Hafnarfjörður - Garðabær - 19.04.2013, Síða 4

Hafnarfjörður - Garðabær - 19.04.2013, Síða 4
4 19. apríl 2013 Byrjendanámskeið í skokki hjá Haukum hafin: Fyrstu skrefin í átt að betri heilsu Námskeiðin byrja kl. 17:30 og er hlaupið frá Ásvöllum, Íþrótta-miðstöð Hauka. Þjálfarar á námskeiðinu eru þrír og munu þeir skipta nýliðunum niður í þrjá hópa allt eftir getu hvers og eins. Markmið námskeiðsins er að nýliðar geti á skynsaman hátt komið sér í það form að geta hlaupið eða skokkað sér til gleði og ánægju. Fólk er reyndar afar mismunandi statt og mælikvarði hvers og eins á því hvort hann sé fær um að hlaupa er algerlega einstaklingsbundinn. Mest um vert er að fólk mæti og þeim er leiðbeint á rétta braut. Þeir sem mæta og setja sér að markmiði að koma á sem flestar æfingar og vera með í stað þess að týna sjálfum sér í hraða og lengd annarra, það eru þeir sem ná árangri og endast. HAFNARFJÖRÐUR / gARÐAbæR / vogAR 8. TbL. 3. ÁRgANgUR 2013 Útgefandi: Fótspor ehf. Ábyrgðarmaður: Ámundi Ámundason, sími: 824 2466, netfang: amundi@fotspor.is. framkvæmdastjóri: Ámundi Steinar Ámundason, netfang: as@fotspor.is. auglýsingastjóri: Ámundi Ámundason, Suðurlandsbraut 54, 108 Reykjavík. Auglýsingasími 578 1190, netfang: auglysingar@fotspor.is. Ritstjórar: Hólmfríður Þórisdóttir, sími 699 0450, netfang: holmfridur@ vedurehf.is, Sigurður Þ Ragnarsson netfang: hafnarfjordur@vedurehf.is, Ljósmyndari: Þórir Snær Sigurðarson, sími 615 2049. Blaðamenn: Linda Hrönn Þórisdóttir, Þórir Snær Sigurðarson. Umbrot: Prentsnið, Prentun: Ísafoldarprentsmiðja, 14.000 eintök. dreifing: Póstdreifing. Veffang: fotspor.is Fríblaðinu er dreiFt í 14.000 e intökum í allar íbúðir í HaFnarFirði / ÁlFtanesi / Vogum Í síðustu viku voru íbúakosningar í Reykjavík. Markmiðið var að virkja beint lýðræði borgaranna við ákvarðanir um framkvæmdir í einstaka hverfum, enda er það jú svo að þeir sem búa úti í hverfunum vita best hvað betur megi þar fara og hvar áherslur þurfa að liggja til að gera gott umhverfi betra. Þó bæjarfulltrúar reyni vafalítið að leggja sig alla fram við að láta gott af sér leiða við stjórnun síns bæjararfélags, getur það ekki síður verið heilladrjúgt að leyfa þeim sem búa úti í hverfunum að fá tækifæri til að móta sitt eigið nærumhverfi. Á ritstjórn blaðsins hringdi t.d. í vikunni eldri maður sem býr á Völlunum í Hafnarfirði og gengur ávallt til að ná sér í björg í bú eins og hann orðaði það. Hann kvartaði sáran undan því hve fáir bekkir væru til að setjast á og hvílast á leiðinni. Svona mál sem varða vissulega þennan eldri mann miklu, getur hæglega yfirsést bæjarfulltrúum eða bæjarstjórum. Þeirra verkefni eru oft viðameiri og í senn dýrari og minni málin falla í skugga. Hér held ég að við getum mikið lært af beinu íbúalýðræði eins og unnið hefur verið með í Reykjavík um árabil. Ísafold – glæsilegt hjúkrunarheimili í garðabæ Nú fyrir skömmu opnaði nýtt og afar glæsilegt hjúkrunarheimili í Garðabæ sem hlaut