Fréttir - Eyjafréttir - 12.12.2002, Side 1
\ IHERJOLFUR
ll VETRARÁÆTLUN
29. árg. 50. tbl. • Vestmannaeyjum 12. desember 2002 • Verð kr. 170 • Sími 481 1300 • Fax 481 1293
Frí Frí
Vestm.eyjum Þorl.höín
Mánu- til laugardaaa.08.15 12.00
Aukaferð föstudaga.16.00 19.30
Sunnudaga............14.00 18.00
Engar ferðir eru: jóladag og nýársdag
Ath. séráætlun gildir fyrir Jól og áramót
HERJÓLFUR
Lsndfkitnnqar
Upplýsingaslmi: 481-2800 ■ www.herjolfur.is
www.eyjafrettir.is
Einkunnagjöf
Vísbendingar:
Vestmanna-
eyjar niður
um tólf sæti
Samkvæmt tímaritinu Vís-
bendingu, sem árlega tekur
saman upplýsingar um stöðu
sveitarfélaga, eru Vestmanna-
eyjar í áttunda sæti yfir mestu
skuldir á hvern íbúa á landinu
á árinu 2001.
I Vestmannaeyjum skuldar
hver íbúi 375 þúsund krónur.
Skuldsettasta sveitarfélagið er
Vesturbyggð með um hálfa millj-
ón á hvern íbúa en önnur sveitar-
félög með meiri skuldir eru m.a.
Hafnarfjörður, Reykjanesbær og
Mosfellsbær.
Vísbending gefur sveitar-
félögum Ifka einkunn miðað við
stöðu þeirra. Eru Vestmannaeyjar
í tuttugasta og fimmta sæti af
þrjátíu og tveimur með 3,1 í
einkunn þegar árið 2001 er gert
upp. Arið 2000 voru Vest-
mannaeyjar í þrettánda sæti með
4,0 í einkunn og féll einkunnin
niður í 3,1. Draumasveitarfélagið
er Ölfus, samkvæmt Vísbend-
ingu, með einkunnina 7,3.
Isafjörður fær þann vafasama
heiður að vera í neðsta sæti list-
ans með 2,2 í einkunn.
Gott við-
bragð í
loðnunni
„Þetta er einhver bjartasti
dagurinn í útgerðarsögu þessa
hausts,“ sagði Hörður Óskars-
son hjá Isfélaginu í gær.
„Fyrir utan sfldina, sem er
aftur farin að veiðast, þá er loðn-
an líka mætt til leiks.“
Loðnumiðin eru austur af Kol-
beinsey og í gær var Sigurður VE
á leið til Krossaness með full-
fermi eða 1500 tonn. Guð-
mundur VE var sömuleiðis á leið
til Krossaness með 200 tonn og
rifna nót og Antares VE var á
miðunum, kominn með 800 tonn.
Þá var Kap VE á leið til Eyja með
fullfermi. Ekki eru fleiri skip frá
Eyjum en þessi fjögur á loðnu-
veiðum um þessar mundir.
FRÉTTIR litu við í barnamessunni í Landakirkju á sunnudaginn þar sem margt var í boði fyrir yngstu
borgarana. Þeir kunnu vel að meta það sem í boði var og fylgdust með af athygli.
Slegist um bréf í Vinnslustöðinni:
Hlutur Eyjamanna losar 50%
Á mánudag var ljóst að aðilar
sem tengjast Vestmannaeyjum,
áttu orðið rúmlega 50% ídut í
Vinnslu-stöðinni. I frétt frá
Kauphöllinni þann dag var greint
frá því að Gunnlaugur Ólafsson,
stjórnarmaður í Vinnslustöðinni
hf, hafi keypt kr.14.163.167 að
nafnverði hlutafjár í félaginu, á
verðinu 4,2.
Pósturinn
brást
Fréttir í síðustu viku bárust
ekki til áskrifenda í Reykjavík
á réttum tíma.
