Vestfirðir - 10.10.2013, Blaðsíða 10

Vestfirðir - 10.10.2013, Blaðsíða 10
www.bbkeflavik.com Aðeins 8.500 kr. fyrir tveggja manna herbergi! Gistihús Keflavíkur · Keflavíkurflugvelli · Valhallarbraut 761 · 235 Reykjanesbæ Sími 426 5000 · gistihus@internet.is Láttu fara vel um þig nóttina fyrir eða eftir flug og gistu hjá okkur. Við geymum bílinn fyrir þig, keyrum þig upp á flugvöll og sækjum þig aftur þér að kostnaðarlausu. Ertu á leiðinni til eða frá landinu? Morgunverður er innifalinn Þráðlaus nettenging Rúmgóð herbergi með gervihnatta- sjónvarpi og baði Því ekki að byrja eða enda fríið í Bláa Lóninu, aðeins um 15 mín. akstur frá okkur, eða skoða Víkingasafnið, gamla hervöllinn og Reykjanesið? Við erum vel staðsett til að njóta alls þess sem Reykjanesið hefur upp á að bjóða. Tilvalið fyrir hvataferðir, fundi eða rómantískar stundir. Gott verð! Gildir til 1. maí 2014. 10 10. október 2013 Skólamjólkurdagurinn minnir á heilbrigði mjólkurdrykkju Miðvikudaginn 25. septem-ber sl. var Alþjóðlegi skóla-mjólkurdagurinn haldinn í fjórtánda sinn víða um heim fyrir til- stuðlan Matvælastofnunar Sameinuðu þjóðanna. Í tilefni dagsins buðu ís- lenskir kúabændur með aðstoð frá Mjólkursamsölunni öllum 70.000 leik- skóla- og grunnskólabörnum landsins upp á mjólk í skólunum. Reiknað var með að drukknir hafi verið alls sextán þúsund lítrar af mjólk þennan dag. Á Alþjóðlega Skólamjólkurdeg- inum er vakin athygli barna, foreldra og starfsfólks skólanna á mikilvægi mjólkur í fæði barnanna. Á Skóla- mjólkurdaginn er einnig árlegri teikni- samkeppni hleypt af stokkunum þar sem öllum nemendum 4. bekkjar er boðið að taka þátt í samkeppninni. Myndefnið er algjörlega frjálst en æskilegt er að það tengist hollustu mjólkurinnar fyrir ungt fólk. Mjólk er mjög próteinrík og auk þess mik- ilvæg uppspretta 14 lífsnauðsynlegra vítamína og steinefna í fæðunni. Sér- staða mjólkur felst meðal annars í því hve góður kalkgjafi hún er en kalk er mjög mikilvægt fyrir byggingu beina, ekki síst á uppvaxtarárum. Björn Birkisson, bóndi í Botni í Súgundafirði segir það mikilvægt að vera með skólamjólkurdag og minna á mikilvægi mjólkur í fæðukeðj- unni. Borgarbúar fjarlægist stöðugt þá góðu ímynd sem var fyrr á árum um sveitirnar enda fara færri börn í sveit núorðið, býlum hefur fækkað en það hafa jafnframt stækkað og orðið mun tæknivæddari. ,,Einnig er fólk til sveita í auknu mæli að sækja með búskapnum atvinnu með búskapnum og oft fellur það með því að keyra börnin í skóla, oft í næsta þéttbýl- isstað. Það er alltaf verið að halda uppi áróðri gegn mjólkurdrykkju, jafnvel næringafræðingar telja sumir að mjólk sé aðeins dýrafóður. Smjör var úthrópað fyrir nokkrum árum en nú sér allt skynsamt fólka að fita er nauðsynlegur þáttur í fæðukeðjunni,” segir Björn Birkisson. Á Botni eru um 65 árskýr og alls um 200 nautgripir en þeir bræður Björn í Botni og Svavar í Birkihlíð eru þar með félagsbú. Björn er einnig með fjárbú sem hann er með einn og eru þar um 