Vestfirðir - 10.10.2013, Síða 9
10. október 2013 9
Mikilvægi
sjávarútvegs fyrir
þjóðina er án alls vafa
Frá upphafi byggðar á Íslandi hafa landsmenn byggt afkomu sína að meira eða minna leyti á fisk-
veiðum. Byggð við Faxaflóa var mjög
háð fiskveiðum og útgerð og þéttbýl-
ismyndun í Reykjavík og Hafnarfirði á
19. öld átti nánast alfarið rætur sínar að
rekja til sjávarútvegs. Á 20. öld breytt-
ust kjör Íslendinga gríðarlega til hins
betra og í þeirri uppbyggingu skiptu
fiskveiðar sköpum. Sjávarútvegur hefur
því um langt skeið verið undirstaða
velmegunar á Íslandi. Það er því skylda
Íslendinga að halda vel utan um sögu
og þróun sjávarútvegs og kynna kom-
andi kynslóðum hér á landi, sem og
erlendum gestum, hvernig sambúð
Íslendinga var og er í dag við hafið og
lífríki sjávar.
Sjávarútvegsráðstefnan, sem nú er
haldin árlega, er vissulega liður í því
að dreifa upplýsingum til allra þeirra
sem sjósókn og fiskvinnslu stunda hér
við land, en einnig er þessi mikilvæga
ráðstefna liður í því að dreifa upplýs-
ingum um nýja tækni, nýtingu afla og
annars sem raunar kemur öllum við
því sjávarútvegur er landmikilvægasta
atvinnugreinina hérlendis. Vegna auk-
innar tækni á öllum sviðum sjávar-
útvegs hefur þeim fækkað sem starfa
við sjávarútveg en á sama tíma hefur
arðsemi greinarinnar aukist, nýting
þess afla sem berst á land hefur aukist
og síðast en ekki síst, aukin umhverfis-
vernd hefur aukist og umfang þess afla
sem kastað hefur fyrir borð hefur stór-
minnkað. Þar má vissulega gera betur
og að því hefur verið unnið að stofn-
unum eins og Hafrannsóknastofnun-
inni, Íslandsstofu og Fiskistofu.
Framúrstefnuhugmynd
Sjávarútvegsráðstefnunnar
Á Sjávarútvegsráðstefnunni, sem
haldin verður í lok nóvembermánað-
ar, verður með virkri þátttöku ráð-
stefnugesta leitað svara við því hvort
þeir séu með framúrstefnuhugmynd til
að efla íslenskan sjávarútveg og tengdar
atvinnugreinar. Sjávarútvegsráðstefn-
an kallar eftir framúrstefnulegum
nýsköpunarhugmyndum, sem veita
á viðurkenningu fyrir. Markmiðið er
að hugmyndirnar séu framsæknar og
frumlegar og skapi umræðugrundvöll
eða nýja hugsun. Framúrstefnuhug-
mynd skal setja fram á hnitmiðaðan
hátt þar sem fram kemur lýsing á hug-
mynd, tillaga að framkvæmd, væntan-
legur afrakstur og áhrif til góðs fyrir
ímynd íslenskra afurða. Hugmyndirnar
þurfa auk þess að vera framúrstefnu-
legar að vera raunhæfar, framsæknar
og frumlegar og þeir eiga að skapa
umræðugrundvöll eða nýja hugsun.
Á þriggja ára fresti er haldin hér sjáv-
arútvegssýning sem dregur að fjölda
erlendra gesta auk Íslendinga. Næsta
sýning verður haldin haustið 2014. Ís-
lendingar, og ekki bara þeir sem starfa
við sjávarútveg, eru því vel vitandi um
mikilvægi sjávarútvegs fyrir þjóðina,
þjóðar sem býr í Norður-Atlantshafi
við ein gjöfulustu fiskmið heims þar
sem berst að landi einhver ferskustu
sjávarafurðir sem þekkjast víða um
heim. Þeirri ímynd vill íslensk þjóð
viðhalda og sanna með góðum við-
tökum erlendra neytenda.
Sjávarútvegur er mikil-
vægasta atvinnugreinin
Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi
og formaður atvinnumálanefndar
Alþingis segir sjávarútveg vera mikil-
vægustu atvinnugreinina og er helsta
grunnstöðin undir atvinnu- og efna-
hagslífið á Íslandi. Fjölbreytni í ís-
lensku atvinnulífi hefur aukist á síðustu
áratugum og það er auðvita markmið
stjórnvalda að auka þá fjölbreytni eftir
bestu getu. Orkufrekur iðnaður hefur
verið að aukast og skiptir stöðugt meira
máli og ferðaiðnaðurinn hefur aukist
hratt síðustu ár.
,,Íslenskur sjávarútvegur er þessi
grunnstoð og því er það afar mik-
ilvægt að hann sé rekinn með eins
hagkvæmum hætti og mögulegt er og
skili hámarks arðsemi í þjóðarbúið á
hverjum tíma,“ segir Jón Gunnarsson.
,, Það verður að hámarka verð afurð-
anna og jafnframt að fiskistofnarnir
séu nýttir með sjálfbærum hætti.