Verið er að kanna hjá Póstinum
hvað gerðist en áskrifendur eru
beðnir velvirðingar á þessu.
Eignarhlutur Gunnlaugs eftir þessi
viðskipli er kr. 32.080.791 að nafn-
verði. Sama dag keypti Haraldur
Gíslason, stjórnarmaður í Vinnslu-
stöðinni kr. 800.000 að nafnverði
hlutafjár á verðinu 4,2 og var
eignarhlutur Haraldar eftir þau
viðskipti 26.305.065 að nafnvirði.
Þennan sama dag var frá því greint
að Vinnslustöðin hf. hafi selt eigin
bréf kr. 43.401.415 að nafnverði
hlutafjár á verðinu 4,2 og er
eignarhlutur Vinnslustöðvarinnar
eftir þessa sölu kominn á núllið.
Vinnslustöðin hefur kauprétt að
hinum seldu hlutum til loka febrúar
2003 og sá kaupréttur verður því
aðeins nýttur að eftir gangi samruni
Vinnslustöðvarinnar og Úndínu ehf.
í samræmi við áætlun frá 20. nóv.
sl. Úndína er félagið sem átti
Björgu VE er Vinnslustöðin keypti í
haust.
Undanfamar vikur hefur verið
mikill slagur um bréf í Vinnslu-
stöðinni og kom upp á yfirborðið í
síðasta mánuði þegar þeir mágar,
Gunnlaugur og Haraldur, keyptu
um 18% hlut í Vinnslustöðinni.
Gunnlaugur sagði af því tilefni í
samtali við Fréttir að verið væri að
verja hlut Vestmannaeyja í félaginu.
I viðtali við Fréttir á mánudag tók
Haraldur undir þau orð. „Undan-
farið hafa verið mikil viðskipti með
bréf í Vinnslustöðinni og ljóst að
margir hafa sýnt þeim áhuga. Við
höfum tekið þátt í þessum slag og í
morgun náðum við mikilvægum
áfanga þegar við komumst yfir 50%
eignarhlut. Þá á ég við okkar hlut,
Lífeyrissjóð Vestmannaeyja, lang-
flesta hluthafa í Eyjum og þá sem
tengjast Eyjum á einhvern hátt.
Þeir sem við höfum haft samband
við, hafa allir heitið því að vinna
með okkur. Markmið okkar Gunn-
laugs er að hafa meirihluta
eignarhalds Vinnslustöðvarinnar
hér í Eyjum. Að komast yfir 50
prósentin er mikilvægur áfangi á
þeirri leið en við erum ekki hættir,“
sagði Haraldur.
Ekki eru allir sáttir við þessa
aukningu á umsvifum þeirra mága,
sem þýða að eignaraðilar utan Eyja
eru nú í minnihluta í félaginu. Tíu
stærstu hluthafar í Vinnslustöðinni
eru nú þessir:
Búnaðarbanki Islands, Gunnlaugur
Ólafsson, Haraldur Gíslason og
tengdir aðilar 28,82%, Lífeyrissjóð-
urVestm. 14,99%, Ker hf. 14,27%,
Vátryggingafél. íslands hf. 12,7%,
íshaf hf. 4,88%, Ker ehf. 3,81%,
Samvinnulífeyrissjóðurinn 3,46%,
Kjalar ehf. 3,33%, Sparisjóður
Vestm. 2,8%, Kaupþing Luxemburg
2,64%.
Hlutur stærsta aðilans er að
upphæð 451.098.725 kr. að nafn-
verði en hlutur þess næststærsta,
Lífeyrissjóðs Vestm., er
296.368.027 kr.
TM-ÖRYGGI
fyrir fjölskylduna
sameinar öll tryggingamálin
á einfaldan og hagkvæman hátt
Bílaverkstæðið
Bragginn s.f.
Flötum 20
Viðgerðir og smurstöð
Sími 481 3235
Rettingar og sprautun
SímL481 1535
Sk ípot bíll
EIMSKIP
sími: 481 3 500
sími: 481 3500