nafnið Ísafold. Fulltrúum blaðsins var boðið formlega á opnuhátíð hússins sem er allt hið glæsilegasta. Herbergi heimilsmanna eru mjög rúmgóð, 35 fm með tveimur gluggum og fyrirkomulag og aðstaða öll hin besta en í húsinu eru 60 herbergi. Þarna sá maður hversu vel er hægt að hlúa að okkur elstu bræðrum og systrum samfélagsins, þeim sem ruddu brautina, og maður fyllist aðdáun. Oftar en ekki er raunveruleikinn nefnilega allt annar gagnvart þessum mikilvæga hópi samfélagsins, eldri borgurum. Ævistarfið, reynsla þeirra og þekking er jú hverju samfélagi afar dýrmætur þáttur. Þeir sem komu að ákvörðunum um að þetta mannvirki yrði að veruleika, hvort sem það er ríkisstjórnin, fulltrúar Garðabæjar og aðrir eiga mikið hrós skilið. Menn þurfa ekki að kvíða aldrinum þegar svo vel er hlúð að eldri borgurum, sem af einhverjum ástæðum þurfa að flytja á hjúkrunarheimili. Ásókn stjórnmálamanna Ásókn stjórnmálamanna með að fá birtar greinar í blaðið nú fyrir kosningar er mjög mikil. Við á ritstjórninni höfum orðið að taka ákvarðanir er varða birtingu greina þar sem fyrstur kemur fyrstur fær. Hinsvegar verður einnig að spyrja frambjóðendur áleitinna spurninga og gefa kjósendum kost á að bera saman svör þeirra. Því ákváðum við á ritstjórninni að senda spurningalista til fulltrúa í kjördæminu, til að reyna að fá fram samanburð á skoðunum þeirra á einstaka málum. Það er meðal þess sem er á opnu blaðsins í dag. Ekki sáu allir flokkarnir ástæðu til að svara – en það kemur jú fram í blaðinu hverjir það voru. Við heimsóttum einnig allar flokkskrifstofur bæjarins eða eltum frambjóðendur uppi á vettvangi Góða helgi Sigurður Þ Ragnarsson, ritstjóri Getum lært mikið af stjórnsýslunni í Reykjavík Leiðari Bylting í málefnum aldraðra í Garðabæ: Nýtt hjúkrunarheimili tekið í notkun og þjónustu- miðstöð opnuð á næstunni Ísafold, nýtt hjúkrunarheimili í Sjá-landi í Garðabæ var vígt á dögunum. Húsið er rúmir 6000 fermetrar að stærð og er á fjórum hæðum auk kjallara og skjólgott útivistarsvæði er við húsið. Þar er rými fyrir 60 heimilismenn sem hver um sig hefur rúmgott herbergi með sér baði og eldhúsi. Heimilið skiptist í sex einingar og eru 10 íbúar í hverri einingu að jafnaði en ef um hjón er að ræða er hægt að sameina tvær einingar í eina stærri. Hver eining hefur síðan sameiginlegt eldhús ásamt borð- og setustofu. Á jarðhæð er þjónustumiðstöð fyrir eldri borgara þar sem verður meðal annars iðjuþjálfun, dagdvöl fyrir 20 manns, eldhús, matstofa, hárgreiðsla, fótaðgerðastofa, hreyfisalur, aðstaða heimaþjónustu Garðabæjar og sjúkra- þjálfun. Bygging hússins tók tvö ár og sér Garðabær alfarið um reksturinn. Sumardagurinn fyrsti í Hafnarfirði: Víðavangshlaup, leikfangasýning og skátamessa Hátíðin hefst samkvæmt venju á víðavangshlaupi Hafnarfjarðar sem hefst klukkan 11 á Víðistaða- túni. Keppt er í 7 aldursflokkum frá 6 ára og yngri, uppí 21 árs og eldri hjá hvoru kyni. Allir keppendur fá verðlaunapeninga og sigurvegarar flokka fá bikara. 