Harmonikublaðið - 01.12.2012, Blaðsíða 13

Harmonikublaðið - 01.12.2012, Blaðsíða 13
firdi. Halldór Pétur hefur spilað á þremur landsmótum síðan. í Neskaupstað var það ungliðasveit undir merkjum FUHR sem Guð- mundur stýrði. Á landsmóti í Keflavfk spil- aði kvartettinn, en auk Halldórs Péturs voru það Jónas Ásgeir Ásgeirsson, Flemming Viðar Vatmundsson og Benedikt Kristján Magnússon ásamt kontrabassaleikara og trommuleikara, en ég man ekki nöfnin á þeim tveimur. Á síðasta landsmóti á Hellu 2011, hafði Álfheiður Gló bæst f hópinn og þar kominn kvintettinn. Hvernig starfar kvintettinn? Fyrstvarþetta hópuraf harmonikuspilurum, sem var kominn nokkuð lengra en hinir, en svo varð hann að kvartett. Kvartettinn hélt tónleika, þá síðustu í Guðrfðarkirkju árið 2010. Benedikt fór svo til Danmerkur í nám og Haukur Hlíðberg og Gló bættust við og þannig varð kvintettinn til. Við æfum yfir veturinn tvisvar í viku, en höfum enn ekki haldið sjálfstæða tónleika, en vonandi kemur að því áður en langt um Ifður. Pessi hópur er góður og okkur fellur samstarfið vel. Við tökum þetta alvarlega og höfum metnað fyrir þvf að leggja okkur fram. Ég æfi tildæmisalla daga vikunnarnema einn. Það er fastur liður hjá mér að taka einn dag íviku sem égspila ekki. Efeitthvað erfram- undan, tónleikar eða slíkt þá æfi ég oft marga klukkutíma á dag. Ég komst að því að Halldór Pétur á litla diatoniska harmoniku sem hann segist lítið kunna á, en væri til í að breyta því og læra áð fara með hana. Hann sagðist hafa keypt hana á írlandi. Hvað varstu að gera úti á írlandi? Ég fór þangað fyrir nokkrum árum með stórri hljómsveit á vegum Tónlistarskólans íGrafarvogi. Þarvoru mestanpart fiðlurog bara ein harmonika í hópnum, það var harmonikan mín. Mérfannst gaman að spila með þessari sveit og ferðin var mjög góð. íHörpu med stjórnandanum eftir frábæra frammistödu ÍNótunni, Tónlistarkeppni tónlistarskólanna. Frá vinstri: Haukur Hlíðberg, Flemming Viðar, Álfheidur Gló, jónas Ásgeir, Halldór Pétur, Guðmundur Samúelsson. Þetta var úti í sveit í litlum bæ og það var afskaplega fallegt að koma þangað og margt ólíkt því sem er hér. Þetta var stór tónlist- arhátfð og fólk kom víða að til að spila og heyra í öðrum. Svo sá ég þessa litlu harmon- iku í hljóðfæraverslun og keypti hana. Hún var frekar ódýr. Nú veit ég ekki hvað Halldór Pétur miðaði Kvintett. SpHað íBYKO fyrir jólin. við með ódýrt, en lík- lega hefur það verið takmarkað skotsilfur hans í ferðinni frekar en hljóðfærið sem hann spilaroftastá. Það er kjörgripur afgerðinni Ballone Burrini frá Castelfidardo á Ítalíu, sem er Mekka harm- onikunnar. Svona hljóðfæri kostar nokkurn veginn eins og góður fjölskyldubfll og þarf að Ifta vel eftir á ferðalögum. Með vinum sínum íHarmonikukvintettReykjavíkurí Grafarvogskirkju eftir útskriftartðnleika Halldórs Péturs. Frá vinstri: Álfheiður Gló Einarsdóttir, Ftemming Viðar Valmundsson, Guðmundur Samúelsson stjórnandi, Halldór Pétur Davíðsson, Haukur Hlíðberg, Jónas ÁsgeirÁsgeirsson. Mynd: RagnarAntonsson. Hver eru svo framtíðarplönin? Mig langar að fara í tónlistarháskóla og ég stefni á að fara til Danmerkur. Þar er sérstök harmonikudeild við háskólann og mjög góð kennsla. Eftirnám þaroge.t.v. vfðarþáget ég hugsað mér að kenna harmonikuleik. Ég myndi vilja að eingöngu yrði kennt hér á hnappaharmoniku. Hún hefur margt fram yfir píanóharmonikurnar, einkum fyrir þá sem eru að byrja. Það er meiri breidd í henni, gripin eru auðveldari ogfingrasetn- ingin léttari. Svo hefði ég viljað auka kennslu í tónfræði og tónheyrn í tónlistar- skólum. Ég held líka að undirstöðuatriði í jasstónfræði væru mjög gagnleg, því jass- inn veitir ákveðið frjálsræði í tónlistinni. Svo er óskaplega mikið atriði að lögð sé áhersla strax í upphafi á góða og rétta líkamsbeitingu, stöðu handanna og mörg smáatriði sem þurfa að vera f lagi frá upp- hafi. Guðmundur þreyttist aldrei á að brýna þetta fyrir okkur og það hefur komið sér vel. Mig langar til þess að auka veg harmonik- unnar sem mest. Helst að um hana geti skapast hreyfing áhugafólks sem vex eins og snjóbolti og hleður utan á sig. 13

x

Harmonikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.