Fréttir - Eyjafréttir

Útgáva

Fréttir - Eyjafréttir - 18.07.1996, Síða 4

Fréttir - Eyjafréttir - 18.07.1996, Síða 4
Fréttir Sælkeri vikunnar ■ Jóhann Pétursson Jóa ragú Þorsteinn Hallgríms- son, sem var sælkeri síðustu viku, skoraði á annan golfleikara í þessari viku og er það vel við hæft þar sem Landsmót fer í hönd, Sá heitir Jóhann Pét- ursson og er auk golf- leiks kunnur af lögfræðistörfum. Hann tekur hér með við sælkerastörfum. „Ég þakka Þorsteini Hallgrímssyni, sem lengi hefur verið veikur í baki, innilega fyrir þessa kærkomnu áskorun. Þor- steinn, sem eins og áður sagði hefur lengi átt við að eiga slæmsku í baki, er góður drengur og alls ekki er útilokað að ég eigi eftir að bjóða honum til kjúklingaveislu síðar enda luma ég á einum slíkum. Þá gæti ég jafnframt sýnt honum hina nyt- sömustu hluti sem ég af miklum hagleik hef útbúið úr pizzukössum. Hins vegar hef ég aldrei orðið var við umbúðir utan um pizzukassana eins og Þorsteinn komst að orði en hann veit örugglega hvar þær er að finna; þú verður samt að passa bakið, Steini minn! Ég læt hér fylgja með uppskrift að einum einföldum en samt bragðgóðum rétti sem ég dunda mér oft við að matreiða um helgar. ZITONI COL RAGU NAPOLE- TANO EÐA „JÓA RAGÚ.“ 500 gr zitoni eða spaghetti stykki úr nýju svínslæri, um 700 gr heilt stykki úr svínahrygg, um 300 gr 60 gr smjör 60 gr smjörlíki 1 dl ólífuolía 1 laukur 1 gulrót I skinnlaus salamípylsa frá Napólí (ef til er) 1 glas af hvítvíni 1 glas af rauðvíni 400 gr tómatþykkni 1 lárviðarlauf salt svartur pipar (úr viðarkvöm frá Einari á Kap, (Hagstætt verð)) Venjan er að sjóða þetta í leirpotti en hvaða stór pottur sem er dugar. Vefjið svínslærið mjög vandlega til að það fari ekki í sundur. Setjið smjör, smjörlíki, olíu, saxaðan lauk, gulrót, lárviðarlauf og kjöt, ásamt pylsunni ef hún er notuð. í pottinn, setjið á hann lok og látið þetta malla við mjög hægan hita. Þessi fyrsti hluti suðunnar tekur um tvær klukku- stundir. Snúið kjötinu öðru hverju til að það brúnist á öllum hliðum. Kjötið brún- ast smátt og smátt og jafnframt hverfur laukurinn. Nú er kominn tími til að taka lokið af pottinum og fara að bæta við vökva. Þegar kjötið ætlar að fara að festast við þá skal bmgðið hart við og bætt við hvítvíni, nokkmm dropum í einu og hræra vel í á meðan upp úr öllum botninum á pott- inum. Haldið þannig áfram þar til hvítvínið er búið. Farið þá eins að með rauðvínið og hrærið soðið stöðugt upp úr botninum. Þegar rauðvínið er gufað upp á að bæta við tómatþykkni og hræra það vandlega sartian við. Þegar tómatþykknið er orðið mjög dökkt á að bæta smátt og smátt ögn af volgu vatni. Suðan, meðan vatninu er bætt við, tekur oftast þrjár klukkustundir í viðbót. Sósan er nú orðin mjög dökk. Þegar hér er komið sögu má láta hana eiga sig að mestu. Bætið við um I 1/2 lítra af vatni og látið sjóða undir loki í 4 eða 5 klst. Hrærið í á hálftíma fresti eða þar um bil. Fyrir bakveika einstaklinga er gott að halla sér á meðan. Þetta er kallað „pippiare'* og orðið er fengið með hljóðlíkingu. Myndast oit góð stemmn- ing þegar fjölskyldumeðlimir allir hrópa „pippiare" á þessari stundu. En næst gerist það að þegar kjötið fer að losna frá beinunum er það tekið úr pottinum, stærra stykkið, svínslærið, má taka burt um klukkustundu síðar. Saltið og piprið eins og með þarf. Fyrri hluti suðunnar fer venjulega fram daginn áður en hafa á réttinn á borðum og seinni hlutinn samdægurs en einnig má fullsjóða sósuna fyrirfram. Sjóðið pastað sem fyrr, rétt áður en á að borða, munið að Iesa leiðbeiningar á pakkanum og ofsjóðið það ekki. Látið renna af því, þ.e. pastanu, setjið það í skál og hrærið sósuna saman við. Kjötið er borið fram sem sérstakur réttur á eftir pastanu með sósunni. Nú, ef mönnum líst ekkert á þessa mat- seld þá vil ég benda á Spaghetti Bolognaise