Fréttir - Eyjafréttir - 25.03.1999, Page 15
Fimmtudagur25. mars 1999
Fréttir
15
Sjö Islandsmct féllu á IMI
Innanhússmeistaramóti íslands í
sundi 1999 lauk nú um síðustu
helgi. Mótið fór í alla staði vel fram
og hefur keppni aldrei verið meira
spennandi. Fimm ísiandsmet voru
sett í einstaklingsgreinum og tvö í
boðsundum.
Til marks um hversu jöfn keppnin
var þá var metið í 50 metra flugsundi
karla og 100 metra flugsundi karla
tvíbætt. Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir ÍA
settí stúlknamet í 200 metra fjórsundi
og 100 metra baksundi, auk þess að
synda undir íslandsmeti í 200 metra
fjórsundinu, en þar var Lára Hrund á
enn betri tíma og setti því metið.
Stúlknasveit Ægis setti stúlknamet í
4x200 metra skriðsundi og piltasveit
Ægis setti piltamet í 4x100 metra
fjórsundi.
Omar Snævar Friðriksson SH synti
sig inn í ólympíuhóp Sundsambands-
ins, þar sem hann náði B lágmörkum
FINA(alþjóðasundsambandsins), en
ÍSÍ hefur ekki gefið út ólympíulág-
mörk.
Yfirlit yfir met mótsins:
50m flugsund karla, Ríkarður Ríkarðsson
Ægi. 25.17 í undanrásum, bætti eigið met,
sem var 25.29. Öm Amarson SH synti á
24.87 í úrslitum, auk þess synti Ríkarður
undir meti sínu frá því um morgunin, 25.10
200m fjórsund kvenna, Lára Hrund
Bjargardóttir SH á 2:18.81 og bætti hún
eigið met sem var 2:20.28. Kolbrún Ýr
Kristjánsdóttir IA synti á 2:20.02, sem er
stúlknamet, auk þess synti hún einnig undir
Islandsmetinu.
lOOm flugsund karla, Friðfinnur
Kristinsson Selfossi á 55.66 í undanrásum
og bætti met Ríkarðar Ríkarðssonar Ægi,
sem var 55.88. Ríkarður Ríkarðsson synti á
55.63 í úrslitum.
í 200m skriðsundi synti Öm Amarson
undir skráðu Islandsmeti á tímanum
1:50.25. Skráð met er 1:50.63
4x200m skriðsund karla. A-karlasveit
SH 7:41.28. Bættu eigið met sem var
7:47.15
4xl00m skriðsund karla. A-karlasveit
SH 3:29.95. Bættu eigið met sem var
3:30.36.
SH fékk 24 íslandsmeistaratitla, ÍA 5, Ægir
4, Armann 2. Kefiavík 2 og Selfoss 1.
Kátir sundkrakkar á Innanhúsmeistarmótí íslands í sundi
Frábær árangur 5fl. kvenna
Helgina 12. - 14.mars fór fram úrslitakeppni 5.flokks kvenna. Fyrir sjálfa
úrslitakeppnina voru haldin þrjú íjölliðamót, sem voru metin til stiga og komust
því 10 efstu liðin áfram í þessi úrslit. Þess má geta að IBV var níunda liðið til
að komast áfram. Arangur stelpnanna í íjölliðamótunum í vetur hefur verið
frekar misjafn. Vegna undangengins árangurs var ekki gert ráð fyrir að þær
kæmust í úrslit og sást það á leikjaskipulagi mótsins, þar sem keppni um þrjú
efstu sætin byrjaði ekki fyrren klukkan 18:00 og verðlaunaafhending strax á
eftir um klukkan 19:30. Attu því Eyjastelpur því lítinn sem engan möguleika á
að komast heim það kvöld. En þær létu það ekki á sig fá, heldur sýndu mikinn
dugnað og vilja til þess að klára mótið af krafti. IBV lék í A-riðli ásamt
Haukum, FH, Fylki og Fram, sem var eftir veturinn með 28 stig af 30
mögulegum, og áttu stelpumar því erfiða keppni fyrir höndum.
ÍBV - Fram 11-11 Ema 5, Margrét Lára 4, Sara 2
ÍBV - Fylkir 14-12 Margrét Lára 7, Ema 3, Kristín 2, Sara 1,
Halla Björk 1.
