Fréttir - Eyjafréttir

Issue

Fréttir - Eyjafréttir - 18.07.1996, Page 10

Fréttir - Eyjafréttir - 18.07.1996, Page 10
10 Fréttir Fimmtudagur 18. júlí 1996 Ferðamannastraumurinn: Komum skemmtiferðaskipa hefur fjölgað í sumar og hér eru farþegar á Akademik loffe að stíga um borð eftir skoðunarferð í kringum Eyjar. Fjölgun ferða- manna milliára -íslendingar sækja Eyjarnar meira heim. Fcrðamannaiönaður í Vestmannaeyjum fer vaxandi með hverju árinu sem líður. Hingað koma 40.000 til 50.000 manns á hverju ári sem flokka má sem ferðamenn. Af viðtölum við fólk sem sér um ilutning á fólki til Eyja og móttöku þeirra má ráða að breyting er að verða í grcininni. Eru þeir sanmiála um að íslenskum fcrðamönnum fari fjölgandi og meira beri á útlendingum sem kaupi litla sem cnga þjónustu. Sumarið í fyrra var ferðamannaiðnaði hér erfitt vegna þess hvað fiug datt niður marga daga. Þó einstaka dagar hafi fallið niður í ár er það ekkert hjá þeim ósköpum sem menn máttu sætta sig við sumarið 1995, sem var mesta þokusumar í rúman áratug. Venjan er sé sú að nokkum tíma tekur að rétta úr kútnum eftir þokusumar eins og í fyrra en Eyjólfur virðist vera að hressast. Samtöl við fólk í greininni staðfesta þetta, ferðamönnum hefur Qölgað og á það ekki síst við um Islendinga sem í auknum mæli koma hingað og eyða hér tveimur til þremur dögum og gista ýmist í tjöldum hótelum eða gistiheimilum. Sigfús Sigfússon, markaðsstjóri Islandsflugs, segir að sé farþegaljöldi hjá þeim borinn saman í apríl, maí og júní á ámnum 1994,1995 og 1996 hafi þeim fækkað á síðasta ári en nú sé hann aftur á uppleið. „Farþegar vom 1500 hjá okkur í júní 1994, í fyrra vom þeir 1334 en í ár fluttum við 1471 farþegatil Eyja,“segir Sigfús og er þróunin svipuð milli áranna í apríl og maí. „Aftur á móti emm við nokkuð sáttir við júlí en aukningin það sem af er er í kringum 10%. Hvað margireru eiginlegir ferðamenn veit ég ekki á þessari stundu,“ sagði Sigfús ennfremur. „Það er meiri umferð á Bakka; hún eykst með hverju ári. Þaðan emm við að flytja ferðamenn, íþróttahópa og aðra sem þurfa að skjótast til Eyja, t.d. sölumenn," segir Valur Andersen, framkvæmdastjóri Flugfélags Vestmannaeyja, um ganginn hjá sér í sumar. „Ég hef ekki tölur á reiðum höndum en við erum að lljúga allan daginn. Við emm í viðskiptum við Ferðamiðstöð Austurlands og Samvinnuferðir- Landsýn sem ýmist koma með ferðamennina á Bakkallugvöll sem síðan fara með Herjólli og öfugt. Auk þess fjölgar Islendingum sem skjótast yfir sundið til að skoða Eyjamar," bætti Valur við. Magnús Jónasson, framkvæmda- stjóri Herjólfs hf. segir að farþegaflutningar hafi aukist í sumar miðað við árið í fyrra. „Mín tilfinning er að hér sé íslenska Ijölskyldan á ferð. Það sést á fjölda fólksbfia sem við flytjum. Ég er ekki í vafa um að auglýsingar, bæði beinar og óbeinar, hafa skilað sér. Ferð okkar til Reykjavíkur í tengslum við ferðaráðstefnuna vakti mikla athygli og er að skila sér í auknum fjölda íslendinga sem taka sér far með skipinu." segir Magnús. Þessu til staðfestingar bendir Magnús á samanburð á farþegaljölda