Fréttir - Eyjafréttir - 18.07.1996, Qupperneq 18
LANDAKIRKJA
Sunnudagur 21. júlí
11.00 Almenn Guðsþjónusta
- sr. Kjartan Öm Sigurbjömsson
þjónar
- Messukaffi
20.30 KFUM & K Landakirkju -
Unglingafundur
Þriðjudagur 23. júlí
20.30 Bænasamvera í heimahúsi.
Allir velkomnir. Uppl. á skrifstofu
prests.
Miðvikudagur 24. júlí
20.30 KFUM & K húsið opið fyrir
unglinga
Hvítasunnukirkjan
Fimmtudagur
20.30 Biblíulestur.
Föstudagur
20.30 Samkoma fyrir ungt fólk.
Laugardagur
20.30 Brotning brauðsins
Sunnudagur
15.00 Vakningarsamkoma.
Ræðumaður: Qintin Johnes.
Samskot til starfsins.
Samkomumar em öllum opnar
Yngri flokkarnir
á fullu
6. flokkar Týs og Þórs tóku þátt í
riðlakeppni Islandsmótsins í
knattspymu um helgina. Þórarar
lentu í 2. sæti í sínum riðli og
Týrarar í 3. sæti. Bæðið lið stóðu
sig mjög vel og sýndu framfarir frá
því á Shellmótinu.
2. fl. ÍBV kvenna sigraði
Stjömuna 2-0 og hefur blandað sér í
toppbaráttuna. Hjördís og Elena
skoruðu mörkin en ÍBV hefði
hæglega getað unnið með átta
mörkum.
Um þar síðustu helgi lék 5.
flokkur ÍBV á ESSO-mótinu á
Akureyri. A-lið ÍBV lenti í 11. sæti.
B-lið í 12. sæti, C-lið í 13. sæti og
D-lið í 8. sæti. Kári Kristinn
Kristjánsson ÍBV fékk verðlaun
fyrir skothörku og Andri Ólafsson
fyrir að halda bolta á lofti.
Fréttir
Sjómanna- og útvegsmannamótið í golfi:
Tvöfalt hjá Júlíusi og Ásbirni
Sjómanna- og útvegsmannamótið í
golfi var haldið á laugardaginn var.
Að venju var vel mætt í mótið enda
verðlaun ekki af lakari endanum, þar á
meðal farsímar og þráðlausir símar en
aðalverðlaun mótsins voru gefin af
Ismar hf. sem undanfarin ár hefur
styrkt þetta mót einkar rausnarlega.
40 keppendur kepptu í ljómandi veðri
og að afloknu móti var sameiginlegur
kvöldverður í Golfskálanum. Þessi
urðu úrslit:
Karlar, án forgjafar:
1. Júlíus Hallgrímsson GV 73 högg
2. Ásbjörn Garðarsson GV 78 högg
3. Elvar Skarphéðinss. GMS 78 högg
Karlar, með forgjöf:
1. Júlíus Hallgrímsson GV 69 högg
2. Ásbjörn Garðarsson GV 69 högg
3. Sveinn Halldórsson GV 70 högg
Konur, án forgjafar:
1. Gerða Halldórsd. GS 96 högg
2. María Magnúsd. GR 106 högg
3. Guðrún K Sigurg.. GV I19högg
Fjöldi aukaverðlauna var fyrir hin
ýmsu afrek á vellinum gefin af
útgerðum í Eyjum, þar á meðal fyrir
fæst pútt og hlaut þau Rósant F
Birgisson GL en hann notaði pútterinn
aðeins 25 sinnum á 18 holum sem er
vel gert. Aukaverðlaun voru einnig
fyrir að vera næst holu í upphafshöggi
á par 3 brautum og hirtu þeir Júlíus
Hallgríms og Sveinn Halldórss megn-
ið af þeim. Sérstök verðlaun voru
veitt fyrir mikil tilþrif og var að þessu
sinni verðlaunað fyrir að fara þrjár
holur á nýja hluta vallarins á samtals
Tveir af keppendum í sjómanna-
mótinu, Gunnar Stefánsson frá
Gerði og Rúnar frá Keflavík.
