Hafnarfjörður - Garðabær - 19.04.2013, Síða 6

Hafnarfjörður - Garðabær - 19.04.2013, Síða 6
6 19. apríl 2013 NÁM MEÐ STARFI Nám á netinu D R E I F N Á M l l l l l l Borgarholtsskóli býður upp á nám fyrir: Skólaliða Stuðningsfulltrúa í skólum Leiðbeinendur í leikskóla Félagsliða Félags- og tómstundanám Viðbótarnám félagsliða Umsóknarfrestur er til 1. júní. Upplýsingar um námið veitir Þórkatla Þórisdóttir í síma 8561718 Netfang: thorkatla@bhs.is Heimasíða skóla: www.bhs.is Árni Páll Árnason skrifar: Efnahagslegt sjálfstæði er í húfi Brýnasta verkefnið sem liggur fyrir strax að loknum kosn-ingum er að verja efnahagslegt sjálfstæði þjóðarinnar. Við getum ekki verið setið föst í vasa lánardrottna lengur. Þess vegna teljum við í Sam- fylkingunni að ábyrgð í ríkisfjármálum skipti öllu máli. Það er stærsta vel- ferðarmálið. Við verðum að forgangsraða og setja efnahagslegan stöðugleika efst í röðina. Við getum ekki endurtekið hagsöguna þar sem bóla er blásin upp og hún spr- ingur og þá kemur kreppa. Aldrei skal aftur myndast hér bóla, heldur verður að marka nýja leið, sem skapar okkur öllum betri lífskjör. Til þess að halda niðri vöxtum og verðbólgu verður að skapa skilyrði fyrir stöðugt gengi sem er mesta kjarabótin fyrir íslensk heimili. Þegar ráðstöf- unartekjur heimilanna hækka verða forsendur kauppmáttar til og fyrir- tækin geta ráðið mannskap samhliða auknum verkefnum. Stöðugleiki frekar en stöð- ugar sveiflur Tækifærið er núna. Eftir kosningar eigum við ekki að þurfa að bíða eftir niður- stöðum nefnda um verðtryggingu. Við eigum heldur ekki að þurfa að bíða eftir hagnaði af áhættuviðskiptum með eignir búa föllnu bankanna. Þegar orrustan við kröfuhafana var háð um að færa erlendar eignir þeirra undir höftin í marslögunum svonefndu, greiddu Sjálfstæðismenn á móti og Fram- sókn sat hjá. Flokkar sem þorðu ekki einu sinni að taka slaginn með okkur gegn kröfuhöfum, eiga ekkert erindi í ríkisstjórn. Samfylkingin mun tryggja að þegar kemur að samningum við kröf- uhafa þá mun það nýtist allri þjóðinni til hagsbóta, ólíkt því sem tillögur Fram- sóknarflokksins gera ráð fyrir. Samningsstaðan gagnvart kröfuhöf- unum, sem við höfum skapað og ár- angur í ríkisfjármálum, sem við höfum líka skapað, munu veita nýrri ríkisstjórn mörg tækifæri. Ríkisstjórn Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks nýttu mörg slík tækifæri til að hygla sínum einkavinum. Treystum við t.a.m. þeim flokkum til að selja eignarhluti ríkisins í bönkunum hæstbjóðanda? Næsta ríkisstjórn getur einnig nýtt þessi sömu tækifæri í þágu þjóðarinnar allrar. Heit mitt er það að Samfylkingin muni nýta allt það svigrúm sem fæst við hag- stjórnina á komandi misserum að fullu í þágu íslenskra heimila og fyrirtækja. Árni Páll Árnason er formaður Sam- fylkingarinnar og skipar fyrsta sæti á lista flokksins í suðvesturkjördæmi. Björt framtíð heim- sækir víkingaþorpið Hafnfirðingarnir á framboðs-lista Bjartrar framtíðar kíktu í heimsókn til Jóhannesar í Fjörukránni í vikunni. Þau Pétur Óskarsson sem skipar 5. sæti listans og Guðlaug Kristinsdóttir sem er í þriðja sætinu fóru víða um bæinn í góða veðrinu. Margrét Tryggvadóttir skrifar: Lýðræði er svarið Á yfirborðinu virðist Ísland vera þróað, lýðræðisríki. Maður þarf þó ekki að kafa djúpt til að sjá og skilja að það er í raun blekking. Við erum komin mun styttra í lýðræðislegum þroska. Saga lýðveldisins Íslands er ekki löng. Við vorum nýlenda öldum saman og sá veruleiki virðist hafa haft dýpri og meiri áhrif á okkur en margir vilja viðurkenna. Oft finnst mér sem Ís- lendingar virðist almennt upplifa sig valdalausa. Fyrir rétt rúmlega tvö hundruð árum yfirtók Jörundur hundadaga- konungur landið með því að hand- taka Trampe greifa og hengja upp miða á nokkurra daga fresti í miðbæ Reykjavíkur. Þar stóð meðal annars Ísland er laust og liðugt frá Dan- merkur Ríkisráðum. Og það varð; Íslendingar voru um stund lausir undan oki nýlenduherranna. En hvað svo? Tveimur mánuðum síðan undirritaði embættismanna- stéttin yfirlýsingu sem ógilti auglýs- ingar Jörundar og þjóðin varð aftur undir stjórn Dana. Og hvað gerðu landsmenn í því? Ekki neitt. Hversu auðvelt hefði það verið skerast í leik- inn? Sennilega hefði ekki þurft mikið til þess. Hefur þetta breyst mikið á síðustu tvö hundruð árum? Hefur fólkið tekið völdin í sínar hendur? Við gerðum það í janúar 2009 en ætlum við virkilega að afsala okkur þeim aftur? Við leyfum stjórnmálamönnum að komast upp með loforðaflaum í aðdraganda kosninga en svik daginn eftir. Því verður að linna. Staðreyndin er sú að í litlu samfé- lagi geta einstaklingar haft mikil og sterk áhrif. Það eina sem þeir þurfa að gera er að rísa upp og láta til sín taka. Því að vera borgari fylgja ekki einungis réttindi heldur líka skyldur. Sem borgarar berum við ábyrgð á að grípa í taumana þegar stjórnmála- menn eru úti á túni eða vilja ekki lúta þjóðarvilja. Allt vald er komið frá fólkinu. Við framseljum það einungis tímabundið til fulltrúa okkar á Alþingi og við eigum að gera þá kröfu að þeir standi við orð sín, standi við gefin loforð. Við eigum að gera þá kröfu að þeir vinni að þjóðarhag en ekki í þágu sér- hagsmunaafla, hvaða nafni sem þau nefnast eða í þágu eigin hagsmuna. Fyrir síðustu Alþingiskosningar lofuðu fjögur þeirra framboða sem náðu kjöri endurskoðun á stjórn- arskránni. Þau fjögur hlutu samtals 76,3% atkvæðanna. Auk þess sagð- ist Sjálfstæðisflokkurinn vilja vinna áfram að breytingum á stjórnarská og flokkurinn tók þátt í upphafi þess ferlis sem við sjáum nú fyrir endan á. Eigum við ekki að gera þá kröfu að þeir standi við stóru orðin? Margrét Tryggvadóttir, skipar 1. sæti á lista Dögunar í Suðvesturkjördæmi. Margrét Tryggvadóttir. Árni páll Árnason. HAFNARFJÖRÐUR OG GARÐABÆR KEMUR ÚT ANNAN HVERN FÖSTUDAG Næsta blað kemur út 3. maí

x

Hafnarfjörður - Garðabær

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hafnarfjörður - Garðabær
https://timarit.is/publication/1080

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.