Fréttir - Eyjafréttir - 18.07.1996, Side 19
Ipróttir
19
Fimmtudagur 18. júlí 1996
ÍBV tapaöi 1-2 gegn Lantana í fyrri leik liöanna í Evrópukeppninni í gær og dugir 1-0 sigur heima:
Náðu forystvnni en fengu á sig klpufamork
ÍBV tapaði 1-2 f'yrir Lantana frá
Eistlandi í Evrópukeppni félagsliða í
gær. Eftir markalausan fyrri hálfleik
náði ÍBV forystunni en Lantana jafn-
aði skömmu síðar. Sigurmarkið kom
í lok lciksins eftir mikil varnarmistök.
Þessi úrslit þýða að IBV dugir að
sigra 1-0 þegar liðin mætast í Eyjum á
miðvikudaginn því mark skorað á
útivelli vegur tvöfalt.
Að sögn Tryggva Kr. Ólafssonar í
knattspymuráði, sem fylgdist með
leiknum íTallin, og Atla Eðvaldssonar
þjálfara, fóru Eyjamenn með ferðina í
fyrri hálfleik. Eftir 10 mínútna leik
komst Rútur Snorrason í dauðafæri en
var klipptur niður aftan frá. En mjög
slakur dómari leiksins, frá Litháen,
lokaði báðum augum og dæmdi ekki
þrátt fyrir að um augljósa vítaspymu
væri að ræða. ÍBV átti nokkur hálffæri
og Lantana átti einnig sín færi en Friðrik
Friðriksson var mjög traustur í markinu.
í seinni hálfleik náði ÍBV forystunni á
55. mín. Rútur átti gott skot úr
aukaspyrnu sem markvörðurinn missti
frá sér og þar var Tryggvi Guðmundsson
mættur og skoraði auðveldlega. En
aðeins tveimur mínútum síðar jafnaði
Lantana. Umdeild aukaspyma var dæmd
fyrir utan vítateig og leikmaður Lantana
skoraði glæsilegt mark með því að
skjóta yfir vamarvegginn.
Eftir þetta sóttu leikmenn Lantana
mun meira og stíft leikjaprógramm og
framlengingin í bikamum á sunnudaginn
sat í Eyjamönnum. Friðrik varði a.m.k.
þrisvar stórglæsilega og hélt ÍBV á floti.
Sigurmark Lantana kom á 80. mín.
Sending kom yfir vöm ÍBV. Einhver
misskilningur varð á milli Jóns Braga og
Friðriks markvarðar og sóknarmaður
Lantana stóð allt í einu fyrir opnu marki
og skoraði. Grátlegt mark eftir alla bar-
áttuna í ÍBV liðinu.
Lantana, sem er skipað Rússum, er
sterkt lið. leikmennirnir fljótir og
tekniskir. Hins vegar lék ÍBV ágætlega
framan af en þreyta sat greinilega í
Eyjamönnum þegar líða fór á leikinn.
„Ég er svekktur að hafa ekki náð jafn-
tefli. Við erum alls ekki með síðra lið,
bara betra ef eitthvað er. Við tökum þá
heirna," sagði Tryggvi.
Þess má geta að Lantana hefur náð
mun betri árangri á útivelli í
Evrópukeppni undanfarin ár og einnig í
eistnesku deildinni. Því er rétt að vara
við of mikilli bjartsýni.
Aðeins 200 manns fylgdust með
leiknum, aðallega Rússarenda Lantana
nær eingöngu skipað Rússum.
Lið ÍBV: Friðrik F. - Friðrik, Hemmnn,
Jón Bragi, Lúðvík - ívar (Nökkvi),
Hlvnur, Leifur Geir, Bjamólfur -
Tryggvi (Kristinn), Rútur (Steingrímur)
Atli Eðvaldsson:
Ánægður með
strákana
„Strákarnir em svo þreyttir eftir leikinn
að þeir geta varla staðið í lappirnar.
Lantana er betra lið en ég átti von á. En
ég var ánægður með strákana. Þeir vom
stressaðir í byrjun enda flestir að spila
sinn fyrsta Evrópuleik. Við áttum að fá
víti íbyijun leiks en dómarinn varekkert
á því að gefa okkur neitt. Þeir börðust
eins og Ijón og gáfu allt í þetta. En við
fengum á okkur óþarfa mörk, sérstak-
lega var seinna markið grátlegt. Við
hefðum getað haldið þessu í jafntefli,“
sagði Atli Eðvaldsson í samtali við
Fréttir eftir leikinn.