36 höggum! Ekki verður hér látið
uppi hver hlaut [ressi verðlaun en sá er
kylfingur sem ekki er vanur slíkum
höggafjölda. En glæsilegustu verð-
laun mótsins gengu ekki út að þessu
sinni. Það var svokallaður aflanemi
(notaður á togveiðum) að verðgildi
um 280 þúsund kr. Sá átti að fá hann
sem færi holu í höggi á 17. braut en
það tókst engum. Sveinn Halldórs var
þó ekki tjarri því. kúlan hans stöðv-
aðist 1,4 m frá holu en það dugði ekki
til.
Kolbrún Sól Ingólfsdóttir, sigurvegari mótsins, ásamt Katrínu Harðardóttur,
sem hafði veg og vanda af skipulagningu mótsins.
Kolbrún sigraði á kjóla- og hattamótin
Hið árlega kjóla- og hattamót kvenna-
deildar Golfklúbbsins var haldið á
sunnudag. Upphatlega átti mótið að
fara fram á föstudag en vegna veðurs
var því frestað til sunnudags og fór þá
fram í frábæru veðri eins og hæfir
þessu virðulega móti.
16 konur tóku þátt í mótinu og
mættu til leiks einkar glæsilegar til
fara, uppáklæddar og með hin virðu-
legustu höfuðföt og léku níu holur.
Kolbrún Sól Ingólfsdóttir er orðin
algerlega ósigrandi. hampaði Vest-
mannaeyjameistaratitlinum á dögun-
um og sigraði í þessu móti næsta
örugglega. En þessi varð röð þriggja
efstu á mótinu:
1. Kolbrún S Ingólfsd. 44 högg
2. Jakobína Guðlaugsd. 48 högg
3. Magnúsína Ágústsd. 58 högg
mm* i ■ j BBfímátsm p s rjMj' / i
I í^H
Það varfríður og föngulegur hópur kvenna sem tók þátt í mótinu á sunnudag. Alls 16 konur sm hér eru ásamt
kylfuberum sínum.
Fimmtudagur 18. júlí 1996
Elena Einisdóttir lék vel með ÍBV gegn Val.
ÍBV tapaði úti fyrir Val 3-0 í 1. deild kvertna:
Vantar markaskorara
ÍBV stelpur töpuðu fyrir Val á
þriðjudaginn 3-0 á Valsvellinum.
Urslitin gefa ekki alveg rétta mynd
af gangi leiksins þvi IBV stelpur
höfðu í fullu tré við Val lengst af.
Það kom verulega á óvart að Valur
pressaði ekki ÍBV heldur fengu þær
góðan frið til að athafna sig á miðj-
unni. ÍBVvar mun meira með boltann
fyrsta hálftímann en þá meiddist Ema
Þorleifsdóttur og var skarð fyrir skildi
í vöm ÍBV. Vamarmanni IBV mis-
tókst að hreinsa skömmu síðar og
Valur náði forystunni.
I seinni háfleik var jafnræði með
liðunum. Petra markvörður ÍBV varði
nokkrum sinnum vel og ÍBV skapaði
sér hálffæri sem ekki nýttust. Akkil-
esarhæll ÍBV er að nýta færin sín og
saknar liðið þess að hafa ekki góðan
markaskorara innanborðs. Annað
mark Vals kom undir lokin og var það
beint úr hornspyrnu! Og þriðja mark
Vals var ólöglegt vegna rangstöðu en
línuvörðurinn var steinsofandi og
markið dæmt gilt.
ÍBV er enn í næstneðsta sæti með 4.
stig. Eva, Guðbjörg og Oddný léku
ágætlega í vöminni hjá ÍBV og Petra
stóð sig vel, ef undan er skilið annað
markið. Þá átti Elena oft góðar rispur.
Lið ÍBV hefur sýnt miklar framfarir
í sumar en óvíst er hvort það dugi
liðinu til að halda sæti sínu. Reyndar
mun næstneðsta liðið í 1. deild, keppa
við næstefsta liðið í 2. deild, um laust
sæti í 1. deild. IBV lenti einmitt í slíkri
viðureign í fyrra og tókst þannig að
halda sæti sínu. Vonandi tekst
stelpunum að sleppa við slíkan tauga-
trylli!
