Fréttir - Eyjafréttir - 18.07.1996, Page 2
2
Fréttir
Fimmtudagur 18. júlí 1996
Fréttir
Þrjár og hálf
stjarna
Lögreglan segir helgina hafa verið
fremur rólega og sagði varðstjóri
sem rætt var við að vel mætti gefa
bæjarbúum þrjár og hálfa stjömu
fyrir góða umgengni og og róleg-
heit.
Fullur stelur bíl
Klukkan 10 á laugardagsmorg-
uninn var lögreglu tilkynnt um
nytjastuld eins og lögreglan orðaði
það. í þessu tilfelli hafði maður tek-
ið bfl ófrjálsri hendi og hafði hann
ekið bflnum nokkrar götur áður en
hann stöðvaði við hús í bænum.
Þegar lögreglan fann bflinn bankaði
hún uppá í húsinu þar sem
maðurinn sat. Strax vaknaði grunur
um ölvun og viðurkenndi maðurinn
að hafa stolið bflnum.
Fékk aðsvif
Á fjórða tímanum síðdegis á
laugardaginn var óskað sjúkrabfls
að Heijólfi. Norsk kona sem þar var
um borð hafði fengið aðsvif og var
henni ekið á sjúkrahús þar sem hún
fékk aðhlynningu.
Eldur í ruslagámi
Klukkan 22:35 var lögreglu til-
kynnt um eld í ruslagámi sem
stendur við Vélaverkstæðið Þór.
Ekki náði lögreglan að ráða niður-
lögum eldsins með handslökkvi-
tækjum og varð að kalla út slökkvi-
liðsmenn til aðstoðar sem slökktu í
af miklu öryggi. Ekki urðu aðrar
skemmdir.
Á númers-
lausum bíl
Eftir hádegi á sunnudaginn var lög-
reglu tilkynnt um unga menn sem
voru að þvælast á númerslausum
jeppa austur á Nýjahrauni. Ekki
fannst jeppinn en lögreglan er þess
fullviss að ekki hafi verið um gabb
að ræða því sá sem hringdi var
mjög trúverðugur.
Landhelgis-
gæsluna til Eyja?
Bæjarráð lýsti yfir ánægju sinni
með þá stefnu stjómvalda að dreifa
nkisstofnunum um landið á síðasta
fundi sínum og ítrekaði fyrri sam-
þykktir bæjaryfirvalda þar um.
Bæjarstjórn Vestmannaeyja hefur
þegar samþykkt að skora á stjóm-
völd að flytja Landhelgisgæsluna úl
Vestmannaeyja og ítrekaði bæjar-
ráð þá áskomn um leið.
Hörður vill í
leigubílaakstur
Fyrir bæjarráði lá bréf frá H.Ó
Næturgæslu, sem er í eigu Harðar
Ólafssonar og sinnir næturvörslu í
fyrirtækjum, þar sem óskað er eftir
leyfi til reksturs leigubifreiðar.
Bæjarráð gat ekki orðið við
erindinu þar sem hér er starfrækt
leigubifreiðastöð sem hefur leyfi
bæjaryfirvalda til rekstursins í Vest-
mannaeyjum.
Viðhald á
gæsluvelli
Gæsluvellinum í Miðstræti verður
lokað í allt að fimm daga á næstu
tveimur vikum meðan fram fer við-
hald á húsi og lóð vallarins.
Sigurður skólamálafulltrúi kominn til starfa:
Engar byltíngar
Nýráðinn skólamálafulltrúi Vest-
mannaeyja, Sigurður Símonarson,
tók til starfa í síðustu viku. Þann 1.
ágúst nk. verður sú grund-
vallarbreyting í skólamálum í
landinu að sveitarfélög taka við
rekstri grunnskólanna. I framhaldi
af því var staða skólamálafulltrúa
auglýst og var Sigurður ráðinn til
starfans.
Sigurður er 54 ára, fæddur á
Vatnsleysuströnd. Hann er kennari að
mennt með framhaldsmenntun frá
Kennaraháskóla íslands 1972 og frá
Gautaborgarháskóla 1980. Hann hefur
kennt við grunnskóla í Hafnarfirði en
kenndi lengst af við æfingaskóla
Kennaraháskóla íslands í Reykjavík.
Síðastliðin tvö ár hefur Sigurður
stundað nám í Svíþjóð í kennslu-
fræðum, einkum er varðar stjómun
skólamála.
Sigurður sagði í samtali við Fréttir
að hans fyrsta verkefni væri að setja
sig inn í skólamálin í Vest-
mannaeyjum eins og þau em í dag.
„Margt er að gerast í skólamálum og
þessar nýju breytingar eru spennandi
og gefa mikla möguleika. Þýð-
ingarmikið er að átta sig á stöðunni
eins og hún er núna. Eg hef ekki uppi
hugmyndir um neinar byltingar. Mér
líst vel á þetta verkefni og sé ekki
annað en menn hafi staðið eyjum,” sagði Sigurður Símonarson,
skynsamlega að verki í Vestmanna- nýráðinn skólafulltrúi að lokum.
Sigurður Símonarson skólamálafulltrúi: -Margt er að gerast í
skólamálum og þessar nýju breytingar eru spennandi og gefa
mikla möguleika.