Sérstaða íslensks sjávarútvegs
byggir að mínu viti fyrst og fremst á
þeirri hagkvæmni sem hefur náðst á
undanförnum árum. Fyrir um þremur
áratugum síðan var hér rekinn sjávar-
útvegur sem var að mörgu leiti óhag-
kvæmur og afkastagetan var oft langt
umfram afkastagetu þeirra fiskistofna
sem veitt var úr. Þetta voru óheftar
veiðar, ólympískar veiðar. Markmiðið
þá var ekki að skapa hámarks verð-
mæti heldur að veiða sem mest. Þá var
farið í það árið 1983 af stjórnvöldum
að lögleiða kvótakerfið enda stefndi
þá í algjört óefni hvað varðar nýtingu
á okkar helstu nytjastofnum. Í fram-
haldi var farið í mikla hagræðinu,
leyft var framsal að veiðiheimildum,
kvótanum, kringum 1991 og þar með
stigið eitt stærsta framfaraskrefið sem
orðið hefur í íslenskum sjávarútvegi.
Sérstaðan byggir ekki síst á því hversu
vel hefur tekist til í þessum efnum.
Fiskiskipum var fækkað úr u.þ.b.
2.600 niður í 1.200 skip og samþykkt
var gjaldtaka á íslenskan sjávarútveg
til þess að borga fyrir þessa úreldingu
skipa svo það var sjálfur sjávarútveg-
urinn sem greiddi fyrir þessa hag-
ræðingu.
Í dag er staðan sú að fyrir íslenskar
sjávarafurðir er að fást einhver hæstu
verð sem þekkjast borið saman við
sambærilegar afurðir á erlendum
mörkuðum. Arðsemin er auk þess
meiri en gengur og gerist hjá öðrum
þjóðum. Það hefur sýnt sig að sam-
þætting veiða og vinnslu er gríðarlega
mikilvæg gagnvart mörkuðunum.“
Jón Gunnarsson bendir á að það
séu ekki nema um fjögur ár síðan
makrílveiðar hófust hér við land að
einhverju marki eftir að makríllinn
var farinn að ganga í auknu mæli inn
í íslenska lögsögu, sem hann raunar
gerir enn. Í upphafi voru stundaðar
óheftar veiðar til bræðslu en eftir að
sett voru lög um það að makrílinn
verði að vinna að mestu til manneldis
og gefnar út veiðiheimildir af stjórn-
völdum, að veiðarnar fóru að miðast
við hámarknýtingu til manneldis að
verðmæti úr hverju veiddu tonni fóru
að aukast til muna.
- Nokkrar vísindastofnanir, m.a.
MATÍS, hafa verið að þróa kerfi sem
gerir kaupendum hérlendis og erlendis
mögulegt að sannreyna að viðkomandi
fiskafurð sem þeir hyggjast kaupa hafi
verið veidd á tilteknum degi, á tilteknu
veiðisvæði og af tilteknu fiskiskipi.
Hefur þessi rekjanleiki vörunnar ekki
enn frekar áhrif á verðmæti hennar
sanni enn frekar að hér séu almennt
stundaðar sjálfbærar veiðar?
,,Kröfur markaðarins eru mjög
mikið að aukast í þessa veru og kröfur
neytenda um sjálfbærar veiðar fara
stöðugt vaxandi og ekki sé verið að
ganga of nálægt fiskistofnunum. Ég
tel að Íslendingar hafi verið of seinir
að koma á sínu umhverfismerki og ég
tel að þjóðir við Norður-Atlantshaf
eigi sameiginlega að taka upp slíka
vottun. Kröfurnar í þessa átt eiga eftir
að aukast, og það er af hinu góða. Við
Íslendingar eru vel í stakk búnir til að
uppfylla kröfur að þessu leiti, bæði
hvað varðar veiðar og vinnslu.“
Jón segir sátt um það innan stjórn-
arflokkanna að þegar vel gengur í ís-
lenskum sjávarútvegi þá borgi greinin
meira til samfélagsins en hvetji jafn-
framt til hámarks afraksturs auðlindar-
innar, aukinnar hagræðingar, hámarks
afkastagetu og hámarks verðmæta-
sköpunar. Hjá Evrópusambandinu er
þessu ekki þannig farið, þar er skatt-
peningum frá almenningi dælt inn í
greinina eftir þörfum.
- Hver heldurðu sé sé skoðun eða
viðhorf almennings í Vestur-Evrópu
á íslenskum sjávarútvegi? Er sú ímynd
jákvæð?
,,Okkar sjávarútvegur hefur mjög
góða ímynd erlendis, við njótum
virðingar og okkar vísindamenn gera
það einnig. Það er vaxandi skoðun
erlendis, einnig innan Evrópusam-
bandsins, að horfa verði til þess fisk-
veiðistjórnunarkerfis sem hér er við
lýði. Við höfum hlotið viðurkenningu á
alþjóða vettvangi á okkar sjávarútvegi,
að byggja upp fiskistofna og vera með
sjálfbærar veiðar. Á þessum vettvangi
verður við að vera í forystu og auka
skilning annarra þjóða á mikilvægi
þess að stunda sjálfbæra nýtingu fiski-
stofna. Við eigum enn sóknarfæri, t.d.
í hvalveiðum og það er mjög rangt að
þar skuli ekki eiga sér sjálfbær nýting
í heimi þar sem er stöðug þörf fyrir
meiri matvæli,“ segir Jón Gunnarsson.
Sjávarútvegur er víða nánast eina atvinnugreinin í smærri byggðarlögum á
landsbyggðinni. Hér er horft til bolungarvíkur.
Jón Gunnarsson alþingismaður, formaður atvinnumálanefndar Alþingis.