Fréttir - Eyjafréttir

Issue

Fréttir - Eyjafréttir - 18.07.1996, Page 15

Fréttir - Eyjafréttir - 18.07.1996, Page 15
15 Fimmtudagur 18. júlíl 996 Fréttir til vetrarins. Sem dæmi um matar- geymsluna má nefna að þeir byija á því að þurrka selkjötið og að því loknu ijóða þeir lýsi á kjötið og þannig geyma þeir það til vetrarins. Höfnin, sem er miðdepill þorpsins, var full af ís en þar upp af er kaupfélagið, heilsugæslustöðin og samkomuhúsið. Kaupfélagið er ekki frábrugðið verslunum í litlum þorpum á Islandi en vöruúrvalið er öðruvísi. í einu hominu er áfengisverslun, byssur og allt til handfæraveiða er þama að finna, úrvalið af matvöm var gott og sama má segja um suðræna ávexti og grænmeti. Eftir að hafa skoðað okkur um í kaupfélaginu er haldið upp á hæðina sem þorpið teygir sig upp á og þar bregða Grænlendingar á leik fyrir ferðamenn. Einn þeirra sýnir listir sínar á kajak og annar trommudans. Talsvert af krökkum hafði safnast saman og fylgdist með. Tóku þau undir söng trommudansarans sem sýnir að þessi fomi dans mun halda velli hjá næstu kynslóð. Haldið heim Nú var hugað að heimferð og stóð fólki til boða að stytta gönguna á flugvöllinn með því að taka sér far með lítilli ferju sem þurfti að ryðja sér leið í og úr höfn í gegnum ísinn. A flugvellinum er fríhöfn sem freistaði Islendingana. Urvalið er ekki mikið en verðið er sanngjamt, flestir höfðu á brott með sér eitthvað í plastpokum. Eftir íjóra tíma í Kulusukk fór flugvél íslandsflugs í loftið og var byijað á smá útsýnisflugi. Mikill hafís var með ströndinni og inni á fjörðum. Kuldalegt að sjá en um leið mikilfenglegt. Um sex Ieytið var lent í Reykjavík og þar með lauk ánægjulegri ferð til Grænlands. Ferð sem seint gleymist og kveikir áhuga á að kynnast Grænlandi og Grænlendingum enn frekar. Dagsferðir, stopp í eina nótt og þriggja daga ferðir íslandsflug býður upp á dagsferðir til Kulusukk en auk þess em í boði dvöl á hóteli í eina nótt og þriggja daga ferðir en þá er gist í Angmagssalik sem er rétt sunnan við Kulusukk. Þar er gist á góðu hóteli og í boði em útsýnisferðir á landi og með þyrlum, sleðaferðir og skíðaferðir. Sértilboð fyrir Eyjamenn íslandsflug notar nýja vél í Grænlands- flugið og er hún af gerðinni AR-4, tveggja hreyfla og 46 sæta vél og er ekki ólík Fokker 50 vélum Flugleiða. Islandsflug hefur ákveðið að bjóða Vestmannaeyingum í laus sæti í Græn- landsfluginu og geta þeir farið þetta á einum degi. Héðan er haldið klukkan 8:45 að morgni og frá Reykjavík til Grænlands klukkan 9:45. Frá Græn- landi er farið kl. 15:30 og lent í Reykjavík 17:15. Áætlun til Vest- mannaeyja er klukkan 18:15 þannig að í allt tekur ferðin um tíu klukkutíma. „Við bjóðum Eyjamönnum þetta allt saman á 18 þúsund krónur og þeir sem hafa áhuga geta haft samband við Bjama Sighvatsson, umboðsmann okkar í Eyjum, “ sagði Sigfús Sigfússon markaðsstjóri um þetta tilboð ís- landsflugs. ,,Ferð til Grænlands er mikil reynsla og skemmtileg og svo er hag- kvæmt að versla í fríhöfninni í Kulusukk," bætti hann við. Ó.G. Sá gamli sýndi listir sínar á kajaka, helsta samgöngu- tæki Græn- lendinga á sjó. Selurinn er Grænlendingum mikilvægur og ekki aðeins til matar, lýsið nota þeir m.a. sem lyf og til þess að þétta kajakana. Maðurinn dansaði trommudansinn af mikilli innlifun og krakkarnir tóku undir með honum í söngnum. Tilkynning til þeirra sem ætla að stunda fólksflutninga á Þjóðhátíð 1996 Þeim aðilum sem ætla að stunda fólksflutninga á komandi þjóðhátíð á bifreiðum sem taka 8 farþega eða fleiri er bent á að sækja um leyfi til undirritaðs fyrir föstudaginn 27.07. nk. Þeir þurfa að uppfylla eftirfarandi skilyrði: Ökuréttindi er heimila fólksflutninga gegn gjaldi (hópferðaleyfi/rútupróf). Lögheimili í Vestmannaeyjum. Bifreiðar skulu vera samþykktar af Bifreiðaskoðun íslands til fólksflutninga. Þeir sem ætla að stunda akstur á bifreiðum sem taka 7 farþega eða færri skulu uppfylla öll skilyrði sem eru til leigubifreiðaaksturs. Vestmannaeyjum 15. júlí 1996 Yfirlögregluþjónninn í Vestmannaeyjum. Stýrimanna- skólinn í Vest- mannaeyjum Kennara vantar í íslensku, stærðfræði og ensku. Upplýsingar veitir skólastjóri í síma 481-1046 Slysagildra fyrir börn! Slysagildrurnar leynast víða. í sundinu á milli Geisla og Bílverks við Flatir er malbikaður göngu- og hjólastígur sem er mikið notaður. Nú hefur hins vegar verið grafið fyrir grunni inn undir stíginn og voldugum krana lagt þar við hliðina. Fyrir vikið hefur skapast slysagildra því brotnað hefur upp úr malbikinu, eins og sést á myndinni. Krakkar gera mikið af því að hjóla niður stíginn á mikilli ferð og má ekki mikið út af bregða svo þau hjóli ekki útaf og lendi á krananum sem er brotinn og bramlaður eftir skemmdarvarga og liggja þar glerbrotin um allt. Ennfremur liggja ófrágengnir kaplar eins og hráviði. Vonandi verður gerð bragarbót á sem fyrst svo ekki þurfi að koma til slys til að ýta við hlutaðeigandi.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.