Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 18.07.1996, Blaðsíða 11

Fréttir - Eyjafréttir - 18.07.1996, Blaðsíða 11
Fimmtudagur 18. júlí 1996 Fréttir í BÁTSSIGLINGUNNI. Eins og sjá má líkaði fólki það sem fyrir augu og eyru bar. Kristborg Hákon- ardóttir heitir konan sem brosir sínu breiðasta. kvarta. Það sem vakti hvað mesta athygli á laugardeginum og sunnudeginum var að allflestar verslanir voru lokaðar, voru reyndar opnar til hádegis á laugar- deginum. Þeir ferðamenn sem ég ræddi við voru allir á einu máli um að „líf’ vantaði í bæinn, t.d. sölutjöld og fleira þar sent gaman hefði verið að heyra hin einstöku og fallegu Vestmannaeyjalög og þar sem hægt hefði verið að kaupa minjagripi og fleira og fleira. íslensku fyrir íslendinga Páll Helgason býður upp á skemmtilega siglingu og voru allir sem ég ræddi við himinlifandi með bátsferðina. Öðru gengdi með útsýnisferðir í rútunum. Þar kom lítið fram sem jók á þá vitneskju sem fengist hafði í bátnum, nema helst jegar fjallað er um gosið. Afskaplega er rað kjánalegt að bjóða Islend- ingum upp á útsýnis- og kynningarferð á íslandi þar sem eingöngu eru töluð erlend tungumál. Mér þótti það fyrir neðan allar hellur og svo fór að ég neitaði að láta bjóða mér upp á þetta, varð ósáttur. Svör Páls Helgasonar við umkvörtun minni voru þess eðlis að ég gleymi þeim seint. Hann taldi mig ekki nógu vel af guði gerðan að skilja ekki erlend tungumál og ætti að fara á tungumálanámskeið hið fyrsta. Eg skil ensku, en það er ekki má- lið. Ef ég er ferðamaður á íslandi vil ég vera ávarpaður á íslensku. Rök Páls voru ámóta og að íslensk blöð ættu að vera á erlendunt tungumálum á sumrin þegar mest er urn ferðamenn hér á landi. Páll endurgreiddi með hundshaus. Það jók kannski á vonbrigði okkar að Iðjuhópurinn hafði farið í rútuferð og þau sem við ræddum við áttu ekki orð yfir hrifningu sína. Leiðsögumaðurinn í þeirri ferð fléttaði inn í skemmtilegum sögum af Vestmanneyingum og tókst svo vel upp að fólkið geislaði af gleði. I Náttúrugripasafninu fengum við leið- sögn Kristjáns Egilssonar og það er mikils virði. Með fróðleik sínum og vandaðri framsetningu gerir hann allt lifandi og skemmtilegt. Að lokum Að sjálfsögðu skemmdi fótboltaleik- urinn ekki fyrir, en af tillitssemi skal ekki farið nánar út í leikinn. I það heila tekið vorum við, svo og margir aðrir ferðamenn sem við þekktum, mjög ánægð með dvölina hjá ykkur. Það má vel vera að einhverjum þyki ég eyða mörgum orðuin í það sem miður fór, en þá bið ég forláts. Eg vildi óska að Vest- mannaeyingar velti fyrir sér hvort ég hafi rétt fyrir mér og ef svo er þá er ekkert af- rek að gera betur. Að endingu sendi ég bestu kveðjur og þakka fyrir góða helgi. Sigurjón Magnús Egilsson Höfundur er blaðamaður og ritstýrir nú Sjómannablaðinu Víkingi. GREINARHOFUNDUR um borð í Herjólfi. Veðurblíðan leynir sér ekki Ferðamálahópur Vestmannaeyja: fíeirí íslendinga til Byja -og lenging ferðamannatímans ermeðal þess sem mest áhersla er lögð á í dag. Páll Marvin Jónsson, forstöðu- maöur Rannsóknasetursins, (örsvarsmaður ferðamálahóps Vestmannaeyja sem Vestmanna- eyjabær og hagsmunaaðilar í ferðaþjónustu standa að, segir ýmislegt í sigtinu hjá þeim til að draga hingað ferðamenn. Beinist athygli þeirra einkum að inn- lendum ferðamönnum og því að lengja ferðamannatímann. Þegar til lengri tíma er litið eru nokkur atriði sem verið er að huga að, eins og t.d. gosminjasafni sem tengdist Nýjahrauninu. „Við höfum nýlega gert auglýsinga- samning við útvarpsstöðina FM 95,7 þar sem kynnt verður það helsta sem við erum með á döfínni hverju sinni. I ágúst ætlum við að einbeita okkur að pysjutímanum og auglýsa hann sem