frá apríl til 15. júlí í ár og í fyrra en farþegum ijölgar um úr 23.670 1995 í 28.593 í ár. Er aukningin um 20% á milli áranna. Sigurður Sigurðsson, starfsmaður Flugleiða á Vestmannaeyjaflugvelli segir ómögulegt að meta hvað mikill hluti af farþegum þeirra séu eiginlegir ferðamenn en aukning í júní og júlí í ár bendi til þess að þeir séu fleiri í ár en í fyrra. „Farþegar voru færri í apríl í ár en í fyrra en í júní er góð aukning, þá íjölgar þeim úr4979 í 5576 og fram til 15. júlí sl. fluttum við 2584 farþega á móti 2295 í fyrra. Framhaldið lofar góðu því mikið er bókað hjá okkur á næstunni," sagði Sigurður. Samkvæmt þessu virðist ferðamönnum fjölga á þessu ári en fyrir utan það sem flugfélögin og Herjólfur flytja hafa aldrei komið fleiri skemmtiferðaskip til Eyja og á þriðjudaginn komu tvö skip og eitt á laugardaginn. Ó.G. Þar sem lundinn er Ijúfastur fugla Sigurjón Magnús Egiisson, blaðamaður og ritstjóri segir reynslu sína afheimsókn til Vestmannaeyja. í nýjum hvítum íþróttaskóm, ný- klipptur og fullur tilhlökkunar mætti ég ásamt unnustunni á Umferðarmiðstöðina að morgni föstudagsins 5. júlí. Sumarveðrið var eins fallegt og það getur orðið. Ferðinni var heitið til Þorlákshafnar þar sem fara átti með Herjólfi til eyjarinnar í suðri, eyjarinnar þar sem lundinn er ljúfastur fugla, eins og Ási í Bæ söng með svo skemmtilegum hætti um árið. Miklabrautin var hversdagsleg, nema veðrið var óvenju gott. Mikil umferð, allir að flýta sér. í Þorlákshöfn beið Heijólfur, glæsilegt skip. í Herjólfi Það fyrsta sem tekið var eftir þegar komið var um borð var einstök snyrti- mennska. Herjólfur nánast angar af hreinlæti. Eins og áður sagði var veðrið einstakt, nánast logn og glaða sólskin. A leiðinni til Vestmannaeyja voru flestir farþeganna á dekkinu og nutu sólar, ein- stakt var hversu vel sást bæði til lands og eyja og allir voru í himnaskapi, það er farþegamir. Helst virtist starfsfólkið hafa farið á mis við hversu veröldin var dá- samleg þennan fallega föstudags- morgun. Til nánari skýringa skal þess getið að svo virtist sem þjónustufólkið hefði að takmarki að tala sem allra minnst vil ferðafólkið og aðeins það sem allra nauðsynlegast var. Þegar frönsku kartöflur farþega með miða númer 39 voru tilbúnar gall við í hátalarakerfinu, 39, hárri og ákveðinni röddu, en ekki lil dæmis; 39, gjörið svo vel. Ég er KR-ingur og um borð voru fleiri KR-ingar, allir með það sama markmið að vera í Vestmannaeyjum fram yfir leik IBV og KR sem fram átti að fara næsta sunnudagskvöld. Umræðan um borð snerist mikið um væntanlegan leik. Þrátt fyrir gott gengi KR vorum við kvíðnir, enda tapað í Eyjum síðustu ár. r A Heimaey Síðasti spölur siglingarinnar kallaði alla á dekk. Vestmannaeyjar eru glæsilegar og fólk var á dekki og nánast drakk í sig allt sem það sá. Þegar komið var í inn- siglinguna vakti mesta athygli hversu litlu mátti muna að hún lokaðist í gosinu. Eftir að hinu glæsilega skip hafði verið lagt að bryggju var gengið í land, veðrið hafði haldist. Vestmannaeyjabær er / það heila tekið voru við, svo og margir