Fréttir - Eyjafréttir

Eksemplar

Fréttir - Eyjafréttir - 18.07.1996, Side 13

Fréttir - Eyjafréttir - 18.07.1996, Side 13
Fimmtudagur 18 júlí 1996 TVEIR STÓRVIÐBCJRÐIR í ÍÞRÓTTRHEIMINUM FRRMUNDRN Stærsti íþróttaviðburður f Vestmannaeyjum f mörg ár: Londsmotið í golfí hefst ó sunnudaginn Landsmótið í golfi fer fram í Vest- mannaeyjum að þessu sinni og hefst nk. sunnudag. Þetta er einn stærsti íþróttaviðburður sem haldinn hefur verið í Eyjum fyrr og síðar og hefur Golfklúbbur Vestmannaeyja lagt mikla vinnu á sig undanfarin miss- eri til að geta látið þennan draum verða að veruleika. Síðasta tæki- færið til að skrá sig í mótið var á mánudaginn. AUs skráðu sig um 252 kylfingar til leiks, sem er um hundrað færri en í fyrra þegar landsmótið fór fram á Hellu. Þar af eru heimamenn um 40. Að sögn Kristjáns Olafssonar, formanns landsmótsnefndar GV, er þetta svipaður fjöldi og búist hafði verið við. Reyndar hefði skipulagið gert ráð fyrir um 300 manns en það var sá fjöldi sem bjartsýnustu menn vonuðust eftir. Allir bestu kylfíngar landsins í meistaraflokki hafa skráð sig til leiks. Byrjað verður að spila í 2. og 3. flokki nk. sunnudag en meistaraflokkar karla og kvenna hefjast miðvikudaginn 24. júlí. Bræðurnir Þorsteinn og Júlíus Hallgnmssynir eru helsta von okkar heimamanna en Þorsteinn vann mót uppi á landi um síðustu helgi sem sýnir að hann er að hressast eftir að hafa átt við þrálát meiðsli í baki að stríða. Landsmótsnefndin hefur staðið í ströngu við undirbúning Landsmóts- ins undanfama mánuði ásamt fram- kvæmdastjóranum Ævari Þórissyni. I landsmótsnefnd eru Kristján Olafsson formaður, Gunnlaugur Axelsson og Gunnar K. Gunnarsson. „Astæðan fyrir þessari fækkun er einfaldlega sú að það kostar sitt að fara til Eyja og vandræði hafa verið með gistingu. Það hefur tekist að leysa þau mál farsællega. Við sjáum fram á að geta haldið hér glæsilegt landsmót í Vestmannaeyjum á besta golfvelli landsins. Völlurinn okkar hefur aldrei verið svona góður og nýi hluti hans hefur tekið vel við sér. Við höfum verið með um 20 manns í vinnu frá því í fyrra til að undirbúa völlinn og allt gengið samkvæmt áætlun. Við treystum bara á veðurguðina svo þetta gangi vel fyrir sig,” sagði Kristján. Þess má geta að landsmót var síðast haldið í Vestmannaeyjum 1968. Svo skemmtilega vill til að vitað er um a.m.k. tvo kylfinga sem þá léku sem ætla að vera aftur með í Eyjum, 28 árum síðar. Það eru Guðni Grímsson GV og Guðfinna Sigurþórsdóttir GS sem varð reyndar íslandsmeistari kvenna á þessu móti. Forsenda þess að landsmótið í golfi fer fram nú í Eyjum er að völlurinn í Eyjum er orðinn 18 holur. Eins og flestum er kunnugt var völlurinn hér stækkaður úr 9 í 18 holur fyrir nokkr- um misserum og hefur gengið vonum framar að rækta upp og ganga frá nýja hluta vallarins, sem þykir sérlega vel heppnaður. Fjölmiðlar munu fylgjast grannt með gangi rnála á landsmótinu. Stöð 2 hefur tryggt sér einkarétt hjá sjón- varpsstöðvunum en aðrir íjölmiðlar hafa þar jafnan aðgang og munu greina vel frá gangi mála. ÞoGu ÍBV mætir Lantana frá Eistlandi f Evrópukeppni félagsliða f Vestmannaeyjum