Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 12.12.2002, Blaðsíða 10

Fréttir - Eyjafréttir - 12.12.2002, Blaðsíða 10
10 Fréttir Mmmtudagur 12. desember 2UU2 Verslunin Miðbær er þrjátíu ára um þessar mundir en verlsunin var stofnuð 6. október 1972. Hún er í eigu hjónanna Ágústu Guðmundsdóttur og Guðna Pálssonar. Ágústa, eða Dúddý eins og hún er alltaf kölluð, hefir séð um allan daglegan rekstur og jafn- hliða honum verið við afgreiðslu í versluninni. Þau eru því ófá handökin sem hún hefur innt af hendi á sínum þrjátíu ára kaupmannsferli og vinnutími oft lang- ur. Starfið snýr ekki eingöngu að þjónustu og lipurð við viðskiptavininn heldur þarf að huga að ýmsum öðrum þáttum. Inkaupaferðir geta oft verið strangar og vandasamt að velja réttu vörurnar því tískan breytist frá degi til dags. Það þarf að taka upp vörur, stilla út í glugga svo eitthvað sé nefnt. Utanaðkomandi og óvæntir þættir geta líka haft áhrif á verslun og viðskipti rétt eins og í lífinu sjálfu. DÚDDÝ: Ég verð þó vör við að fólk gerir miklu meiri kröfur í dag en áður. Það vill gott vöruúrval og að hlutirnir séu til þegar það þarf á þeim að halda og auðvitað gerum við kaupmenn allt sem við getum til að koma til móts við þessar þarfir. Dúddý í Miðbæ hefur staðið í baráttunni í 30 ár: Verslun í heimabyggð kemur okkur öllum til góða Gosið setti strik í reikninginn Dúddý og Þorsteina Pálsdóttir hófu verslunarrekstur í húsnæði neðarlega á Kirkjuveginum 6. október 1972. „Eggert Sigurlásson, bólstrari frá Reynistað, var að stækka við sig og við keyptum húsnæðið af honum,“ segir Dúddý. „Miðbæjamafnið kom þannig til að allar búðir á þessum tíma hétu bær eitthvað eins og Kamabær og þess vegna ákváðum við að láta búðina okkar heita Miðbæ.Við versl- uðum með kvenföt og snyrtivörur en þá voru miklu fleiri verslanir hér í Eyjum en nú.“ Dúddý og Þorsteina unnu báðar í versluninni en reksturinn hafði ekki staðið nema í rúma þrjá mánuði þegar gosið setti strik í reikninginn. „Satt að segja var þetta meiri vinna en við áttum von á í upphafi og við unnum kauplaust við þetta frá morgni til kvölds. Gosið raskaði auðvitað öllum okkar plönum og verslunarhúsnæðið fór undir hraun. Eg átti satt að segja ekki von á því að ég færi út í slíkan rekstur aftur og neyddist eiginlega til þess. Húsið okkar að Búastaðabraut 1 var í veði fyrir atvinnuhúsnæðinu. Þar af leiðandi urðum við að halda áfram og fjárfesta í nýju atvinnuhúsnæði. Annars hefðum við ekki fengið húsið okkar greitt út úr Viðlagasjóði nema á fimmtán ára skuldabréfi. Verðbólgan var svo mikil á þessum tíma að trúlega hefðu þeir Ijármunir bmnnið upp.“ Til Eyja í september 1973 Dúddý og Guðni ákváðu að flytjast hingað aftur með fjölskylduna í september 1973 þegar í ljós kom að skólastarf færi í gang aftur. „Við leigðum í vesturbænum. Það var eríltt að koma heim aftur að því lcyti að það var allt dimmt og drunga- legt. Það var nánast allt svart þar sem vikur var út um allt og bærinn í sámm. Það var fögnuður þegar hver fjöl- skyldan af annarri flutti til Eyja og Ijósunum fjölgaði í bænum.