Vestfirðir - 10.10.2013, Qupperneq 1

Vestfirðir - 10.10.2013, Qupperneq 1
 Hraðvirkt bólgueyðandi verkjalyf ibuxin rapid fæst án lyfseðils í apótekum ibuprofen Notkunarsvið: ibuxin rapid inniheldur ibuprofen sem er lyf sem dregur úr verkjum og hita (flokkur: bólgueyðandi gigtarlyf sem ekki er steri). ibuxin rapid er notað við vægum til miðlungi miklum verkjum, svo sem höfuðverk, tannverk, tíðaverk, bráðum mígrenihöfuðverk, hita og verkjum vegna kvefs. Ekki má nota ibuxin rapid: Ef þú ert með ofnæmi fyrir ibuprofeni eða einhverju öðru innihaldsefni ibuxin rapid. Ef þú hefur fundið fyrir mæði, astma, nefrennsli, þrota eða ofsakláða eftir notkun acetylsalicylsýru eða annarra bólgueyðandi gigtarlya sem ekki eru sterar (NSAID). Ef þú ert með óútskýrða blóðmyndunar- truflun. Ef þú ert með eða hefur haft endurtekin sár (ætisár) eða blæðingu í maga/skeifugörn. Ef þú hefur fengið blæðingu eða rof í meltingarvegi við fyrri meðferð með bólgueyðandi gigtarlyum (NSAID). Ef þú ert með blæðingu í heilaæðum eða aðra virka blæðingu. Ef þú ert með alvarlega skerðingu á lifrar- eða nýrnastarfsemi. Á síðustu 3 mánuðum meðgöngu. Ef þú ert með kransæðasjúkdóm eða alvarlega hjartabilun. Ef þú þjáist af verulegri ofþornun. Gæta skal sérstakrar varúðar við notkun ibuxin rapid: Ef þú ert með arfgengan blóðmyndunarsjúkdóm (bráða porfýríu með hléum). Ef þú ert með ákveðna sjálfsnæmissjúkdóma (rauða úlfa og blandaðan bandvefssjúkdóm). Ef þú ert með sjúkdóma í meltingarfærum eða langvinna bólgusjúkdóma í þörmum (sáraristilbólgu, Crohn´s sjúkdóm). Ef þú ert með skerta nýrna- eða lifrarstarfsemi. Ef þú þjáist af ofþornun. Ef þú ert með eða hefur haft háþrýsting eða hjartabilun. Ef þú ert með ofnæmi (t.d. húðviðbrögð við öðrum lyum, astma, ofnæmiskvef ), langvarandi þrota í slímhúðum eða langvarandi teppusjúkdóm í öndunarfærum. Ef þú ert með storkutruflun í blóði. Strax eftir stórar skurðaðgerðir. Meðganga og brjóstagjöf: Þú mátt aðeins nota ibuxin rapid á fyrstu 6 mánuðum meðgöngu eftir að hafa ráðfært þig við lækninn. Ekki má nota ibuxin rapid síðustu 3 mánuði meðgöngu. Yfirleitt er ekki nauðsynlegt að gera hlé á brjóstagjöf við skammtíma notkun í ráðlögðum skömmtum. Algengustu aukaverkanir: Sár, rof eða blæðing í meltingarvegi, stundum lífshættuleg, einkum hjá öldruðum, geta komið fram. Ógleði, uppköst, niðurgangur, vindgangur, hægðatregða, meltingartruflanir, kviðverkur, sortusaur, blóðuppköst, sáramunnbólga, versnun ristilbólgu og Crohn´s sjúkdóms hafa komið fram. Skammtastærðir: Fullorðnir og unglingar yfir 40 kg: 200 mg – 400 mg skammtar, að hámarki 1.200 mg á sólarhring. Börn og unglingar: Hámarksskammtur af ibuprofeni á dag er 30 mg á hvert kg líkamsþyngdar, skipt niður í 3 til 4 staka skammta. 20-29 kg: 200 mg skammtar, að hámarki 600 mg á sólarhring. 30-39 kg: 200 mg skammtar, að hámarki 800 mg á sólarhring. Ekki skulu líða minna en 6 klst. á milli skammta. ibuxin rapid skal aðeins nota hjá börnum sem eru a.m.k. 20 kg að þyngd. Lesið vandlega leiðbeiningar í fylgiseðli sem fylgir lynu. Júlí 2012. HÖFUÐVERKUR - TANNVERKUR - TÍÐAVERKUR - MÍGRENI - HITI CMT sagarblöð og fræsitennur BETRI DEKK Á B E T R A V E R Ð I www.dekkjahollin.is 10. október 2013 10. tölublað 2. árgangur UMHVERFISVOT TUÐ PRENTUN Kvennakórinn Norðurljós á Hólmavík á leið í söngferð til Skotlands Kvennakórinn Norðurljós á Hólmavík er að hefja vetrarstarfið og verður margt skemmtilegt á dagskrá á komandi vetri. Kórinn ætlar til Skotlands í nóvember, einnig eru á dagskrá vetrarins jólatónleikar og þátttaka í landmóti kvenna- kóra á Akureyri í maí en búast má við þar allt að 600 syngjandi konum. Stjórnandi kórsins er sr. Sigríður Óladóttir, sóknarprestur Hólmvíkinga. Þær konur sem hafa áhuga á vera með í kórstarfinu í vetur geta slegist í hópinn og eru beðnar að hafa samband við Sunnu í s. 8461640 eða Hlíf í s. 6903516 sem fyrst. Norðurljósakórinn leggur áherslu á að syngja létt og skemmtileg verk, t. d. dægurlög útsett af Gunnari Þórðarsyni sem er Strandamaður. Það eru m. a. lög sem hafa verið flutt af Hljómum og Bubba Morthens. kvennakórinn Norðurljós.

x

Vestfirðir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vestfirðir
https://timarit.is/publication/1082

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.