'JÆHbs *
JJ||| •» k. .j & Æ jp, . 5' j&]9 B %:j\
Jf. t
Góðir gestir úr Eyjafirði
heimsóttu Vestmannaeyjar um
síðustu helgi. Þar voru á ferð
hljóðfæraleikarar með
Eyjamanninn Guðjón Pálsson í
fararbroddi. Á laugardags-
kvöldið voru þeir með tónleika
ásamt Harmonikkufélagi
Vestmannaeyja. Tónleikarnir
voru vel sóttir og og voru hin
besta skemmtun. Eftir tónleikana
var harmonikkuball þar sem
stiginn var ræll, skottís og fleiri
afbrigði af gömlu dönsunum.
Á myndinni fyrir ofan eru
félagar úr Harmonikkufélagi
Vestmannaeyja sem léku við
góðar undirtektir. Á myndinni til
hliðar er Guðjón ásamt ungum
harmonikkuleikara.
p
i m
• áLLj’ I
Fréttir
Fyrirlestur um
tónlistaruppeldi
í félagsmálaráði lá bréf frá leik-
skólastjórum Rauðagerðis og
Kirkjugerðis þar sem óskað var
eftir styrk til að standa undir
kostnaði fyrirlesturs um tónlistar-
uppeldi á leikskólum fyrir starfsfólk
leikskólanna. Stefnt er því að fá Jó-
hönnu Thorsteinsson leikskóla-
kennara til að kynna þróunarstarf
sitt í tónlist í leikskólanum Kópa-
steini í Kópavogi og leikskólanum
Laufásborg í Reykjavík.
Félagsmálaráð samþykkti erindið.
Hrókeringar
Félagsmálaráð hefur samþykkt
eftirfarandi breytingar á starfs-
mannahaldi leikskóla: Auður
Karlsdóttir leikskólakennari verði
ráðin í 50% starf á leikskólanum
Kirkjugerði, Hrafnhildur Heimis-
dóttir verði ráðin í 100% starf á
leikskólanum Rauðagerði og
Kristi'n Sigurðardóttir í 50% starf á
leikskólanum Rauðagerði.
Jafnframt samþykkir félagsmálaráð
að ráða Sigríði Ragnarsdóttur í
50% starf á Rauðagerði.
Oddur vill fleiri
gangbrautir
Fyrir bygginganefnd, sem í dag
heitir skipulagsnefnd, lá bréf frá
Oddi Júlíussyni þar sem hann velti
fyrir sér umferðaröryggi í bænum
og að tilfmnanlega vanti gangbraut
yfir götu, t.d. við Skólaveg og
víðar.
í framhaldi af bréfi Odds var
samþykkt að merkja gangbrautir á
gatnamótum Skólavegar og Vest-
mannabrautar við hús nr. 1 við
Skólaveg.
Leiðrétting
Vegna mistaka fór grein um yfir-
töku bœjctrins á málefnum fatlaðra
í síðasta blaði inn án breytinga.
Þess vegna er þessi hluti endur-
birtur.
Viðkomandi eru beðnir velvirðing-
ará þessum mistökum.
Samkvæmt upplýsingum Heru
Einarsdóttur, félagsmálastjóra er
meðferðarheimilið Búhamri 17 ein
af þeim stofnunum fatlaðra sem
bærinn yfirtekur í þessum áfanga.
Þar eru stöðugildi rúmlega fjögur
sem fimm starfsmenn skipta með
sér en allt að sjö einstaklingar nota
þjónustu stofnunarinnar í dag. Á
leikfangasafninu, sem er lil húsa á
sama stað, er eitt stöðugildi sem að
hluta til hefur verið nýtt á
meðferðarheimilinu. „Leikfanga-
safnið þjónustar fötluð böm og
ungmenni undir 18 ára aldri. Veiúr
það ráðgjöf til foreldra og
starfsmanna á leikskólum, auk þess
sem leikfangasafnið sér um, útlán
þjálfunargagna og veitir ráðgjöf
varðandi þroska- og leikþjálfun,”
segir Hera um starfsemi leik-
fangasafnsins sem er mun víð-
tækari en flesúr gera sér grein fyrir.
FRÉTTIR
Útgefandi: Eyjaprent hf. Vestmannaeyjum. Ritstjóri: Ómar Garðarsson. Fréttastjóri: Þorsteinn
Gunnarsson. Ábyrgðarmenn: Ómar Garðarsson & Gísli Valtýsson. Prentvinna: Eyjaprent hf.
Vestmannaeyjum. Aðsetur ritstjórnar: Strandvegi 47II. hæð. Sími: 481-3310. Myndriti: 481 -
1293. Netfang/rafpóstur: frettir@ismennt.is. Heimasíða FRÉTTA:http://vey.ismenntis/~frettir
FRÉTTIR koma út alla fimmtudaga. Blaðið er selt í áskrift og einnig í lausasölu I Turninum, Kletti,
Novu, Skýlinu, Tvistinum, Pinnanum, Kránni, Búrinu, Vöruval, Herjólfi, Flugvallarversluninni,
Eyjakaup, Eyjakjör og Söluskálanum. í Reykjavík: hjá Esso Stóragerði og í Flugteríunni á
Reykjavíkurflugvelli. FRÉTTIR eru prentaðar í 2000 eintökum. FRÉTTIR eru aðilar að Samtökum
bæjar- og héraðsfréttablaða.