Íþróttablað Hafnarfjarðar - 01.12.1947, Síða 6
6
íþróttablað hafnarfjarðar
Starfsemi „Ha.uka“ 1947
Starfsemi íþróttafélaganna er yfirleitt meiri
en annarra félaga, þar sem verulegur hluti
þeirra starfar allt árið. Allt starf félaganna
er unnið í sjálfboðavinnu og þar sem almenn-
ur áhugi ríkir, er þetta raunar létt starf.
Hingað til hafa „Haukar“ átt því láni að
fagna, að almennur áhugi hefur verið meðal
meðlimanna og hefur það átt verulegan þátt
í velgengni félagsins undanfarin ár.
í þessu stutta yfirliti mun ég leitast við að
skýra nokkuð starfsemi félagsins á þessu ári.
KNATTSPY RNAN
Eins og að venju hafa verið haldin hér í
bænum vor- og haustmót og Rafha-mótið. Á
vormótinu kepptu fjórir aldursflokkar, þ. e.
1., 2., 3. og 4. aldursflokkur. Leikar fóru þann-
ig að „Haukar“ unnu 3. fl. og þar með bikar-
inn, sem kept var um, til eignar. Um þennan
bikar hefur verið keppt síðan 1940 og hefur
oft verið mjög tvísýn keppni um þennan grip,
sem gefinn er af nokkrum áhugamönnum í
Reykjavík. Var þetta í fimmta skipti, sem fé-
lagið hafði unnið bikarinn. Á vormótinu
hlutu „Haukar“ 4 stig. F. H. vann mótið,
hlaut 6 stig og sá það um mótið að þessu
sinni.
Á Rafha-mótinu þurfti tvo leiki til að fá
úrslit. Fyrri leikurinn var jafntefli, en seinni
leikinn vann F. H.
Á hausutmótinu var keppt í þremur aldurs-
flokkum, 1., 2. og 3. aldursflokki. Leikar fóru
þannig ,að „Haukar“ unnu í 1. og 3. fl., en
F. H. í 2. fl. Þurfti að leika tvo leiki í 2. og
3. fl. til að fá úrslit; fyrri leikur varð jafntefli
í báðum flokkum. „Haukar“ unnu því haust-
mótið, hlutu 6 stig, en F. H. hlaut 4 stig.
Eftir bæði mótin, vor- og haustmót, hlutu fé-
lögin jafnmörg stig, eða 10 : 10. Það félag,
sem hlýtur fleiri stig eftir bæði mótin, hlýtur
bikar og nafnbótina „Knattspyrnumeistarar
Hafnarfjarðar“. Þar sem stigin voru að þessu
sinni jöfn, þá er farið eftir hvort félagið hef-
ur skorað fleiri mörk, en það reyndist vera
F. H., sem skoraði tveimur mörkum fleira
en „Haukar“. Hefur það einu sinni komið fyr-
ir áður, að sama hefur skeð, að stig urðu jafn-
mörg eftir bæði mótin, og hafði þá F. H. eitt
mark yfir „Hauka“. Stigabikarinn, sem gef-
inn er af í. S. í., hafa „Haukar“ hlotið þrisvar
en F. II. fimm sinnum.
Þá hafa verið á þessu ári send sameiginleg
lið félagann (F. H. og ,,Hauka“) á 2. og 3.
fl. landsmót í knattspyrnu og var keppt undir
nafni í. B. H.
3. fl. landsmótið var að þessu sinni háð hér
í Hafnarfirði. Mörg félög sendu flokka til
þáttöku og var það félag sem tapaði tveimur
leikjum, úr mótinu.
Hafnfirðingarnir voru óheppnir að því leyti
að sumir af beztu piltunum voru ekki heima
í sumar. Kepptu 3. fl. tvo leiki og tapaði báð-
um. Eins fór það á 2. fl. mótinu, sem að þessu
sinni var háð á Akranesi. Flokkurinn keppti
tvo leiki, tapaði báðum og var þar með úr
mótinu.
HANDKNATTLEIKUR
„Haukar“ sendu 5 flokka á handknattleiks-
mót íslands (innanhúss), samtals um 40 kepp-
endur. Á þessu móti reyndust „Haukar“ ekki
eins sigursælir og oft áður og er það mjög
skiljanlegt, þar sem reykvísku félögín hafa
miklu betri aðstöðu til æfinga. í meistara-
flokki karla háðu „Haukar“ mjög spennandi
og tvísýnan leik við Val. Varð jafntefli (8 : 8)
og var þetta fyrsti leikur í meistaraflokki á
þessu móti. Lýsing á leiknum var tekin upp
á stálþráð og síðan útvarpað.
Bæjarkeppni var háð milli Hafnfirðinga og
Reykvíkinga í meistaraflokki karla og kvenna
og unnu Reykvíkingar í báðum flokkum.
Að þessu sinni tóku „Haukar“ ekki þátt í
hrað-keppnismóti kvenna. Hafnarfjarðarmótið
í handknattleik var haldið eins og að venju og
sáu „Haukar“ um það. Var það haldið í Engi-
dal. Af fjórum flokkmn, sem tóku þátt í mót-
inu, unnu „Haukar“ aðeins einn, sem var
meistaraflokkur karla.
Þá hafa „Haukar“ leikið ýmsa aukaleiki
meistaraflokkar karla og kvenna m. a. á 17.
júní hátíðahöldunum léku og unnu „Haukar“
báða leikina.
ÆFINGAR OG SKILYRÐI TIL ÆFINGA
í SUMAR
Eins og undanfarin ár hefur knattspyma
verið æfð á íþróttavellinum á Hvaleyrarholti.
Eins og kunnugt er er sá völlur orðinn gamall
og allt of lítill til að hægt sé að ná verulegum
árangri, auk annarra ókosta, svo sem legu.
Eins er þar ekkert skýli fyrir knattspymu-
mennina eða afdrep til að klæða sig úr og í,
þegar slæmt er veður. Til þess að sæmilegur
árangur náist, þarf völlurinn að vera a. m. k.
jafn stór og knattspyrnuvöllurinn í Reykjavík.
Þá fyrst er hægt að gera sér vonir um að hafn-
firskir íþróttamenn standi reykvískum knatt-
spyrnumönnum á sporði. Eins og er, er völl-
urinn hér hæfilegur fyrir 3. aldursflokk. í
sumar var eins og kunnugt er mjög óhagstætt
tíðarfar og var þessvegna mjög lítið æft.
í sumar æfði kvenflokkar félagsins hand-
knattleik í Engidal, en „Haukar“ hafa haft
svæðið á leigu undanfarin ár. Þrátt fyrir ó-