Hafnarfjörður - Garðabær - 19.04.2013, Qupperneq 12

Hafnarfjörður - Garðabær - 19.04.2013, Qupperneq 12
12 19. apríl 2013 KJÖRFUNDUR Kjörfundur vegna kosninga til Alþingis, er fram eiga að fara 27. apríl 2013 verður í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ og í Álftanesskóla. Í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ verður kosið í eftirfarandi kjördeildum. I. Kjördeild Aftanhæð – Bjarkarás (Íslendingar búsettir erlendis) II. Kjördeild Blikanes - Fífumýri III. Kjördeild Frjóakur - Holtsbúð IV. Kjördeild Hraunás - Langafit V. Kjördeild Langalína – Marargrund VI. Kjördeild Markarflöt - Stórás VII. Kjördeild Strandvegur – Ögurás (Húsanöfn og bæir) Í Álftaneskóla verður kosið í eftirfarandi kjördeildum. I. Kjördeild Asparholt – Lambhagi II. Kjördeild Litabæjarvör – Þóroddakot (Húsanöfn og bæir) Athygli er vakin á því að Íslendingar sem búsettir eru erlendis og áttu síðast lögheimili hér á landi í Sveitarfélaginu Álftanesi eru á kjörskrá í I. kjördeild í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ. Kjörfundur mun hefjast kl. 09:00 og standa til kl. 22:00. Kjörstjórn Garðabæjar mun hafa aðsetur á kennarastofu Fjölbrautaskólans í Garðabæ og hverfisstjórn Álftaness á kennarastofu Álftanesskóla meðan á kjörfundi stendur. Talning atkvæða fer fram hjá Yfirkjörstjórn Suðvesturkjördæmis sem hefur aðsetur í Kaplakrika, Hafnarfirði. Kjörstjórn Garðabæjar Sjálfstæðismenn opna kosninga- skrifstofu sína Ragnheiður Ríkharðsdóttir sem skipar annað sætið á lista Sjálf-stæðismanna í kjördæminu opnaði kosningaskrifstofuna sem er í húsnæði flokksins við Norðurbakka Hún flutti að því tilefni ljóðið Lífsþor eftir Árna Grétar Finnssson úr bókinni Ljóðspor Sjóræningjar í Hafnarfirði Leikritið Sjóræningjaprinsessan eftir Ármann Guðmundsson var frumsýnt fyrir fullum sal í Gaflaraleikhúsinu laugardaginn 6. apríl síðastliðinn. Leikstjóri verksins er Lárus Vilhjálmsson. Eins og titill leik- ritisins bendir til gerist það á þeim tíma þegar sjóræningjar sigldu um höfin blá og komu víða við þegar fylla þurfti á rommbirgðirnar í landi. Soffía er alin upp á friðsælli eyju í Suðurhöfum ásamt Matta bróður sínum. Ævintýraþrá hennar er mikil og hún er fullviss um að hún sé sjóræningjaprinsessa. Það fær hún staðfest þegar nokkrir sjóræningjar koma á eyjuna og upphefst mikið ævin- týri sem ber áhorfendur meðal annars á sjóræningjaskip og á eyju eina þar sem mannætur eiga bústað sinn. Söguþráðurinn er skemmtilegur og fjörugur og leikararnir snöggir að bregða sér í önnur hlutverk. Persón- urnar eru litskrúðugar og margar þeirra mjög fyndnar. Tónlistin undirstrikar stemninguna sem er ríkjandi hverju sinni og líflegt er að sjá hljóðfæraleik- arana á sviðinu. Leikmyndin er útfærð á sérlega hugmyndaríkan hátt. Sýn- ingartjaldið er notað sem bakgrunnur auk þess sem nokkur atriði fara fram ,,á bak við tjöldin‘‘ og stækkar þannig sviðið um leið. Leikritið er hin besta fjölskylduskemmtun og eru allir hvattir til að tryggja sér miða. LHÞ Margrét Gauja Magnúsdóttir sem skipar 4. sætið á lista Samfylk- ingarinnar og Gunnar axel axelsson hittu kjósendur og fjölskyldur þeirra í Firði, meðal annars feðginin anton og lovísu. ragnheiður ríkharðsdóttir. Sædís Enja Styrmisdóttir leikur Soffíu sjóræningjaprinsessu. Sædísi finnst gaman að leika og ætlar að leggja leiklistina fyrir sig í framtíðinni. leikstjórinn ásamt fjölskyldu sinni. ragnhildur, Embla Sól, Sirrý Margrét, Smári og lárus

x

Hafnarfjörður - Garðabær

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hafnarfjörður - Garðabær
https://timarit.is/publication/1080

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.