„Við eigum að geta unnið þetta lið í
Eyjum með góðum stuðningi heima-
manna, okkur dugir 1-0. Við vorum
kannski of passívir í leiknum og hefðum
getað spilað fastara. Ekkert spjald var
gefið í leiknum. Ekki væri verra að fá
norðaustan átt og þoku. Við fáum vikufrí
til að undirbúa okkur fyrir seinni leikinn
og það er langþráð hvíld fyrir strákana
enda hefur verið stíft keyrt að undan-
fömu. Allir stóðu sig vel en ef ég á að
nefna einhvem er það Hermann. Hann
var eins og kóngur í loftinu og hirti alla
skallabolta og spilaði frábærlega." sagði
Atli.
Leifur Geir Hafsteinsson:
Ætlum að vinna
þessa karla heima
„Þetta var erfitt enda vorum við þreyttir
eftir erfiða töm. Við spiluðum ágætlega
í fyrri hálfleik og stjómuðum leiknum og
áttum að fá vítaspyrnu. í seinni hálfleik
datt botninn úr þessu en þá fór þreytan
að segja til sín. Við náðum samt foryst-
unni en þeir jöfnuðu og fengu
sigurmarkið gefins," sagði Leifur Geir
Hafsteinsson, miðjumaður ÍBV við
Fréttir eftir leikinn.
„Við ætlum að vinna þessa karla
heima, það á að takast með góðum
stuðningi, við gefum ekkert eftir. Það
var margt gott í þessu, menn börðust
eins og hundar og einbeitingin í lagi.
Vonandi verður sigur á heimavelli
vendipunktur hjá okkur í sumar,“ sagði
Leifur Geir.
ÍBV í undanúrslit í fyrsta skipti í sjö
Lúðvík h
„Ég ætlaði að skjóta í vinstra hornið en hætti við
á síðustu stundu þegar ég sá eitthvert mark-
mannsdrasl í þessu horni hjá Óla Gott. Ég hætti
því við og skaut boltanum í hægra hornið. Óli
var í boltanum en þetta var örugg spyrna,” sagði
Lúðvík Jónasson, hetja IBV, sem skoraði sigur-
mark IBV gegn Keflvíkingum í vítaspyrnu-
keppni í 8 liða úrslitum bikarkeppninnar á
sunnudaginn í Keflavík. Staðan eftir venjulegan
leiktíma var 1-1. Lúðvík tók alla viðstadda á
taugum í síðustu spyrnunni, var ekkert að flýta
sér heldur tók nokkrar mínútur í að stilla
boltanum upp og einbeita sér að þessu. Það
virkaði og IBV er komið í undanúrslit bikarsins,
í fyrsta skipti í sjö ár eða síðan 1989. Þá lék ÍBV
við KR á heimavelli í undanúrslitum en tapaði 2-
3. Og nú tókst ÍBV ennfremur loks að hefna fyrir
bikartapið 1990 þegar Keflavík, sem þá lék í 2.
deild, sló út IBV í bikarkeppninni á vítaspyrnu-
keppni!
Hafi einhver haldið að ÍBV færi létt með Keflavík
í bikarslagnum, þá var viðkomandi ekki með öllum
mjalla. Keflavík er ekta bikarlið sem erfitt er heima
að sækja. Og Eyjamaðurinn Kjartan Másson, sem
þar er við stjómvölinn, kann svo sannarlega að búa
til stemmningu og baráttuanda.
Keflavík byrjaði betur en ÍBV átti samt hættulegri
færi. Eftir markalausan baráttuleik þurfti að fram-
lengja og skoraði Leifur Geir Hafsteinsson með
fallegum skalla eftir aukaspymu Bjamólfs. En á
síðustu mínútu framlengingar jafnaði Keflavík eftir
mikinn darraðardans. Það vom því glaðir
Keflvilcingar en svekktir Eyjamenn sem fóru í
vítaspymukeppnina.
Bjamólfur, Hlynur, Tryggvi og Hermann skomðu
úr sínum spymum af öryggi. Keflvíkingar skuhi hátt
yfir í annarri spymu sinni. Lúðvík tryggði svo sigur
Eyjamanna þegar hann skoraði úr síðustu spymunni
og Atli og félagar trylltust af fögnuði.
Friðrik lék aftur í markinu hjá ÍBV en Tryggvi
byijaði á bekknum. Hann og Rútur komu inn á í
Lúðvík Jónasson, hetja ÍBV, sækir að Keflvíkingi í bikarleik liðanna á sunnudaginn.
Mynd: pketA/íkurfréttir
seinni hálfleik og léku báðir mjög vel. Vömin stóð
fyrir sínu og Hlynur og Bjamólfur vom sterkir á
miðjunni.
Kjartan Másson, þjálfari Keflavíkinga, sagði í DV
á mánudaginn að Eyjamenn gætu nú ekki fagnað
mikið eftir sigur í vítaspymukeppni gegn sínu liði.