fjölskylduhátíð. Þessar ferðir verða auglýstar á FM og í Sam- bíóunum. Samningar eru á lokastigi um að halda hér hálendisleika 17. ágúst. Þar mætir Hjalti Úrsus með nokkra kraftajötna sem reyna með sér á leikunum. Hálendisleikamir verða íjölskylduhátíð fyrir Vest- mannaeyinga en þeir verða seinna sýndir í sjónvarpi sem gæti verið ágætis auglýsing fyrir okkur. Auk þess munum við tengja þetta pysju- tímanum," segir Páll Marvin unt það sem ferðamálahópurinn er að vinna að núna. „Auk þess erum við með leik í gangi á FM með þátttöku veitinga- staða, Herjólfs, Flugleiða og Islandsflugs og gistihúsa og eru myndarlegir einstaklings- og helgar- pakkar í boði.“ Síðastliðinn vetur voru Flugleiðir með átak í gangi sem kallað var Gjugg í borg. Stóðu fólki á lands- byggðinni til boða hagstæðar ferðir til Reykjavíkur en í vetur á að snúa dæminu við að lokka íbúa Reykja- víkursvæðisins út á land undir slagorðunum Gjugg í bæ. „Sex bæir taka þátt í þessu með Flugleiðum og eru Vestmannaeyjar þar á meðal. Ferðamálahópurinn hefur fundað með Félagi kaupsýslumanna í Vest- mannaeyjum um að það taki þátt í þessu með okkur með því að kaupa auglýsingar. Kaupmenn tóku þessu vel og er ætlunin að taka eina helgi fyrir áramót og aðra eftir áramót þar sem athyglinni verður beint að Vest- mannaeyjum. Við ætlum að nota Sprönguskellsnafnið sem kaupmenn verða með í afsláttarhefti og bjóða vörur á hagstæðum kjörum," segir Páll en ennþá á eftir að fullmóta Gjugg í bæ. Talsvert hefur borið á gagnrýni þar sem því er haldið fram að lítið sé gert til að lokka hingað fleiri ferðamenn. Hér hafi ríkt stöðnun á meðan sveitarfélög vítt unt land hafa lagt í mikinn kostnað til að laða til sín ferðamenn, bæði innlenda og erlenda. Dæmi um þetta er Vestur- farasafnið sem komið hefur verið upp á Hólmavík. Um þessa gagnrýni segir Páll að mun meira megi gera í því að selja ferðir hingað út á gosið en gert er. „Það er heilmikið að sjá á Byggðasafninu sem tengist gosinu en við þurfum að koma upp sér gosminjasafni og tengja það hrauninu. Hefur verið rætt um að hafa rústimar af Blátindi miðdepil sviðs sem komið yrði upp og sýndi áhrif gossins á Vestmannaeyjar. Og svo þurfum við að gera meira út á þá fjölbreyttu náttúm sem Eyjamar hafa upp á að bjóða,“ segir Páll. Páll, sem veitir Rannsóknasetri Há- skóla Islands í Vestmannaeyjum forstöðu, hefur unnið að því að fá hingað námsmenn með góðum ár- angri. I síðustu viku vom hér tólf stúdentar sem rannsökuðu líffræði á Norðurslóðum á vegum Intemational Study Program sem em dönsk sam- tök. „Þessar heimsóknir gætu orðið fleiri og þær gætu orðið gífurleg auglýsing fyrir okkur. Eftir tíu ár fara þessir krakkar að kenna eðlisfræði og jarðfræði og eiga ömgglega eftir að auglýsa Vestmanneyjar í ' kennslunni.“ Um ferðamannaiðnað almennt segir Páll að meira þurfí að gera fyrir ferðamenn sem hingað koma. „Ánægður ferðamaður er besta auglýsingin og það er ófært að ferða- menn skuli eiga á hættu að koma að læstum dymm á veitingastöðum eins og gerðist á Jónsmessunni. Draslið í hrauninu er líka til skammar. Hug- mynd um stofnun Náttúmfélags er í skoðun og gæti það t.d. tekið á því máli og unnið að friðun svæða í Nýjahrauninu eins og t.d. Flakkaranum sem nauðsynlegt er að friða. Því við verðum að huga að því að halda í það sem við höfum áður enlengra verður haldið,“ sagði Páll að lokum. Ó.G. + Innilegar þakkir til allra er sendu blóm, minningarkort eða sýndu samúð og vináttu við andlát bróður okkar og frænda Bergs Ragnars Jónssonar. Sérstakar þakkir til starfsfólks og föndurstofu Hraunbúðum. Guð blessi ykkur öll. Halldóra Jónsdóttir og vandamenn.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.