I ^rgjöf j
I Valur-ÍBV 3-0 (1-0) I
I Lið ÍBV: Petra ->V, Guðbjörg tV, I
| Oddný V, Eva V, Erna (Kristín |
| Inga) - Elena V, Stefanía (Helga), |
| Joan, Anne Lie, Ragna - Fanný |
I (Hjördís).
I_______________________I
Næstu leikir í
fótboltanum
Föstudagur 19. júlí, 3.11. karla
ÍBV-Stjaman kl. 20.00.
Laugardagur 20. júlí 4. deild
Smástund-Víkingurkl. 14.00
3. fl. ka. ÍBV-BÍkl. 17.00
Mánudagur 22. júlí 2. fl. ka.
BIKAR IBV-Stjaman kl. 20.00
Þriðjudagur 23. júlí 3. fl. kv.
ÍBV-Fjölnirkl. 18.00
Miðvikudagur 24. júlí
Evrópukeppni félagsliða
ÍBV-Lantana kl. 18.00
Betur má eí duga skal
- ÍBV tapaði fyrir ÍA þrátt fyrir að vera manni fleiri.
ÍBV tapaði fjórða leik sínum í röð í 1.
deildinni gegn Skagainönnuni á úti-
velli í síðustu viku, 1-2. Skagamenn og
KR hafa stungið önnur lið af í
deildinni en ÍBV er nú í 4. sæti með 12
stig.
Athygli vakti að Gunnar Sigurðsson
byijaði í markinu hjá ÍBV. Þá lék Friðrik
Sæbjömsson fyrri hálfleikinn í bakverð-
inum. Hlynur var kominn aftur á miðjuna
og ívar á hægri kant. Rútur, Kristinn og
Nökkvi voru komnir á bekkinn ásamt
Friðrik markverði. Skagamenn voru betri
aðilinn í fyrri hálfleik en í seinni hálfleik
fóru Eyjamenn með ferðina eftir að
einum Skagamanni var vikið af velli.
Steingrímur fékk tvívegis góð færi en inn
vildi boltinn ekki. Skagamenn náðu
forystunni gegn gangi leiksins með
glæsimarki Haraldar Ingólfssonar. ívar
Bjarklind jafnaði metin skömmu síðar
eftir fallegan undirbúning Nökkva
Sveinssonar. Og Skagamenn skoruðu
sigurmarkið á síðustu mínútunni sem
frægt er með skallamarki Bjama
Guðjónssonar. Vörn IBV gerði sig seka
um stór mistök í þessu marki því hún lét
Skagamenn teyma sig inn á markteig í
stað fiess að halda línunni við vítapunkt-
inn. Þetta kallast grundvallaratriði í
vamarleik.
Þrátt fyrir tapið mega Eyjamenn
ágætlega við una. Allt annað var að sjá til
liðsins en í undanfömum leikjum.
Skagamenn grétu hástöfum undan
föstum leik Eyjamanna, eins og þeir em
þekktir fyrir. Gunnar stóð sig ágætlega í
markinu. Hermann, Friðrik og Ivar léku
vel í vöminni, Hlynur var sprækur á
miðjunni í seinni hálfleik og Steingrímur
skapaði stórhættu. Að venju var
Steingrímur tekinn út af sem var algjör-
lega óskiljanleg ákvörðun því hann
skapaði mikinn usla með hraða sínu. Þá
komu Kristinn og Nökkvi sterkir inn.
I ^rgjöf I
| ÍA-ÍBV 2-1 (0-0) |
| Lið ÍBV: Gunnar Sigurðsson •& - Friðrik |
■ Sæbjörnsson* (Kristinn Hafliðason ■
j 46.A), Hermann Hreiðarsson Jón J
! Bragi Arnarsson, Lúðvík Jónasson - ívar J
* Bjarklind -ft, Leifur Geir Hafsteinsson »
I (Nökkvi Sveinsson 67.), Hlynur I
| Stefánsson -fr, Bjarnólfur Lámsson -fr- |
| Tryggvi Guðmundsson, Steingrímur |
■ Jóhannesson-&'(RúturSnorrason67.)
MarkÍBV:
[ ívar Bjarklind
I Stoðsending:
I Nökkvi Sveinsson -& I
I______________________________I