Fréttir - Eyjafréttir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttir - Eyjafréttir - 18.07.1996, Qupperneq 20

Fréttir - Eyjafréttir - 18.07.1996, Qupperneq 20
SPARISJÓÐSDAGURiNN er að festa sig í sessi sem áriegur viðburður í bæjarlífinu. Fastur liður í deginum er Sparisjóðs- hlaupið sem byrjar með upphitun og hér má sjá Benedikt Ragnarsson, sparisjóðsstjóra, hita upp fyrir hlaupið. Heilsugæslustöðinni lokað 1. ágúst nk.? - Fjórir af fimm heilsugæslulæknum hafa sagt upp störfum og ekkert þokast f samkomulagsátt. „Þetta er grafalvarlegt mál fyrir bæjarfélagið ef hcilsugæslustöðin ni verður lokað um mánaðamótin vegna uppsagna hcilsugæslulækna. Bæjarfélagið hér hefur opinberlega sýnt okkur afskaplega lítinn stuðn- ing, eins og þetta skipti það engu máli. Mikill urgur er í heilsu- gæslulæknum um allt land og sumir eru alvarlega að skoða stöðu- veitingar í Noregi. Upphaflega snerist málið um óánægju okkar með valdahlutföll á milli heilsu- gæslulækna og sérfræðinga. Ekki er búið að semja við heilsugæslu- Iækna um laun í sex ár og launa- liður samningsins hefur verið laus í eitt og hálft ár. Við höfum dregist aftur úr gagnvart sambærilegum stéttum,” segir Hjalti Kristjánsson, heilsugæslulæknir í Eyjum. Langflestir heilsugæslulæknar um allt land sögðu upp störfum sínum en ráðningarsamningi þeirra var fram- lengt 1. maí til 1. ágúst eins og heimild var til í lögum. Svo virðist sem ekkert sé að gerast í málum heilsugæslu- lækna. Ef ekki tekst að semja fyrir 1. ágúst nk. stefnir í lokum heilsugæslu- stöðva um allt land, líka í Eyjum. Samningagerðin er margflókin en það eru þijú atriði sem fyrst og fremst snúa að heilsugæslulæknunum í Eyjum, en fjórir af fimm þeirra sögðu upp og sá fimmti er að flytja sig um set í haust. í fyrsta lagi er samningsgerð við ráðuneytið um heilsugæslustarfið, í öðru lagi við stjóm sjúkrahússins hér vegna bak- vaktaálags og deildarlæknastaða og í þriðja lagi eru það samningar um vaktir á þjóðhátíð. „Einn læknir getur aðeins sinnt neyðartilfellum og varla það í þessu bæjarfélagi. Ef ekki tekst að semja fyrir 1. ágúst sé ég ekki hvernig hægt er að starfrækja hér heilsugæslustöð. Tölvun hf. hefur keypt Internets- þjónustu Ismenntar sem fyrirtækin áttu í sameiningu og Tölvun veitti þjónustu fyrir á öllu Suðurlandi. Ismennt lenti í fjárhagsörðugleikum og keypti menntamálaráðuneytið þann hluta Ismenntar sem snýr að Islenska menntanetinu og er ætlað skólum og menntastofnunum. Inter- netsnotendur, aðrir en skólar og menntastofnanir, sem hafa verið tengdir Tölvun munu því ekki finna fyrir þessum hræringum, nema að því Ieyti að fljótlega verður netfangi notenda breytt. Eftir 1. ágúst er ekki hægt að kalla okkur í vinnu í einstökum tilfellum þar sem við erum ekki lengur á launaskrá. Hvað þjóðhátíðina varðar höfum við sem erum með vaktina í sjúkratjaldinu í Herjólfsdal verið verktakar og svo höfum við sent neyðartilfelli á sjúkrahúsið. Leyfi fyrir að halda þjóðhátíð er ekki skilyrt því að þar sé heilsugæsla en ég sé samt ekki hvernig þjóðhátíð getur farið fram án hennar,” sagði Hjalti. Samkvæmt upplýsingum frá Tölvun mun hluti netfangsins, þ.e. ISMENNT, breytast líklega í EYJAR í staðinn. Þessi breyting verður komin á í næstu viku en hins vegar munu bæði netföngin gilda næsta hálfa árið vegna aðlögunartímans. Því mun póstur sem sendur verður á gamla netfangið skila sér á nýja netfangið og ætti því ekki að vera hætta á að viðskiptasambönd eða kunningsskapur fari forgörðum, þrátt fyrir breytinguna. Tölvun mun sem fyrr þjónusta allt Suðurland og mun gjaldskráin jafnvel lækka eitthvað. Tölvun M. kaupir Inter- netsþjónustu Ismenntar Rútuferðir - GM Skoðunarferðir Grillferðir íþróttahópferðir. Ódýr og góð þjónusta. FERÐASKRIFSTOFA REYKJAVÍKUR Umboðsmaður í Eyjum: GISLI MAGNÚSSON Brekastíg 11 sími 481-1909 Hill kremkex 4 tegundir Nestispokar nr. 2 Heimilispokar nr. 15 BKIextra 400 gr.(Rauður) Crest tannkrem 2 túpur 10 stk. borðklútar Pampers þurrkur24 stk. Ariel Future 1,5 kg. + Lenor320 ml í alfaraleið UESTUr.l/ECI 1»

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.