aðrir ferðamenn sem við þekktum, mjög ánægð með dvölina hjá ykkur. Það má vel vera að einhverjum þyki ég eyða mörgum orðum f það sem miður fór, en þá bið ég forláts. Ég vildi óska að Vestmannaeyingar velti fyrir sér hvort ég hafi rétt fyrir mér og ef svo er þá er ekkert af- rek að gera betur. hreinlegur, snyrtimennskan allsráðandi. Við höfðum pantað okkur herbergi á Gistiheimilinu Ámý. Það var ekkert annað að gera en ganga upp á Illugagötu. Þegar þangað var komið var enginn í húsinu. Meðan við biðum þess að á móti okkur væri tekið ók framhjá okkur eldri kona á amerískum bíl. Vegna mis- skilnings tókum við tal saman og úr varð að hún bauð okkur í kaffi. Þar var komin Sigga í Skuld, sem núna er í Hvfid, eins og hún sagði og vitnaði í ferðamála- frömuð ykkar, Pál Helgason. Meðan við drukkum kaffið hennar Siggu og borðuðum ristaða brauðið með ostinu og marmelaðinu og biðum þess að einhver kæmi heim til Ámýjar íét Sigga móðan mása. Það var með ólíkindum hvað hún komst yfir á ekki lengri tíma. Það væri engu að kvíða ef allir Vest- mannaeyingar væm eins elskulegir og Sigga í Skuld. Veitingastaðir og verslanir Eftir að hafa loks komið okkur fyrir var haldið í miðbæinn. Það fyrsta sem við gerðum var að fara í verslun við Bámstíg sem selur heimagerða minjagripi og fleira. Þar festum við kaup á tveimur lundum og leist vel á okkur, allt lofaði góðu. Herjólfur var að koma úr seinni ferðinni þennan dag. Meðal farþega var eitt hundrað manna hópur frá Iðju, þar sem við þekktum hluta hópsins, og eins vom fleiri KR-ingar að koma. Þegar komið var að kvöldmatnum gengum við hönd í hönd og ferðinni var heitið á Pizza 67, bæði ákveðin í að fyrsta kvöld- máltíðin ætti að vera pizza. Þar þjónaði til borðs ungur maður sem við höldum að heiti Gunnar (Geir Gústafsson innsk. Frétta). Honum gleymum við seint. Gunnar var einstaka þjónustulipur og hann gaukaði að okkur fróðleik um heimabyggð sína, ekki því sem allir ís- lendingar vita, heldur bætti hann við þekkingu okkar og skoraði á okkur að gera hluti sem við höfðum ekki hugleitt. Gunnar var Vestmannaeyjum til mikils sóma og ég hafði á orði við unnustuna að þennan unga mann ætti að gera að ferðamálastjóra í Vestmannaeyjum. Ur varð að við fómm daglega á Pizza 67, bæði til að fá okkur kaffi eða bjór og eins til að ræða við Gunnar um hvað við hefðum gert og hvað við ættum að gera. Alltaf var hann jafn þægilegur og mátu- lega ræðinn. Hvar eru heimamenn? Á laugardagsmorgun var enn glaða sól- skin og nánast logn. Vilberg kökuhús var valið fyrir morgunmatinn. Gott kaffi- hús og þægileg afgreiðsla. Athygli okkar vakti hversu verðlagið var sanngjamt. Það em margir kostir við Vilberg en að- eins sjáanlegur einn galli, en það er hversu seint er opnað á sunnudögum. Við vomm nokkur saman þar þegar opnað var á sunnudeginum. Oll lofuðu brauðið, kaffið og stelpumar sem af- greiddu og öll vom sammála um að það hefði mátt opna fyrr. Þægilega og góða afgreiðslu fengum við einnig á Café Maria. Á öðmm stöðum var svo sem ekki undan neinu að

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.