Fréttir - Eyjafréttir - 18.07.1996, Page 12
12
Fréttir
Minning:
Bergur Ragnar
Jónsson
F. 25.05.1929 - D. 08.07.1996
Okkur langar til að minnast Bergs
frænda með fáeinum þakkarorðum.
Bergur var einn af föstum punktum í
lífi okkar. Hann var alltaf til staðar
og vildi alltaf reyna á sína vísu að
gera það sem hann gat fyrir okkur.
Bergur bjó hjá ömmu okkar og afa
mest allan tímann sem við þokktum
hann. Það voru margar sögumar og
ævintýrin sem hann sagði okkur sem
við munum geyma í minningu
okkar.
Aldrei vantaði góða skapið og
húmorinn í Berg, jafnvel undir það
síðasta þegar við heimsóttum hann á
Sjúkrahús Vestmannaeyja, þá var
húmorinn í lagi. Bergur dvaldi
síðustu ár sín á Hraunbúðum og
eignaðist þar marga góða vini.
Bergur var handlaginn og vann þar
marga fallega hluti sem hann gaf
okkur frændsystkinunum.
Við þökkum þér Bergur, sam-
veruna í gegn um Iífið. Nú hefur þú
lagt í aðra för og ég veit að á áfanga-
stað verður þér tekið opnum örmum.
Tilvera okkar er undarlegt ferðalag
við erum gestir og hótel okkar er
jörðin
Fjóla og Fanney,
Siggi og Jón Oli
Kveðjafrá bömum
Margrétar, Olafar og Eyju
Nú þegar sumar í loftinu liggur
og blómskrúð gleður hjarta, hvem dag.
Morgunsöng fuglanna, glaður þú þiggur
í eyrum þér hljómar nú daprasta lag.
A brautu er horftnn góður maður,
greiðvikinn maður með blíða sál.
Ljúfasti drengur, hlýr og glaður
en næmastur á bamsins mál.
í honum þau fundu þýðasta streng
hændust að hans ljúfasta geði.
Nú kveðja þau vin sinn, Berg,
sem vináttu sína þeim léði.
Guð varðveiti sál þína, Bergur minn,
farðu í friði á hans fund.
Nú lokið er lífshlaupi þínu um sinn,
sæll hvíldu nú hinsta blund.
(Höfundur: Harpa Kolbeinsdóttir)
Athugasemd vetjna umfjöllunar
Frétta m öryggisúttekt Herdísar
í umfjöllun Frétta um úttekt á
leiksvæðum bæjarins er birt mynd af
afmörkuðu svæði af lóð bláu deild-
arinnar á Rauðagerði. Þar sjást þrjár
tegundir af leiktækjum (þ.e. rólur,
sandkassi og rennibraut) sem eru í
myndatexta öll sögð ónýt og/eða stór-
varasöm og að þar með séu upptalin
leiktækin á lóðinni.
Athugasemdir Herdísar vegna
þessa svæðis vom eftirfarandi:
.Eeiksvœði við bláu deildina, aldur
bama 1-3 ára.
Kofi: Öryggisrými of lítið, í raun
aðeins pláss fyrir annan kofann.
Undirlag of hart, stéttin þarf aðfara
og setja mýkra undirlag. Með hliðsjón
af öryggisrými þarfað staðsetja þann
kofa sem notaður verður, þversum.
Gonnahestur: í lagi.
Sandkassi: Hœð sandkassans er of
mikil fyrir þennan aldurshóp bama.
Gœta þess að brúnir sandkassans
halli inn á við til þess að ekki sé hœgt
að nota brúnirnar sem jafnvœgisslá.
Sandkassinn orðinn lélegur, ónýtur?
Rennibraut: Hœð hliðanna 55-60 cm.
og opnar. Hliðarnar eru of lágar og
ráðlagt að setja í forgang að skipta
þeim út. Best að hafa trépall fyrir
framan rennibrautina sem hlyur
enda/lok rennibrautarinnar.
Rólur: Staðsetning ekki góð, öryggis-
rými ofþröngt. Keðjurmjög slitmrog
rólumar oflágar. Pallar undir rólum
í lélegu ásigkomulagi.
Girðing: Saga endana sem standa út
úr boltunum af. “
Eins og fram kemur í grein Frétta er
ástand leikvalla í Vestmannaeyjum í
heildina gott, sé miðað við ástand leik-
valla sem Herdís hefur tekið út annars
staðar á landinu. Hins vegar er ljóst að
gera þarf lagfæringar og endurbætur á
flestum ef ekki öllum leikvöllunum og
er fullum skilningur og vilji hjá
bæjaryfirvöldum að uppfylla þær
kröfur sem settar eru. Nú þegar hefur
verið hafist handa við að fjarlægja þau
leiktæki af lóð bláu deildarinnar á
Rauðagerði sem gera þarf við eða
skipta út.
Því hlýtur að mega að gera þær
kröfur á vikublaðið Fréttir að það fjalli
um málefni sem þessi af sanngimi og
segi satt og rétt frá.
Virðingarfyllst
Guðrún Jónsdóttirfélagsráðgjafi og
leikskólafulltrúi.
Athugasemd við athugasemd!
Þetta kallast að gera úlfalda úr
mýflugu! Úttekt Frétta var unnin á
mjög faglegan hátt í alla staði.
Fréttastj.
Fimmtudagur 18. júlí 1996
Ljósmynda
keppni
Frétta,
Foto og
Fuji
Ohætt er að segja að þátttakan í ljós-
myndakeppni Frétta, Foto og Fuji
hefur farið fram úr björtustu vonum.
Enda em verðlaun glæsileg auk þess
sem Foto og Fuji veita aukaverðlaun í
hverri viku
Eftirtaldir fá 100 ASA fdmu Fuji
36 mynda:
Amar Ingólfsson
Helga Tómasdóttir
Bára Sveinsdóttir
Snorri Jónsson
Nanna Rósa
Eysteinn Gunnarssson
200 mynda albúni fær Nanna
Rósa.
Og allir þeir sem fá birta mynd í
FRÉTTUM fá 100 ASA 36 mynda
Fujifilmu íFOTO.
Athugið að Ijósmyndakeppnin
stendur fram í miðjan ágúst. Það er
því nægur tími til að taka skemmtileg-
ar myndir. Til dæmis er um að gera að
ná góðum myndum yftr þjóðhátíðina!
Og munið að skila myndunum í
Foto en skilyrði til að vera með er að
filmumar séu framkallaðar þar.
Nafnlaus mynd. Sendandi Hrönn Gunnarsdóttir.
„Kolur“. Sendandi Anna Guðný.
1 '
í • d *
\' H
• • Tlm ■
Góð þátttaka í Sparisjóðsdegi
Hinn árlegi Spaiásjóösdagur van haldinn með pompi og pragt sl. laugardag en þetta var í fimmta
skipti sem hann fer fram. Þátttaka var að vepju góð. Boðið var upp á mismunandi göngu-
/skokk/hlaupaleiðir og þá fór Arnar Sigurmundsson, stjórnarformaður, með áhugasama á
söguslóðir í miðbænum. Krakkar fengu gefins flugdreka frá Sparisjóðnum og eftir hlaup og
fróðleik grillaði Sparissjóðsstjórinn ásamt starfsmönnum ofan í mannskapinn, sem mæltist
ákaflega vel fyrir.
Arnar fór með fólk á söguslóðir í miðbænum.