Íþróttablað Hafnarfjarðar - 01.12.1947, Side 2
2
ÍÞRÓTTABLAÐ HAFNARPJARÐAR
Það var öllum ljóst að talsverðann tíma
myndi taka að koma upp „íþróttavelli“ í Víði-
stöðum. Því var það, að fram kom tillaga þess
efnis, að garnli íþróttavöllurinn yrði stækkað-
ur, svo að hann næði fullri stærð knattspyrnu-
vallar. Vorið 1946 var hafist handa um þetta
mál. Var uppfylling gerð við norður- og aust-
urkant. Vannst það verk bæði fljótt og vel. En
síðan hefur þessu verki ekkert miðað, þrátt
fyrir ýtrekaðar áskoranir um að verk þetta
yrði fullgert, svo að hér í Hafnarfirði væri
upp kominn völlur af lögboðinni stærð fyrir
1. flokk í knattspymu.
Krafa Hafnfirzkra íþróttamanna, önnur í
röðinni er því sú að völlurinn á Hvaleyrarholti
verði fullgerður á næsta ári, þannig, að hann
verði, minnsta kosti 100X65 metrar að stærð
Þetta er krafa önnur í röðinni, en eftir öll-
um sólarmerkjum að dæma verður hún að
ganga fyrir öðrum framkvæmdum. Því, ef
knattspyrnumenn okkar fá ekki þessa sann-
girniskröfu fram á næsta ári, þá getur ekki
hjá því farið að stór hnekkir verði að. Því þeg-
ar er farið að bera á því, að eldri knattspyrnu-
menn geta ekki með góðu móti æft sig á þess-
um gamla velli, og sækja æfingar til Reykja-
víkur þar sem æfingarskilyrði eru betri, og þar
með eru þessir menn okkar alveg tapaðir.
Vonandi þarf ekki að leggja fram tillögu á
næsta þingi í. B. H. um stækkun gamla vallar-
ins, bæjarstjórn mun sjá um það. Þriðja mál
þings og stjórnar í. B. H. hefur verið, er og
verður þar til það er til lykta leitt, er nýtt
leikfimishús hér í Hafnarfirði. íþróttaliús af
fullkominni gerð. Eins og nú standa sakir, er
um kyrrstöðu að ræða í innanhúsæfingum í-
þróttamanna hér í Hafnarfirði. Hús það sem
notast verður við er bæði lítið og ófullkomið.
Félögin hér sleppa aldrei tækifæri til að
þreyta við félög í Reykjavík í handknattleik,
En sá er munur, að þar búa félögin við marg-
falt betri skilyrði en hér. Þess er krafist að fé-
lögin hér standi félögum þar á sporði, en búa
við langtum verri aðstæður hvað húsrúm
snertir. Ef íþróttamenn okkar eiga að keppa
við félögin í Reykjavík áfram þá verða þau
að búa við svipaðar aðstæður og þar eru, ann-
ars kemur kyrkingur í þessa starfsemi hér.
Því er það krafa íþróttafélaganna og um leið
krafa stjórnar í. B. H. Fullkomið „íþróttahús“
hér í Hafnarfirði.
Sundlaugin þegar hún var byggð, var ekki
þannig úr garði gerð að viðunandi væri Þar
sem hún var opin. Enda létu annmarkarnir
ekki á sér standa. Nú mun hafa verið ráðin
bót á ýmsum þeim annmörkum, sem verið
hafa, ennþá er hún samt opin og spillir það
fyrir aðsókn að henni. Hún þarf því að yfir-
byggjast og það sem fyrst. Nokkurn tírna
mun það taka að ala upp unglinga svo að
þeir standi á sporði sundmönnum Reykjavík-
ur. Þegar Sundlaugin hefur verið yfirbyggð
þá er hægt að fara að hugsa fyrir því. Minnsta
kosti ætti að vera hægt að ala upp sundfólk
hér, sem ekki stæði Reykjavíkursundfólkinu
lengra að baki en þeir íþróttamenn sem komið
hafa fram á öðrum sviðum. Krafa íþrótta-
manna og í. B. H. er því yfh'byggð sundlaug
og fullkomin á alla lund.
Eitt þeirra mála, sem fram hafa komið á
þingum í. B. H. og félögin og stjórn í. B. H.
hafa lagt mikla áherzlu á og unnið, er bygging
Skíðaskála fyrir hafnfirzkt íþróttafólk.
Skíða- og Skautafélag Hafnarfjarðar hefur
aðallega haft þetta mál með höndum. Nú er
svo komið fyrir ötula framgöngu þessa félags,
að mál þetta er komið í örugga höfn, þar sem
búið er að koma upp skálanum. Skálinn stend-
ur í Hveradölum á Hellisheiði. Stendur hann
á hinum fegursta stað og er hinn snotrasti.
Mest allt verkið hefur verið unnið í sjálfboða-
liðsvinnu félaganna í S. S. H.
Þegar skálinn er alveg tilbúinn, er algerlega
bætt úr því ástandi, sem vöntun slíks skála
hafði á skíðaferðir héðan úr bænum. Þá verð-
ur hægt að senda flokka frá skólunum til dval-
ar í skálanum og skíðanáms.