Eyjastúlkur vom fjómm mörkum undir þegar tæpar 3 mínútur vom eftir af
leiknunr og skomðu þær síðan síðustu 6 mörk leiksins
ÍBV - Haukar 13-11 Margrét Lára 5, Ema 4, Sara 2, Kristín 1,
Halla Björk 1
ÍBV - FH 10-13 Halla 4, Hanna Carla 2, Margrét Lára 2,
Ema 2
IBV lenti því í 2. sæti riðilsins og komst því áfram og keppti við IR, sem lenti í
l.sæti B-riðils. ÍBV - ÍR 10-13 Margrét Lára4, Ema3, Halla
Björk 2, Hanna Carla 1
Eyjastúlkur léku því gegn Fram um 3. sætið og unnu eftir æsispennandi
lokamínútur
ÍBV - Fram 10-9 Ema 4. Margrét Lára 2, Sara 2, Halla Björk
1, María 1
Með þessunr frábæra árangri sýndu stelpumar mjög góðan karakter og vilja til
þess að sigra.
Rannveig Rós bætti tíma sína á IMÍ
Fyrir Sundfélag IBV kepptu þær
Kristina Goremykina og Rannveig
Rós Olafsdóttir. Georg Sankovic
átti einnig að synda á þessu móti, en
hann gat ekki keppt þar sem hann
fékk flensu rétt fyrir mótið.
Kristina fékk 3218 stig á þessu móti.
Hún lenti í öðm sæti í 50m flugsundi
og 50m baksundi. Hún varð í fyrsta
sæti í lOOm flugsundi(nýtt met hjá
ÍBV) og í öðm sæti í lOOm bak-
sundi(nýtt met hjá IBV). Rannveig
Rós Ólafsdóttir hlaut 1900 stig á
mótinu. Hún varð í 12. sæti í 50m
flugsundi, 25. sæti í 50m skriðsundi,
12. sæti í 200m skriðsundi og 18. sæti
í lOOm skriðsundi. Rannveig Rós
bætti sinn eigin tíma í öllum
greinunum. Boðsundssveit IBV hlaut
942 stig. A-kvennasveit IBV skipuðu
þær; Eva Lind Ingadóttir, Þórey
Jóhannsdóttir, Halla Ósk Ólafsdóttir
og Rannveig Rós Ólafsdóttir. Þessar
stúlkur höfnuðu í 11. sæti í 4x1 OOm
íjórsundi. A-kvennasveit ÍBV í
4x1 OOm skriðsundi, skipuðu þær;
Rannveig Rós Ólafsdóttir, Eva Lind
Ingadóltir, Þórey Jóhannsdóttir og
Kristina Goremykina. Stúlkurnar
höfnuðu í 8. sæti.
Nissandeildin:
Loksins, loksins!!
Eyjamenn vinna sinn
fyrsta útisigur, 21 - 20
Síðasta umferð Nissandeildarinnar
fór fram í þar síðustu viku.
Eyjamenn sóttu Framara heim í
Safamýrina og miðað við gengi ÍBV
á útivelli í vetur, voru ekki margir,
sem gerðu sér vonir um sigur
Eyjamanna í þessum leik. Allt kom
fyrir ekki, IBV-liðið kom geysilega
vel stemmt til leiks og gerði sér lítið
fyrir og lagði heimamenn, 20-21, og
tryggði sér þar með 4. sætið í
deildinni og þar með heimaleikinn.
Eyjamenn mættu geysilega grimmir
og baráttuglaðir til leiks og var
sóknar- og varnarleikur liðsins með
miklurn ágætum. Eyjamenn komust
mest í fimm marka forskot í fyrri
hálfleik, 3-8, en staðan í leikhléi var,
10-14. Miklar sviptingar voru í síðari
hálfleik og komust Eyjamenn í 10-17,
en þá kom skelfilegur kafli hjá ÍBV og
Framarar náðu að jafna, 18-18.
Upphófust nú dramatískar
lokamínútur og náðu Eyjamenn að
tryggja sér sigur í blálokin, 20-21,
með marki frá Svavari Vignissyni.
Loksins sigur á útivelli í höfn. Sigmar
Þröstur var að vanda góður í markinu
og Guðfinnur lét mikið að sér kveða.
„ Við náðum upp góðri stemmningu í
leiknum. Eg meiddist á æfingu á
þriðjudaginn og gat því ekki tekið þátt
í upphilun fyrir leikinn, en Guffí hljóp
í skarðið og hitaði peyjana upp. Ég er
ekki frá því að það hafi haft svona góð
áhrif. Fyrri hálfleikurinn var góður
hjá okkur en lélegur sóknarleikur í
seinni hálfleik hleypti Frömurunum
aftur inní leikinn. Við áttum einnig í
erfiðleikum í vöminni, því fengum of
margar klaufalegar brottvísanir á
okkur. En mikil barátta skilaði okkur
sigri í lokin og það var ljúft að sjá
skotið hjá Svavari inni í marknetinu,”
sagði Sigmar Þröstur Óskarsson,
fyrirliði ÍBV. Eyjamenn náðu því 4.
sætinu í deildinni og mæta Iiði Hauka
í úrslitakeppninni. Fyrsti leikur
liðanna fer fram hér heima þann 24.
mars.