eða Stroganoff úr hinni vin- sælu 1944 línu. Það er alls ekki síðri matur og síðan er jafnvel hægt að skreppa ígolfþá um helgina. Sem næsta matgæðing bendi ég á ofur- grillarann og gleðipinnann Viðar Einarsson málara eða Vidda bólara eins og hann vill láta kalla sig. Hann er einn alöruggasti grillari okkar Eyjamanna og verður án efa ekki skotaskuld úr því að koma með glæsilegan grillrétt, ekki sfst eftir kynnisferð til Hull fyrir stuttu. P.S. Þorsteinn vildi koma því á framfæri, ef einhverjir hefðu misst af því, þá hefur hann verið að drepast í bakinu að undan- fömu. Golf og Doris Day Landsmótið í golfi, sem að þessu sinni verður haldið í Vestmannaeyjum, hefst nú um helgina. Tvívegis áður hefur Landsmótið verið haldið í Eyjum, árin 1964 og 1968. (bæði skiptin var Vestmannaeyingurinn Guðni Grímsson með og hann ætlar sér einnig að spila með að þessu sinni. Á Landsmótinu 1964 var hann vélstjóri á mb. Hugin VE, á síldveiðum, þar var þá skipstjóri Gísli Jónasson og 2. vélstjóri Sigurður Guðmundsson (Siggi Gúmm). Guðni tók sér vikufrí til að taka þátt í Landsmótinu og þeir Gísli og Siggi áttu ekki orð til að lýsa vanþóknun sinni á þvf að menn tækju sér frf á síldveiðum til að fara að elta einhverja hvlta bolta! Sfðan hefur mikið vatn til sjávar runnið og þessir tveir f hópi áhugasömustu golfleikara í Vestmannaeyjum og hafa oftsinnis tekið sér frí til að leika golf. En Guðni Grímsson er Eyjamaður vikun- nar að þessu sinni. Fullt nafn? Guðni Grímsson. Fæðingardagur og ár? 13. nóvem- ber1934 Fæðingarstaður? Vestmannaeyjar. Fjölskylduhagir? Kvæntur Esther Valdimarsdóttur og við eigum 4 börn. Barnabörnin eru orðin átta. Menntun og starf? Lauk vél- stjórnarprófi 1953, minna skipstjórnarprófi 1960, var til sjós áður fyrr en starfa nú sem yfirvélstjóri hjá Bæjarveitum Vestmannaeyja. Laun? Laun opinberra stafsmanna eru léleg en þetta er svona þolanlegt. Helsti galli? Segi mína meiningu. Helsti kostur? Segi mína meiningu. Uppáhaldsmatur? Grillaðar kótelettur að hætti Estherar Vaidimars. Versti matur? Baunasúpa. Uppáhaldstónlist? Doris Day og hennar tónlist var í miklu uppáhaldi hjá mér á yngri árum og er enn. Ég er enn að kaupa plötur með henni þegar ég er erlendis. Hvar myndir þú vera ef þú yrðir fluga á vegg í einn dag? Það gæti verið nógu gaman að vera á stjórnarfundi hjá Golfklúbbi Vestmannaeyja. Uppáhalds stjórnmálamaður? Það er enginn sérstakur í uppáhaldi en ég kann mjög vel við Guðjón Hjörleifsson, bæjarstjóra. Uppáhalds fþróttamaður? Jack Nicklaus. Hvert er eftirlætissjónvarpsefnið þitt? Golf. Hvaða sjónvarp- srás horfirþú mest á? Það er trúlega íþróttarásin Eurosport, þar eru oft góðir þættir. Uppáhaldsleikari? Af íslenskum Sigurður Sigurjónsson og erlendum Doris Day. Uppáhaldskvikmynd? Teafortwo með Doris Day. Þar með er Doris Day komin með þrennu í þessum spurningalista. Uppáhaldsbók? Bankabókin, svona aðöllujöfnu. Hver eru helstu áhugamál þín? Golfið er númer eitt, þar sameinast hin áhugamálin sem eru ganga og útivera. Svo hef ég einnig mjög gaman af að ferðast. Hvað metur þú mest í fari annarra? Heiðarleika. Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari annarra? Það öndverða, fals. Fallegasti staður sem þú hefur komið á? Vestmannaeyjar. Hvað ertu búinn aðvera lengi f golfi? Ég gekk í GV1961. í september í haust eru komin 35 ánægjuleg ár í golfinu. Hve oft hefur þú tekið þátt í Landsmótum? Ég held að þau séu orðin sex talsins. Hvernig spilaðir þú á mótinu 1968? Ég man það nú ekki svo glöggt. En |? við vorum nokkrir strákar héðan sem vorum eitthvað að berjast í okkar flokki. Ég var nú ekki i verðlaunasæti en ég man að þeir Sveinn Þórarins á Lundi og Óli á Hoffelli voru að spila vel. Gott ef Oli fékk ekki verðlaun. Er öðruvfsi að spila í Landsmóti en öðrum mótum? Það er sérstök stemmning í kringum