Fréttir - Eyjafréttir - 18.07.1996, Page 9
Fréttir
Fimmtudagur 18. júlí 1996
Áhaldaleigan 25 ára:
Hjálpar þeim
sem hjálpa
sér sjálfír
Flestir kannast við það, að vera
að gera eitthvað heima hjá sér
og standa allt í einu frammi fyrir
því að vanta verkfæri, borvél,
sög eða hvað sem er. Áhalda-
leigan, sem Óskar Óskarsson
á og rekur, er fyrirtæki sem
hleypur undir bagga í slíkum til-
fellum en þar er mikið úrval af
alls konar verkfærum og
tækjum, bæði stórum og
smáum sem hægt er að fá
leigð, sama hvort um stærri
eða minni verk er að ræða. Úr-
valið hjá Óskari er meira en
margan grunar en í upphafi
leigði fyrirtækið út
steypuhrærivélar og slípivélar.
Fljótlega bættust við loftpressur
en í dag eru steypuhrærivélar
horfnar úr rekstrinum og stein-
steypusagir og kjarnaborar
hafa að mestu tekið við af loft-
pressunum.
Ingi í Götu steig
fyrsta skrefið
Áhaldaleigan á 25 ára afmæli um
þessar mundir en stofnandinn var
Jóhann Ingi Einarsson, fyrrum leigu-
bflstjóri, sem flestir eldri Eyjamenn
kannast yið sem Inga í Götu. Hann
stofnaði Áhaldaleiguna árið 1971 en
árið 1973 kaupir Armann Óskarsson
sig inn í fyrirtækið og kaupir það allt
árið 1974. Eftir það óx fyrirtækinu
ásmegin og í nokkur ár teygði það
anga sína upp á fastalapdið að sögn
Óskars Óskarssonar. „Ármann hafði
áður unnið hjá bænum og verið til sjós
sem vélstjóri sem var góður grunnur
undir það að ^ taka við Áhaldal-
eigunni," segir Óskar um bróður sinn
en hann tók við rekstrinum eftir andlát
Ármanns árið 1984.
Ármann jók umsvifin
„Ármann keypti vinnupalla til að
leigja út og háþrýstidælur sem voru
mikið notaðar þegar sjómenn þrifu
báta sína í lok vertíðar. Háþrýstidælur
voru ekki algengar á þessum tíma, þær
var aðeins að finna í frystihúsunum á
þessum tíma. Til þess að geta flutt
hana á milli setti Ármann háþrýsti-
dælu inn í gamlan Land Rover jeppa
sem ég er viss um að margir sjómenn
muna eftir ásamt vatnsbflum sem flutti
til þeirra heita vatnið.“
Þegar Ármann gekk inn í fyrirtækið
var það við Miðstræti, í húsi austan
við verslunina Miðbæ sem er horfið af
yfirborði jarðar. Þegar hann tók við
rekstrinum flutti hann það í brunninn
að heimili foreldra sinna við Faxa-
stíginn. Seinna leigði hann kjallarann
þar sem útgerð Gandís VE er til húsa
við Strandveg en núverandi húsnæði
við Skildingaveginn keypti hann af út-
gerðum Friggjar VE og Skuldar VE
og Ástþóri Einarssyni bflstjóra. „Rétt
áður en Ármann lést keypti hann
króna af Villa Fisher á Kóp VE héma
á móti og var byrjaður að flytja sig
yfir. Þegar ég tók við ákvað ég að selja
Kópshúsið og koma mér fyrir á núver-
andi stað. Seldi ég Fjölverksmönnum
húsið og síðan höfum við verið hér
hvorir á móti öðmm.“
Rykið hverfur
Fyriilækið óx hratt hjá Ármanni sent
var fyrstur til að koma með stein-
steypusagir og kjamabora til Eyja. Var
það mikil framför því húseigendur
losnuðu við allt ryk og óþverra sem
fylgdi loftpressunum. „Árið 1980
keypti hann stóra mölunarvél sem
malaði grjót og flokkaði möl eftir
komastærð. Fyrst var hann með hana
austur á Nýjahrauni en síðar fór hann
með búnaðinn upp á land og malaði
fyrir þrjú fyrirtæki, m.a. Istak. Malaði
hann m.a. steina í grill sem fluttir vom
út. Er ekki ósenniiegt að eitthvað af
þeim hafi verið flutt til íslands aftur.