Mörk ÍBV: Guðfmnur 8/2, Giedrius
3, Valgarð 3/3, Sigurður 2, Svavar 2,
Gunnar 1, Haraldur 1, Daði 1.
Varin skot: Sigmar Þröstur 16/1 -
22/2 !
Á myndinni hér til hliðar er A-lið 6. fl. kvenna í handknattleik, en
hær lentu í 4. sæti úrslitakeppni íslandsmótsins, sem haldin uar
umsíðustuhelgi
Gekk illa
Helgina 12. - 14.mars lék 3.
flokkur karla í sínu síðasta fjöl-
liðamóii í vetur. Ekki gekk
strákunum nógu vel, tveir sigrar og
tvö töp. Urslitin urðu sem hér segir:
ÍBV - Grótta/KR 22-25
Unnar 9, Sigurður Ari 5, Elías Ingi
5, Sindri 2, Leó 1
ÍBV - Selfoss 20-15 Sigurður Ari
6, Bjami 6. Unnar 2, Sindri 2, Elías
Ingi 2, Leó 1, Davíð 1
ÍBV - Valur2 17-13 Bjarni 5,
Elías Ingi 4, Leó 3, Sigurður Ari 3.
Davíð 1, Sindri 1
ÍBV - FH 14-17 Bjami 7, Sigurður
Ari 2, Sindri 2, Davíð 1, Leó 1,
Elías Ingi I. Óvíst er hvort þessi
flokkur kemst í úrslit, en strákamir
verða að treysta á aukasæti inn í
úrslitin. Að sögn Sigurðar Braga-
sonar, þjálfara 3. flokks ÍBV, voru
þetta svolítil vonbrigði, þar sem
þessi flokkur er alveg á meðal sex
bestu liða landsins.
Æfingaleikir hjá ÍV
Körfuknattleiksmenn hjá ÍV,
undirbúa sig nú af kappi fyrir
úrslitakeppni 2. deildar, sem hefst
um helgina. IV lék tvo æfingaleiki
við lið af Suðumesjunum unt
síðustu helgi. Leikimir unnust
báðir, með 11 og 25 stiga mun, en
þess iná geta að þessi lið af
Suðurnesjunum eru bæði í
úrslitakeppni 2. deildar. Eins og
fyrr sagði, þá hefst úrslitakeppni 2.
deildar um helgina og verður leikið
á Sauðárkróki og í Vannahlið fyrir
norðan. Fróðlegt verður að fylgjast
með drengjunum, en þeir hafa verið
óstöðvandi í vetur.
Stelpurnar í úrslit
Þriðji Ilokkur kvenna lék í
fjölliðamóti, helgina 12. - 14. ntars.
Stelpumar stóðu sig með miklum
ágætum og eru komnar í úrslita-
keppnina, sem fram fer 10. apríl,
næstkomandi. Urslit urðu sem hér
segir:
ÍBV-Stjaman 18-15
Hind 5, Anna Rós 4. Eyrún 3, Aníta
2, Edda 2, Bjarný 1, Kolbrún 1
ÍBV - Víkingur 17-15
Hind 8, Anna Rós 3, Aníta 2,
Kolbrún 2, Eyriín 1. Edda 1
ÍBV - Fjölnir 11-17
Hind 3, Eynin 3, Anna Rós 2, Edda
1, Bjarný 1, Aníta 1
Fram-ÍBV
Fram og ÍBV léku þriðja
innbyrðisleikinn í úrslitakeppni 1.
deildar kvenna í gærkvöldi. Úrslit
lágu ekki fyrir áður en blaðið fór í
prentun, en greint verður frá
leiknum í næsta blaði.
Hræringar hjá Eyja-
mönnum
Eins og frant hefur komið í
ljölmiðlum upp á síðkastið. þá mun
landsliðsmarkmaðurinn, Birkir
Kristinsson, leika með ÍBV næsta
sumar. Þá ntun unglingalandsliðs-
markmaðurinn, Kristinn Geir
Guðmundsson, úr Val einnig ganga
til liðs við Eyjamenn. Aftur á móti
hefur Sigurvin Ólafsson gert þriggja
ára samning við Fram, Gunnar
Sigurðsson er nú til reynslu hjá
sænska B-deildarliðinu Brage og þá
hefur Gísli Sveinsson ákveðið að
veija mark Tindastóls í sumarr.
UM HELGINA:
Úrslitakeppni 2.deildar í körfu-
knattleik hjá IV.