Landsmót. Þarna kynnist maður nýju fólki og endurnýjar kunningsskap við aðra. Þarna hafa oft tekist ánægjuleg kynni sem ekki gleym- ast. Hvað dettur þér í hug þegar þú heyrir þessi orð? -Golf: JackNicklaus - Landsmót: Skemmtilegur félags- skapur. -Forgjöf: Alltofhá. -13. brautin: Er það ekki hún sem menn kalla skrímslið? Mér finnst hún skemmtileg og hún hræðir mig ekki. En það verður að spila hana af skynsemi. Eitthvað að lokum? Ég vonast að sjálfsögðu eftir ánægjulegu Landsmóti oggóðuveðri. Er það ekki númer eitt, tvö og þrjú? Fimmtudagur 18. júlí 1996 ORÐSPOR-ORÐSPOR Smári Harðarson, vaxtarræktarkappi, stjómar skemmtilegtim púltímum í hádeginu í Hressó þar sem Fréttamenn hafa verið duglegir að mæta. Smári er engum líkur þegar hann er að hvetja fólkið til dáða í púltímanum. Einu sinni öskraði hann yfir mannskapinn: - Pælið í því, á meðan þið emð hér að púla og svitna og komast í gott form, em vinir ykkar í sumarbústað að fitna. Ég skil ekkert í fólki sem hættir að hreyfa sig yftr sumartímann, auðvitað á að hréyfa sig allt árið um kring, það á ekkert að taka sér frí. Ég meina, ekki hættum við að bursta tenn- umar í þrjá mánuði á ári yftr sumartímann! Nýja ÍBV lagið iekið upp í hljóðverí - af atvinnumönnum í faginu. Nýja ÍBV-lagið eftir knattspyrnu- kappann Leif Geir Hafsteinsson, sem frumflutt var í þættinum Þeytingi í vor, hefur verið tekið upp í hljóðveri í útsetningu Páima Sigurhjartarsonar Snigils. Lagið heitir „Komdu fagnandi” og hefur tekið þó nokkrum breytingum frá því við heyrðum það í fyrrnefndum sjónvarpsþætti. Leifur Geir fékk til liðs við sig atvinnumenn í faginu við upp- tökurnar. Pálmi útsetti og spilaði á hljóðfæri, Eyjamaðurinn Eiður Am- arsson spilaði á bassa, Sigurgeir Sig- mundsson fyrrverandi framkvæmda- stjóri Týs spilaði á í gítar, Björgvitt Ploder trommari Sniglabandsins lamdi húðir, ívar Bjarklind sá um að syngja lagið og Éeifur Geir söng bakraddir og í viðlaginu með ívari. Upptakan verður send til dreiftngar á öllum útvarpsstöðvunum en að sögn Leifs Geirs er frekari dreiftng óráðin. „Komdu fagnandi” verður frumflutt á FM957 á morgun um kl. 13.00. „Ég er alveg í skýjunum með þetta. Pálmi stóð sig frábærlega vel við útsetninguna og Ivar sömuleiðis, hann hafði lítið fyrir þessu. Mér finnst vera þjóðhátíðarstemmning í þessu lagi en nú dæmi hver fyrir sig. En ég er mjög ánægður og einnig ÍB V strákamir sem hafa heyrt lagið,” sagði Leifur Geir. Og hver er boðskapurinn í text- anum? „Fyrst og fremst að Eyjamenn eigi að hafa gaman af því að spila og fylgj- ast með fótbolta, sjá björtu hliðamar og njóta þess sem þeir em að gera. Og auðvitað að standa saman í gegnum súrt og sætt.” Þjóðhátíðarlag Vestmannaeyja 1996 heitir SUMARNÓTT. Það er eftir Sveinbjörn Grétarsson og Kristján Viðar Halldórsson í Greifunum. Lagið var hijóðritað fyrir skömmu til spilunar á útvarpsstöðunum. Lagið var frumflutt á FM 957 í síðustu viku og er nú farið að óma á útvarpsstöðunum og lofar góðu. Að ósk Frétta hafa Kristján Viðar og Sveinbjöm sent frá sér ljóðið ásamt gítargripum svo hægt sé að æfa það fyrir þjóðhátíðina. Það er því um að gera að byija að æfa strax. SUMARNÓTT (D) Húmar að (G) kveldi (D) nóttin læðist (G) inn. (D) Dúnalogn í (Htrt) dalnum (Em) rætist draumur minn. Með hnotubrúnum augum horflr þú til mín. I öllum mínum æðum brennur ást til þín. (D) Söngvar óma úr (G) hverju tjaldi (D) gleðja sérhvert (G) hjarta. (D) Þjóðhátíðar(Hm) stemmningin og (Em) sumamóttin (A) bjarta. (D) Haltu mér í (G) örmum þínum þú (D) undraveröld, (G) Eyjar. (D) Allt of stuttur (Hm) þessi tími í (Em) faðmi yngis (A) meyjar. Þú strýkur nrtér um vangann heit er þín hönd. Atlot þín mig senda í ævintýralönd. Við mildan bjarma Iogans gleymum stað og stund. Enginn betri staður fyrir ástarfund.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.