á miðvikudaginn kl. 18.00: Enim ó öllum mögu- legum undmþógum - til að fá leikinn til Eyja. í annað skiptið sem Evrópuleikur fer fram f Eyjum en það gerðist sfðast fyrir 12 árum. ÍBV tekur nú þátt í Evrópukeppni í knattspyrnu í fyrsta skipti í 12 ár. ÍBV lék gegn Lantana frá Tallin í Eistlandi í gær en heimaleikurinn fer fram á Hásteinsvelli í Vest- mannaeyjum nk. miðvikudag, kl. 18.00. ÍBV hefur alls leikið 18 leiki í Evrópukeppni. Hins vegar hefur aðeins einu sinni áður farið fram Evrópuleikur í Eyjum. Það gerðist árið 1984 þegar ÍBV mætti Wisla Krakow frá Póllandi. Leikið var á Hásteinsvelli og tapaði ÍBV 1-3 en Jóhann Georgsson skoraði mark IBV. Fram að þessu höfðu heima- leikir IBV í Evrópukeppni farið fram í Reykjavík og Kópavogi. Ohætt er því að segja að sann- kallaður stórviðburður eigi sér stað á miðvikudaginn þegar ÍBV mætir Lantana því slfkt gerist ekki á hverju ári. Viðureignin Ilokkast sem fyrri umferðin í svokallaðri forkeppni þar sem liðum er svæðis- skipt. Til að lenda í stóra pottinum með heimsfrægu liðunum þarf IBV því að komast í gegnum báðar umferðirnar í forkeppninni. „Þetta er stór stund og mikill viðburður fyrir þetta litla bæjarfélag okkar, að halda Evrópuleik hér. Það var nú þrautin þyngri að fá það í gegn að leikurinn færi fram hér og ekkert má út af bregða. Fundið er að öllum smáastriðum og við erum á öllum hugsanlegum undanþágum. Ef við værum í aðalkeppninni gegn stórliði er ég hræddur um að undanþága fengist ekki. Ég tel að við eigum góða möguleika til að komast áfram. Við erum að leggja gmnn fyrir framtíðina. Það er mjög mikilvægt fyrir félagið sem slíkt og ekki síst fjárhagslega að vel takist til,” segir Jóhannes Ólafsson, formaður knattspymuráðs IBV. Fylgja þarf ströngum öryggis- reglum í Evrópukeppni og mun Björgunarfélag Vestmannaeyja sjá um öryggisgæslu á vellinum. Til stóð að byggja bráðabirgðastúku en undan- þága fékkst fyrir því á siðustu stundu að slíkt mannvirki þyrfti ekki. Dómarar leiksins koma frá Wales en dómaramir á útileiknum voru frá Litháen. Lið Lantana mun fljúga beint til Eyja frá Eistlandi á þriðjudaginn. „Vonandi myndast góður mórall í bænum iyrir leikinn og fólk fjölmenni. Þá vonast ég til þess að vinnuveitend- ur gefi fólki að komast á völlinn því leikurinn hefst klukkan sex. Mér skilst að lið Lantana sé skipað sterkum og fljótum rússneskum leikmönnum. Við þurfum að spila agað og fast á þá. Lantana er sýnd veiði en ekki gefin,” sagði Jóhannes. Ekkert jafnast á við Evrópukeppni Þeir leikmenn sem hafa tekið þátt í Evrópukeppnum, segja að ekkert jafnist á við það í íþróttum að fá umbun mikils erfiðis og leika gegn liðum frá öðmm löndum í Evrópukeppni. Knattspymulið IBV er eitt þeirra knattspymuliða á landinu sem hefur leikið hvað flesta Evrópuleiki í gegnum tíðina, samtals 18. IBV á að baki tvo leiki í Evrópukeppni meist- araliða, 8 leiki í Evrópukeppni bikar- hafa og 8 leiki í Evrópukeppni félags- liða. Eins og hjá öðmm íslenskum liðum á jressum vettvangi hefur áran- gurinn verið ákaflega misjafn, en þó má segja að IBV hafi á sínum tíma náð hvað lengst af íslenskum liðum. ÍBV