11:00-17:00 -opið í Byggðasafni Hafnarfjarðar að Vesturgötu 8. Saga Hafnarfjarðar og skemmtileg leik- fangasýning í Pakkhúsinu. Einnig er tilvalið að skoða elsta hús bæjarins og Beggubúð sem stóð á Strandgöt- unni í þá gömlu góðu daga. Ókeypis aðgangur. 13:00 Skátamessa í Víðistaðakirkju. 13:45 Skrúðganga frá Víðistaða- kirkju sem endar á Thorsplani, í miðbæ Hafnarfjarðar. 14:00-16:00 Fjölskyldudagskrá á Thorsplani í umsjá Hraunbúa. Skátadagskrá og leikir á Thorsplani. 12:00- 21:00 Hafnarborg, menn- ingar- og listamiðstöð Hafnarfjarðar, býður gesti velkomna á sýninguna Hellisgerði, blóma og skemmti- garður. Á sýningunni verður mannlífið í garðinum skoðað í spegli tímans, sjónum beint að gróðri og stemn- ingu á ólíkum tímum. Sýningar- stjórar eru Berglind Guðmunds- dóttir landslagsarkitekt og Magnea Guðmundsdóttir arkitekt Saga öldrunarþjónustu í Garðabæ 1946: Athafnamaðurinn Jóhannes J. Reykdal á Þórsbergi og fjölskylda hans gaf 10.000 til byggingar dvalarheimilis aldraðra í Garðahreppi. Ekkert varð úr framkvæmdum féð rann síðar í orgelsjóð Garðakirkju 1953: Sólvangur rís á þáverandi mörkum Hafnarfjarðar og Garða- hrepps Garðbæingar fengu þar inni sem og á Elliheimilinu Grund í Reykjavík 1977: Hrafnista í Hafnarfirði tekin í notkun. Á árunum 1981-84 kaupir Garðabær þar 10 rými ætluð Garð- bæingum, Lionsklúbbur Garða-og Bessastaðahrepps kaupir þar eitt rými í tilefni 10 ára afmælis klúbbsins í sama tilgangi. 1976: Hvíldar- og dvalarheimili St. Jósefssystra við Holtsbúð í Garðabæ tekið í notkun. Þar dvöldu systurnar til ársins 1998. 2000: Hjúkrunarheimilið í Holtsbúð tekur til starfa að undangengnum nokkuð umfangsmiklum breytingum og lagfæringum á húsnæðinu með rýmum fyrir 40 heimilsmenn 2011: Ákveðið var að flytja starfsemi Holtsbúðar að Vífilsstöðum. Velferð- arráðuneytið lagði fram húsið endur- gjaldslaust. 5.apríl 2013: Starfsemi Holtsbúðar flyst í Ísafold. (Samantekt Erling Ásgeirsson) Ingibjörg Valgeirsdóttir, forstöðumaður ísafoldar tekur við lyklum að húsinu úr hendi Gunnars Einarssonar, bæjarstjóra. Guðbjartur Hannesson, velferð- arráðherra, fylgist með. Erling Ásgeirsson, formaður bygginganefndar flytur ávarp við vígslu hússins. Hvað veistu um bæinn þinn eru laufléttar spurningar um Hafnarfjörð og sögu hans. Ein spurning birtist í hverju blaði og er svarið að finna á blaðsíðu 14 í blaðinu. Hvað veistu um bæinn þinn? HVAÐ VEISTU UM BÆINN ÞINN? Spurningin í þessu blaði er: Sædýrasafnið í Hafnarfirði var dýragarður sem opnaði 8. maí 1969. Þar voru auk íslenskra hús- dýra, m.a. selir, háhyrningar,mörgæsir, ísbirnir, apar, ljón og kengúrur. Safnið var starfrækt í vel á annan áratug uns rekstri þess var hætt. Hvaða ár var það? Öflugir félagar í hlaupahópi Hauka.

x

Hafnarfjörður - Garðabær

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hafnarfjörður - Garðabær
https://timarit.is/publication/1080

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.