Kópavogur - 15.08.2014, Qupperneq 6

Kópavogur - 15.08.2014, Qupperneq 6
6 15. ágúst 2014 Nú fer hver að verða síðastur? 25% afsLÁttur af sMurÞJÓNustu OG sMurvÖruM út aLLaN ÁGúst MÁNuð! frí vINNa vIð BreMsuKLOssa- OG eða BreMsuDIsKasKIPtI út ÁGúst MÁNuð frír LÁNsBíLL Með fraMrúðusKIPtuM í ÁGúst eKKI KeYra Með sKeMMDa rúðu Einungis Er hægt að fá bíl mEð því að bóka tíma Á aðeins við ef viðeigandi vörur eru keyptar hjá Dekkverk. FRÍR LÁNSBÍLL MEÐ FRAMRÚÐUSKIPTUM Í ÁGÚST EKKI KEYRA MEÐ SKEMMDA RÚÐU Einungis er hægt að fá bíl með því að bóka tíma Sími: 578 7474 • www.dekkverk.is Nýbýlavegur 2 Kópavogi & Lyngás 20 Garðabæ PANTAÐU TÍMA NÚNA 25% AFSLÁTTUR AF SMURÞJÓNUSTU OG SMURVÖRUM ÚT ALLAN ÁGÚST MÁNUÐ! LÁTTU DEKKVERKFRÆÐINGANA SJÁ UM BÍLINN FYRIR ÞIG. LÁTTU DEKKVERKFRÆÐINGANA SJÁ UM BÍLINN FYRIR ÞIG. FRÍ VINNA VIÐ BREMSUKLOSSA- OG EÐA BREMSUDISKASKIPTI ÚT ÁGÚST MÁNUÐ Á aðeins við ef viðeigandi vörur eru keyptar hjá Dekkverk. sími: 578 7474 www.dekkverk.is Nýbýlavegur 2 Kópavogi & Lyngás 20 Garðabæ - LÁTTU DEKKVERKFRÆÐINGANA SJÁ UM BÍLINN FYRIR ÞIG. - viðtal Japanskur pappír, postulín og fjöru- grjót með blaðsilfri í Gerðarsafni „Flæði. Þetta eru allt ný verk, unnin 2013 og 2014, innsetningar, tvívíð og þrívíð verk. Ljóðræn myndgerð um uppsprettu, úrkomu, hringrás og óendanleika“ segir listakonan Mireya Samper aðspurð um hvað gestir fái að sjá á sýningu hennar Flæði sem opnuð var í Gerðarsafni síðastliðinn laugardag. Hún bætir við að verkin séu unnin í ýmis efni, þó aðalega japanskan pappír, postulín og fjörugrjót með blaðsilfri. Hluti verkanna nú voru einnig á einkasýningu Mireyu í hinu þekkta listasafni M.K.Ciurlionis í Litháen í fyrra. Listir ómissandi í umhverfinu Mireya er fædd á Íslandi og lærði myndlist hér á landi og í Frakklandi. Hún hefur búið víða erlendis og haldið fjölda einka-og samsýninga, svo sem í Japan, Indlandi, Ungverjalandi, Chile og Frakklandi. Hún segir búsetu sína erlendis hafa haft mjög sterk áhrif á sig og vinnu sína, það gefi henna aðra sýn á heiminn í heild sinni, á Ísland, á menningu og pólitík. „Ég hef búið í allskonar borgum, fal- legum og ljótum, í mörgum löndum, og það var merkilegt hversu mikil áhrif umhverfið hafði á líðan manns í hinu daglega lífi. Umhverfið er það sem við höfum fyrir augunum allan daginn, alla daga, það gefur auga leið að arkitektúr, hönnun og listir eru ekki bara mjög mikilvægur þáttur heldur ómissandi í umhverfinu. Mér finnst þess vegna gaman að deginum sem er haldið uppá einu sinni á ári „Dagur myndlistar“ og augýsingunni sem var gerð um hvernig lífið væri ef ekki nyti lista við.“ Verk í ýmsum víddum Verk Mireyu eru afar fjölbreytt, bæði efnistök og efniviður. Hún málar á mjög þunnan pappír sem aftur er settur í þykkan ramma og oft hengdur í rýmið eða látinn standa á gólfinu líkt og skúlptúr. Einnig býr hún til stök verk í tví -og þrívídd, gjarnan gegnsæ. Náttúran er Mireyu ofarlega í huga og eru mörg verka hennar gerð til að standa utandyra, í skógi, á strönd eða á opnu svæði. Ekkert er án annars, allt er eitt Listakonan segist sækja sér innblástur innávið en á sama tíma frá utanað- komandi áhrifum. „Kannski innávið í þau áhrif sem ég er að kljást við á hverjum tíma og stað eða upplifa. En á sama tíma er innblæstrinum stýrt á einhvern hátt á veg hugmyndanna sem ég er að vinna með. Hugmyndirnar fæðast aftur á móti ýmist mjög skipu- lega og útpældar eða koma sjálfar og vilja fá að vera til“ segir Mireya og bætir við að allt fari þetta eftir því hvar hún er að vinna og afhverju. Sé hún að vinna úti í náttúrunni við gerð svo kallaðra Land-Art eða umhverfis- verka þá taki náttúran sjálfkrafa þátt í verkunum. „Innblásturinn verður þá beint frá náttúrunni en í þjónustu hugmyndarinnar. Stundum er það beinlínis landið sem ég er að sýna í sem hefur þessi áhrif, eins og t.d. Indland mjög sterklega - ekkert er án annars, allt er eitt.“ Færir listina til fólksins Aðspurð hvort það sé munur á því að sýna verk utandyra í opnu rými eða á safni segir hún safnið veita ákveðna umgjörð sem listin sé þakklát fyrir og það sé mikill heiður að vera boðið að sýna á safni. Safnið gefi listinni hátíð- legt yfirbragð og setji hana á ákveðinn stall sem ætti þó ekki að virka frá- hrindandi. Frekar ætti að líta á það sem tækifæri til að skoða og velta fyrir sér listinni á hennar eigin forsendum, óháð því hvar hún sé og hvers vegna. Hún sjálf hafi þó einnig gaman af um- hverfisverkum og sé því afar þakklátt að fá að sýna í almenningsrýmum. „Að færa listina til fólksins var eitt af því sem vakti mjög áhuga minn strax í námi í listaháskóla í Frakklandi og ég sinni enn þeim áhuga. Mér finnst mjög mikilvægt að fólk geti notið lista í sínu hverdagslega umhverfi. Að listin eigi sér eðlilegt pláss innan safna sem utan, að listin sé hluti af lífinu og auðgi andann. Persónulega finnst mér stórkostlegt að geta unnið hvort sem er inni á söfnum eða úti í almenningsrými. Það veitir svo ólík tækifæri sem eru hvor um sig frábær og mjög gefandi.“ Mireya segir það alltaf áskorun að opna sýningu eða taka þátt í sýn- ingu, sama hvar í heiminum það er, en einkasýning á Íslandi sé þó á einhvern hátt á öðrum tilfinningaskala. „Viður- kenningin á Íslandi er jafn mikilvæg og erlendis þrátt fyrir allt.“ Sýning Mireyu stendur til 5.október. Hildur Björgvinsdóttir „Innblásturinn verður þá beint frá náttúrunni en í þjónustu hugmyndarinnar,“ segir Mireya samper. Credit: Mynd: Lísa Middelton.

x

Kópavogur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kópavogur
https://timarit.is/publication/987

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.