var til að mynda þriðja íslenska félagsliðið til að komast í 2. umferð Evrópukeppni 1978 þegar liðið sló Glentoran út í sögufrægum leik. Eftir fyrsta bikartitil ÍBV í sögu félagsins 1968, tók liðið þátt í sínum fyrsta Evrópuleik árið eftir, 1969. ÍBV mætti þá Levsky Spartak frá Búlgaríu, sem þá var eitt af öflugustu félags- liðum í Búlgaríu og skipað mörgum frægum knattspymumönnum. IBV tapaði báðum þessum leikjum með sömu markatölunni 0-4. Og eftir fyrsta og eina íslandsmeis- taratitil ÍBV 1979 tók liðið þátt í meistaraliðakeppninni árið eftir, 1980. ÍBV lenti á móti tékkneska meistaral- iðinu Banik Ostrava. Fyrri leikurinn var á Kópavogsvelli og lauk honum með jafnteli 1-1 og skoraði Sigurlás Þorleifsson mark ÍBV. Síðari leiknum í Ostrava lauk með naumurn sigri Banik 1-0. Frammistaða IBV vakti verðskuldaða athygli því Tékkar voru á jjessum tíma mjög framarlega meðal evrópskra knattspymuþjóða. Sögulegur leikur Frægasti Evrópuviðureign ÍBV fór fram 1978 þegar ÍBV mætti í I. umferð Glentoran frá N-írlandi. Fyrri leikurinn var í Kópavogi og lauk með jafntefli 0-0. Síðari leikurinn ytra var mjög sögulegur en hann endaði einnig með jafntefli 1-1. ÍBV komst þar með í 2. umferð með marki skor- uðu á útivelli. Það var Öm Óskarsson sem skoraði markið á síðustu mínútu leiksins. Þessu marki reiddust áhor- fendur mjög og mddist æstur múgur inn á völlinn í leikslok og gerði aðsúg að leikmönnum ÍBV, sem áttu fótum sínum fjör að launa. Friðfinnur Finn- bogason varð þó heldur betur fyrir barðinu á múgnum og var hann barinn í höfuðið með hornfánastöng og rotaðist. Var Friðfinnur fluttur meðvit- undarlaus á sjúkrahús þar sem hann dvaldist fram undir morgun. Af þessu varð eftirmáli. Glentoran fékk sekt vegna ólátanna en ekki þótti hún mjög há. ÍBV fékk líka sekt og var hún aðeins nokkur hundmð sviss- neskum frönskum lægri en sekt Glentorans. Svo vildi til, að einhverra hluta vegna gleymdist peysa númer 5 á Islandi og því varð Friðfinnur að leika í peysu nr. 17. Fyrir þetta fékk ÍBV sekt. ÞoGu Hermann Hreiðarsson mun standa í ströngu í vörninni í Evrópukeppninni. Listaverk Kristins V. Pálssonar, veghefilsstjóra, austur á Nýja hrauni, Listoverk úr grjóti Athygli hefur vakið listaverk úr hraungrjóti austur á Nýja-hrauni sem reist var um þar síðustu helgi. Listaverkið er sett saman úr sex steinum úr hrauninu og táknar mannveru. Verkið sómir sér vel í þessu hráa umhverfi og hefur lis- tamaðurinn fengið mjög jákvæð viðbrögð. Listamaðurinn er enginn annar er Kristinn Viðar Pálsson, veghefils- stjóri hjá Vestmannaeyjabæ. Hann sagði í samtali við Fréttir að lengi hefði blundað í honum að gera eitth- vað svona. Steinana hefði hann tekið austan úr Pelagusfjömnni og svo fékk hann samstarfsmann sinn hjá bænum til að aðstoða sig við að raða steinunum upp. Listaverkið er um 5 metrar á hæð og hafa gárungarnir jiegar gefið því nafnið Auróra. „Mig langar til að gera meira af jtessu austur á hrauni ef ég fæ leyfi til þess. Þetla verk vísar á rnóti sólar- upprás og mér finnst staðsetning ágæt,“ sagði Kristinn.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.