“ Verslunin Miðbær hóf aftur starfsemi í nóvember 1973 í litlu plássi á Há- steinsveginum. „Eg var áfram með kvenföt, snyrtivömr og krakkaföt. Það var rosalega mikið að gera strax frá því við opnuðum og það kom ekki ósjaldan íyrir að vömr komu inn í búðina að morgni og voru allar famar að kveldi. Það voru ekki nema tvær sams konar búðir í bænum en Marý og Kolli vom byijuð með Mósart áður en Miðbær fór af stað aftur. Þetta var fínn tími og gaman að vera með verslun því það gekk mjög vel." I byrjun maf 1974 flutti verslunin í nýtt húsnæði en þá keyptu þau Dúddý og Guðni húsnæði á Hilmisgötunni. Skemmtilegur tími „Þá fóm að konta fleiri búðir og þetta var rosalega skemmtilegur tími. Fólk- inu fjölgaði og allt fór að komast í gang aftur. Uppbygging gekk hratt og vel fyrir sig og áður en maður vissi af var hér fullt af fólki. Þó svo að Vestmanneyingar kæmu margir hverjir ekki aftur eftir gos kom nýtt fólk í staðinn sem fannst Vestmanna- eyjar vera spennandi kostur. Fólk kom hingað að vinna á vertíð og á sumrin var hér fullt af skólakrökkum sem vom á kafi í vinnu.“ Verslunin var á Hilmisgötunni til ársins 1979 en þá keyptu hjónin það húsnæði sem verslunin er í núna. Miðbær er nú við Miðstræti og er það vel við hæfi. „Húsnæðið við Mið- strætið hafði ekki verið í notkun frá því fyrir gos en þá voru hér tvær verslanir. Gunna Lofts var með Verslun Önnu Gunnlaugsson öðmm megin og Gísli úrsmiður var í hinum endanum. Við lagfærðum og opnuð- um húsnæðið og gerðum úr því eitt verslunarpláss." Þegar Dúddý er spurð hvort miklar breytingar hafi orðið í versluninni á þeim þrjátíu ámm sem hún hefur staðið í þessu segir hún verslunina miklu jafnari og stöðugri en var. „Eg fmn ekki svo mikinn mun á jrví hvort fólk verslar meira eða minna, ég á alltaf mína föstu viðskiptavini. Aðal- munurinn er að það er færra fólk héma því hér var vertíðarfólk og krakkar að vinna á sumrin. Svo hefur orðið fækkun í bænum eins og allir vita. Ég verð þó vör við að fólk gerir miklu meiri kröfur í dag en áður. Það vill gott vöruúrval og að hlutirnir séu til þegar það þarf á þeim að halda og auðvitað gerum við kaupmenn allt sem við getum til að koma til móts við þessar þariir." Flytur sjálf inn vörur Dúddý segir samstarf milli kaup- manna mjög gott en Félag kaup- sýslumanna haíi verið miklu virkara á ámm áður og beitt sér fyrir ýmsum málum í sambandi við vömflutninga og fleira. Hún hefur alltaf flutt inn vömr auk þess að versla við innlenda heildsala. „Ég hef ,frá því ég byrjaði að starfa sem kaupmaður, flutt sjálf inn vömr. Fyrstu árin flutti ég inn í gegn um Danmörku og Svíþjóð en þá komu sölumenn til landsins og kynntu vömr sínar. Ég fer út nokkmm sinnunt á ári í innkaupaferðir, maður verður alltaf að vera með það nýjasta sem er í gangi hverju sinni. Margir kaupmenn eru famir að nota netið og panta vömr þannig en ég vil sjá það sem ég er að kaupa. Ég versla aðallega í París, London og Amsterdam og við eram oft tvær til þrjár í samfloti að versla fyrir okkar búðir. Þetta em vinnuferðir og við emm komnar út klukkan átta á morgnanna og emm að til klukkan sjö á kvöldin. Þá fer maður að sofa því við emm lúnar eftir daginn eftir að hafa verið í heildsölum allan daginn. Við fömm ekki á sýningaren pöntum vömr fyrirfram og emm auðvitað þama gagngert til að kaupa. Það fylgir því talsvert álag að finna út réttu vörurnar en mér flnnst París frábær borg, falleg og stutt í allt. Nú getum við tekið lest frá London til Parísar en þessu fylgja óneitanlega mikil og oft þreytandi ferðalög.“ Hvað með tískuna, þarftu ekki alltaf að jyjgjast með tískustraumum? „Ég þarf að fylgjast vel með og það eru miklar breytingar á milli ára. Tískan fer alltaf í hring og það sem var í tísku fyrir nokkmm ámm kemur alltaf aftur. Nú em aftur komnar mokkakápur og best-úlpur en sniðið er að vísu aðeins þrengra. Maður þarf að vera móttækilegur fyrir tískunni ef ætlunin er að standa í þessu. Sumt gengur og annað ekki. Utvíðar buxur vom í tísku á sínum tíma síðan koma

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.