Við skálann eru sléttir vellir og má þar
með litlum tilkostnaði koma upp velli til í-
þróttaiðkana í ýmsum öðrum greinum íþrótta.
Enginn vafi er á því að íþróttafólk mun kunna
að meta að verðleikum þetta framtak sem S.
S. H. hefur sýnt. Þá er og vert að minnast,
þess góða skilnings, sem hið opinbera, Bæj-
arstjóm Hafnarfjarðar hefur sýnt í þessu máli,
með rausnarlegum fjárstyrk, kr. 15.000.00.
Þetta sýnir, að að því mun koma að á næstu
árum mun rísa hér í Hafnarfirði eitt íþrótta-
mannvirkið upp eftir annað, þar til sú lausn
er fengin að við búum við góð skilyrði hvað
íþróttamannvirki snertir.
Þó að hér hafi verið minnst á fjögur verk-
efni aðallega, þá eru það æði mörg mál, sem
í. B. H. hefur með höndum. Margt þeirra
mála eru dægurmál, sem íþróttaforystunni eru
falin og koma fram ár eftir ár. En mörg eru
Það er byrjað að skyggja. Nokkrir skíða-
garpar koma brunandi á skíðum niður í Hvera
dalina. Þeir stanza á brúninni og horfa heim
að skálanum. Þeir eru glaðir í bragði, er þeir
líta niður síðustu brekkuna, þarna er skálinn
þeirra, sem þeir sjálfir hafa byggt. Þeir hlakka
til að koma heim í skála, setjast fyrir framan
arininn og njóta hvíldarinnar eftir skemmti-
legan en erfiðan dag.
Við þeim blasir skálinn uppljómaður, og til
þeirra berast ómar af söng og hljóðfæraslætti.
Á flötunum fram undan skálanum er eggslétt
skautasvell, þar sem Hafnfirzkar skautastjörn-
ur sína listir listir sínar við glampandi ljós frá
kastara á skálanum
Alveg rétt, þetta eru draumórar, — ennþá —
framtíðardraumur Hafnfirzkra skíðamanna,
sem reyndar eru að rætast. Skálinn er risinn af
þau mál, sem erfitt er að koma í framkvæmd
aðallega vegan féleysis. Má þar nefna læknis-
skoðun íþrttamanna. Það mál er afar þýðing-
armikið, en vegna féleysis, hefur það ekki
komist í örugga höfn.
Vandamál æskulýðsins í félögunum er líka
mál, sem leiða þarf til lykta á breiðum grund-
velli.
Stofnaður hefur verið íþróttasjóður og er
tilætlunin með honum, að láta hann ganga
til þeirra mannvirkja, sem mest eru aðkall-
andi í það og það skiftið. Sjóður þessi er
mjög lítill enn sem komið er, og erfitt að safna
í hann ,en vonir standa til þess að takast megi
að finna tekjugrundvöll fyrir hann, svo að á
næstu árum verði veitt úr honum. Nú er hann
bundinn því skilyrði, að veitt sé úr honum
til „íþróttahúss“.
Þá hefur stjórn í. B. H. komið af stað um-
ræðum um aukin samskifti við önnur íþrótta-
bandalög, íþróttalega, með heimsóknum til
þeirra og þeirra heimsókn til okkar. Er enginn
vafi á því að ef af þessu verður, þá kemur það
til að verða mikil lyftistöng íþróttunum hér.
En til þess að þetta geti orðið, þarf stjórn í. B.
H. að hafa meira fé handa milli, en undan-
farið hefur verið.
Er það von stjórnar í. B. H. að bæjarstjórn
veiti hærri styrk til starfsemi félaganna og
bandalagsins eftirleiðis, en hingað til. Bærinn
skal fá það greitt með fleiri íþróttamönnum.
betri íþróttamönnum. Fjölbreyttari íþrótta-
starfsemi, betri áröngrum. Betri og nýtari
borgurum þessa bæjarfélags. Betri íslending-
grunni. — En Róm var ekki byggð á einum
degi, og mikið er enn eftir að vinna við skál-
ann áður en hann er fullger.
Allt frá stofnun Skíða- og Skautafélags
Hafnarfjarðar hefur það verið draumur félaga
þess að eignast skíðaskála, og hefur skálamálið
jafnan skotið upp kollinum við og við, en
vegna ýmissa erfiðleika, einkum fjárhagslegra,
hafa framkvæmdir dregizt.
Haustið 1945 voru loks hafnar framkvæmd-
ir í málinu. Var fengið land undir skálann í
Hveradölum, skammt frá Skíðaskála Reykja-
víkur, á mjög skemmtilegum stað. Þá um
haustið var grunnurinn steyptur, og var áætl-
unin þá að halda áfram byggingu skálans strax
næsta vor, en vegna óviðráðanlegra orsaka var
ekki hægt að hefja byggingu skálans fyrr en
nú í haust. Nú er bygging skálans það á veg
um.