Atli Eðvaldsson, þjálfari ÍBV, sagði í samtali við
Fréttir að hann væri afskaplega hissa á þessum
ummælum Kjartans. „Við emm himinlifandi með
sigurinn. Ég get ekki séð að við þurfum að skamm-
ast okkur fyrir að vinna þennan leik. Ég meina, þetta
var erfitt, mikil barátta um alla bolta, en heiðarleg
eins og dómarinn sagði eftir leik sem gaf bara eitt
spjald. Menn voru að reyna sitt besta. Við erum í
góðri vítaspymuæfingu eftir Kýpurferðina þar sem
við unnum tvo leiki í vítaspyrnukeppni. Núna tóku
sömu menn vítaspymur. nema að Lúðvík leysti Leif
Geir af hólmi í síðustu spymunni.” sagði Atli.
Um óskadráttinn sagði Atli að hann væri ekki til í
sínum huga, nema að tími væri kominn á heimaleik
í bikamum hjá ÍBV. „Vonandi fáum við heimaleik
og okkur takist að byggja upp ekta stemmningu og
Ijónagrytju þegar þar að kemur. Að ná langt í bik-
amum er alltaf skemmtilegt ævintýri,” sagði Atli.
Undanúrslitaleikirnir í bikarkeppninni fara fram
sunnudaginn 29. júlí nk. kl. 19.00.
Hlynur sá eini
1984
Viðureign ÍBV í gær gegn Lantana
í Evrópukeppninni. var sá fyrsti í 12
ár. Árið 1984 lék ÍBV gegn Wisla
Krakow frá Póllandi. Einn leik-
maður ÍBV sem var með fyrir 12
árum. var með í gær gegn Lantana.
Það var fyrirliði liðsins, Hlynur
Stefánsson.
Loks sigur hjá
Framherjum
Framheijar unnu góðan sigur á ÍH í
4. deildinni, 3-1. Óntar Smárason
var í banastuði í framlínunni og
skoraði tvö mörk á fyrstu 13 mín-
útunum. Sigurður Ingason brá sér í
sóknina í lok fyrri hálfleiks og sko-
raði fallegt mark, hans fyrsta
deildamiark á ferlinum. ÍH klóraði
í bakkann í seinni hálfleik en
Framherjar voru einfaldlega betri.
Menn hafa mismunandi háttinn á
að fá upp keppnisskap í mannskap-
inn fyrir kappleiki. Framherjar vom
ákveðnir í því að láta Fréttir ekki
gera meira grín að óförum sínum í
sumar og voru staðráðnir í að
vinna. Það gekk eftir og allir eru
ánægðir. ekki síst Fréttir. Alltaf
garnan þegar vel gengur og gagn-
rýni hittir í mark. Framherjar
spiluðu að venju ágætis vamarleik
en það var fyrst og fremst sókn-
arleikurinn sent gekk upp að þessu
sinni. Erlingur Richardsson og
Ómar voru bestir Framherja í
annars jöfnu liði.
Franiherjar eru nú í 7. sæti með 8
stig og leiku á útivelli um helgina.
Smástund missti
flugið
Smástund reið ekki feitum hesti frá
viðureignum sínum í 4. deild um
helgina. Smástund lék tvo útileiki
og tapaði báðum. Reyndar vantaði
ntarga af fastamönnum liðsins í
leikina.
Fyrst mættu þeir Ármanni og náðu
forystunni, 2-0, í upphafi seinni
hálfleiks. Magnús Steindórsson og
Daði Pálsson skoruðu. En eftir
þetta hrundi leikur liðsins og
Ánnann skoraði fimm mörk í röð!
Smástund lék seinni leikinn við
TBR og tapaði 3-2. Valgeir Áma-
son og Rúnar Vöggsson skoruðu
mörkin. Smástundarmenn voru
klaufar að tapa leiknum en geta
sjálfum sér um kennt. Við þessi töp
minnkuðu möguleikar Smástundar
á að komast í úrslitakeppnina til
muna.
Smástund leikur gegn Víkingi
Ólafsvík sem er í efsta sæti riðilis-
ins í Eyjum á laugardaginn kl.
14.00. Heyrst hefur að tveir gamlir
IBV jaxlar niuni taka fram skóna
og leika með Smástund!
Vanvirðing?
Tveir stuðningsmenn ÍBV höfðu
samband við blaðið og kvörtuðu
yfir því að þeim hefur fundist bera
skugga á framkomu ÍBy liðsins á
leikvelli að undanfömu. í tvö skipti
hafa leikmenn liðsins fagnað
mörkum sínum með því að afklæð-
ast keppnisbúningi sínum. Finnst
stuðningsmönnunum að þetta sé
vanvirðing við búning IBV og
merki bandalagsins sem á að vera
sameiningartákn okkar í íþróttum.
Eru það vinsamleg tilmæli þessara
stuðningsmanna til ÍBV að leik-
menn láti af þessum ósóma og sýni
merki ÍBV og búningi tilhlýðilega
virðingu í framtíðinni.