirfarandi bréf vegna ráðningar í starf í Hljómahöllinni Sæll Þóranna heit ég og bý í Njarðvík ég sótti um starf í Hljómahöllinni sem ég fékk ekki „tel að sá sem sótti um hafi fengið starfið út af fjöldskyldu tengslum, vinar tengslum og systra tengslum er mjö ósátt og bað um rökstuðning sem ég fékk en hann var bara brandari og það bendir hver á annann svo er svo margt fleira bara spá í hvort þú viljir birta þetta í þínu blaði Kveðja Þóranna Gunnlaugsdóttir Átta hundruð nemendur í Tónlistar- skólanum Tónlistarskóli Reykjanesbæjar er nú fluttur í glæsilegt húsnæði í Hljómahöllinni. Haraldur Árni Har- aldsson skólastjóri sagði að öll aðstaða væri eins og best væri á kosið. Í skól- anum eru 800 nemendur sem stunda nám þetta skólaárið. Auglýsing um sveitarstjórnarkosningar 2014 Almennar sveitarstjórnarkosningar fara fram 31. maí 2014 Frestur til að skila framboðslistum er til kl. 12:00 á hádegi laugardaginn 10. maí 2014. Kjörstjórn veitir framboðslistum móttöku þann dag frá kl. 10:00 til kl. 12:00 á hádegi á skrifstofu sveitarfélagsins, Sunnubraut 4 Kjörstjórn vill vekja sérstaka athygli á 22. gr. laga nr. 5/1998 en þar er kveðið á um fjölda meðmælenda með framboðslistum sem skulu vera að lágmarki 20 og hámarki 40 í Sveitarfélaginu Garði. Kjörstjórn Sveitarfélagsins Garðs Allir í boltanum Eins og fram hefur komið áður hér í blaðinu er fjöldi fólks sem mætir alla morgna á virkum dögum í Reykjaneshöllina og gengur hring eftir hring sér til heilsubótar. Á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum kl.9:30 mætir Kjartan Másson, kennari, og stjórnar nokkrum léttum æfingum. Fyrir stuttu kom Haf- steinn Ingibertsson framkvæmdastjóri íþróttahúsanna í Reykjanesbæ færandi hendi með bolta. Kjartan sagði gott fyrir alla að nota boltana á meðan horft er á sjónvarpið heima til að þjálfa hend- urnar. Allir eru velkomnir í Reykjaneshöll- ina og það kostar ekkert að eiga þar ánægjulega og hressandi stund.

x

Reykjanes

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjanes
https://timarit.is/publication/990

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.