Meðan umsvifin vom mest var hann
með þrjá og fjóra menn í föstu starfi
uppi á landi auk þess sem Áhalda-
leigan hélt uppi fullri starfsemi hér í
Eyjum," segir Óskar.
Óskar tekur við
Ekki fór Ármann vel út úr viðskiptum
sínum á fastalandinu því tvö af fyrir-
tækjunum fóru á hausinn og flutti
hann búnaðinn til Eyja árið 1982 og
fór að vinna fýrir bæinn og Flugmála-
stjóm. „I nóvember 1984 féll Ármann
frá og þá varð ég að hrökkva eða
stökkva. Ég var þá einn af eigendum
Eyjataxa og keyrði leigubfl auk þess
sem ég rak sjoppu. Ég ákvað að selja
það allt og taka við Áhaldaleigunni.
Staðan var ekki góð en ég naut að-
stoðar lánastofnana og mágur minn,
Auðberg Óli Valtýsson hjálpaði mér
mikið meðan ég var að komast yfir
Óskar Elías Óskarsson framan við vatnsbíl Áhaldaleigunnar ásamt Hreiðari Erni syni sínum.
Á innfelldu myndinni er Ármann Óskarsson, bróðir Óskars sem rak fyrirtækið um arabil.
erfiðasta hjallann. Auk þess sem
bærinn keypti mölunarsamstæðuna
árið 1989,“ segir Óskar sem ákvað að
sækja á brattann en kjörorðið var; eitt
skref í einu. „Ég keypti tæki til að
sandblása og höfum við tekið að
okkur nokkur stór verk. Meðal þeirra
em Landakirkja og Ráðhúsið sem
voru sandblásin inn í steypu undir
múrefni og málningu. Auk þess hef ég
lagt mesta áherslu á steinsteypusögun,
kjamabomn og múrbrot. Stærstu
verkin sem ég man eftir em íslands-
banki og Sparisjóðurinn og núna emm
við að vinna í breytingunum sem verið
er að gera í Vinnslustöðinni sem er
nokkuð stórt verk. Svo get ég nefnt
nokkrar verslanir eins og t.d. Eyjakjör
og KÁ.“
Reynsla kemur við-
skiptavinum til góða
Óskar segir að mikil reynsla hafi orðið
til innan fyrirtækisins og komi það sér
vel því oft leita til hans einstaklingar
sem hyggja á framkvæmdir heima hjá
sér. „Þetta er liður í þeirri þjónustu
sem við bjóðum upp á. Stundum er
þetta ekkert nema fyrirhöfnin en hún
skilar sér oft í viðskiptum seinna meir.
Auk stóru tækjanna, sem ég nefndi
áðan, leigjum við út rafmagnsbor-
vélar, hjólsagir, vinnupalla, körfubíl.
vatnsbíl, garðsláttuvélar og stiga.
Reyndar er ég í svolitlum vandræðum
með stigana því þeir sem hafa fengið
þá hjá mér hafa gleymt að skila þeim.
Vil ég nota þetta tækifæri og skora á
þá að skila stigunum sem fyrst.
Annars gengur reksturinn orðið vel og
Áhaldaleigan er vonandi komin til að
vera við lýði í a.m.k. 25 ár í viðbót,“
sagði Óskar að lokum.
Ó.G.
Alli og Guðjón með kjarnaborinn í Islandsbanka
Jens Jóhannesson við gat sem hann gerði bak-
sviðs í Bæjarleikhúsinu.
Vatnsbíllinn kom að góðum notum þegar kviknaði í
austur á hrauni. Óskar og Elías Baldvinsson.
Svona leit Landakirkja út eftir sandblásturinn.