Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 18.07.1996, Blaðsíða 6

Fréttir - Eyjafréttir - 18.07.1996, Blaðsíða 6
FRETTIR Framherjar á Lengjunni Lengjan, hinn vinsæli getrauna- leikur, sem slegið hefur í gegn, hefur af og til verið með leiki í 4. deild. Á laugardaginn var þar leikur Eyjaliðsins Framherja og ÍH sem Framherjar unnu 3-1. Stuðlarnir á leiknum voru þessir: 1,65 fyrir Framherjasigur. 2,90 fyrir jafntefli og 3,35 fyrir útisigur hjá ÍH. Samkvæmt þessu var reiknað með sigri Framherja. Tipparar voru hins vegar á öðru máli því 64% þeirra tippuðu á sigur ÍH, 22% tippuðu á jafntefli og 14% á Framherjasigur. Samtals var tippað fyrir 160 þúsund kr. þar sem þessi leikur kom við sögu. Ef þessu er deilt niður var tippað fyrir 53 þúsund á leikinn, sem er meira en t.d. á leik Keflavíkur og Grindavíkur í 1. deildinni í síðustu viku. Athyglis- vert er hversu mikið var tippað á leik Framherja og ÍH en upphæðin var vel yfir meðallagi .„Auðvitað var gaman að vera á Lengjunni. Við urðurn að vera með farsíma og hringja um leið og var skorað í textavarpið svo tipparar gætu t'ylgst með. Vinur minn sem býr í Reykjavík fylgdist t.d. með í textavarpinu og sá gang mála í leiknum," sagði Hjalti Kristjánsson f Framherjum. SPUKT&SVARAÐ: Varst þú með W JakobIna Guðlaugsdóttir, FYRRUM ÍSLANDSMEISTARI í GOLFL „Nei, ég lét það eiga sig þá, ég var ekki komin almenni- lega af stað í golfi á þessum tíma. Ég held ég fari rétt með að 1968 hafi konur í fyrsta skipti keppt á landsmóti í golfi í sérstökum kvenna- flokki. En ég man að ég var viðstödd lokahófið þar sem verðlaunaafhendingar fóru fram og það var æðislega gaman.“ Landsmótið í golfi fer fram í Eyjum í næstu viku. Síðast fór landsmót hér fram 1968. Plastrennur Garðavcgi 15 - sími 4-81 1151 Fréttir Fimmtudagur 18. júlí 1996 Ammtm leigði btmnaða mynd fyrír 6 ára barnabarn siH Könnun Frétta í síðustu viku um útleigu á bönnuðum bíómyndum á myndbandsspólum fyrir 16 ára og yngri, vakti athygli. Af þeim fimm stöðum sem tveir 15 ára piltar fóru inn á, var hvergi gerð athugasemd við að þeir fengju leigðar bannaðar myndir, samkvæmt aðvörunum sem Kvikmyndaeftirlit ríkisins setur á slíkar myndir. Einn kaup- maður í bænum, sem leigir út myndbandsspólur, segir erfitt að aldursgreina unglinga og varla hægt að neita 15 ára unglingum um myndir. Hins vegar sé það sann- færing hans að kaupmenn virði að mestu leyti þessar reglur og leigi ekki út hannaðar myndir til yngri krakka. Hins vegar sé annar flötur á þessu máli sem ekki hafí verið vakin nægilcga mikil athygli á, að foreldrar og jafnvel afar og ömmur séu að taka bannaðar myndir fyrir börnin sín. „Grófasta dæmið í sjoppunni hjá mér gerðist í sfðustu viku. Þá kom amma með sex ára gamalt barna- bamið sitt og leyfði að því velja mynd. Bamabamið valdi niynd sem er bönnuð bömum innan 16 ára aldurs. Amman samþykkti það. Eg varð mjög hissa og spurði ömmuna hvort hún virkilega ætlaði að leyfa baminu að horfa á þessa ofbeldismynd. Viðbrögð ömmunnar voru að afinn myndi horfa á myndina með bamabaminu þannig að þetta væri í góðu lagi. Mér fmnst þessi afstaða hreint með ólíkindum og þetta er ekkert sem við sem leigjum út myndimar ráðum við. I sannleika sagt eru ömmurnar og afamir langverst í þessu, þau virðast undanlátssamari við bamabömin og taka bannaðar myndir fyrir þau. Ég hef einnig svipaða sögu að segja af foreldrum,” segir kaup- maðurinn. Fulltrúi Frétta sem fylgdist með útleigu á myndböndum á öðrum stað í síðustu viku, varð vitni að því að tveimur nýfermdum strákum, á Harður árekstur Mjög harður árekstur varð á bifreiðaplaninu við slökkvistöðina upp úr kl. hálf átta í gærmorgun. Tveir hílar rákust saman og eru þeir stórskemmdir, en þó sérstaklega annar þeirra. Hvorugan ökumann sakaði. Bílamir eru ný- legir og tjónið