300 ásettar ær. Þessa dagana er verið að senda lömb í sláturhús, en slátrað er á Sauðárkróki en þangað eru 500 km. Mjólk er góð! Séð yfir Suðureyri. Bolungarvík: Mynd af Bjöggu vatns- bera í félagsheimilið Soffía Vagnsdóttir og Roland Smelt komu 24. september sl. á fund bæjarráðs Bolungarvíkur með færandi hendi, en þau voru með listaverkið Vatnsberinn eftir lista- konuna Kjuregei Alexöndru Argu- novu. Myndin sýnir Aðalbjörgu Þórðardóttir sem var þekkt undir nafninu Bjagga vatnsberi. Aðalbjörg var fædd 24. september 1874 og var myndin því afhent á fæðingardegi hennar. Soffía Vagnsdóttir, fyrir hönd bolvískra kvenna, afhenti listaverkið Bolungarvíkurkaupstað til varðveislu með ósk um að listaverkinu verði komið fyrir á fallegum stað i Félags- heimili Bolungarvíkur. Bæjarráð þakkaði bolvískum konum framtakið og samþykkti að að listaverkið fái að njóta sín í félagsheimilinu. bjagga Vatnsberi. Rækjuvinnslan Kampi á Ísafirði segir upp öllu starfsfólki Starfsfólki rækjuvinnslunnar Kampa ehf. á Ísafirði, alls 32 manns, var sagt upp störfum í dag vegna óvissu í öflun hráefnis og boðaðrar kvótasetningar úthafsrækju samkvæmt hugmyndum nýrrar rík- isstjórnar Sjálfstæðisflokks og Fram- sóknarflokks. Uppsögnin er með lögbundnum þriggja mánaða upp- sagnarfresti. Kampi stendur frammi fyrir því að þurfa að endurskipuleggja reksturinn, gangi þessar áætlanir eftir. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að við- skiptabátar Kampa ehf muni fá 8% af úthlutaðri aflahlutdeild í stað þeirrar 28% hlutdeildar sem þeir hafa fengið undanfarin þrjú ár. Næstu vikur munu fara í endurskipulagningu og á þeim tíma verða teknar ákvarðanir um hvernig rekstri félagsins verður háttað í náinni framtíð. Kampi ehf. starfrækir einnig fisk- vinnslu í Bolungarvík, en þar hefur engum verið sagt upp. Þá liggur ekki ljóst fyrir hvort útgerðir í tengslum við eigendur Kampa, Birnir ehf. og Sædís ehf. sem gera út togarana Ís- björn, Gunnbjörn og Valbjörn, grípi til uppsagna í kjölfar nýskipunar í veiðum á úthafsrækju. Kampi rekur ennfremur rækju- mjölsverkmiðju í Bolungarvík sem eðlilega tengist því að fyrirtækið Kampi fái að veiða rækju, helst í svip- uðu magni og síðustu ár, en afkasta- geta verksmiðjunnar á Ísafirði er hins vegar mun meiri en sem því nemur. , ,,en það er þó nánast óhjákvæmi- legt ef úthlutun rækjukvótans verður eitthvað í líkingu við það sem hug- myndir eru um nú,” segir á heimasíðu Kampa ehf. Forsvarsmenn Kampa ehf. vonast til þess að ekki komi til frekari uppsagna og að framtíðin beri með sér bjartari vonir um aukna hráefn- isöflun, svo að hægt verði að draga uppsagnir til baka að öllu eða ein- hverju leyti. kampi rekur rækjumjölsframleiðslu í bolungarvík, og eru mjölið mjög eftirsótt á mörkuðum. Auglýsingasíminn er 578 1190 Netfang: auglysingar@fotspor.is.

x

Vestfirðir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vestfirðir
https://timarit.is/publication/1082

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.