mikið. Hrefna hjá SL afhendir Sigmari farseðilinn til Dublin. Sigmar vann Sigmar Magnússon datt heldur betur í lukkupottinn í vikunni þegar dregið var í lukkupotti hjá Samvinnuferðum-Landsýn og Miðbæjarsamtakanna í vikunni. Sigmar vann þriggja nátta ferð með Samvinnuferðum-Landsýn til Dublin á írlandi og getur Sigmar farið hvenær sem er. Dublinarieri Miðbæjarsamtökin stóðu fyrir mikilli uppákomu fyrirskömmu. Þar gátu gestir sett nafn sitt í lukkupott til að freista þess að vinna Dublinarferð. Og Sigmar varð sá heppni og sótti vinninginn sinn á þriðjudaginn. „Við viljum þakka bæjarbúum frábæra þátttöku," sagði Hrefna Hilm- isdóttir, umboðsmaður SL. fjórtánda ári, var leigð út myndin SEVEN eða Dauðasyndimar sjö, sem er einhver Ijótasta og hrottafengnasta mynd sem sést hefur á markaðinum undanfarin ár. Ekki var spurt um aldur drengjanna. Það skal tekið fram að þeir voru ekki á vegum blaðsins í þessu tilfelli. „Mjög algengt er að inn til okkar komi böm eða unglingar að velja sér bannaða mynd. Þegar við spyrjum um aldur og segjum að ekki sé hægt að leigja myndina út, þá benda þau á að foreldrar sínir séu út í bíl og þau gefi sitt leyfi. Mér fmnst mjög erfitt að eiga við þetta,” segir kaupmaðurinn jafn- framt. Viðurlög við útleigu á bönnuðum myndböndum til þeirra sem ekki hafa aldur til eru sektir. Við ítrekuð brot getur jafnvel orðið um sviptingu leyfis að ræða. Sýslumaður segir að lögreglan muni fylgjast með þvf að þessum reglum verði framfylgt. Að velja sér persónulegt númer á bílinn sinn hefur slegið í gegn hér á landi. Frumkvöðullinn að þessum nýja möguleika í bílnúmeraflóru landsmanna var Árni Johnsen alþingismaður sem lagði fram frumvarp á Alþingi til að gera þetta mögulegt. Arni pantaði jafnframt fyrstu númerin sem voru ISLAND og EYJAR. Nokkrir Vestmannaeyingar hafa fengið sér persónu- Ieg númer. Einn þeirra er Friðrik Gissur Benónýsson útgerðarmaður sem fékk sér nafnið BENÓNÝ. „Þetta var einhver skyndiákvörðun hjá mér, ég þorði varla að segja frá því. Það segir sig nokkuð sjálft hvers vegna þetta nafn varð fyrir valinu. Yngsta bamið heitir Benóný og hann er skírður í höfuðið á afa sínum. Svo em nokkrir í ættinni með þetta nafn. Strákurinn, sem er fjögurra ára, hefur auðvitað eignað sér bílinn því hann er skráður á hans nafni. Mér finnst þetta í raun of ódýrt, þetta mætti vera enn dýrara að fá sér persónulegt númer,” sagði Friðrik í samtali við Fréttir. Samkvæmt upplýsingum frá Bifreiðaskoðun Islands eru nokkrir Eyjamenn búnir að fá sér svona númer. Gylfi Þór Úranusson fékk sér nafnið KGBens, Margrét Ólöf Eyjólfsdóttir fékk sér nafnið FRÓÐI, þá eru númerin 44LÓA, 44MK og 444MK skráð íEyjum og beinast spjótin að Magnúsi Krisúnssyni. Þá er númerið ÁFRÓNI skráð í Eyjum og er Ómar Sveinsson gmnaður um það. Hugmyndaflug Islendinga hefur svo sannarlega fengið að njóta sín. Meðal númera sem fengust uppgefin em Toy 1. Toy 2, Europa, Tuborg, Egils, Tennis, Valur, Fylkir. Jordan, Italía, Pizza og Thule. Þá em gælunöfn vinsæl. Ekki hefur borist pöntun á nöfnum eins og ÍBV, ÞÓR eða TÝR. Ámi Johnsen, sagði í samtali við Fréttir að hann væri ekki enn búinn að setja númerið EYJAR á Volvóinn sinn í Eyjum. „Ég geri það í næstu viku,” sagði Ámi. „Þetta hefur breyst nrikið frá því maður gat séð frá hvaða byggðalagi bflar voru skráðir. Þegar ég var með V-númer á bflunum mínum og var að þvælast í Reykjavík, var verið að flauta og djöflast í okkur í umferðinni. Ég er ekki einn um þá sögu. Ef ég var á bfl með R-númeri gekk allt eins og í sögu,” sagði Friðrik. Panta þarf persónuleg bflnúmer hjá Bifreiðaskoðun Islands og mega þau mest vera sex tölu- og/eða bókstafir. Verðið á bflnúmeraplötunni er rúm 28 þúsund krónur en ekki er skilyrði að setja það strax á bflinn.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.